Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Page 31
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. 31 Fréttir Sigursteinn Oskarsson lundaveiðimaður: Bandarískur prófessor fékk hjá mér blóðsýni „Það kom til mín einu sinni banda- rískur prófessor - þar sem ég var að veiða. Hann vildi fá hjá mér blóðsýni úr lunda. Hann var víst að rannsaka líf lundans og annarra fugla. Þetta er fyrsta veiöiferðin hjá mér í sum- ar. Eg fór fyrst með í lunda þegar ég var tólf ára. Mér þykir nauðsynlegt aö komast nokkrum sinnum á sumri. Þetta er eini veiðiskapurinn sem ég Þrátt fyrir veiðigleði gaf Sigursteinn sér tíma til að setjast niður og rabba. - var að kanna líf lunda og annarra fugla stunda. Mér þykir lundi góður mat- ur, sérstaklega reyktur og steiktur," sagði Sigursteinn Óskarsson lunda- veiðimaður í Vestmannaeyjum. Þegar blaðamenn DV voru á ferð í Eyjum hittu þeir Sigurstein þar sem hann var við lundaveiði í austan- verðum Stórhöfða. Sigursteinn var búinn að fá um hundrað fugla eða eina kippu. Sigursteinn sagðist stunda lundaveiði sér til ánægju. Hann taldi að gamanið, sem hann hefur af veiðunum, yrði minna ef hann seldi veiðina. „Ég- borða hluta af þessu sjálfur. Eins færi ég vinum og kunningjum fugla. Það er misjafnt eftir árum hvemig veiðin er. Árferðið ræður öllu um hvort það er betri veiöi hér eða í eyjunum. Það ræðst af því hvort sílin eru nær hér eða þar.“ Sigursteinn sagðist reikna með að láta sér duga þessa hundrað fugla sem hann var búinn að fá. Eftir var að bera fenginn upp bratta brekku og að bílnum en það var talsverður gangur. -sme Með einn í háfnum. Sigursteinn gaf fuglinum lif, sagði það vera reglu hjá sér að sleppa fuglum sem hann veiðir og festir eru á filmu. DV-myndir Brynjar Gauti Besti árangur í ný- liðariðli á Eskifirði Hörkuspennandi hjól- reiðakeppni á Dalvík Bryndís Jónsdóttir, DV, Ökuleikni 89: Glampanöi sól en talsverður vindur var þegar Ökuleikni 89 fór fram á Eskifírði þann 28. júní sl. Þátttaka var góð og áhorfendúr voru duglegir að hvetja sitt fólk. Nokkuð góöur árangur náðist í öil- um riðlum og þá sérstaklega í ný- liöariðli. Sigurvegarinn í nýliðariðhnum gerði gott betur en að sigra þar, hann var með einu refsistigi minna en sá efsti í karlariðli, og náði besta árangri í sínum riðli yfir landið. Þessi efnilegi ökumaður heitir Ei- ríkur Kristjánsson. í fyrsta sæti í karlariðli var Stefán Kristinsson Bryndís Jónsdóttix, DV, Ökuleikni 89: Ökuleikni 89 fór fram á Neskaup- stað í þokkalegu veðri þriðjudags- kvöldið 27. júní. Þátttaka var með því besta sem hefur verið í sumar, bæði i reiðhjólakeppninni og Öku- Gyða Guðmundsdóttir, núverandi íslandsmeistari kvenna, lenti i öðru sæti á Neskaupstað. Hún fær fækifæri til að verja íslandsmeist- aratitilinn í úrslitakeppninni i haust. en í kvennariðli sigraði Guðbjörg Kristjánsdóttir. Mikil stemmning var í kringum keppnina á Eskifirði. M.a. skoraði umboðsmaður keppninnar þar, Kristinn Guðmundsson, á kunn- ingja sinn, Guðna Þór Magnússon, og sá skoraði á hann á móti. Þeir tóku báðir áskoruninni og luku keppni með sóma. Þessir heiðurs- menn eru báðir komnir yfir fimm- tugt og er óhætt að segja að gaman væri ef fleiri af þeirra kynslóð létu sjá sig. Mikil þátttaka var í reiðhjóla- keppninni og hart barist í báðum riðlum. Páll Bragason varð hlut- skarpastur í eldri riðlinum, fór leikninni. Það varð til þess að keppnin var mjög spennandi. Keppendur voru nokkuð jafnir þannig að enginn var öruggur með sæti og greinilegur taugaóstyrkur gerði vart við sig þegar líða tók á keppnina. Meðan þeir fullorðnu sátu inni í Egilsbúð og svöruðu umferðar- spurningum af miklum móð, spreyttu krakkamir sig á reiðhjól- unum. í riðli 12 ára og eldri sigraði Einar Sveinn Sveinsson með nokkrum yfirburðum. Félagar hans ætluðu margir að fara hratt brautina og ná þannig betri árangri en Einar. