Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 30
MÁNUDAGÚR 17. JÚLÍ 1989.
3br
íþróttir
Klaus Allofs
tll Bordeaux
Vestur-þýski lands-
liösmaðurinn Klaus
Allofs var um helgina
seldur frá Marseille
til Bordeaux. Þetta kom fram í
franska dagblaðinu L’Equipe í
gær. Allofs gekk til liðs við
Marseille 1987 frá Köln og var
tvöfaldur meistari með Mar-
seille á síðasta keppnistímabili.
Allofs verður ekki eini Vestur-
Þjóðveijinn í liði Bordeaux því
Manfred Kaltz var keyptur frá
Haraburg SV fyrir nokkru.
Michael Allen
vann í Skotlandi
Kaliforníubúinn
Michael Allen sigraöi
á opna skoska meist-
aramótínu í golfi sem
lauk í Gleneagles í gær. Allen,
sem er nýorðinn fimmtugur,
fékk 50 þúsund pund fyrir sig-
urinn. Hann lék mjög vel á lo-
kakaflanum og endaði með fall-
egu pútti. Bandaríkjamaðurinn
komst þá fram fyrir helstu
keppinauta sína, þá Ian Wos-
nam og Jose Olazabal, en þeir
höfnuðu í 2. og 3. sæti á mótinu.
Laurie Cunnigham
iést í bílslysi
Laurie Cunningham,
enski knattspyrnu-
maðurinn kunni, lést
í bílslysi á Spáni að-
faranótt laugardags. Cunning-
ham, sem búið hafði á Spáni
allt síðastliðið ár, missti stjórn
á bíl sínura í úthverfi Madrid
og lenti bíllinn á ljósastaur með
þeim afleiðingum að Cunning-
ham lést. Cunningham var
einn af bestu leikmönnum
Englands á árunura 1979-1981
og þá lék hann marga lands-
leiki. Hann lék með West
Bromwich Albion og síðan með
Real Madrid og Marseilles áður
en hann varð varð að draga sig
í hlé vegna meiðsla. Cunning-
ham var varamaður í liði
Wimledon sem sigraði Liverpo-
ol i úrslitum enska bikarsins
árið 1988. Hann var nú síðast á
samningi hjá spænska liöinu
Rayo Vallecano og var að hefja
æfmgar þegar þetta hörmulega
slys bar að.
Það kom fram í enskum tjöl-
miðlum í gær aö Ron Atkinson,
framkvæmdastjóri Sheffield
Wednesday, hefði tekið lát
Cunninghams mjög nærri sér.
Atkinson var framkvæmda-
stjóri West Bromwich Albion
þegar Cunningham lék þar og
voru þeir alla tíð mjög miklir
vinir.
Prost vann
opna breska mótiö
Frakkinn Alain Prost sigraði á
opna breska meistaramótinu í
kappakstri sem lauk í gær. Prost
keyröi á McLaren bíl og varð á
undan Englendingnum Nigel
Mansell sem hafhaði í 2. sæti.
Allessandro Nanni frá Ítalíu
hafhaði í 3. sætinu og Brasilíu-
maðurinn Nelson Piquet varö í
4. sæti.
Uwe Steeb
vann í Sviss
V es tur-þj óð veij inn
Karl Uwe Steeb sigr-
aði Svíann Magnus
Gustafson í úrslita-'
leik á tennismóti í Gstaad í
Sviss í gær. Steeb fékk yfir 300
þúsund dollara fyrir sigurinn.
FH-ingar funda
' 1 " 1 Aöalfundur hand-
knattleiksdeildar FH
fer fram mánudaginn
24. júlí nk. Fundur-
inn verður haldinn í Sjálfstæö-
ishúsinu við Strandgötu og
hefst klukkan 20.30.
• Dæmigerð mynd fyrir keppnina í Jósepsdal. Velturnar voru fleiri en tölu varð á komið. Hér eru nokkrar í uppsiglingu er Benedikt Eiríksson næstum náði
að komast upp á brekkubrún. Næstum er bara ekki nóg og hann hrapaði alla leið niður á jafnsléttu aftur. Þrátt fyrir áföll og veltur fékk enginn skrámu.
