Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 17
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989.
17
Lesendnr
K
Bæjarbragurinn myndi fljótt breytast til hins verra ef Hótel Borg yrðj gerð
að útibúi frá Alþingi, að mati bréfritara.
Þyrmið
Hótel Borg
Axel skrifar:
Það hefur mátt lesa um það í blöð-
um að eigendur Hótel Borgar hafi átt
fundi með forsetum Alþingis, að ósk
þeirra fyrrnefndu, og komið fram að
eigendur eru tilbúnir að selja Alþingi
hótehð.
Þetta mál allt á svo að skoða í sum-
ar en ákvarðana ekki að vænta fyrr
en í haust þegar þing kemur saman.
Áður hefur komið fram að forsetar
Alþingis hafa mælt með því að Al-
þingi kaupi Hótel Borg en tillagan
mætt andstöðu, a.m.k. í sameinuðu
þingi, og hefur ekki enn verið af-
greidd.
Það er von mín og áreiðanlega
flestra Reykvíkinga og kannski einn-
ig margra landsbyggðarmanna að
niðurstaðan verði sú að Hótel Borg
verði ekki seld Alþingi. Betra væri
að hver sem væri, annar en Alþingi,
keypti Borgina ef endilega þarf að
selja hana og þá til áframhaldandi
hótel- eða veitingareksturs.
Það væri mikil eftirsjá ef Hótel
Borg yrði lögð niður í þeirri mynd
sem nú er. Og víst er að borgarbrag-
urinn í miðbænum myndi fljótt
breytast við sölu Borgarinnar til Al-
þingis. Þarna yrði eins og dauðs
manns gröf, eins og alls staðar þar
sem opinberar byggingar eru. Það er
ekki mikil reisn yfir Alþingishúsinu
eða umsvifum í kringum það, varla
mannaferðir, nema þegar alþingis-
menn koma og fara af fundum - þeg-
ar þeir mæta. Það má telja fullvíst
að ósk flestra borgarbúa sé að Hótel
Borg verði þyrmt og hún verði ekki
gerð að enn einni opinberri stjórn-
stöðinni.
Nýju Wonder rafhlöðurnar,
Green Power, eru algerlega
kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar
„hreinni" orku og valda engri
umhverfismengun. Þess vegna má að
skaðlausu henda þeim að notkun lokinni.
Lífrænt efni hefur nú komið í stað
kvikasilfurs.
Green Power rafhlöðurnar eru lekafríar og
endast lengur en venjulegar rafhlöður.
Stuðlum að hreinu umhverfi - notum
Green Power rafhlöður.
Heildsala og smásala:
Olíufélagið hf
SOÐURLAIMDSBRAUT 18
SÍMI 681100
•' Engin þræðing eða
losun filmu.
• Hentug í bílinn
(hanskahólfiðl).
• Þegar „hin" mynda-
vélin bilar eða qleymist.
Skemmtileg gjöf,
skýrar myndir.
• Kjörin fyrir börn eða
byrjendur.
Tilvalin í ferðalagið.
"LWiiJfiiiiIHIi
EIIMNOTA
A/IYIMDAVÉL
FRA KODAKI
Enn býður Kodak nýjan valkost:
Myndavél sem er einnota, 35 mm vél með 400 ASA
litfilmu. er handhægur gripur sem sniðinn er fýrir
myndatöku utandyra. Hún er létt í hendi og í notkun og gæðin
eru hreint ótrúleg! Allir geta tekið myndir á TZkf^Z5 og hún fæst
á öllum helstu filmusölustöðum.
Kodak
UMBOÐIÐ
AUK/SÍA k91-210