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiöi því þeir bæði villtust í brautinni og gerðu villur í nánast öllum þrautum. Hér sannaðist því máltækið: Flas er ekki til fagnaðar. í yngri riðlinum náði Hafþór Ei- ríksson 1. sætinu eftir harða bar- áttu við Ríkarð Svavar Axelsson og Davíö Svansson. Þetta var vel af sér vikið hjá Hafþóri því rétt áður en keppni hófst datt hann af hjóli sínu og meiddist lítillega. Nýliðarnir stóðu sig vel í Öku- Eiríkur Kristjánsson á nú besta árangur í nýliðariðli yfir landið. brautina villulaust á 40 sek. í yngri riöhnum sigraði Hávarður Gunn- arsson. Hann fór brautina á 39 sek. og gerði eina villu. Verðlaunin í Ökuleikni voru gefin af Benna og Svenna. leikninni eins og ahtaf. Agúst Magnússon fór með sigur af hólmi, hlaut alls 246 refsistig. í öðra sæti var Olga Hrand Sverrisdóttir með 289 refsistig og í því þriðja Theodór Alfreðsson með 294. í kvennariðli sigraði Margrét Al- freðsdóttir óvænt, en hún átti í höggi við núverandi íslandsmeist- ara, Gyðu Guðmundsdóttur, sem lenti í öðra sæti. Það var þó ekki mikið sem skildi þær að því Margr- ét var með 218 refsistig en Gyða með 220. í karlariðli var líka mjótt á mununum. Óli Gestsson sigraði með 190 refsistig. í öðru sæti var Guðlaugur Birgisson með 194 stig og Grímur Hjartarson var þriðji með 197 stig. Refsistigin samanstanda af vill- um fyrir uiúferðarspurningar, úma og villum í þrautaplaninu. Margir hafa mátt súpa seyðið af því að vera ekki nógu vel að sér í um- ferðarlögum og -reglum því refsi- stig fyrir villur í umferðarspurn- ingum hafa oft skipt sköpum. Gef- andi verðlauna í ökuleikni var Sparisjóður Norðfjarðar. Bryndis Jónsdóttir, DV, ökuleikni 89: Það blés hressilega kvöldið sem Ökuleiknin fór fram á Dalvík. En Dalvíkingar létu það ekki á sig fá, enda öhu vanir, og mættu galva- skir til leiks. Það hefur greinilega komið í ljós á þessu sumri að árin segja ekki allt mn fæmi ökumanna til aö leysa þrautir eins og þær sem boðið er upp á í Ökuleikni. Það sannaðist enn betur á Dalvík því þar skaut rúmlega tvítugur ökumaður, Gest- ur J. Arskóg, hinum ref fyrir rass og sigraði auðveldlega í karlariðh. Hann keyrði brautina létt og hpur- lega, án nokkurra átaka og af miklu öryggi. Konumar létu ekki sitt eftir hggja og keyrðu af öryggi og festu. Katrín Sigurjónsdóttir, sem reyndar er rétt rúmlega tvítug líka, stóð uppi sem sigurvegari í kvennariðh. Gestur og Katrín verða því full- trúar Dalvíkur í úrshtakeppninni í haust. Það er heldur ekki útilokað að þriðji keppandinn verði þeim samferða suður. Friðbjöm Bald- ursson, sem sigraði í nýhðariðlin- um, stóð sig mjög vel og á góða möguleika á því að vera meðal tíu efstu yfir landið í þeim riðh. Þeim er einmitt boðið að taka þátt í úrsh- takeppninni ásamt sigurvegurum í karla- og kvennariðlum um land allt. Mikil spenna ríkti hjá bömunum í hjólreiðakeppninni. Keppendur voru mjög margir og baráttan því hörð um verðlaunasæti. Bjami Jónsson sigraði örugglega í riðh 12 ára og eldri. Hann fór brautina villulaust á 35 sek. sem er næst- besti árangur fram til þessa. í yngri riðhnum sigraði hins vegar 9 ára gamall upprennandi hjólreiða- kappi, Björgvin Björgvinsson. Gef- andi verðlauna var Sparisjóður Svarfdælinga. Hart var barist í hjólreiðakeppninni á Dalvik. Miklar sviptingar á Neskaupstað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.