Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. íþróttir heimstitlar varð hlutur íslendinga Jón G. Hafsteinsson er hér í startholunum og býr sig undir að hlaupa 200 metrana. Sigrún Huld Hrafnsdóttir tekur við verðlaunum þeim sem fylgja nafnbótinni heimsmeistari. Til hliðar við hana — 3. fyTStU. tlGlHlSlGlkUlTl þl’OSksflGftl'U standa tveir keppinautar hennar á heimsleikunum. Islendingar hlutu tuttugu og ein verðlaun og urðu í þriðja sæti af nítján þjóðum í slagnum um titla á fyrstu heimsleikum þroskaheftra. Leikarnir fóru fram í Harnösand í Svíþjóð dagana 2.-6. júlí síðastliðinn. Þátttakendur voru 320 á mótinu og var keppt 1 58 greinum. íslensku þátttakendurnir voru tólf, átta í sundi og fjórir í frjálsum íþróttum. Komu þeir frá fjórum íþróttafélögum á Fróni. HGÍmslGÍkar: Vaskur hópur hélt utan af Flróni íslensku þátttakendumir, sem stóöu sig svo eftirminnilega á heims- leikum þroskaheftra í Svíþjóö, voru eftirfarandi: Bára B. Erlingsdóttir, Jón G. Haf- steinsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Hrafn Logason, Sigrún Huld Hrafns- dóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Kristófer Ástvaldsson, Aöalsteinn Friöþjófs- son, Gissur Ó. Erlingsson, Siguröur Pétursson, Bjömey Sigurlaugsdóttir og Kristján Guöbrandsson. -SÞ/-JÖG Bára B. Erlingsdóttir vinnur til silfurverðlauna í 50 m fiugsundi. Framganga íslensku þátttakend- anna vakti óskipta athygli annarra þátttökuþjóða. Vakti mikla furðu aö svo fámenn þjóð gæti sent slíkt liö afreksmanna á stórmót sem þetta. íslendingamir fengu næstflesta verðlaunapeninga í sundi, fengu ell- efu gullverðlaun, sjö silfurverðlaun og þrjú brons í greininni. Settu þeir sjö íslandsmet í sundi og þrjú ís- landsmet í frjálsum íþróttum. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp, fékk fimm gullverölaun á leikunum pg var kölluð sunddrottningin frá íslandi í sænsku blöðunum. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, fékk tvenn gullverölaun, þrenn silf- urverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Guðrún Ólafsdóttir, Ösp, fékk þrenn gullverðlaun, Bára B. Erlings- dóttir, Ösp, fékk fem silfurverðlaun og ein bronsverölaun og Hrafn Loga- son, Ösp, fékk ein gullverðlaun. Fyrsti heimsmeistaratitill á fyrstu heimsleikum þroskaheftra kom í hiut Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur frá íslandi og var það í 50 metra skriðsundi. Guilverðlaun: Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp, 200 m fjórsund, 3:10,10 mínútur. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp, 100 m bringusund, 1:32,30 mínútur. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp, 100 m skriðsund, 1:16,50 mínútur. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp, 50 m skriösund, 34,20 sekúndur. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp, 50 m bringusund, 42,49 sekúndur. Guðrún Ólafsdóttir, Ösp, 200 m baksund, 3:28,41 mínútur. Guörún Olafsdóttir, Ösp, 100 m baksund, 1:37,38 mínútur. Guðrún Ólafsdóttir, Ösp, 50 m bak- sund, 44,31 sekúndur. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 200 m fjórsund, 2:47,94 mínútur. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 50 m flugsund, 33,03 sekúndur. Hrafn Logason, Ösp, 100 m flug - sund, 1:31,95 mínútur. Silfurverðlaun: Bára B. Erhngsdóttir, Ösp, 100 m flugsund, 1:42,39 mínútur. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp, 100 m bringusund, 1:41,30 mínútur. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp, 50 m flugsund, 40,31 sekúndur. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp, 50 m bringusund, 45,68 sekúndur. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 400 m skriðsund, 5:23,81 mínútur. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 100 m baksund, 1:20,15 mínútur. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 50 m baksundi, 36,13 sekúndur. Bronsverðlaun: Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 100 m skriðsund, 1:08,47 mínútur. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, 50 m skriðsund, 30,75 sekúndur. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp, 50 m baksund, 47,17 sekúndur. Heimsleikar þroskaheftra verða framvegis haldnir á fjögurra ára fresti. Þar var nú og verður fram- vegis keppt eftir sömu reglum og á ólympíuleikum. -SÞ/-JÖG Hér má sjá islensku þátttakendurna, en þeir stóðu sig frábærlega vel á heimsleikum þroskaheftra í Svíþjóö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.