Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Tálknafjörður:
Sigruðu með
lagi föðurins
Kristjana Andrésdótár, DV, Tálknafirdi:
Margt var til skemmtunar á útihá-
tíðinni „Líf og fjör" á Tálknafirði á
dögunum, meðal annars hæfileika-
og hljómsveitakeppni. í hæfileika-
keppninni sigruðu tvær litlar stúlkur
frá Suðureyri, Jóna Lára Svein-
björnsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir.
Þær sungu lag og ljóð eftir Svein-
björn Magnússon, fóður Jónu Láru.
Ljóðið fjallaði einmitt um líf og fjör.
Þrjár hljómsveitir, Vísbending frá
Flateyri, Ógleði frá Isafirði og Metal
Army frá Patreksfirði, tóku þátt í
hljómsveitakeppninni. Allt ungir og
efnilegir strákar og sigraði sveitin frá
Patreksfirði með þrumandi þunga-
rokki. Laugardagskvöldið 8. júlí léku
Greifarnir á útidansleik en þegar líöa
tók á nóttina byrjaði að hvessa og
rigna og lauk þá dansi. Björgunar-
menn hjálpuðu fólki og allir sem
vildu komust í húsaskjól.
Útvarpsstöð Líf FM 101 sendi út
alla dagana sem hátíðin stóö yfir og
til kl. 21 á sunnudagskvöld. Tónlist
var meginhluti dagskrár en einnig
fréttir af gangi mála á staðnum. Út-
varpsstjóri var Jóhann Jónsson og í
skoðanakönnun kom fram að hlust-
un á Tálknafiröi og nágrenni var
100%. Formaður mótsnefndar, Ingi-
björg Inga Guðmundsdóttir, stjóm-
aði öllum framkvæmdum af ómældri
eljusemi og dugnaði og hátíðin verð-
ur minnisstæö þó veðurguðirnir hafi
tekið völdin um tíma.
Stjórnendur útvarpsins Lífs. Frá vinstri Asgeir Gunnarsson, Jóhann Jóns-
son útvarpsstjóri og Guðjón Jónsson. Fyrir framan þá situr Gunniaugur
Sigfússon. DV-mynd Kristjana
Gamla fólkið leit inn i Eden á leiðinni á Hótel Selfoss
Aldraðir í dagsferð
með Hreyfli
Á miðvikudaginn bauö bifreiða-
stööin Hreyfill vistfólki frá Hrafn-
istu, Seljahlíð í Reykjavík og Sól-
vangi í Hafnarfiröi í dagsferð.
Leigubílamir söfnuðust saman hjá
Gunnarshólmi og upp úr eitt var lagt
í hann. Var fjöldinn mikill, 45 bílar,
enda farþegamir á annaö hundrað.
Heldur þungskýjað var yfir í upphafi
ferðarinnar en létti til er kcmið var
yfir Hellisheiði. Töluöu menn um aö
þetta heföi verið gott ferðaveður.
í Hveragerði var komið við í Eden
og gat fólk þá aðeins teygt úr sér
áöur en haldið var að Hótel Selfossi
þar sem boðið var upp á veitingar
fyrir hópinn. Farið var um Óseyrar-
brú í bæinn aftur.
Sú var tíð að vistfólki á Vífilsstöð-
um og Reykjalundi var boðið í slíkar
dagsferðir en þær lögðust af um 1960.
Er þaö hugmynd þeirra Hreyfils-
manna að koma aftur á árlegum
dagsferðum. Ekki hefur þó enn verið
ákveðið hverjum á að bjóða á næsta
ári.
Bilalestin í Kömbunum.
Hundadagar ’89
Tónlistarfélag Kristskirkju, Al-
þýðuleikhúsið og listasafn Sigurjóns
Ólafssonar standa fyrir Hundadög-
um ’89, dagana 30. júlí til 29. ágúst.
Eru Hundadagar ’89 tileinkaðir
menningu og listum.
