Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Side 19
-t JDAÖU'/AM
eg'ðí i.iu..
pí
L
„Málin hafa skýrst verulega um helgina og ég vonast fast-
lega til að geta tekið endaniega ákvörðun á þriðjudags-
_______ kvöldið um hvort ég geng til liðs við Arsenal eða Notting-
ham Forest í dag mun ég eiga viðræður við George Gra-
ham, framkvæmdastjóra Arsenal. Við ákváðum að hittast á miðri
leið og því varð Birmingham fyrir valinu,“ sagði Sigurður Jónsson
knattspymumaður í samtali við DV í gærkvöldi.
• George Graham, framkvæmda-
stjóri Arsenal.
„Forráðamenn Arsenal og Nott-
ingham Forest mrðast hafa komist
að samkomulagi í megindi'áttum
við Shefiield Wednesday. Nii á ég
hins vegar eftir að setja fram mínar
kröfur og það mun ég gera í við-
ræðimum við George Graham í
Birmingham í dag. Theo Foley, að-
stoðarmaður hans, mun einnig
taka þátt í viðræðunum. Það væri
óneitanlega gaman að fara til Arse-
nal og ég hefi ekkert á móti því að
flytjast til London. Það verður fróð-
legt að sjá hvaða tillögur og hug-
myndir Graham kemur með á
fundinn í dag,“ sagði Sigurðui'
Jónsson ennfremur.
Eftirfundinatekur
Sigurður ákvörðun
Á þriðjudagsmorgiminn mun Sig-
urður síðan lialda til Nottingham
og eiga viðræður rið Brian Clough,
framkvæmdastjóra Nottingham
Forest. Eftir þann fund mun hann
að öllura líkindmn taka endanlega
ákvörðun mn hvort hann leikur
með Forest eða Arsenal.
Sigurðm- sagðist í samtalinu við
DV vera kominn í toppæfmgu.
Hann sagðist vera búiim að hlaupa
á nveijum degi i rúmlega tvær vik-
ur og ætti þvi að koma vel undirbú-
inn til leiks þegar keppnistímabilið
hefst um miðjan ágúst.
„Ég hef sjaldan eða aldrei verið
í eins góðu formi og um þessar
mundir og það er bai-a vonandi að
ég springi ekki þegar fram á tíma-
bilið er komið,“ sagði Sigurður,
léttur í bragði, í spjallinu viö DV1
gærkvöldi.
-JkS
• Brian Clough, framkvaemda-
stjóri Nottingham Forest.
• Pétur Pétursson slasaðist illa í deildarleiknum gegn Val á föstudagskvöldið. Ljóst er að hann missir af bikar-
slagnum á miðvikudag.
Pétur Pétursson missir af bikarleiknum gegn Vál:
„Þetta lítur ekki
mjög vel út“
- segir Pétur Pétursson sem meiddist í Valsleiknum
„Þetta lítur ekki vel út og eins og
staðan er núna er ljóst að ég missi
af bikarleiknum á móti Val á mið-
vikudagskvöldið. Þetta gerðist allt
mjög snöggt. Ég var að taka sprett
þegar ég fann skyndilega gífurlegan
sársauka í fætinum. Þetta er annað-
hvort tognun í lærvöðvanum eða
bara hreinlega slit en það kemur
betur í ljós í dag hvort er,“ sagði
Pétur Pétursson í samtali við DV í
gærkvöldi.
Pétur meiddist illa gegn Val á föstu-
dagskvöldið og varð að fara af leik-
velli skömmu fyrir leikhlé. Þá hafði
Pétur reyndar skorað fyrir KR-inga
í 1-1 jafnteflinu.
„Ég hef aldrei meiðst í lærvöðvan-
um fyrr þannig að ég veit ekki alveg
hversu alvarleg meiðslin eru. Ég var
búinn að vera með flensu og mikinn
hita í vikunni á undan og læknarnir
segja að það hafi haft slæm áhrif á
vöðvana. Það er hrikalegt að verða
fyrir svona slysi á miðju keppnis-
tímabili. Ég er búinn að vera í góðri
æfingu og hef fundið mig mjög vel í
undanfórnum leikjum. Eg get ekki
gert að því en ég er mjög svartsýnn
á þetta. Maður verður samt bara að
bíða og vona það besta,“ sagði Pétur
ennfremur, en hann hefur leikið
mjög vel með KR-liðinu það sem af
er mótinu og er markahæstur í 1.
deild með 7 mörk.
-RR
Evrópumótið í tugþraut:
ísland lenti
í fimmta sæti
íslendingar höfnuðu í fimmta sæti
í C-riðli á Evrópumótinu í tugþraut
sem lauk i Vínarborg í gær. Islend-
ingar hlutu 20.014 stig en Spjánverjar
sigruðu í keppninni og færast upp í
B-riðil ásamt Austurríkismönnum
sem lentu í öðru sæti. Danmörk hafn-
aði í þriðja sæti, Belgar í því fjórða,
ísland í fimmta, eins og áður sagði,
og Kýpurbúar höfnuðu í neðsta sæti.
Eftir fyrri dag keppninnar á laug-
ardag var íslenska sveitin í fjórða
sætl. Jón Arnar Magnússon, HSK,
var þá í öðru sæti í einstaklings-
keppninni með 3.906 stig en í gær >
felldi Jón Arnar byrjunarhæðina í
stangarstökki og vonir um að blanda
sér í toppbaráttuna rann út í
sandinn. Ef Jón Amar hefði komist
yfir byrjunarhæðina áttu íslending-
ar alla möguleika á að hreppa fjórða
sætið á mótinu og skotist þannig upp
fyrir belgísku sveitina. Jón Arnar
náði mjög góðum árangri í 400 metra
hlaupi. Hljóp vegalengdina á 49,59
sekúndum en hann átti best áður
50,22 sekúndur.
Islensku sveitina skipuðu fjórir
einstaklingar, auk Jóns Arnars voru
í sveitinni Gísli Sigurðsson, UMSS,
Unnar Vilhjálmsson, HSÞ, og Ólafur
Guðmundsson, HSK.
Gísli Sigurðsson náði bestum ár-
angri íslensku keppendanna, hiaut
6.770 stig. Unnar Vilhjálmsson hlaut
6.660 stig, Jón Arnar Magnússon
hlaut 6.584 stig og Ólafur Guömunds-
son fékk 6.538 stig. Árangur þriggja
efstu keppenda í hverri sveit töldu
stig á mótinu.
í keppninni í gær var íslenska
sveitin í þriðja sæti eftir kringlukast-
ið en í næstu greinum á eftir fór að
halla undan fæti. Samt sem áður er
árangur sveitarinnar einn sá besti
sem tugþrautarsveit frá íslandi hefur
náð á erlendum vettvangi. Aðstæður
allar í Vínarborg voru mjög góöar
og veðrið lék við keppendur alla
keppnisdagana. -JKS
íslendingar heyja landskeppni ekki er vitað hvort þjóðirnar sendi
við Breta og Frakka í tugþraut á sína sterkustu menn til keppni.
Crystal Palace-leikvanginum í Má þar nefna Daley Thompson í
Lundúnum 2.-3. september. Bretar liði Breta og Plaziat hjá Frökkum.
og Frakkar eiga á að skipa fima- -JKS
sterkum tugþrautarmönnum en