Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. 29 Iþróttir Glæsilegur árangur 1 sundi: Helga náði lágmarki - í 100 metra skriðsundi fyrir EM í sundi Helga Sigurðardóttir, sundkonan snjalla frá ísafirði, náði í síðustu viku lágmarki fyrir Evrópumótið í sundi í Bonn. Mótið fer fram um miðjan ágúst. Helga, sem er aðeins tvítug, náði þessum ágæta árangri í Vest- mannaeyjum en þar er besta keppnislaug á landinu. Helga reyndi á þriðjudagskvöld við lágmarkið í 200 metra skrið- sundi. Synti hún þá á 2:05,97 mín- útum en lágmarkið í þeirri grein er 2:04,59 mínútur. Á miðvikudag náði Helga síðan lágmarki í 100 metra skriðsundi. Þá synti hún gríðarlega vel. Fór Helga vegalengdina á 57,59 sek- úndum en lágmarkið í greininni er 58,06 sekúndur. Þessi tími er annar besti hjá ís- lendingi í greininni í kvennaflokki en íslandsmetið er 57,06 sekúndur. Það á Bryndís Ólafsdóttir. Helga er í hópi allra efnilegustu sundmanna íslendinga og kemur nú aö margra áliti næst Ragnheiði Runólfsdóttur aö styrk. Helga æfir að öÚu jöfnu í 16 metra sundlaug á ísafiröi og er ótrúlegt hversu langt íslenskt íþróttafólk nær í greinum sínum þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Helga vann sjö meistaratitla á síðasta innanhússmeistaramóti ís- lands. Þá vann hún fimm gullverð- laun og ein silfurverðlaun á smá- þjóðaleikum Evrópu á Kýpur í vor. Þá vann ísfirðingurinn þrjá ís- landsmeistaratitla á sundmeist- aramóti Islands utanhúss í þessum mánuði. „Helga stefnir á að komast út til æfinga og mér líst mjög vel á það,“ sagði Ólafur Þór Gunnlaugs- son, þjálfari hjá Vestra á ísafirði. „Helga er að mínum dómi kandídat á næstu ólympíuleika. Eg er í öllu falh mjög bjartsýnn á að hún verði á meöal keppenda í Barcelona. Evrópumótið, sem nú er fram undan, verður fyrsta stór- mótið sem hún keppir á og það er fyrsta skrefið," sagði Ólafur Þór. -JÖG Helga Sigurðardóttir, sundkonan efnilega frá Isafirði, tekur við viðurkenn- ingu frá ísafjarðarbæ á dögunum en hún var þá heiðruð fyrir unnin afrek í íþrótt sinni. DV-mynd Sigurjón SUÐUREYRI Nýr umboðsmaður óskast á Suðureyri frá og með 1. ágúst. Uppl. gefur Sigríður Pálsdóttir, sími 94-6138, eða afgreiðsla DV, sími 91-27022. ----------Ifip--------- Barnaföt -ff- Barnaföt TILBOÐSVIKAN hefst í dag 30-50% afsláttur af öllum vörum í búðinni. Ath. síðan allt á fullt verð aftur. Póstsendum X & z BARNAFATAVERSLUN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6B, SÍMI 621682 Ahureyrar innon 10 sehúndno Fáar aðrar samgönguleiðir slá símanum við í hraða ogþœgindum. Þú ert um 1 klst. að fljúga á milli Reykjavíkur og Akureyrar ( í meðvindi). Þú ert 5 klst. að aka sömu leið (á löglegum hraða) og a.m.k. heilan dag að sigla (í sléttum sjó). Fyrir utan þetta er síminn ódýr leið og þú verður ekki flugveikur, bílveikur eða sjóveikur af því að tala í símann. Auk þess er ódýrara að hringja eftir kl. 18 á daginn og enn ódýrara eftir kl. 23 og um helgar. Langlínutaxtarnir eru tveir. Dœmi um styttri langlínutaxta er Reykjavík - Keflavík og dœmi um lengri taxta er Reykjavík - Akureyri*. ■ • ■ ■ ' ■ ■ ■ - ■ Reykjavík - Keflavík Lengd símtals 3 mín. 10 mín. 30 mín. Dagtaxti kr. 18,00 kr. 53,00 kr. 153,00 Kvöldtaxti kr. 13,00 kr. 36,33 kr. 103,00 Nætur- og helgartaxti kr. 10,50 kr.28,00 kr. 78,00 * Breytist samkvœmt gjaldskrá Reykjavík - Akureyri Lengd símtals 3 mín. 10 mín. 30 mín. Dagtaxti kr. 25,50 kr. 78,00 kr. 228,00 Kvöldtaxti kr. 18,00 kr. 53,00 kr. 153,00 Nætur- oghelgartaxti kr. 14,25 kr. 40,50 kr. 115,50 PÓSTUR OG SÍMI Við spörum þér sporin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.