Bikarkeppni Jeppaklúbbs Reykjavíkur og Bílabúðar Benna.
Heimasætan vann
- á þriðja þúsund áhorfendur fylgdust með vel heppnaðri jeppakeppni
Það er ohætt að fullyrða aö þeir sem lögðu leið sína í gamlar malargryíjur
í Jósepsdal á laugardag fengu eitthvað fyrir áurana sína er þar fór fram bikar-
keppni í torfæruakstri Bílabúðar Benna og Jeppaklúbbs Reykjavíkur. Hafi
áhorfendur búist við rólegu brekkuklifri í makindum þá var öðru nær. Þús-
undir áhorfenda stóðu í nær 6 tíma, margir með hökuna lafandi niður eftir
líkamanum af undrun yfir fífldirfsku og áræði margra af keppendum sem
óku bílum sínum upp ómanngengar brekkurnar, knúnum 400 hestafla
öskrandi átta strokka hreyflum, sem fóru létt með aö spóla skófludekkjunum
að vild.
Þau voru ófá skiptin sem þessir
ofurhugar torfærugeggjunarinnar
svifu í tveggja metra hæð yfir brekk-
ubrúnimar sem engum manni heföi
dottið í hug að væri mögulegt að yfir-
stíga öðravísi en í huganum.
Framfarir keppnisjeppa
eru með ólíkindum
Framfarir í smiði keppnisjeppa eru
með ólíkindum og það er ljóst að
dagar venjulegra jeppabifreiða í
þessari grein akstursíþrótta eru liðn-
ir, ekki er lengur hægt að aka á
keppnisjeppanum sínum í venjulegri
umferð ef árangur á aö nást.
Það voru 6 bílar (ökutæki) skráðir
til keppni í sérbúna flokknum en
ökutæki í þeim flokki eru með sér-
stök skófludekk og rótast á þeim yfir
nánast allt og að auki hafa þeir flest-
ir hláturgaskúta (glaðloftsbrúsa) til
orkuaukningar þegar mest liggur
við.
Sturla varð að
játa sig sigraðan
Sigurvegari allra torfærukeppna
ársins sunnan heiða, Árni Kópsson
á Heimasætunni heimasmíðuðu,
byijaöi illa og átti í harðri baráttu
við Sturla Jónsson (Bossa) á Wag-
oneer lengst af. Sturla varð að játa
sig sigraðan þegar driíbúnaður jepp-
ans brotnaöi að hluta er aðeins tvær
þrautir voru eftir. Sturla sýndi mikil
tilþrif og hugrekki í erfiðum þraut-
um. Hann var vel að öðru sætinu
kominn og náði að krækja sér í 1955
stig. Hann bætti sér upp vonbrigðin
með því að sigra í langstökkskeppni
er fram fór eftir keppnina og stökk
með farartæki sínu sextán metra og
áttatíu sentímetra sem er þar með
gildandi íslandsmet jeppabifreiða í
langstökki.
í þriðja sæti varð Ásmundur
Guönason á Ford árgerð 1942. Fátt
er nú eftir af þeim bíl upprunalegt
ef þá nokkuð en sá „gamli“ stóð sig
vel og varð 50 stigum á undan öðrum
gömlum, Willys 47 sem ekið var af
Gunnari Guðjónssyni fiórdrifsfræð-
ingi.
I götubílaílokki voru 8 bílar skráð-
ir. Munurinn á milli götubílaflokks
og sérútbúinna virðist vera sá helst-
ur að dekkjabúnaður er af löglegri
gerð til aksturs í venjulegri götuum-
ferð.
Þrautir þær sem lagðar eru fyrir
götubílana eru einnig léttari. Keppn-
in í götubílaflokknum var mjög jöfn
allan tímann en hún féll nokkuð í
skuggann af átökum þeirra sérbúnu,
þó voru aksturstilþrifin síst núnni í
baráttunni við þyngdarafliö en tang-
arhald ökutækjanna á fóstuijörðinni
reyndist öllu minna en hjá sérbúnu
farartækjunum.
