Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR Í7. JÍJLÍ'1989. Fréttir ___________________________________________________ Ferð forseta um Austur-Skaftafellssýslu: Borðhald á jökli ]ú]ía Imsland, DV, Homafirði: Dagskrá vegna heimsóknar forseta í Austur-Skaftafellssýslu var fram- haldiö sunnudaginn 16. júh, þó með smábreytingum. Áætlað hafði verið að sigla út fyrir Hornaíjarðarós en sökum þoku var hætt við sjóferðina og haldið út í Skógey í fylgd Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra en þar var glamp andi sól og hiti. Sýndi hann forseta það mikla uppgræðslustarf og heft- ingu sandfoks og eyðingar sem þar hefur farið fram. Úr Skógey var haldið upp á Skála- fellsjökul undir leiðsögn Steinþórs Einarssonar, oddvita Mýrahrepps. Leiðin upp á jökul er hrikaleg og útsýnið stórkostlega fagurt. Farið var um jökulinn á Miðfellsegg og inn í Bimudal á snjóbíl og vélsleðum. Hótel Höfn framreiddi hádegis- verð, kalt sjávarréttaborð, á jöklin- um. Borðið var gert úr snjó. Uppi á því miðju var jaki úr jökullóninu og í hann var höggvinn íslenski fáninn. Rauðar rósir prýddu borðiö og góð aðstaða var til að halda drykkjar- fóngum ísköldum. Af jöklinum var haldið niður í Haukafell, land skógræktarinnar í Haukafehi á Mýnun. Bæjarbúar á Höfn tóku síðan á móti forsetanmn með kaffiveislu í íþróttahúsi staðar- ins. Lauk þar með heimsókn forseta í Austur-Skaftafehssýslu. Boðið var upp á kalt sjávarréttaborð á Skálafellsjökli. DV-mynd Jóna Imsland m Akureyrarflugvöllur líktist alþjóðlegum flugvelli á laugardagsmorguninn þegar þrjár þotur voru þar auk Fokker-vélar Flugleiða og annarra smærri véla. DV-mynd gk Fjórar þotur lentu á Akureyrarflugvelli Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þijár þotur Flugleiða og ein frá Arnarflugi, sem voru að koma frá Evrópu, þurftu að lenda á Akur- eyrarflugvelh vegna þoku og lélegs skyggnis í Keflavík og á Reykjavík- urílugvelh. Sú fyrsta kom aðfaranótt föstudags og fór til baka um hádegi daginn eft- ir. Á föstudagskvöldið komu síðan tvær Flugleiðaþotur til viðbótar, nýju þotumar Aldís og Eydís, og ein Boeing 737 þota frá Amarflugi. Ekiö var með farþega úr tveimur þotunum, sem komu aðfaranótt laug- ardags, í Staðarskála i Hrútafirði en þangað komu bifreiðar frá Reykjavík sem sóttu fólkið. Farþegar úr einni þotunni biðu á Akureyri fram undir hádegi á laugardag en þá komust þeir í burtu. Þeir farþegar þurftu aö - hafast við í flugstöðinni um nóttina. Þotulaust varð orðiö á Akureyri síö- degis á laugardag. Saumastofan Tex-Stíll til Akraness Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: Reykvíska saumastofan Tex-StíU hyggst flytja starfsemi sína tfl Akra- ness og er búist við að fyrirtækið muni veita þar um 25 manns atvinnu ef af flutningi verður. Samningaviö- ræður saumastofunnar og bæjaryflr- valda á Akranesi hafa staðið yfir í nokkrar vikur en gert er ráð fyrir að niðurstaða fáist í þessari viku. Eins og komiö hefur fram í DV stendur hús Hensons á Akranesi autt og mun Tex-Stíll væntanlega flytja í húsið. Atvinnuleysi iðnverkakvenn'a á Akranesi hefur verið talsvert síðan starfsemi Hensons stöðvaðist. Þann- ig em 44 iðnverkakonur skráðar at- vinnulausar nú. Tilkoma nýs fyrir- tækis í fataiðnaði mundi lækka þá tölu verulega. Náist samkomulag milh Akranes- kaupstaðar og Tex-Stíls mun At- vinnuþróunarsjóður Akraness, sem er í eigu bæjarins, kaupa hlutafé í fyrirtækinu en einnig verður athug- að hvort aörir aðilar hafi áhuga á hlutafjárkaupum. Enn er reglugeröum breytt vegna söluskattsmála: Þurfum ekki bankaábyrgð - segir Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis Að sögn Jóhanns G. Bergþórsson- ar, forstjóra Hagvirkis, telja for- ráðamenn fyrirtækisins að ekki þurfl að leggja fram bankaábyrgð til að