Meðal viðburða þessa daga er upp-
setning Alþýðuleikhússins á Mac-
beth. Er þaö stærsta og fjölmennasta
sýning Álþýðuleikhússins frá upp-
hafi. Einnig verður sýnd ný ópera
eftir Karólínu Eiríksdóttur, Mann
hef ég séð, sem frumsýnd var í Sví-
þjóð á síðasta ári. Þá munu koma
fram þekktir erlendir tónlistarmenn,
Martin Berkovsky og Manuela Wi-
esler, og Miami strengjakvartettinn
svo einhverjir séu nefndir. Eru þá
ótaldir þeir íslensku tónlistarmenn
er munu fiytja íslenska og erlenda
tónlist. Hinir þekktu dönsku leikarar
Susse Wold og Bent Mejding munu
sýna í Iðnó „H.C. Andersen - mann-
eskjan og og ævintýraskáldið". Og
Besti vinur ljóðsins verður með
uppákomur á Hótel Borg þar sem
kynnt verður nýjabrumið í ljóðum,
lifandi myndum og leikritun.
Miöasala er þegar hafin í íslensku
óperunni og er miðaverði stillt í hóf.
Veittur er 20% afsláttur ef keyptir
eru miðar á þrjá viðburði eða fleiri.
-GHK
Norræn stjórn-
fræðslustofnun
Fimm stjórnunarsamtök á Norð-
urlöndum, þar á meðal Stjórnunarfé-
lag íslands, hafa komið á fót stjórn-
fræðslustofnun, Nordic Institute of
Management, NIM. Markmið NIM
er að auka möguleika í þjálfun og
fræðslu fyrir norræna stjórnendur
og efna til samnorrænna ráðstefna
og námskeiða um stjórnunarmál.
Fyrsti fræðslufundur Norrænu
stj órnfræðslustofnunarinnar verður
haldinn 16.-20. október og verður
fjallað um stjórnun stórfyrirtækja
(samsteypufyrirtækja). Þann 2. og 3.
nóvember verður svo námskeið um
„markvisst samstarf fyritækja á
Norðurlöndum."
Er vonast til þess að með auknu
samstarfi við stjórnunarfélög á hin-
um Norðurlöndunum verði unnt að
bjóða íslenskum stjórnendum meiri
sérhæfingu og því betri þjónustu en
hingað til og búa islenskt atvinnulíf
betur undir þær breytingar sem yfir-
vofandi eru í Evrópu.
-GHK
Verslunaraiannahelgin:
Rokkhátíð í Húnaveri
Þeir sem voru farnir að örvænta
um að lítið yrði úr skemmtanahaldi
um verslunarmannahelgina geta nú
tekið gleði sína því að í Húnaveri
verður haldin rokkhátíð þar sem
fram munu koma hvorki meira né
minna en átta af vinsælustu hljóm-
sveitum landsins. Hefur hin árlega
Hróarskelduhátíð veriö höfð sem
fyrirmynd við skipulagningu og und-
irbúning rokkhátíðarinnar.
Þeir sem fram munu koma og
skemmta mótsgestum dagana 4.-6.
ágúst eru Stuðmenn, Bubbi Mort-
hens, Síðan skein sól, Langi Seli og
Skuggarnir, Nýdönsk, Strax, Snigla-
bandið, Geiri Sæm og Hunangstung-
lið. Að auki er reiknað með aö 20
nýjar hljómsveitir alls staöar af
landinu muni troða upp í hljóm-
sveitakeppninni ’89. Er skráning
þeirra hafin í síma 612144.
Fram til ársins 1973 var Húnaver
mjög vinsæll staður til útihátíða, en
þá þótti fjöldinn vera orðinn of mik-
ill og útihátíðahald lagðist niður.
Næg tjaldstæði eru á svæðinu auk
hreinlætisaðstöðu, veitingasölu og
bensínafgreiðslu.
-GHK
Ljósmyndastofan á
Selfossi í nýju húsnæði
Regína Thorarensen, DV, Selíossi:
Gunnar Sigurgeirsson hefur flutt
ljósmyndastofu sína - Ljósmynda-
stofu Suöurlands - af Eyravegi 37 í
120 m2 hús á Austurvegi 44 hér á
Selfossi, sem er á jarðhæð í sama
húsi og apótek Selfossbæjar.
Á Eyravegi var ljósmyndastofan á
annarri hæð og áttu eldri borgarar
og fólk í hjólastólum erfitt með að
komast þangað. Þökk sé Gunnari fyr-
ir að hugsa um fátlaða fólkið, sem
of margir gleyma í okkar þjóðfélag’
svo og þá öldruðu.