Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Qupperneq 43
MÁNUDAGUR 17.JÚLÍ 1989. 43 Menning Byssuskot og dapuriegt vísubrot Þetta er nýleg saga, kom út fyrir sjö árum í Bandaríkjunum en höf- undur lést tveimur árum síðar. Hún er endurminningar fullorðins manns, aöallega um sumarið þegar hann var tólf ára. Nokkur minninga- brot eru um fyrri tíö, einkum þegar hann bjó í útfararstofu. Það er for- boði meginatburðar sögunnar, einn- ig hitt, hve handköld dóttir útfarar- stjórans er. Þannig hnitast hin ýmsu minningabrot sögunnar að einu marki, örlagaatburði, sem sögumað- ur er sífellt að víkja að með sjúklegri þráhyggju um dagsetningu, um ham- borgara sem hann hefði átt að kaupa freinur en byssuskot og dapurlegt vísubrot sem titill sögunnar er tek- inn úr. Með þessari hnitun verður þetta áhrifarík saga þótt einfóld sé á yfirborðinu og sögumaður virðist segja stefnulaust frá hvíeina. Kkiuud Ik'.mtigan Svo berist ekki burt raeð vindum Bókmenntir Örn Ólafsson „Ég sat þama og horfði á stof- una þeirra skera sig skínandi úr myrkrinu við tjörnina. Hún var eins og hugljúft æv- intýri sem hélst áhyggjulaust í hendur viö óspilltan tíöar- anda eftirstríðsáranna í Bandaríkjunum, áður en sjónvarpið beygði ímyndun- arafl fólks í duftið og hlekkj- aði það innan dyra, varnaði því að láta draumsýnimar rætast með eðlilegum hætti.“ Ég hefi því miður ekki getað orðið mér úti um frumtextann en þýðingin er á lipru máli og lifandi, oftast nær. Svolítið ankannalegt finnst mér vísu- brotið en þaö er það kannski líka í frumtextanum. Richard Brautigan ^ MM 1989, 105 bls. Gyrðir Etiasson Fátækir Kanar Hér birtist okkur önnur hlið Bandaríkjanna en sú sem kunnust er af kvikmyndunum. Sögumaður er sonur einstæðrar móður, þau eru á bænum, einlægt að flytja úr einu hreysi-í annað. Hann safnar flöskum til að eignast peninga og fer mikið einforum. Mynd sögumanns skýrist af andstæðunni við vin hans, sem er snyrtilegur íþróttamaður, vinsælasti piltur skólans, o.s.frv., í stuttu máli sagt hetjan úr bíómyndum um ungl- inga. Hvað laðar hann að sögu- manni? Það virðist helst vera að méö honum fær hann tækifæri á að sýna bakhlið þessarar glansmyndar, óút- skýranlegan kvíða, martraðir sem hann getur ekki munað. Þetta er í senn enn einn forboði örlagavið- burðarins og skiljanlegt aö fullkomin aðlögun piltsins að ríkjandi viðmið- un kosti hann eitthvað í persónu- þroska. Af öðrum persónum ber mest á einmana, drykkjusjúkum næturverði og einsetukarli sem er öryrki, einu tengsl þessara manna við umheiminn virðast vera við sögumann. í þessum persónum birt- ist því einsemd piltsins óbeint. Auk þess eru miðaldra hjón (myndin á forsíðu bókarinnar) sem koma á hveiju kvöldi með pallbíl fullan af húsgögnum niður að tjörninni, setja þar upp dagstofu og eldhús á bakkan- um, til að geta setið í sófa á tjarnar- bakka og veitt geddur. Það er ekki fljótlegt að sjá tilganginn með að segja frá þessum persónum, enda eru þau tilgangur í sjálfu sér, sérvitring- ar í bestu merkingu þess orðs, fara sínu fram án þess að hugsa til þess hvað öðrum kunni að finnast. Og ein- mitt þannig verða þau ímynd þess öryggis sem drengurinn þráir. Forboði slyss Þegar drengirnir hjóla á staðinn þar sem slysið verður liggur leið þeirra um niðumítt fátækrahverfi, á þá æpir strákur, öfundsjúkur yfir að þeir skuli eiga hjól. Varmi „Hann var bara einn þessara krakka, vitstola sökum fá- tæktar og sídrukkinn faðir hans lemur hann í tíma og ótjma, hamrar á því að það verði aldrei neitt úr honum, hann endi einsog faðirinn, sem og rætist.“ Drengimir tveir em að fara á skot- æfmgu og það er þá í yfirgefnum ald- ingarði, fullum af rotnandi eplum. Þetta er ekki aðeins forboði slyssins heldur einnig þess að sögumaður er hrakinn burt úr samfélaginu og þetta er forboði rótlauss lifs sögumanns sem er þjakaöur af sektarkennd alla tíð síðan. Það kemur vel fram í því að hann skuli vera að segja frá þessu aldarfjórðungi síðar. Og það er áhri- faríkt að ljúka sögunni á mótpól þessa, feitu hjónunum á tjarnar- bakkanum. Þau verða tákn friðsæll- ar fortiðar fyrir syndafallið. Það er ekki lengur einkamál sögumanns heldur varðar allt samfélagið: RÉTTINGAR OG SPRAUTUN AUÐBREKKU 14, KÓPAV., SÍMI 44250 1 0 (I N I. I II A N I. /fflMIIIIIIIU SUMARTILBOÐ ÁPÍANÓUM greiðast á allt aö 2 árum PÁLMARS ÁRNA HF HLJÓDFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERDIR ÁRMÚLI38,108 REYKJAVÍK, SlMI 91 -32845 SIMNEFNI: PALMUSIC-FAX: 91-82260 HARNY Hárgreiðslu- og rakarastofa Nýbýlavegi 22 • Sími 46422 • 200 Kóp. KMS sjampó og næríng . HÁRGREIÐSLU- 0G RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG 29, RVÍK ® 13010 • 12725 Þingmenn á þjóðvegi Ásgeir Hannes Eiríksson Guðmundur Ágústsson Norðurland vestra Veröum á: Vertshúsinu Hvammstanga þriöjudaginn 18. júlí kl. 18-19 Hótel Blönduosi miövikudaginn 19. júlí kl. 18-19. Hótel Mælifelli fimmtudaginn 20. júlí kl. 18-19. BORCARA FLOKKURINN ALLAR UPPLÝSINGAR HJÁ SÖLUSKRIFSTOFUM OKKAR OG FERÐASKRIFSTOFUNUM. m. ARNARFLUG Veródæmi þetta miðast viö tvo fullorðna á Apex-gjaldi, kr. 21.950, og tvö börn meó 50% afslætti. Lágmúla 2, sími 91-84477, Austurstæti 22, 91-623060, Flugstöð Leifs Eirikssonar. sími 92-50300. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.