Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989. 37 DV Þegar málning flagnar - Hvað getur þú sagt um hús sem sögð eru í lagi en málning flagnar samt af? „Til eru tilfelli þar sem málning flagnar af án þess að um steypu- skemmdir eöa raka sé að ræða. Það er í flestum tilfellum því um að kenna að þar hefur verið málaö á duftsmit- andi undirlag. Til að ganga úr skugga um slíkt er nóg að strjúka fingrum eftir yfirborðinu. Þegar vatnsþynn- anleg málning er notuð á slíka fleti nær hún ekki að smjúga í gegnum duftið. Þá er bara spuming um tíma hvenær byrjar að flagna.“ - Meinar þú að í 90% tilvika sé í lagi að mála hús án þess að vandamál komi upp? „Nei, en það er hægt að segja það með þeim formerkjum að með rétt- um aðferðum sé hægt að láta þessi efni, sem eru á markaðnum, endast í 10-15 ár án verulegs viðhalds. Vandamálahúsin eru í hinum tíu prósentunum eða þar undir. Þá þarf jafnvel að klæða húsin. í sambandi við þær byggingar þar sem ekkert sérstakt er að, nema kannski litlar sprungur í pússningu eða út frá gluggum, er hægt að gera við þannig að það sé til friðs.“ - Hvað er til ráða þegar húseigandi uppgötvar að flöturinn er duftsmit- andi? „Ef veggur er duftsmitandi er ann- aðhvort að fjarlægja duftið eða binda það. Ef veggurinn er háþrýstiþveg- inn skilar það yfirleitt árangri. Einn- ig er hægt að nota duftbindandi grunn (festi). Hann verður þó að setja á í mátulega miklu rnagni." Hvemig virka vatns- fælur? - Hvað um vatnsfælur? „Það hefur verið sýnt ffam á að verulega er hægt að lækka rakastig í veggjum með monosilan eöa siloxan svo framarlega sem ekki er málað strax yfir. Efnin virka þannig að eft- ir að þau hafa verið borin á sogast regnvatn ekki lengm- inn í steypuna en hún hleypir óæskilegum raka út. Ef mikill raki er í veggjum er þetta rpjög heppilegt. Hvort þarf svo að nota silan imdir málningu við eðh- legar aðstæður er svo aftur spurning og hvaða vatnsfælu á þá að nota. Því vatnsdrægari sem steypan eða múr- húðunin er, því meiri ástæða er til að nota vatnsfælur. Þetta er nú verið að rannsaka - samnotkun á vatns- fælum (silan) og málningu í stein- steyptum veggjum." - Nú eru til bandarískar reglugerðir um notkun á silikonefnum sem hafa verið á markaði hér ffá 1960 - hvers vegna voru þau ekki notuð fyrr en raun ber vitni? „Þau efni voru fyrst og fremst tahn góð og gild á fleti sem ekki átti að mála. Monosilan og siloxan efni hafa ekki verið áberandi á markaði hér fyrr en á þessum áratug. Yflr þau er aftur hægt að mála. Það eru veruleg- ar likur á því að þessi efni geri steyp- unni ekki ógagn. Það er aftur spurn- ing um hvenær ástæða er th að nota þau. Ef sprungunet er fyrir hendi er efnið mjög æskhegt. Nokkrir val- kostir eru fyrir hendi: Sá fyrsti er að setja aðeins vatnsfælu á sprungu- net og fíngerðar sprungur á rigning- arhhöum húsa. Annar er að bera á fíngerð net á öhu húsinu. Sá þriðji er að setja á rigningarhliðar hvort sem sprungur eru eða ekki og sá síð- asti er að bera á aUt húsið og tryggja sig betur þannig. Það er auðvitað dýrast. Þannig eiga skilyrðin aðvera þegar málað er - Hver eru helstu atriðin sem á aö hafa í huga við málningarfram- kvæmdir fyrir utan að gá til veöurs og skoða auglýsingar? „Þegar málað er á nýjan múr eða vegg er aðalatriðið að fletir séu ekki duftsmitandi. Síðan þegar menn eru vissir um aö undirlagið sé í lagi þurfa skUyrðin að vera í lagi. - Efmaðurætlaraðmálameðvatns- þynntri málningu má veggminn ekki vera of þurr. GARÐASTÁL Aratuga ending - margir litir Hús og garðar = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 Rögnvaldur S. Gislason er efnaverkfræðingur og gefur lesendum góð ráð um málningarframkvæmdir. Hann segir að neytendur eigi að geta fengið meira fyrir þá peninga sem það notar til þeirra verka. DV-mynd S (§} GARDENA Plöntuúðari - Ef fólk ætlar að mála með terpen- tínuþynnanlegri (akryl) málningu verður flöturinn helst að vera þurr. - Þegar á að bera á vatnsfælu- eða sUanefni er betra að undirlagiö sé sem þurrast. Þannig á undirlagið ekki aðeins að vera fast heldur á líka að taka tilht til aðstæðna. - Ef við málum með vatnsþynnan- legri plastmálningu má hitastigið ekki vera of lágt. - Það má heldur ekki vera of mikið sólskin þvi þá þomar öh málning of fjótt og erfitt er að ráða við hana. Undirbúningur, flötur og aðstæður skipta meginmáh. - Síðan ef menn em með vatns- þynnanlega málningu þarf að nudda henni vel inn í vegginn - sérstaklega ef notuð er nUla.