Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Page 4
4 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. Fréttir______________________________________=____________________________________________dv Opinber heimsókn forseta Islands í Austur-Skaftafellssýslu: Lít svo á að ég sé trúlofuð Öræfingum Júlía Imsland, DV, Höfn: Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kom í opinbera heimsókn í Austur-Skaftafellssýslu laugardag- inn 15. júlí. Flugvél forseta lenti á Fagurhóls- mýri kl. 9.15 og þar tók sýslunefnd Austur-Skaftafellssýslu á móti for- seta og fylgdarliði. Látil stúlka færði frú Vigdísi blóm. Frá flugvellinum var haldið að Hofgarði í glampandi sólskini og hita og Öræfasveit skart- aði sínu fegursta. í Hofgarði tók hreppsnefnd Hofs- hrepps á móti gestunum og þegar frú Vigdís hafði gróðursett þrjár birki- plöntur með aðstoö barna í sveitinni var boðið upp á kafíi og ýmislegt góðgæti með. Þorsteinn Jóhannsson, oddviti Hofshrepps, bauð forseta og aðra gesti velkomna og færði frú Vigdísi að gjöf frá Öræfmgum fagur- lega útskorið trafakefli úr skaft- fellsku birki. í keflið var skorið með rúnaletri nafn forseta og ljóðlínur eftir Einar Benediktsson. Trafakeflið var unnið af þeim feðgum Halldóri og Hlyni í Miðhúsum á Héraði. Forseti þakkaði góða gjöf og sagði: „Trafakefli voru iðulega, eins og Þor- steinn gat réttilega um, gefin sem tryggðapantur og þá var á þau letr- að, og er letrað á minjagripi okkar, nafn gefanda og einnig nafn þess er við tók. Þetta var gefið þegar ungir menn báðu sér ungra stúlkna svo að ég hlýt að líta svo á héðan í frá að ég sé trúlofuð ykkur Öræfingum. Kl. 11.35 var ekiö að þjóögarðinum í Skaftafelii og hann skoðaður undir leiðsögn þjóðgarðsvaröar, Stefáns Benediktssonar, og konu hans, Bimu Bemdsen. Á annað þúsund ferða- manna vom í Skaftafelli og vakti það greinilega mikla ánægju og athygli útlendinganna aö sjá þarna þjóð- - sagði Vigdís er henni var fært trafakefli að gjöf höfðingja landsins og kepptust menn um að ná myndum af forsetanum. Hádegisveröur í boði sýslunefndar var snæddur í þjónustumiðstöðinni. Á borðum var marineruð hörpuskel í forrétt og pönnusteikt lúða í aðal- rétt. Og að honum loknum var hald- ið að Jökulsárlóni. Viö Jökulsá tók Bjöm Ólafsson, oddviti Borgarhafnarhrepps, við far- arstjóm. Við lónið var stigið um borð í bátana og siglt um Jökulsárlón inn- an um mikla og stórfenglega jaka. Eins og í Skaftafelli var þama fjöldi útlendinga og var mikill fognuður hjá frönskum hópi þegar forseti svar- aði kveðju þeirra á frönsku. Frá Lóninu var ekið að Hrollaugs- stöðum. Þar bauð hreppsnefnd Borg- arhafnarhrepps forseta og aðra gesti velkomna í Suðursveit. Þegar forseti hafði ásamt bömum gróðursett þijár birkiplöntur var sest við glæsilegt kaffiborð og þar var frú Vigdísi af- hent bókin I Suðursveit eftir Þórbérg Þórðarson. Á Hroliaugsstööum eins og öðrum viðkomustöðum gekk for- setinn um meðal fólksins, heilsaði öllum og ræddi við þá. Það kom í hlut Gísla Arasonar safnvarðar að vera leiðsögumaður forseta um Mýrar, Nes og upp á Al- mannaskarð aö umdæmi Lóns- manna. Móttaka hreppsnefndar Bæjar- hrepps var á Stafafelli. Frú Vigdís gróðursetti ásamt ungum aöstoðar- mönnum þijár birkiplöntur og vom þær settar niður í kirkjugarðinum við Stafafeflskirkju. Ferðinni um Lón lauk með heim- sókn að Reyðará þar sem Þorsteinn Geirsson oddviti og kona hans, Vig- dís Guðbrandsdóttir, buðu gestum upp á veitingar að gömlum og góðum sveitasvið. Að Reyðará afhenti Vig- dís húsfreyja nöfnu sinni mikinn og Forseti í blómaskálanum aö Reyðará ásamt Þorsteini Geirssyni oddvita og konu hans, Vigdísi Guðbrandsdóttur. