Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989. 9 Útlönd Evrópuferð Bush Bandaríkjaforseta lokið: Lofar umbætur ríkja A-Evrópu Bush Bandaríkjaforseti, sem hóf tíu daga Evrópuferð sína með hvatn- ingu um sameiningu meginlandsins, lauk henni á þeim orðum að hinn nýi heimur, er hann hvatti til, væri á engan hátt ógnun við yfirvöld í Sovétríkjunum. Lagði hann áherslu á að frelsi almennings í heiminum ykist. Bush er í opinberri heimsókn í Hollandi er leggur af stað til Banda- ríkjanna í dag. í Evrópufór sinni hefur Bush hvatt til þess að jámtjaldið svokallaða, sem skiptir Evrópu, verði tekið niður. Hann lofaði umbótatilraunir Gor- batsjovs Sovétforseta og umbætur þær sem nú eiga sér stað í Póllandi og Ungverjalandi en Bush fór í opin- bera heimsókn til beggja þessara landa. Lagði forsetinn áherslu á að engin ógnun fæhst í umbótum ríkja A-Evrópu. Bush hét því aö styðja frekar við bakið á umbótum handan járntjalds- ins með því að bæta samskipti Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna. Bætt samskipti við Sovétríkin minnka Bush Bandaríkjaforseti kom í heimsókn til Hollands í gær. Hann heldur til Bandaríkjanna í dag. Símamynd Reuter spennuna í ríkjum Austur-Evrópu, sérstaklega þeirra sem nú standa á þröskuldi umbóta, sagði hann. Heimsókn Bush í Hollandi var stutt. Hann ræddi við fulltrúa stjóm- ar og snæddi morgunverð með full- trúum stjórnarandstöðu áður en hann kvaddi Beatrix drottningu. Reuter Bush og Beatrix Hollandsdrottning við komu forsetans til Hollands I gær. Símamynd Reuter Sovétmenn tvísaga . Blaðafulltrúa norska ríkisins þyk- ir það ekki pínlegt að norsk yfirvöld skuli hafa kallað á sinn fund sendi- herra Sovétríkjanna í Noregi vegna þess sem gæti hafa verið reykur frá dísilvél. Segir blaðafulltrúinn að svo hafi virst sem um slys hafi verið að ræða. Engar upplýsingar hafi komið frá Sovétríkjunum um hvað átt hefði sér stað. Og úr því aö kafbáturinn hreyfðist eins og hann gerði hefði verið eðlilegast' að sovésk yfirvöld hefðu strax látið vita hvað kom fyrir. Blaðafulltrúinn bendir einnig á að nýjar upplýsingar Sovétmanna komi ekki heim og saman við það sem þeir sögðu á mánudagskvöld en þá var sagt að engin vandræði væru um borð í kafbátnum. í gærmorgun sögðu Sovétmenn aö bilun hefði orðið í kjarnaofni kaf- bátsins sem var á æfingu. Reyk hefði lagt upp frá kaíhátnum vegna gang- setningar dísilvélar en ekki vegna eldsvoða eins og Norðmenn héldu fram. Sovésk yfirvöld hafa sagt að ekki sé nein hætta á geislamengun í kjöl- far bilunarinnar. Norskt skip hefur tekið sýni úr hafinu á umræddu svæði og munu niðurstöður rann- sóknarinnarliggjafyrirídag. ntb Hvernig væri umferðin ef allir ækju eins og þú. - Værir þú viðbúinn slíku? UMFERÐAR RAÐ Gabriel HÖGGDEYFAR NÝ STÓRSENDING! G ” SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88 PN"69 BUGK&DECKER JULITILBOÐ GX 303 loftpúðavél Kantskeri GL 120 - GL 220 TILBOÐ 1 GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,- GL 120 kantskeri kr. 3.964,- A 6261 25m raftaug kr. 1.123,- 18.908,- TILBOÐSVERÐ KR. 15.882,- TILBOÐ 2 GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,- GL 220 kantskeri sjálfvirkur kr. 5.333,- A 6261 25m raftaug kr. 1.123,- 20.276,- TILBOÐSVERÐ KR. 16.829, Sölustaðir um land allt. SIWPRA/viiSTALHF BORGARTÚNI 31, SÍMI 627222 Pízza dagsíns - hrásalat og lasagne VERIÐ VELKOMIN Sími 685670 Opiðalladagafrákl. 18.00-23.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.