Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Side 40
40
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989.
Lífstfll
Geysilegur verðmunur:
Kjúklingur fjórum sinnum dýrari
Kilóverðið af kjúklingi í stór-
markaðnum Storköb í Danmörku
er fjórðungur af því sem þaö er í
stórmörkuðum hérlendis. Þar
kostar kg 119 kr. meöan það er á
629-641 kr. hérlendis. Neytenda-
samtökin koraust að þessari niður-
stöðu er þau báru saman verð upp
gefin í sölubæklingi frá hinni
dönsku verslun og verð i fjórum
stórmörkuðum hér á landi.
Mikill verðmunur var á ýmsum
fieiri vörutegundum. Prosnar gul-
rætur og grænar baunir voru til
að mynda tæplega fjórum sinnum
dýrari hér en þar. Flestar vöruteg-
undanna á hstanum voru meira en
helmingi dýrari hérlendis en í Dan-
mörku.
Þess skal geta að þær vörur sem
voru í danska bækhngnum voru
allar á tilboðsverði. En þrátt fyrir
þennan fyrirvara og þrátt fyrir að
tilht sé tekið til matarskattsins hér
á landi þá er verðmunurinn ótrú-
lega hár. Danir hafa ekki matar-
skatt en þess í staö hafa þeir virðis-
aukaskatt sera hækkar þeirra mat-
vöru töluvert.
Það sem hjálpar til við að hækka
kjúklingaverö svo mikiö hér á
landi er til dæmis kjarnfóðurskatt-
ur.
-gh
Ástæða
til að vara
fólk við
Verkjalyf sem hægt er að tá hér á landi án lyfseðils frá lækni. Þau er ýmist hægt að fá I formi taflna, stíia eða uppleysanlegra taflna i vatni. Einnig
er hægt að fá sum þeirra í fljótandi formi til að auðvelda bömum inntöku. Venjulega er takmarkaður skammtur leyfður til kaupa hverju sinni, um 10
til20töflurtildæmis. / DV-mynd Brynjar Gauti
Aukaverkanir algeng-
ustu verkjalyfja
Ef htið er í nýju íslensku lyfjabók-
ina og flett upp á manýl eða kódí-
magnýl má lesa eftirfarandi: „Mik-
ilvægt er að gera sér grein fyrir því
að of stórir skammtar af þessu lyfi
geta verið mjög hættulegir, jafnvel
lífshættulegir, sérstaklega fyrir
böm, þar sem það hefur áhrif á
sýmstig líkamans. Fyrsta merki
eitrunar er sviti, svimi, suð fyrir
eymm og hraðari öndun.“
Undir nöfnunum panodíl og para-
setamól má meðai annars lesa eft-
irfarandi: „Varasamt er að nota
lyfið ef fólk er með skerta lifrar-
eða nýmastarfsemi. Ef stór
skammtur af lyfinu er tekinn í einu
getur það valdið lifrardrepi og er
þá mjög mikilvægt að koma við-
komandi strax á sjúkrahús."
Samkvæmt upplýsingum frá apó-
teki em til um átta gerðir af þessum
algengustu verkjalyfjum hér á
landi og ganga þau imdir tólf mis-
munandi nöfnum. Eftirfarandi hsti
sýnir nöfn þessara lyfja og helstu
aukaverkanir:
Globentyl
Inniheldur acetýlsalicýlsýru. Al-
gengustu aukaverkanir eru ein-
kenni frá meltingarvegi, ógleði og
jafnvel sáramyndun á slímhúð.
Aörar aukaverkanir eru ofnæmi
og astmi. Þegar of stórir skammtar
em teknir koma fram eiturverkan-
ir sem oft lýsa sér fyrst sem suö
fyrir eyrum.
Koffazón
Inniheldur koffín og fenazón.
Aukaverkanir geta veriö ofnæmi
fyrir fenazóni, oftast frá húð og
• óþægindi frá meltingarfærum.
Koffínið eykur magasýrumyndun.
Stórir skammtar af lyfmu geta
valdið svefnleysi, hjartslætti og
höfuðverk.
Kódímagnýl
Inniheldur acetýlsalicýlsým og
kodeín. Algengustu aukaverkanir
em ógleði og jafnvel sáramyndun.
