Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Side 27
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. Iþróttir Hvar eru ■■stóru 50-70% minni veiði í mörgrnn veiðiám núna en á sama tíma í fyrra „Veiðin er að bataa hægt og'sígandi en þetta er engin feiknaveiði,“ sagöi Böðvar Sigvaldason, formaður veiöifélags Miöfjaröarár og Landsambands veiðifélaga, um rólega veiði í Miöfjarðará. Svar Boövars er lýsandi fyrir margar veiðiár núna, fáir laxar hafa gengið 1 árnar og veiðimenn eru ekkert ofsalega kátir. En þeir lifa í voninni um að laxagöngurnar séu á leiðinni upp í ámar. Laxar hafa sést fyrir utan Korpu, Laxá í Dölum, Hvolsá, Staðar- hólsá og Laxá í Aðaldal, svo að einhverjar séu nefndar. Eitt hefúr vakið töluverða at- hygli og það er allur hafbeitarlax- inn sem lítið hefur sést ennþá. Hann veiddist aðeins í Elliðánum fyrst en svo ekkert meira og þessi smái fiskur, sem sést stökkva í ánni, er af stofni hennar. Smálax hefur veiðst í Korpu og Noröurá en hann er af stofni ánna. Hefur hafbeitarlaxinn kannski ekki þol- aö hinn kalda vetur i sjónum? Veiðifölur sem sýna færri laxa Viö skulum aðeins kíkja á tölur M sama tímaí fyrra. Elliöaámar höfðu gefið 700 laxa þá en aðeins 350 núna. Leirvogsá 40 en 300 1 fyrra. Laxá í Kjós var í 1200 löx- um fyrir ári en núna em komnir 900 laxar. Laxá í Leirársveit er með helm- ingi minni veiði núna eins og Norðurá í Borgar- firði, 400 laxa núna en 800 í fyrra. Þverá í Borgarfirði er í 700 löxumnúnaen900 í fyrra á þessum tíma. Helmingí minní veiði í Norðurá Nákvæmlega helmingi minni veiði er í Norðurá, 500 laxar núna en 1000 í fyrra. Miídu minni veiði er LGrímsá, 350 núna en 900 í fyrra. Langá á Mýrum hefur gefið 200 laxa en 600 laxar vom komn- ir á þurrt í fyrra. Laxá í Dölum er með í kringum 200 laxa en 500 í fyrra. Miðfiarðará hefur gefið núna 300 laxa en 450 í fyrra. Laxá á Ásum hefur gefið 200 laxa en 700 í fyrra. Víðidalsá er komin í 200 laxa en hafði gefið 500 í fyrra. Laxá í Aðaldal hefur gefiö 250 laxa en 700 laxa árið áður. Frábær meðalþynd í mörgum ám Þarf fleirl vitna við? Er skrítið þótt veiöimenn reyni að selja veiöileyfin sín? Eftir svona feiknagott sumar 1988 gat þetta auövitað gerst. En leiknum er alls ekki lokið, enn er von. Vænir laxar hafa veiðst og þeir geta ver- ið skemmtilegir á færi, meðal- þyngdin í mörgum veiðiám er betri en í fyrra, miklu betri. í veiöiám eins og Víöidaisá og Hrútafiarðará em fáir laxar minna en 10 punda. Veiðimenn hafa séð það svartara, veiðileyfm geta ekki hækkað mikið næsta sumar ef veiðin batnar ekki næstu dagana, varla nokk- uð, Markaðurixm þolir það alls ekki. -G.Bender menn með marga laxa i piasti hafa ekki verið algeng sjón við veiði- árnar í sumar en þó hafa þeir sést við eina og eina. Labbað upp frá Korpu með 6 laxa. DV-myrtd G.Bender 27 HLUTHAFA- FUNDUR Hluthafafundur í Verslunarbanka íslands hf. verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu þriðjudaginn 25. júlí 1989 og hefst kl. 17:00. Dagskrá: Tillaga bankaráðs um staðfestingu hluthafafundar á samningi formanns bankaráðs við viðskiptaráðherra um kaup bankans á 1/3 hluta hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf. og að rekstur Verslunarbanka, Iðnaðarbanka og Alþýðubanka verði sameinaður í einn banka ásamt Útvegsbankanum fyrir 1. júlí 1990. Tillaga bankaráðs um viðbótarákvæði til bráðabirgða við samþykktir bank- ans þar sem bankaráði er veitt heim- ild tíl að efitia samninginn m.a. með þeim hættí að taka þátt í hlutafjár- aukningu Útvegsbanka íslands hf. sem heimilt verði að greiða af eign- um og rekstri bankans. Önnur mál löglega fram borin. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fúndarins verða afhentir hluthöfúm eða umboðsmönnum þeirra í Verslunarbankanum, Bankastræti 5, dmmtudaginn 20. júlí, föstudaginn 21. júlí og mánudaginn 24. júlí 1989 kl. 9:15-16:00 alla dagana. Samningurinn og tíllögur munu liggja firammi hluthöfum til sýnis á sama stað viku íýrir fundinn. Bankaráð Verslunarbanka íslands hf. V6RSLUNRRÐRNKINN -váueut rtteS þétf KORTAKERFI ftl w/ iM ÖRYGGISÞJÓNUSTA Sími 91-29399

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.