Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989. Utlönd Bágir Þórisson, DV, New York: Tæknilega fullkoranasta og dýrasta herflugvél sögunnar, B-2 sprengju- flugvélin bandaríska, fór í fyrsta sinn í loftið á mánudag. Flugið gekk vel en alvarleg hætta er á aö hún fljúgi ekki jafnvel í gengum þingið. Verð- ið, 530 mifljónir dollara stykkið, jafnvirði um 30 milljarða króna fyrir hverja vél, vex mönnum í augum, einkum þar sem möguleg afvopnim gæti gert vélina óþarfa. Sraíöin hefur tekið tiu ár og kostað 22 miHjarða dollara hingað til. Allt í allt myndu þær 132 flugvélar, sem Bandarikjastjórn vill kaupa, kosta 70 milljarða dala, jafnvirði 4.200 milljarða íslenskra króna. Verkfall í Bretlandi Strætisvagnarnir i London stóðu kyrrir í gær vegna sólarhringsverkfalls viðhaldsmanna. Símamynd Router Fimmta sólarhringsverkfall járnbrautarstarfsmanna í Bretlandi á skömmum tíma hefst í dag eftir að leiðtogar stærsta verkalýðsfélags þeirra höfiiuöu boöi um kauphækkun. Tvö önnur félög gengu að tilboð- inu, félag lestarstjóra og skrifstofumanna. Verkfall jámbrautarstarfsmanna er alvarlegasta vinnudeilan sem Thatcher forsætisráðherra hefur þurft að kljást við síðan stjóm hennar bældi niður árslangt verkfall námuverkamanna fyrir fjómm árum. Eeuter B-2 sprengjufiugvélin við flugtak i gær. Simamynd Reuter Dullah Omar, lögfræðingur Nelsons Mandela, ásamt Winníe Mandela, eiginkonu Nelsons, dóttur Mandeia Zinzi og dótturdóttur. Símamynd Reuter í fyrsta sinn í tuttugu og sex ár verður fjölskylda Nelsons Mandela hjá honum á afmælisdegi hans en Mandela verður 71 árs í dag. Að stjómvöld skuli nú í fyrsta sinn hafa leyft flölskyldunni aö koma saman gefur vangaveltunum um aö frelsi Mandela sé á næsta leiti byr undir báöa vængi. Fimmtán til sextán manns munu veröa í afinælisveislunni í einbýlis- húsi því sem veriö hefur fangelsi Mandela frá því aö hann náði sér eftir sjúkrahúsvist í fyrra. í síðustu viku fengu sex samfangar Mandela að heimsækja hann og snæðameöhonumhádegisverð. Reuter Palmevitnl horfið Eitt af mikilvægustu vitnunum í Palmemálinu hvarf fyrir rúmri viku. Vitnið, sem er fangi, kom ekki á tilsettum tíma til fangelsisins eftir eins dags leyfi. Fanginn er kunningi ákæröa og við yfirheyrslu í réttarhöldunum kvaðst hann hafa séö ákærða fyrir utan Grandbíóið rétt eftir klukkan 23 kvöld- iö sem Olof Palme var myrtur. Vitnið þykir sérlega mikilvægt fyrir sak- sóknara þar sem það er eina vitnið sem kannaðist viö ákærða. Það getur því ekki eins og önnur vitni verið sakað um aö ruglast á ákærða og ein- hverjum öðrum. Vitnið aiþlánar nú sex mánaða fangelsisdóm og hefur framburöur þess ekki mælst jafiuvel fyrir hjá öllum í undirheimunum. Tveim dögum eftir framburðvitnisinsfýrirrétti var nýrbíllþess eyðilagður. TT Stealth í loftið Jaruzelski reiðu- búinn í framboð Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, og Wojciech Jaruzelski hershöfðingi viö þingsetningu fyrr í þessum mánuði. Símamynd Reuter Wojciech Jaruzelski hershöfðingi er reiðubúinn að bjóða sig fram til nýs embættis forseta í Póllandi, að því er háttsettur pólskur embætt- ismaður sagði í gær. Jaruzelski dró sig í hlé 30. júní og sagði að þrátt fyrir lýðræðisumbæt- urnar, sem hann hefði komið á, skyggði það enn á að hann væri sá sem sett hefði herlög 1981 til að bæla niður Samstöðu, hin óháðu verka- lýðssamtök. Á fostudag lýsti Walesa, leiðtogi Samstöðu, því yfir að hann væri reiðubúinn að styðja forseta- framboð Jaruzelskis. Walesa