í shmhúð. Þegar of stórir skammt-
Neytendur
ar em teknir koma fram eiturverk-
anir sem oft lýsa sér fyrst sem suð
fyrir eyrum. Kódeínið í lyfinu getur
valdið syfju eftir stóra skammta,
einnig hægöatregðu.
Magnýl
Inniheldur acetýlsalicýlsýru og
magnesíumhydroxíð. Aigengustu
aukaverkanir eru ógleði og sára-
myndun í slímhúð. Einnig getur
orðið vart astma og ofnæmis. Eit-
urverkanir af völdum of stórra
skammta lýsa sér fyrst sem suð
fyrir eyrum.
Nurfen/íbúfen
Aukaverkanir geta lýst sér sem
óþægindi frá maga, til dæmis nábít-
ur eða niðurgangur. Höfuðverkur,
þreyta og húðútbrot geta einnig
komið fram. Einstaka dæmi eru
um astmaköst, bólgu í nefshmhúð
og lifrar- og nýmabólgur.
Panodíl/para-
setamól
Inniheldur paracetamól. Auka-
verkanir eru fremur sjaldgæfar.
Einstaka notandi hefur ofnæmi
fyrir lyfinu og fær húðútbrot og
jafnvel blóðbreytingar. Langvar-
andi notkun lyfsins getur valdið
nýmaskemmdum. Of stór skammt-
ur getur haft skaðleg áhrif á lifrina.
ParkódiVkódípar
Inniheldur paracetamól og kó-
deín. Aukaverkanir: Kódeínið get-
ur valdið syfju, ógleði og hægða-
tregðu. Paracetamólið getur valdið
ofnæmi og fækkun hvítra og
rauðra blóðkoma. Langvarandi
notkun og of stór skammtur getur
haft sömu áhrif og við töku pano-
díls. -gh
- segir landlæknir
„Það er ástæða til að vara fólk
við er það tekur þessi lyf inn. Þegar
við fórum í apótek og kaupum okk-
ur verkjalyf, sem hægt er að fá án
lyfseðils frá lækni, er það á okkar
eigin ábyrgð að kynna okkur hvaða
magn má taka og hvaða aukaverk-
anir lyfið getur haft,“ sagði Guð-
mundur Sigurðsson, settur land-
læknir, í samtah við DV á dögun-
um.
Fékkmagasár
ogblóðtappa
Hjá nágrönnum okkar í Noregi
hafa að undanfomu spunnist mikl-
ar umræður um notkun hinna svo-
köhuðu aspirínlyfja og panodíls.
Það var læknirinn Berit Langeland
sem hratt þessum umræðum af
stað eftir að hún kynntist sjálf
óskemmtilegu hhðinni á slikri
lyfjatöku.
Berit fékk bæði magasár og lífs-
hættulegan blóðtappa eftir að hafa
tekið lyfið globoid við tannpínu.
Hún hafði tekið hálfa töflu tvisvar
á dag í tólf daga í röð er hún var
flutt í skyndi á sjúkrahús.
Panodíl
við timburmönnum
stórvarasamt
Globoid er svipað lyfjunum
magnýl, kódímagnýl og globentyl
er öh innhalda acetýlsahcýlsýru í
mismunandi magni og í bland við
önnur mismunandi efni. Helstu
ókostir acetýlsahcýlsýru em að
hún ertir shmhúðina í maganum
og getur því valdið sáramyndun
þar.
Panodíl, sem einnig gengur undir
nafninu parasetamól, innheldur
ekki þetta efni. Það brotnar á hinn
bóginn niður í lifrinni cg er því
mjög varasamt að taka of stóran
skammt af því. Það ætti heldur
aldrei að taka ofan í áfengi eða við
timburmönnum til dæmis því alkó-
hólneysla leggst einnig mjög þungt
á þetta líffæri. Nýjustu rannsóknir
sýna að langvarandi notkun lyfsins
geti einnig valdið nýrnaskemmd-
um.
Minnaen
annars staðar
Guðmundur Sigurðsson hjá
Landlæknisembættinu bætti við
að langbest væri fyrir fólk að leita
upplýsinga um þessi lyf hjá lyfja-
fræðingum í apótekum eða að fletta
þeim upp í lyijahandbókum. Hann
taldi þó að íslendingar neyttu
slíkra lyfja í minna magni en marg-
ar aðrar þjóðir á Vesturlöndum og
að það gæti stafað af því að bannaö
er að auglýsa þau á almennum
markaðihérlendis. -gh