Einar sigraði í
götubílaflokki
Sigurvegari í götubílaílokki varð
Einar Benediktsson á Willys með
2.535 stig. í öðru sæti varð Gunnar
Hafdal á Willys með 2.495 stig en
hann tapaði sigrinum á síðustu
þraut. Tímabrautin reyndist honum
erfið því afturdrifið var brotið.
Gunnar sýndi mjög góða takta og
skemmti áhorfendum með tilþrifum.
í þriðja sæti varð Stefán Gunnars-
son, einnig á Willys, með 2.445 stig.
Árni á Heimasætunni
var maöur dagsins
Maður dagsins var eins og svo oft
áður Árni Kópsson á Heimasætunni.
Hann virtist hafa sigurinn í hendi sér
ailan tímann en varð að hafa meira
fyrir honum nú en oftast áður í sum-
ar. Aðspurður sagðist Árni ekki hafa
verið í nógu góðu formi í byijun þess-
arar keppni en þegar hann sá fífl-
dirfsku keppinautanna var ekki um
annað að gera en að sleppa Heima-
sætunni lausri í brekkunum. Það er
alveg furðulegt að sjá hvernig þessi
heimasmíðaði grindarbíll sveiflar
sér upp brekkumar eins og fuglinn
fljúgandi. Trúlega er þetta það sem
koma skal í torfærukeppnunum.
-ÁS/BG
Kærumál í deiglunni?
- Breiðabliki dæmdur ósigur í furðulegu máli í Kópavogi
Vægast sagt mjög furðulegt mál
kom upp í Kópavogi í gær þegar
kvennaliði Þórs frá Akureyri var
dæmdur sigur gegn Breiðabliki í ís-
landsmóti 1. deildar kvenna. Leikur
liðanna átti að fara fram í kvöld í
Kópavogi en skyndilega var leiknum
flýtt til gærdagsins. Það voru furðu-
leg vinnubrögð í gangi í sambandi
við breytingu leiksins. Fram-
kvæmdastjóri Þórs fékk leiknum
flýtt í samráði við KSÍ en Breiðablik
hafði ekki hugmynd um leiktímann.
Þórsstúlkumar komu akandi alla
leið frá Akureyri í gær en leikurinn
átti að fara fram í kópavogi klukkan
17 samkvæmt hinni leynilegu breyt-
ingu KSÍ. Breiðabliksstúlkur fréttu
fyrir tilviljun af leiknum og náðu að
safna saman 10 manna liði. Dómari
leiksins flautaði hins vegar leikinn
af og sagði í skýrslugerð sinni aö
Breiðablik hefði ekki mætt til leiks
og dæmdi Akureyrarstúlkunum sig-
ur í leiknum. í lögum KSÍ stendur
hins vegar að lið megi mæta til leiks
með aðeins 10 leikmenn og spila leik-
inn.
„Þetta er allt mjög furðulegt.
Breiðablik var ekki reiðubúið að
flýta Jeiknum því að það var ein-
faldlega ekki hægt að setja leikinn á
neinn völl í dag. Við vissum ekki
hvaðan á okkur stóð veðrið þegar við
fréttum að Þórsstúlkurnar væru
mættar í leikinn. Þegar við komum
á völlinn var dómarinn búinn að
flauta leikinn af og sagöi að við hefð-
um ekki mætt til leiks. Við hefðum
vel getað spilaö 10 og máttum það
samkvæmt lögum KSÍ. Það er ljóst
að þetta er ekki hér með búið. Við
munum að sjálfsögðu kæra þetta,“
sagði Ingibjörg Hinriksdóttir hjá
Breiðabliki í samtali við DV í gær.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
framhaldinu á þessu furðulega máli.
Þess má geta að aðeins einn línu-
vörður mætti til leiks þannig aö dóm-
arinn hefði frekar átt að flauta leik-
inn af sökum þess.
-RR