Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Fj ármagnstilfærslur ríkisstj ómarinnar:
Tæpir tólf milljarðar
til atvinnuveganna
- 1 styrki, lán og ábyrgðir frá ríkissjóði og opinbera sjóðakerfinu
Á þeim tæpu tíu mánuðum sem
ríkisstjóm Steingríms Hermanns-
sonar hefur setið að völdum hefur
hún staðið fyrir ýmiss konar fjár-
magnstilfærslum til atvinnuveganna
fyrir rúma 11,7 milljarða króna.
Þessar tilfærslur hafa verið í formi
beinna styrkja, niðurgreiðslna, víkj-
andi lána, lána með ríkisábyrgð eða
ábyrgða opinberra sjóða og frestun á
aíborgunum eldri lána. Fyrir sumu
hefur verið gert ráð fyrir í íjárlögum,
annaö hefur stækkað gatið á ríkis-
sjóði og enn annað kemur ekki til
greiðslu fyrr en á næstu árum.
Til þess að gefa hugmynd um
hversu umfangsmikil þessi fyrir-
greiðsla er, þá yrði stafli af eitt þús-
und króna seðlum, sem í væru 11,7
milljarðar, um 1.170 metrar á hæð.
Það er tæplega sextánfóld hæð Hall-
grímskirkju.
Sjávarútvegur búinn
að fá 6,6milljarða
Þessar fjármagnstilfærslur ríkis-
stjómarinnar hófust strax og hún tók
við völdum. Þá var Atvinnutrygg-
ingasjóöur stofnaður með framlagi
úr ríkissjóði og Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði ásamt heimild til innlendr-
ar og erlendrar lántöku. Þá tók verð-
jöfnunarsjóður fiskiðnaðarins einnig
lán til aö verðbæta frystar sjávaraf-
urðir en þetta lán kemur til með að
falla á ríkissjóð. Auk þess er undir-
búningur að stofnun hlutafjársjóðs
Byggðastofnunar hafinn, samþykkt
að greiða niður raforku til fisk-
vinnslu og veija 100 milljónum í
skuidbreytingu til trillukarla.
Samtals námu þessar tilfærslur 6,6
milljörðum og þar af voru 1,9 millj-
arðar bein framlög úr ríkissjóði og
Atvinnuleysistryggingarsjóði.
Megnið af þessari tilfærslu fór til
sjávarútvegsfyrirtækja. Þessu til við-
bótar ráðgerir ríkisstjómin aö stofna
nýjan úreldingarsjóð fiskiskipa,
stofna til gæðaátaks í sjávarútvegi,
verja fjármunum til fullvinnslu á
afla og stofna sérstaka þróunardeild
við Fiskveiðasjóð. Þessi fyrirhugaða
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
aðstoð mun kosta um 440 milljónir
og er að mestu í formi framlaga frá
ríkissjóði og opinberum sjóðum.
Landbúnaðar, loðdýr
og fiskeldi fá sitt
Ríkisstjórnin hefur aukiö niður-
greiðslur á landbúnaðarafurðum um
870 milljónir og ljóst er að útflutn-
ingsbætur munu hækka um 200
milljónir í tíð hennar.
Þá stóð ríkisstjómin fyrir gifurlega
umfangsmiklum aðgerðum til hjálp-
ar loðdýraræktinni snemma á þessu
ári. í Ijósi síðustu upplýsinga um
stöðu greinarinnar er ljóst að megnið
af þeim 570 mfiljónum, sem lagt var
tfi loðdýraræktar í þessum aðgerð-
um, er glatað fé.
Nú hefur Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráöherra kynnt enn
frekari aðgerðir tfi bjargar loðdýra-
ræktinni. Erfitt er að meta fullkom-
lega hversu dýrar tillögur Stein-
gríms eru, en að mati sérfræðinga,
sem DV ræddi við, er ekki óvarlegt
að áætla að þær kosti um 1,5 til 2,3
milljarða.