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli skoðaður undir leiðsögn Stefáns Benedikts- sonar. Þorsteinn Jóhannsson færir forseta trafakefli að gjöf frá Öræfingum. DV-myndir Jóna Imsland fagran jaspisstein, gjöf tfl minningar um komuna í Lón. Úr Lóninu var haldið til Hafnar þar sem forseti sat kvöldverðarboð á Hótel Höfn í boði sýslunefndar Aust- ur-Skaftafellssýslu. í dag mælir Dagfari_________________ Leikhús án þjóðar Fjármálaráðherra hefur verið að ónotast út í Þjóðleikhúsið. Ástæðan er sú að þaö er tap á leikhúsinu og reyndar svo mikiö að enginn hefur hugmynd um stærð þess. Þjóðleik- hússtjóri hefur reynt af fremsta megni að svara þessum ásökunum ráðherrans og sagt að tapið sé eðli- legt. Tapið er rekstrarlegt, segir þjóðleikhússtjóri og er alveg hissa á því að fjármálaráöherra sé aö gera veður út af tapi sem er eðli- legt. Veit ekki íjármálaráðherra að öfl leikhús eru rekin meö tapi? spyr þjóðleikhússtjóri og vitnar til þess að sætanýting í Þjóðleikhúsinu sé betri en annars staðar þekkist á Norðurlöndum. Ef það hefur verið stefna Þjóð- leikhússins að reka leikhúsið með tapi þá er auðvitað skfljanlegt að leikhússtjóranum komi það á óvart aö menn séu að amast við tapinu. Það er nefnilega ekki ætlast til að fólk sæki leikhús enda eru leikrit ekki sviðsett fyrir fólkið heldur leikarana. Þeir verða í fyrsta lagi að hafa eitthvaö aö gera og svo verða leikritaskáldin að fá verk sín sviðsett og í þriðja lagi er leikhúsið í þágu listarinnar en ekki áhorf- enda. Þess vegna er það aukaatriöi hvort leikhús eru sótt en meira virði að leika yfir tómum salnum og auðum stólum ef það þjónar list- inni og leikurunum sem verða eitt- hvað að hafa að gera. Þetta skilur þjóðleikhússtjóri en þetta skilur ekki fjármálaráðherra. Hann vifl græða á leikhúsinu og listinni og vill aö sýningar séu sótt- ar. Nú er búið að skipa einar þijár nefndir til að fara ofan í saumana á rekstri Þjóðleikhússins og fjár- málaráðherra er þar að auki búinn að skipa sérstakan fjármálastjóra til að fylgjast með rekstrinum. Að vísu er þjóðleikhússtjóri ábyrgur fyrir rekstri leikhússins og auk þess hefur hann á sínum snærum fastan flármálastjóra sem sér um flármál leikhússins. En þetta er ekki nóg. Það verður að skipa flár- málastjóra yfir flármálstjórann og sá flármálastjóri á að hafa yfirum- sjón með þjóðleikhússflóra og flár- málastjóra hans til að koma skikki á flármálin. Tfl að koma skikki á flármálin í Þjóðleikhúsinu verður auðvitað að sefla upp verk sem eru sótt, sem þýðir að nýi fjármálasflórinn verð- ur í reynd að ráða því hvaða leik- rit eru sviðsett og hann verður líka að ákveða hvaða leikarar verða settir í rullurnar tfl að leikurinn verði sem bestur til að fólk vilji sjá leikritiö. Þetta getur ruglað listina í ríminu og brýtur niöur þá megin- stefnu Þjóðleihússins aö reka leik- húsið með tapi. Hvað er varið í leik- hús sem er sótt? Það þýðir að leik- húsið er ekki lengur starfrækt fyrir listina og leikarana heldur fyrir áhorfendur og með því mundi leik- húsið sefla niður. Leikhús verða að hafa meiri metnað en svo að þau séu rekin fyrir áhorfendur sem ekki hafa vit á listinni. Það hefur sannast í gegnum árin, því að engir áhorfendur hafa nennt að sækja leikhúsið þegar listin er annars vegar. Áhorfendur vilja koma í leikhús til að skemmta sér og mað- ur skemmtir sér ekki með listina. Hún er æðri öllum skilningi venju- legs fólks. Fólk og leikhús fara ekki saman eins og þjóðleikhússflóri hefur margbent á. Tap er ekki tap þegar þaö er rekstrarlegt. Tap er af hinu góða þegar tapið stafar af því að listin er í svo miklum háveg- um höfð að hún er ofar skilningi fólksins. Engar líkur eru á því að flármála- stjórinn, sem settur verður yfir hinn flármálasflórann, skflji þetta. Hann mun eyðileggja Þjóðleik- húsið vegna áhorfenda á kostnað listarinnar. Hvers vegna gengur flármálaráðherra ekki beint til verks og lokar leikhúsinu eins og hann hefur lokað atvinnufyrir- tækjunum sem hafa ekki getað borgað reikningana sína? Ef ráð- herrann lokar leikhúsinu komast engir áhorfendur inn og leikararn- ir, sem-eru lokaðir inni vegna þess að þeir fá laun og ganga að sinni vinnu, hvort sem þeir hafa eitthvaö að gera eða ekki, geta þá fengið friö til að leika fyrir sjálfan sig og list- ina. Þá stendur Þjóðleikhúsið undir nafni. Ef þessi ábending verður ekki tekin til greina getur flármálaráð- herra auðvitað niðurgreitt miðana í leikhúsið og rukkað svo þjóðina um niðurgreiðsluna! Þannig má láta þá borga sem ekki mæta í leik- húsiö fyrir verkin sem þeir vilja ekki sjá. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.