Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. Útlönd 1 i i Slæmt efnahagsástand í Argentínu: við efnahaginn inn. Þrátt fyrir það hélt verð áfram að hækka. Hinn nýi efnahagsráðherra, Nestor Rapanelli, sem tók við af Roig, mun ræða við fulltrúa kaupsýslumanna og kynna þeim verðtilboð ríkis- stjórnarinnar í dag. í hinu nýja til- boði er gert ráð fyrir „rammaverði", þ.e. vísi að viðmiðunarverði sem kaupsýslumenn og fulltrúar stjórn- valda koma sér saman um. Gert er ráð fyrir að þessi verðlagning gildi í þrjá mánuöi. Hinn nýi efnahagsráðherra hét því að halda áfram á þeirri braut sem Roig hafði kynnt en mikil efnahagsó- reiða ríkir nú í Argentínu. Verðbólga er milli eitt og tvö hundruð prósent á mánuði og skortur er á ýmsum nauðsynjavörum. Roig felldi gengið um 54 prósent en verðgildi gjaldmið- ilsins hafði þegar minnkað um 95 prósent gagnvart dollar það sem af var árinu. Þá hækkaði Roig verð á opinberri þjónustu og vörum um allt að 640 prósent. Á laugardag var þak sett á verð á tiu vöruílokkum þar á meðal brauð, hveiti, mjólk og öðrum matvörum. Kaupsýslumenn lýstu yfir stuðn- ingi sínum við Rapanelli um helgina og þá ákvörðun Menems að halda áfram á þeirri braut sem Roig setti. Reuter Ríkisstjórn Carlosar Menem. sem tók við völdum í Argentínu fyrir skömmu. mun i dag leggja fram til- boð um verðlagningu ýmissa nauð- synjavara í kjölfar mikilla verð- hækkana í landipu. Fvrrum efna- hagsráðherra landsins, Miguel Roig, sem lést úr hjartaáfalli á laugardag, sex dögum eftir að hann hafði tekið við embættinu, hafði farið fram á viö kaupsýslumenn að verð yrði fryst miðað \1ð verð þann 3. júlí síðastlið- Efnahagsráðherra Argentínu, Nestor Rapanelli, ásamt Carlos Menem for- seta. Rapanelli tók við embætti á laugardag af Roig sem lést af völdum hjartaáfalls. Símamynd Reuter Reynt að rétta DV Að minnsta kosti tuttugu manns fórust i sprengjutilræði i Kabúl á laugardag- inn- Símamynd Reuter Hóta horðum eldflaugaárásum Skæruliðar í Afganistan dreifðu miðum á mörkuðum í Kabúl í gær þar sem þeir hótuðu eldflaugaárás á borgina. Samtímis því sem miðunum var dreift voru gerðar eldflaugaárás- ir á flugvöUinn í Kabúl. Viðvörunin kom sólarhring eftir að öflug sprengja sprakk á einni af aðalverslunargötunum í Kabúl með þeim afleiðingum að minnsta kosti tuttugu manns biöu bana, að því er starfsmenn hjálparstofnana halda fram. Eru margir af þeim flmmtiu sem særðust taldir vera í lífshættu. Samkvæmt opinberum tölum fórust átta manns í sprengjutilræðinu. Erlendir stjórnarerindrekar telja skæruliða vera orðna örvæntingar- fulla eftir árangurslaust umsátur um borgina Jalalabad. Þess vegna láti þeir til skarar skríða gegn Kabúl. Fyrir viku gerðu skæruliðar eld- flaugaárás á höfuðborgina og létu þá þrjátíu manns lífið. Hátt á annað hundrað manns særðust í árásinni. Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að fjölga vopnasendingum sínum til afg- anskra skæruliöa vegna aukinna hergagnasendinga frá Sovétríkjun- um til Kabúlstjórnarinnar. Þetta mátti lesa í Washington Post í gær. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.