Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Síða 48
 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. Einvígi Margeirs * og Jóns L. frestast Ekki tókst að ná fram úrslitum í Íslandsmeistaraeinvígi þeirra Jóns L. Árnasonar og Margeirs Péturs- sonar en eftir að sex skákir höfðu verið tefldar var staðan 3-3. Tvær aukaskákir voru tefldar um helgina og Jauk þeim báðum með jafntefli eftir sviptingar. Ekki tekst að ljúka einvíginu núna því skákmeistararnir hé-ldu í morgun utan til Finnlands en þar fer Norður- landamótið í skák fram. Norður- landamótið er samtímis svæðamót —éða upphaf að nýrri keppni um heimsmeistaratitilinn. Margeir er núverandi NM-meistari. Keppni þeirra félaga verður framhaldið í næsta mánuði en þá veröur teflt þar til annar vinnur skák, svokallaður bráðabani. -SMJ Fjórtán ára r ökumaður tekinn Lögreglan í Keflavík handtók í nótt 14 ára gamlan ökumann, próflausan að sjálfsögðu en óölvaðan. Hafði pilt- ur ekið til Keflavikur frá Þorláks- höfn með ölvaðan eiganda bílsins í farþegasætinu. Hafði sá fengið þann yngri til að keyra fyrir sig. Lögregla veitti bílnum athygli þar sem hann var vanbúinn til aksturs. Ökumaður- inn ungi virtist ekkert stressaður yfir uppátækinu og tók afskiptum lögreglunnarmeöstakriró. -hlh Góöa veðrið hefur áhrif: " Tjaldsvæðið þéttskipað á Akureyri Mikill fjöldi ferðamanna, inn- lendra og erlendra, hefur gist á tjald- stæðum á Akureyri síðustu viku enda veðrið eins og best verður á kosið. Að sögn lögreglunnar hefur verið mikil umferð um bæinn undan- farna daga og greinilegt að margir sunnanmenn hafa ekið norður í góða veðrið. Tjaldsvæðið á Akureyri var héttskipað tjöldum. Þá hefur talsvert ^"^rið hringt á lögreglustöðina að sunnan og spurst fyrir um veðrið. -ELA Keflavíkurflugvöllur: Lá við árekstri kafbáta- t 5MT\^^rlcMT OllUbllS - tilviljun að slökkvUiðsmenn sáu bílinn í þokunni Rétt fyrir klukkan átta á fóstu- rnínútu. Þegar slökkviliðsmenn- um næsta nágrenni flugvalla eins skrifstofustjóri Flugumferðar- dagskvöld munaði minnstu að Ori- imir voru að hjálpa bílstjóra olí- og reyndin væri á Keflavíkurflug- stjórnar í Flugstöð Leifs Eiríksson- on kafbátarleitarvél kæmi inn til flutningabílsins af brautinni velli. ar. iendingar á flugbraut 29 á Keflavík- heyrðu þeirhvininn í Orion-vélinni „Ég veit ekki hver er fær um að Guðmundur Ó. Ólafsson yfirflug- urflugvelli þrátt fyrir að olíuflutn- þegar hún flaug yfir. dæma hvort fleiri hafi leyfi til að uraferðarstjóri sagðist ekki hafa ingabíll frá Esso væri á brautinni „Maumferðin hér getur verið aka um flugvallarsvæðið hér en séð sambærilega lista frá öðrum raiðri. Bílstiórinn hafði villst inn á eins og á Hellisheiðinni á góðum tíðkast annars staðar. Það er ekki flugvöllum. Hins vegar væru menn brautina vegna þoku. Það var til- sumardegi,“ sagði flugumferðar- hægt að bera þetta saman. Þetta er sera þyrftu að aka um svæðið settir vfljun ein að menn á brautarvakt sfióri í samtali við DV. Hann sagði völlur sem þjónar bæði herflugi og á sérstök námskeið „sem virðist slökkvfliðsins sáu grilla í ljós úti á flugumferðarsíjóra hafa verið ugg- borgaralegu flugi. En hér fær eng- ekki hafa dugað í þessu tilfelli.“ brautinni. Þeir höfðu samband við andi ura hversu margir hefðu leyfi inn að aka um nema vegna starfa Þetta atvik er nú til rannsóknar flugtuminn og flugumferðarstjór- til að aka um fugvallarsvæðið, Á eða framkvæmda. Hér er að sjálf- hjá lögreglunni á Keflavikurflug- ar vísuðu Orion-véliimi frá. Þá átti ferðum sínum erlendis heföi hann sögðu miklu meiri starfsemi en á velli og mun verða sent loftferða- hún um þrjár mílur ófamar imi tfl ekki kynnst flugvöllum þar sem velli sem er bara með borgaralegt eftirlitinu til rannsóknar. lendingar eða um eina og hálfa jafnmargir hefðu heimfld tfl að aka flug,“ sagði Ásgeir Einarsson, -gse Seint í gærkvöldi gengu um 40 manns yfir 700 gráða heita glóð úti í Við- ey. Eldgangan var liður í hátíðinni Snæfellsás 89 sem verður haldin um næstu helgi. Eftir nokkurra klukkustunda undirbúning Bandarikjamannsins Ken Cadigans gengu þátttakendur, fullorðnir sem börn, yfir glóöina. Með réttu hugarfari á að vera hægt að ganga yfir eldinn án þess að brenna sig og varð sú raunin. Eldfararnir gengu mörgum sinnum yfir bálköstinn sem hver og einn hafði í upphafi kastað miða á þar sem á stóð hvað hver og einn vildi brenoa burt úr lífi sínu. -ÓTT/DV-mynd Hanna Borgin kaupir Broadway - kaupsamningur með fyrirvara Samningar um kaup Reykjavikur- borgar á skemmtistaðnum Broad- way voru undirritaðir með fyrirvara fyrir helgi. Verða þeir lagðir fyrir borgarráð á morgun. Davíð Oddsson borgarstjóri kvaðst í samtali við DV í morgun ekki vilja tjá sig um kaupverðið á Broadway, þar sem borgarráð hefði enn ekki fengið málið til afgreiðslu. Hann sagði að fyrirhugað væri að koma upp athvarfi fyrir unglinga í Broad- way, þar sem þeir gætu þá skemmt sér án áfengis. Einnig yrði húsið notað sem skemmtistaður og ráð- stefnusvæði fyrir borgina. Staðsetn- ing þess væri mjög hentug og væri fullvíst að það kæmi að góðu gagni. -JSS Sílamávur hefur gert mikinn usla við Tjörnina í Reykjavík undanfarið. Hafa andafjölskyldur átt mjög í vök að verjast fyrir þessum vargi sem lónir yfir andabyggðinni á daginn í von um að geta gleypt nokkra unga. Þeir Ólafur Nielsen og Finnur Logi Jóhannsson skárust hins vegar í leikinn síðdegis i gær og sendu þessum óboðna gesti heldur kaldar kveðjur. Eftir átökin lágu sjö vargar í valnum. Enn er þó full ástæða fyrir andamömmurnar að fara varlega um sinn þar sem nóg er af þessum vágesti. DV-mynd S LOKI Þeir virðast eldhressir í Viðey! Veðrið á morgun: Skin og skúrir Á morgun veröur suðvestanátt með skúrum suðvestan- og vestan- lands. Um austanvert landið verð- ur bjartviðri. Annars staðar verður úrkomulaust en skýjað. Hiti verður á bilinu 10 til 18 stig, hlýjast fyrir austan eins og venjulega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.