Ríkisstjómin setti+á stofn trygg-
ingasjóð fiskeldis í vetur. Honum er
heimfit að veita 1.800 mfiljón króna
ríkisábyrgð á lán tfi fiskeldis. Þessu
til viðbótar samþykkti ríkisstjórnin
að Framkvæmdasjóður íslands
skyldi lána viðskiptabönkunum allt
að 1.000 mfiljónir til að tryggja að
lausafjárstaða þeirra versnaði ekki
þrátt fyrir lánveitingar til fiskeldis.
Þá hefur greinin einnig fengið sölu-
skatt endurgreiddan.
Fleiri Hallgríms-
kirkjur á leiðinni
Auk þessa hefur ríkisstjórnin
styrkt Arnarflug og Álafoss með
ýmsum aðgerðum. Þá fékk lagmetið
stuðning vegna áfalla á Þýskalands-
markaði og nú síðast var 150 milljón-
um varið til að styðja fyrirtæki sem
ráða skólafólk í sumarafleysingar.
Samtals hefur ríkisstjómin varið
rúmum 11,7 milljörðum í ýmsar fjár-
magnstilfærslur til atvinnuveganna.
Eins og áður sagði er ráðgert að
bæta enn við tilfærslurnar til sjávar-
útvegs og loðdýraræktar. Lauslega
áætlað má því meta þær tilfærslur
sem ríkisstjómin hefur þegar staðið
fyrir og þá tilfærslu sem þegar er
komin á teikniborðið upp á um 14
mfiljarða króna.
Flestir eiga erfitt með að gera sér
í hugarlund hvað það eru í raun
miklir fjármunir. Ef 14 milljörðum
væri skipt í eitt þúsund króna seðla
og þeim staflað upp, yrði staflinn um
1,4 kílómetrar að hæð. Það er tæplega
nítjáníold hæð Hallgrímskirkju.
Millifærslur ríkisstjórnarinnar
DI'JRJ
Á þessari skýringarmynd má sjá umfang þeirrar fjármagnstilfærslu sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar
hefur staðið fyrir. Gert er ráð fyrir að styrkjum og lánveitingum ríkissjóðs og annarra opinberra sjóða ásamt ríkis-
ábyrgðum sé skipt í eitt þúsund króna seðla. Þeim er siðan staflað upp á Skólavörðuholtinu við hliðina á Hall-
grímskirkju, sem er 75 metrar á hæð.
í dag mælir Dagfari
Strandar á sokkabuxum
Menn hafa veriö að hneykslast á
því að sokkabuxur hafi tafið vinnu-
defiu flugfreyja og Flugleiða. Mun
hafa strandað á því að flugfreyjur
gerðu kröfur um að fá tvennar
sokkabuxur í stað einna. Flugleiða-
menn reiknuöu það út að auka-
sokkabuxur kostuðu fyrirtækið
tvær tfi þrjár milljónir á ári. Það
eru auðvitað dýrar sokkabuxur en
stórt flugfélag hlýtur að hafa efni
á því að eiga fyrir undiríotum
handa starfsfólkinu ef það vfil aö
fólkið mæti tfi vinnu.
En það er þetta með hneyksl-
unina. Halda menn að flugfreyjur
geti verið án sokkabuxna? Vilja
menn að flugfreyjur gangi sokka-
buxnalausar um vélarnar og upp-
farti farþegana hálfnaktar? Dagfari
veit að farþegarnir hafa ekkert á
móti því og vildu meira að segja
að þær væru topplausar ef því er
að skipta. Ekki veit Dagfari hvort
fyrirtækiö kaupir handa þeim
brjóstahaldarana eða blússumar
en ef forstjóramir vfija spara ein-
hvem pening og takmarka klæða-
buröinn hjá flugfreyjunum er
miklu meira vit í því að skera niöur
innkaupin á brjóstahöldumm og
láta stúlkurnar ganga um ber-
brjósta. Það væri nú aldefiis sölut-
rikk sein borgaði sig. Þeir gætu
þess vegna hafið Ameríkuflugið til
vegs og virðingar aftur ef það
spyröist að íslenskar flugfreyjur
gengju til beina án þess að vera í
nokkru að ofan.
