Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 17i JÚLÍ1989. Utlönd Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta. Forsætisráðherrann fékk víða óblíðar móttökur og púaði franskur al- menningur á hana eitt sinn. Thatcher dró nefnilega í efa stöðu frönsku byltingarinnar í sögunni en haldið var upp á tvö hundruð ára afmæli stjórnarbyitingarinnar um helgina. Símamynd Reuter Leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja heims lokið: Hvetja til aukinnar samvinnu í heiminum Þriggja daga leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja heims lauk í París í gær, sunnudag. í lokayfirlýsingu leiðtoganna var víða drepið niður og hvatt til samvinnu þjóða heims á sviði umhverfisverndar, baráttunn- ar gegn eiturlyfjum og efnahagsað- stoðar til þróunarlanda. Gorbatsjov stal senunni Margir telja að Mikhail Gorbatjsov Sovétforseti hafi að vissu marki stol- ið senunni í París. Hann sendi gest- gjafa fundarins, Francois Mitterrand Frakklandsforseta, bréf þar sem hann hvatti leiðtogana til aukinnar efnahagssamvinnu ríkjanna sjö og Sovétríkjanna en slíkt hefur ekki gerst áður. „Það kemur heiminum til góða að svo stór markaður sem Sovétríkin bjóða upp á verði opnaö- ur,“ sagði í bréfi fosetans. Leiðtogarnir tóku bréfmu fremur fálega, að minnsta kosti var ekki minnst á þaö í lokayfirlýsingu þeirra. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst ekki telja tímabært aö ræða hugsanlega aðild Sovétríkjanna aö hópi helstu iðnríkja heims. „Mikið þarf aö breyt- ast í Sovétríkjunum áður en slíkt kemur tii umræðu,“ sagði forsetinn. „Efnahagslíf Sovétríkjanna þarfnast mikillar vinnu.“ Leiðtogar Bandaríkjanna, Bret- lands og Vestur-Þýskalands höfnuðu tillögu fulltrúa fátækustu þjóða heims um sérstaka ráðstefnu er fjall- aði um samskipti norðurs og suðurs. Mitterrand Frakklandsforseti hafði lýst yfir stuðningi við slíka ráðstefnu en allt kom fyrir ekki. Mikið var rætt um efnahagsmál á fundinum en lítið áþreifanlegt kom út úr þeim viðræðum að áhti frétta- skýrenda. Fastlega var búist við að skuidabyrði þróunarlanda yrði eitt helsta umræðuefni leiðtoganna og svo reyndist vera. Þeir hétu stuðn- ingi við Brady-áætlunina, sem kennd er við fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, um greiðslu hinna gífurlegu skulda þróunarlandanna. í henni er gert ráð fyrir nokkrum afskriftum banka á lánum til þróunarlanda. í staðinn fyrir ráðstefnu um stöðu fátækustu ríkja heims hétu leiðtog- arnir því að rætt yrði við fuiltrúa hvers ríkis fyrir sig og reynt að kom- ast að samkomulagi um greiðslu- byrði. Greinilegt var aö leiðtogarnir voru að mestu sáttir við stöðu efnahags- mála í eigin löndum þó aö samþykkt hefði verið nauðsyn þess að minnka fjárlagahalla í Kanada, Bandaríkjun- um og á Ítalíu. Þá kom í ljós ágrein- ingur leiðtoganna um hvernig best væri að beijast gegn síaukinni verö- bólgu og ójafnvægi í alþjóðaviðskipt- um.' í lokayfirlýsingunni var vikið að nauðsyn aukinnar samstillingar á sviði gjaldeyrisviðskipta er gæti leitt til stöðugleika á markaðnum. Tekið var eftir hversu varkárt orðalag yfir- lýsingarinnar var og þykir hún sýna vonbrigði leiðtoganna. Regnskógarnir í sviðsljósinu Leiðtogarnir hvöttu til samvinnu þjóða á sviði efnahagsmála en hik- uðu þegar kom að því að leggja fram martækar áætlanir að mati frétta- skýrenda. Grænfriðungar gagn- rýndu leiðtogana harðlega fyrir að taka ekki forystuna á þessu sviði. Leiðtogarnir hvöttu til frekari rannsókna á og aukins fjármagns á sviði umhverfisverndar. Ljóst er að vistfræðingar hafa orðið fyrir von- brigðum þar sem leiðtogarnir gengu ekki eins langt og þeir hefðu viljað, sérstaklega í sambandi viö mengun af völdum koltvísýrings. Segja vist- fræðingar að hækkun á hitastigi á jörðinni sé vegna mengunar af völd- um koltvísýrings. Leiðtogarnir hvöttu til frekari að- gerða