Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 25
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. 25 Iþróttir pinn fékk maferðir Mosfellsbæ nú um helgina um í hvert skipti: Berki, Vana og Rand- ver. Þegar upp var staðið var Reynir skeiðmeistari mótsins. Verðlaunin skiptust bróður- lega milli barnanna Keppendur í barnaflokki voru ekki margir. Verðlaunin skiptust því bróð- urlega milli þeirra. í töltkeppninni sigr- aði Daníel Jónsson á Geisla, Edda Rún Ragnarsdóttir var önnur á Örvari, Vic- tor Victorsson þriðji á Snúði, Sigríður Th. Kristinsdóttir tjórða á Stjarna og Sveinbjörn Sveinbjörnsson fimmti á Sokka. í gæðingakeppninni sigraði Edda Rún Ragnarsdóttir á Örvari, fékk 8,43 í ein- kunn, Daníel Jónsson var annar á Geisla með 8,10 í einkunn, Sigríður Th. Kristinsdóttir var þriðja á Stjarna með 8,17 í einkunn, Gunnar Þorsteinsson var ijórði á Funa með 7,81 í einkunn og Sveinbjörn Sveinbjörnsson var fimmti á Sokka með 7,89 í einkunn. Blakstúlkurnar ■ ■■ * unnu uullio á Eyialeikum íslenska kvennalandshöið í blaki gerði góða ferð á Eyjaleikana í Færeyjum 6.-12. júlí síðastliðinn. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið með glæsibrag en aldrei áður hefur íslensku blaklandshði tekist að vinna sigur á móti á erlendri grrnid. Keppinautar hðsins voru frá Færeyjum, Álandseyjum og Guernsey. Fyrst var leikin einiold umferö en síðan léku efstu liöin til úrshta. íslenska hðið var skipað eftir- töldum leikmönnum: Bima Sigrún Hallsdóttir, Víkingi (15); Björg Erl- ingsdóttir, Víkingi (0); Björk Bene- diktsdóttir, Víkingi (9); Friðrika Marteinsdóttir, ÍS (0); Hildur Grét- arsdóttir, Breiðabliki (9); Jóhanna Kristjánsdóttir, Víkingi (8); Jóna Harpa Viggósdóttir, Þrótti, Nes. (0); Jóna Lind Sævarsdóttir, Þrótti, Nes. (0); Karítas Jónsdóttir, KA (0); Sigrún Ásta Sverrisdóttir, Víkingi (0); Snjólaug Bjarnadóttir, fyrirhði, Þrótti (28), og Særún Jólrannsdótt- ir, Víkingi (11). Þjálfari liðsins var Skjöldur Vatnar Björnsson. ísland - Álandseyjar Fyrsti leikur íslendinga var gegn Álandseyingum, sem fvrirfram voru taldir vera með sterkt lið. ís- lensku stúlkurnar mættu harðá- kveðnar til leiks og gáíu mótherj- unum engin grið. Sóknarleikur qkkar manna var öflugur og Álandseyingar urðu að gefa eftir. Leikurinn vannst 3-0 og enduðu hrinumar svo: 15-12, 15-10 og 16-14. Sigurinn var verðskuldaður og aldrei í hættu þó ekki muni miklu á stigum liðanna. ísland - Færeyjar Næsti leikur var við Færeyinga. Þetta var hörkuleikur og greinilegt var að bæði þessi lið ætluðu sér aö ná Iangt á mótinu. Færeyingar höfðu augsýnilega lagt metnað sinn í undirbúning kvennaliðsins og dregið fram alia sína bestu leik- menn, sem sumir hverjir höíðu dvahst í Ðanmörku og æft með þarlendum hðum. Var það mál manna að liðið hefði aldrei verið eins sterkt. Færeyingar byrjuðu leikinn betur og unnu tvær fyrstu hrinumar, 7-15 og 13-15. í þriðju hrinu var Jóhönnu Kristjánsdóttur skipt inn á. Batnaðiíramspihð mik- ið við það og komst sókn íslenska liðsins þá loks í gang með Birnu Sigrúnu Hallsdóttur í fararbroddi. Hrinan var æsispennandi og vannst 15-12. Nú vom stúlkumar okkar komnar á góðan skrið og hreinlega rúhuðu yfir Færeying- aria í fjórðu hrinu, 15-2, og unnu síðan úrshtahrinuna nokkuð ör- ugglega, 15-10. íslenska hðsheildin var mjög góð enda voru fimm af sex leikmönnum liðsins úr liöi is- landsmeistara Víkings. ísland - Guernsey Þriðji leikurinn var gegn Guems- ey. Þetta var auðveidasti leikur ís- lenska liðsins og var töluvert um innáskiptingar og varamenn fengu mikiö að spreyta sig. Mistök í upp- stillingu liðsins í fyrstu hrinu urðu þó til þess að sú hrina tapaðist 11-15. Næstu þrjár hrinui- unnust fremur auðveldlega, 15-10,15-2 og 15-9, og þar með var enn einn ís- lenskur sigur i höfii. Úrslitaleikurinn íslenska kvennahðið, sera unnið hafði alla sína