fór hins vegar ekki fram á að fulltrúar Sam- stöðu á þingi kysu Jaruzelski. Samstaða er með 46 prósent sæt- anna á þinginu og hefur enn ekki tekið afstöðu. Heimildarmenn segja þó að ákveðnum hópi hófsamra manna innan Samstöðu sé umhugað um að Jaruzelski verði kjörinn. í ræðu i gær á pólska þinginu varði Jaruzelski setningu herlaganna 1981. Sagði hann meðal annars að ekki væri víst að Samstaða ætti fulltrúa á þingi ef herlögin hefðu ekki verið sett. Þótti hann augljóslega hafa ver- ið að gefa í skyn að sovésk innrás hefði haft annað í fór með sér. Reuter « Bjóða skaðabætur Bandarísk yfirvöld hafa boðist til að greiða skaðabætur vegna far- þega og áhafnar flugvélar þeirrar sem bandaríska freigátan Vin- cennes skaut niður á Persaflóa 3. júlí á síðasta ári. Alls voru tæplega þrjú hundruö um borð í véhnni sem var af gerð- inni Airbus. Farþegarnir voru flestir íranskir eöa 250. Að auki voru farþegar frá Indlandi, Pakist- an, Júgóslavíu, Ítalíu og Samein- uöu furstadæmunum. Bætur Bandaríkjanna nema milli eitt hundrað þúsund og tvö hundr- uð og fimmtíu þúsund dollurum fyrir hvern þann er lét lífið. Vegna slæms stjórnmálasambands milli írans og Bandaríkjanna veröur greiðslu bóta til ættingja írönsku farþeganna frestað þar til hægt verður að finna millilið er getur séð um greiðslur. Talsmaður Bandaríkjastjómar sagði að itrekaðar tilraunir til aö afla upplýsinga um ættingja írönsku farþeganna hefðu ekki borið árangur. Hann kvaöst treysta fulltrúum annarra þjóða til að greiða ættingjum farþeganna bæt- ur en sagðist efins um að írönsk stjórnvöld myndu gera það. Reuter Skotbardagi við háskóla Til skotbardaga kom við þjóðar- háskólann í E1 Salvador í gærkvöldi milli stúdenta og hermanna. Að minnsta kosti átta stúdentar særð- ust, að sögn sjónarvotta. Hermenn em sagðir líta á háskólann, sem er í höfuðborginni, sem vígi vinstri sinn- aðra skæruliða. Námsmenn höfðu ráðgert göngu síðdegis í gær til að mótmæla hand- tökum háskólastúdenta. Talsmaður hersins sagði að námsmennirnir hefðu skotið á vopnaða hermenn sem eru á verði viö inngang háskólans og leita á öllum sem þar fara um. Átökin em sögð hafa staðið yfir í um klukkustund og sjúkrabíll sem kom á staðinn um hálfri stundu eftir að þau hófust varö að hörfa vegna kúlnaregnsins. Að lokum tókst þó aö koma særöum undir læknishendur. Einn útlendingur var meðal þeirra Allir námsmenn við háskólann í San Salvador, höfuöborg El Salvador, urðu sem særðust, Bandaríkjamaður sem að yfirgefa skólann í gærkvöldi eftir að til skotbardaga kom milli náms- lagöi stund á spænskunám við há- manna og hermanna. símamynd Reuter skólann. Reuter Fjölda vopna stolið Vopnaðir hermenn komu í gær í veg fyrir frekari átök milli Abk- hazia og Georgíumanna í Sovétríkj- unum samtímis því sem sovéski innanríkisráöherrann varaði viö því að til frekara blóðbaðs gæti komið þar sem vopnum hefði veriö stolið. Um helgina féllu íjórtán manns í átökum milli þjóöarbrot- anna. Embættismenn segja að óeirðirn- ar í Abkhazia hafi breiðst út um allt héraðið. Abkhazia er sjálf- stjórnarhérað innan Georgíu. Um þrjú þúsund hermenn hafa verið sendir til héraðsins til að lægja öldurnar. Lagt hefur veriö hald á mikinn fjölda vopna sem stoliö var úr vopnageymslu hers- ins. Aö sögn innanríkisráðherrans voru gerðar tilraunir til að kveikja í opinberum byggingum auk þess sem reynt var að koma fyrir sprengiefnum í sumum bygging- anna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.