til að bjarga regnskógunum, fordæmdu losun úrgangsefna í sjó og hvöttu til frekari baráttu gegn ol- iulekum. Þá samþykktu þeir bann á notun CFC, sem notað er m.a. í úða- brúsum, en það er talið eyðileggja ósonlagið. Leiðtogamir lýstu almennri ánægju með fundinn sem þeir segja aöhafitekistframarvonum. Reuter Rándýr runtur? Bandaríska sprengjuflugvélin Stealth B-2. Simamynd Reuter Birgii Þórisson, DV, New York: Til ágreinings kom í morgun ó fréttamannafundi milli Rajivs Gandhi, forsætisróöherra Indlands, og Benazirs Bhutto, forsætisráðherra Pakist- ans. Tjóöi Gandhi fréttamönnum að kjarnorkuáætlun Pakistana yfli Ind- verjum miklum áhyggjum þar sem hún væri eingöngu undir eftirliti hersins. Bhutto visaði þessu á bug og sagði stjóm sina hafa með mál- ið að gera. Dýrasta flugvél söguimar, B-2 sprengjuflugvélin bandaríska, komst ekki á loft á laugardag í sína fyrstu flugferð eins og áætlaö var vegna smávægi- legrar bilunar. Mikið er í húfl fyrir flugherinn og framleiðandann að vel gangi. Þingið er farið að tala um að hætta við smíði vélarinnar vegna þess hve hún er dýr. Hver flugvél á að kosta 500 milljónir dollara. B:2 sprengjuflugvélin er fljúgandi vængur sem hefur það helst sér til ágætis að vera lítt sýnileg á ratsjá. Vegna þess hve háþróuð tækni er notuð var vélin til skamms tíma leynilegasta vopn Bandaríkjamanna. En eftir því sem raddir um að hætta við smíðina urðu háværari var dreg- ið úr leyndinni og um helgina var blaðamönnum boðið að fylgjast með því þegar flugvéiinni var reynsluekið á jörðu niðri. En þar sem ekkert varð af því að vélin kæmist í loftið lét formaður hermálanefndar öldungadefldarinnar svo um mælt að ef til vill hefði þetta verið dýrasti rúntur sögunnar. Karajan látinn Frægasti hljómsveitarstjóri síðustu ára, Austurríkismaðurinn Herbert von Karajan, lést í gær úr hjartaslagi á heimiii sínu, 81 árs gamall. Svart- ir fánar blöktu í gærkvöldi utan á tóniistarhúsinu í Salzburg þar sem Kargjan átti að stjóma Fílharmoniusveitinni í Vín á tónlistarhátíö eftir tvær vikur. Karajan, sem fæddist í Salzburg eins og Mozart, var skapmikill maður og oft umdeildur. Hann særði margan óperusöngvarann og tónlistar- manninn en margir leituðu jafnframt eftir því aö fá að starfa með honum. Bhutto og Gandhi deila Herbert von Karajan við hljómsveitarstjórn. Simamynd Reuter Hafna fordæmingunni Kínversk yfirvöld hafna fordæm- ingu leiötogafundar sjö helstu iðn- ríkja heims en leiðtogamir vom mjög harðoröir í garð Kína í kjölfar fjöldamorðanna á Torgi hins him- neska friðar í byrjun júnímánaðar. í yfirlýsingu leiðtoganna, sem gefin var út í tilefni fundar þeirra í París um helgina, em atburðir síðasta mánaöar fordæmdir en talið er að þúsundir borgara hafi látist þegar herinn lét til skarar skríða gegn mótmælendum. Yfirlýsing leið- toganna var harðorö en þeim fylgdu litlar refsiaðgerðir utan þeirra sem þegar hafa verið sam- þykktar. Leiðtogarnir hvöttu kín- verks stjórnvöld til að láta af of- sóknum á hendur almenningi. í svari kínverskra yfirvald segir aö yfirlýsing leiötoganna samsvari íhlutan í innanríkismál. í Dagblaði alþýðunnar, málgagni kínverska kommúnistaflokksins, segir að enginn fótur sé fyrir ásökunum sem þessum og aö yfirvöld í Kína og kínverska þjóðin geti ekki sætt sig við þær. Kínversk yfirvöld ásökuöu vest- ræna fjölmiðla um að hafa gert of mikið úr atburðunum í Peking og segja að stjórnvöld heföu ekki átt annara kosta völ en að grípa til aðgerða gegn „andbyltingarsinn- um“ Leiðtogarnir sjö hvöttu Alþjóöa- bankann til að fresta frekari lána- greiðslum til Kina en gengu ekki svo langt að hvetja til frekari efna- hagsrefsiaðgerða. Reuter Kodak Express miiin mm 6 MÍNÚTMR Opnumkl. 8.30. LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 ■ SÍMI 68 58 11 nnrniiimiMi^nmminn y

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.