Meðan stefna Flugleiða er hins
vegar sú að hafa flugfreyjur í fullu
klæðum nær það ekki nokkurri átt
að neita þeim um sokkabuxur.
Sokkabuxur vilja gjaman rifna og
allir vita að það er ljótt og subbu-
legt að ganga um í rifnum sokka-
buxum sem er dregið til í. Maöur
er alveg hissa á því hvemig heil
stétt af flugfreyjum hefur hingað
til getað látið einar sokkabuxur
endast í heilan mánuð. Það er lág-
mark að hafa aðrar tfi skiptanna
og maður skilur vel að það þurfi
að stöðva flugflotann þegar svona
alvarleg tíðindi gerast. Flugfreyja
getur ekki verið þekkt fyrir aö
ganga tfi starfa í einum sokkabux-
um. Það er meira áríðandi að
sokkabuxurnar séu í lagi heldur
en hvort farþegaflutningar gangi
fyrir sig með eðlflegum hætti.
Ekki veit Dagfari um kjarasamn-
inga flugmanna. Þeir fengu kröfum
sínum framgengt fyrir nokkra án
þess aö stöðva þyifti ílugið. Ekki
kæmi það þó á óvart þótt flugmenn
hefðu sett fram kröfu um tvennar
nærbuxur á mánuði. Flugmenn
sitja mikið í starfi sínu, gera nán-
ast ekkert annað. Þeir þurfa á góð-
um nærbuxum að halda og þurfa
að hafa nærbuxur tfi skiptanna.
Allir vita að flugmenn treysta sér
ekki til að vinna lengur en í níu
klukkustundir í einu og hafa þurft
að snúa vélum við vegna þess að
vaktirnar hafa farið nokkrum mín-
útum fram yfir þann tíma. Sjálfsagt
stafar það meðal annars af því að
flugmenn þurfa að skipta um nær-
buxur eftir langa og stranga setu
frammi í vél. Eða þá að þeir hafa
ekki haft auka nærbuxurnar meö
sér og þurfa aö komast í land tfi
aö kaupa nýjar. Auðvitað eiga
Flugleiðir að skaffa flugmönnum
nærbuxur og auðvitað eiga Flug-
leiðir að skaffa flugfreyjum sokka-
buxur þegar fólk þarf að vinna alla
leiðina meðan flugið stendur yfir.
Það veröur að vera jafnrétti í flug-
inu eins og annars staðar.
Það er ábyrgðarmikið verk að
halda uppi samgöngum til og frá
landinu. Flugvélarnar geta hrapað
og flugliðið getur tekið upp á því
aö leggja niður störf yfir miðju Atl-
antshafi ef því er misboðið af fyrir-
tækinu sem það starfar hjá og fær
ekki nærfatnað og undirfót til að
ganga í. Flugmenn hafa engin efni
á því að vera skipta sífellt um nær-
buxur og flugfreyjur verða aö
ganga almennflega tfi fara. Þetta
fólk á skýlausan rétt á því að fyrir-
tækiö sjái því fyrir undirfatakaup-
um ef það vill á annað borð halda
uppi rekstri á flugfélagi sem sómi
er að.
Eftir allt hugsjónastarfiö og
brautryðjendastarfið í fluginu, eftir
allan þann metnað sem við íslend-
ingar höfum lagt í að efla eigin
flugsamgöngur, getur svo farið að
flugið leggist niður vegna þess að
Flugleiðir tíma ekki að kaupa und-
irföt handa starfsliðinu. Og starfs-
liðið hefur ekki efni á að kaupa
þau. Flugið stendur og fellur með
sokkabuxum tfi skiptanna!
Þaö flýgur enginn sokkabuxna-
laus. Þá er betra að Flugleiðir fari
á hausinn.
Dagfari