“ Endurmálun - Hvað ráðleggur þú í sambandi við endurmálun? „Gífurlegur flöldi tilfeUa mn flagn- aða veggi em aUt í kringum okkur. Það stafar af því að laus málning, sem er undir, er ekki fjarlægð. Þegar gömiU og þykk málning flagnar af kemur duftsmitun oft í ljós þar sem ekki hefur verið rétt að málum stað- ið í upphafi. Best er að fjarlægja aUt af en það er dýrt. í mörgum tilfeUum byggist þetta á því að húseigendur átti sig á þessu og byrji á að leggja út í kostnað við að hreinsa af húsinu. Stundum al- veg, stundum að hluta til en oft dug- ir minna til. Ef málningin situr gegn- umgangangdi fóst á húsinu er yfir- leitt ekki ástæða til þess að fjarlægja hana. En þetta verður að byrja á að skoða. Þetta getur verið spurning um að meta og fá niðurstöðu um hvað á að fjarlægja mikið. Þetta kostar oft mikið en getur skipt sköpum um hvort þarf að mála aftur eftir 2-3 ár eöa eftir 10-15 ár. Seinni kosturinn er að öUu leyti betri." Kostnað við ráðgjöf er hægt að lækka - Þarfþaðaðtakasérfræðingameira en 1-2 klukkustundir að koma og meta húseignir? „Ég er klukkutíma að líta á húsið en skýrslugerð getur tekið fjóra tíma.“ - Erekkihægtaðstyttaþennantíma og þar með kostnað með því að hafa staðlað form sem vant vélritunarfólk er fljótt að afgreiða? „Kostnaður við ráðgjöf núðað við aðgerðir er aðeins lítill hluti af heUd- arkostnaði. En það er rétt að það á að vera hægt að hagræða hlutum betur í þessu sambandi. Vandamálið er kannski frekar aö fólk leitar frek- ar beint til verktaka fremur en óháðra ráðgjafa. En það á að vera hægt að útbúa einfalt eyðublað sem fljótlegt er að vinna með. Málin geta verið flókin en það á samt að vera hægt að taka kúfmn af þessum við- haldsmálum og nota aUavega þá þekkingu sem er fyrir hendi - það myndi spara húseigendum stórfé. Slíka þekkingu og upplýsingar mætti svo endurskoða í ljósi niðurstaðna úr nýjum rannsóknum. Þörf á kynningarátaki Ég hef séð dæmi um ýmsa verktaka sem hafa framkvæmt gjörsamlega vonlaus verk og notað efni sem aUs ekki eiga við miðað við þá þekkingu sem er fyrir hendi. Þaö er ljóst að það er þörf á kynningarátaki. Margir hringja hingað og spyrja um hvaða efni sé best að nota. Það fólk gerir sér ekki grein fyrir því aö fyrst verð- ur maður aö spyrja um hvar eigi að nota efnin. Þama þarf fyrst og fremst að skoða aðstæður og taka svo ákvörðun í framhaldi af því. Þaö er ekki til neitt eitt efni sem er best. ÖU efni hafa sína kosti og gaUa. Þess vegna er svo mikUvægt að velja efni eftir aðstæðum." - Telur þú að auglýsingar gefi ranga mynd af meðhöndlun og eiginleikum málningartegunda? „Já, alveg tvímælalaust. Margar auglýsingar gefa ekki rétta mynd af ástandinu. -ÓTT Áburðargjöf og vökvun með stillanlegri úðun. Verð 1172.- Hægt er að setja uppleysanlegan áburð í úðarann. Þið veljið áburð- inn eftir pöntun. Verð 234.- Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík - Síml 91-680 780 $ GARDENA samhæfð garðverkfæri . . ' ' ; ' CkKltft sólarplast TVÖPALT og ÞREFALT FYRIR GBÓÐURHÚS OG SÓLSKÁLA Kj Háborq hf Skútuvogi 4 ~ 19 S: 82140 & 680380 Góð einangrun. cfooyL hefur 50% betri einangrun en einfalt gler og er helmingi léttara. dociyt er úr acryl plastgleri sem hefur meiri veðrunarþol en önnur plastefni. CkKflfL er einfalt í uppsetningu með álprófílum. PLAST í PLÖIUM ER OKKAR SERGREIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.