leiki, var nú komið í úrsht og skyldi mæta vígamóðum frændutn sínmn, Færeyingum, en þeir höfðu harma að hefna frá því í 2-3 ósigrinura fyrr í vikunni. Bæði lið vissu nú að hverju þau á alþjóðamóti gengu og bæði ætluðu að hampa I gullinu að leik loknum. Leikurimt | var hörkuspennandi og tvímæla- laust besti leikur mótsins þar sem | hðin sýndu allar sínar bestu hliðar. íslensku stúlkumar unnu fyrstu I hrinuna, 15-9, en Færeyingar náðu | yfirhöndinni í tveimur næstu hrin- um og unnu þær, 15-8 og 15-10. ís- lensku stúlkurnar voru hins vegar I hreint ekki á þeim buxunum að verða af gullinu og með ótrúlegum | vamartilþrifum og óverjandi sókn- um tókst þeim að vinna tvær næstu I hrinur, 15-5 og 15-8, og þar með | leikinn og mótiö. Góð liðsheild íslensku stúlkurnar náðu vel sam- an í leikjum sínum og áttu sigurinn I skilið. Sóknin var sterk og nokkuð fjölbreytt, vörnin ágæt og stundum frábær, uppspilið var þokkalegt en | þó veikasti hlekkurinn í leik liös- ins, það vantar á nákvæmni og út- sjónarsemi þar. Best íslendinga var Birna Sigrún I Hallsdóttir en allir leikmenn áttu | þó góða leiki. Jóhanna Kristjáns- dóttir, Karítas Jónsdóttir og Björk | Benediktsdóttir sýndu góöa takta. Árangur kveimalandshðsins er I svo sannarlega glæsilegur og ekki j síst efþað er skoðaö hve reynsluht- ið það er. Afþeimtólf leikmönnum, | sem fóru til Færeyja, era sex nýhð- ar með landsliðinu og meðalleikja- fiöldi hinna er um 13 landsleikir. Þar fyrir utan fékk þjálfari hðsins, | Skjöldur Vatnar Björnsson, ein- ungis tæpa tvo mánuði til að und- irbúa hðið fyrir þetta mót. Sagöist 1 Skjöldur sannfærður ura að ef hann hefði fengið lengri tíma til undirbúnings hefði verið hægt að gera enn betri hluti með þetta hð | enda leikmenn þess ungir og efn- ilegir. -gje | Unglingarnir gáfu ekkert eftir í úrslitum Keppni í unghngaflokki var mjög hörð. Flestir hafa þeir unglingar, sem kepptu á Silkiprentsmótinu, keppt á tugum móta og verið sigursælir. í töltkeppninni sigraði Halldór Vic- torsson á Herði, Hjörný Snorradóttir varð önnnur á Þyrni, Jóhannes Æv- arsson varð þriðji á Sörlá, Theodóra Mathiesen fiórða á Boða og Edda Sólveig Gísladóttir fimmta á Janúar. Eddu Sólveigu tókst betur til í gæð- ingakeppninni en þar náði hún efsta sætinu á Janúar, fékk 8,29 í einkunn. Hjörný Snorradóttir varð önnur á Þyrni með 8,23 í einkunn, Jóhannes Ævarsson þriðji á Sörla með 8,22 í einkunn, Ásbjörn Jónsson varð fiórði á Faxa með 8,17 í einkunn og Gísli Geir Gylfason fimmti á Prins með 8,10 í einkunn. -EJ íslandsmótið um næstu helgi Júhmánuður hefur verið við- burðaríkur fyrir hestamenn. Fjórð- ungsmót hestamanna á Austurl- andi var haldið fyrstu helgina í júh. Þá sömu helgi hélt Glaður árlegt hestamót sitt á Nesodda. Évrópu- mótsúrtakan var haldin aðra helgi- ina í júlí. Hestamannafélögin Kóp- ur, Stormur og Þytur héldu sín hestamót einnig um þá helgi. Silkiprentsmótið, opin gæðinga-, tölt- og skeiðkeppni, var haldið í Mosfellsbæ í gær og 'fyrradag. Sleiphir og Smári héldu einnig gæðingakeppni og kappreiðar á Murneyrum. Um næstu helgi verður svo ís- landsmótið í hestaiþróttumí Borg- amesi og er búist við mikilli þátt- töku úrvalsknapa. Mótið hefst föstudaginn 21. júh næstkoinandi, klukkan átta um morguninn, með fiórgangi unglinga. Þvínæst verður keppt í fiórgangi fullorðinna og rekur hvert atriði annað þar alla þrjá dagana: föstudag, laugardag og sunnudag, uns öllu er lokið. Mótssht eru áætluð klukkan 19 á sunnudaginn. Dagskráin er þétt enda keppnisgreinar margar og keppendur fiölmargir. Á föstudags- og laugardagskvöld verða dans- leikir í Hótel Borgarnesi. Síðustu helgina í júh verður stór- mót sunnlenskra hestamanna á Hehu en einnig halda Blær og Snæ- fellingur sín árlegu hestamót þá. -EJ Kodak RAFHLÖÐU 0RKA SEM ENDIST 0G ENDIST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.