komast hjá lokunaraðgerðum í kjöl- far niðurstööu ríkisskattanefndar sem úrskurðaði að fyrirtækið ætti að greiða 108,1 milljón í söluskatt. Vitnar Jóhann í því sambandi í nýja reglugerð, no. 348, sem fjármálaráðu- neytið gaf út í síðustu viku og er til breytingar á fyrri reglugerö, no. 319, um innheimtu á vangoldnum sölu- skatti. Telur Jóhann að þessi nýja reglu- gerð gefi honum heimild áfram til að gefa sérstaka drengskaparábyrgð á meðan máhð er til meðferðar hjá dómstólum. Telur Jóhann af og frá að fyrirtækið geti lagt fram banka- tryggingu en það myndi rýra mjög rekstrarstöðu fyrirtækisins. Ef drengskaparábyrgð dugar ekki þá taldi Jóhann að hægt væri aö taka veð í eigum fyrirtækisins þar til meðferð málsins fyrir dómstólum verður lokið. Kjartan Þorkelsson, fufltrúi sýslu- manns í Rangárvaflasýslu, sagði að embættið hefði kröfuna enn til inn- heimtu. Engin ákvörðun hefði þó veriö tekin um hvernig að þeirri inn- heimtu yrði staðið. Þá má geta þess að sú lækkun sem varð á meintri söluskattsskuld Hag- virkis hjá ríkisskattanefnd er til samræmis við það sem fært haföi verið í ársreikning Hagvirkis. Fyrir- tækið haföi sett inn þennan sölu- skatt í ársreikning með fyrirvara, .....vegna varfæmissjónarmiða." -SMJ Harður árekstur varð á mótum Sogavegar og Réttarholtsvegar um áttaley- tið i gærkvöldi. Var tvennt flutt burt í sjúkrabil. Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög árekstursins en við þessi gatnamót er stöðvunarskylda á um- ferð um Sogaveg. DV-mynd S Þyrla Lanndhelgisgæslunnar -ELA/DV-mynd S Bílvelta varð við Hvamm í Norðurárdal um hádegisbihð á laugardag. Þrennt var í bílnum og slasaðist allt nokkuð. Tveir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akra- nesi en þyrla Landhelgisgæsl- unnar flutti einn til Reykjavíkur. Talið er að um ölvunarakstur hafi verið að ræða. Höfti: Skemmdir á bát í bruna JúHa Imslaiid, DV, Hcfe Slökkvilið Hornafjaröar var kallað út kl. 17.30 á laugardag vegna elds i Þinganesi SF 25 þar sem þaö lá við bryggju. Töluverö- ur eldur var í bátnum og mikill reykur. Slökkvistaifið tók um eina og hálfa klukkustund. Taf- samt reyndist að komast fyrir eld í glussatanki. Mestar skemmdir vegna brun- ans uröu á tækjum og húnaði f brú og á rafkerfi í vélarrúmi en vélar munu óskemmdar. Þinga- nes er 70 tonna eikarbátur, smíð- aður 1960 og hefur verið á humar- veiðum. Róleg ftelgi í Reykjavík „Þetta er ein rólegasta helgi sem við höfum upplifað lengi,“ sagði varðsfjóri hjá lögreglunni í Reykjavík i samtali við DV í gær. Fámennt var í miðbæ Reykjavík- ur og svo virtist sem mikill flöldi manna hefði lagt leið sína úr bænum. Þó var nokkuð um hrað- akstur á götum borgarinnar og voru þrír ökumenn sviptir öku- skírteinum sínum um miðjan dag á laugardag. Mældust þeir allir á yfir hundraö kílómetra hraða. Á einum sólarhring tók lögreglan fimmtán fyrir of hraðan akstur og sjö fyrir ölvun viö akstur. Lög- reglan átti von á mikifli umferð í bæinn í gærkvöldi. -ELA Mikil öhrun á Þingvöllum og Laugarvatni Mikil umferð hefur veriö i sveitunum kringum Selfoss um helgina og fjöldi ferðamanna á tjaldsvæðunum á Laugarvatni og ÞingvöUum. Lögreglan á Selfossi tók tólf ölvaða ökumenn á laugar- dag og aðfaranótt sunnudags. Ölvun var mikil á tjaldsvæðun- um og sagði lögreglan á Selfossi að vakt væri við þessa staði til að fylgjast með ölvunarakstri. Þá var talsvert um hraðakstur og þurfti lögreglan að stöðva all- margavegnaþess. -ELA Tekinn á 143 Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyir Ungur ökumaöur var tekinn í Vaðlareit við Akureyri í fyrrinótt og ók hann mun hraðar en æski- legt er tahð. Lögreglan mældi bifreið hans á 143 km hraöa. Var hinn ungi öku- maður sviptur ökuleyfi sínu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.