Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Page 28
28 Andlát Guðmundur Hagalín Guðmundsson, fyrrum bóndi að Hrauni, Ingjalds- sandi, andaðist í Landakotsspítala að kvöldi 15. júlí. Guðjón Halldórsson húsgagnasmið- ur, Höföatúni 9, andaðist í Landa- kotsspítala 14. júlí. Björgvin Jónsson, Heiðarvegi 22, Vestmannaeyjum, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 16. júlí. Magnús Kristjánsson frá Bíldudal lést 14. júlí á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Þórdís Einarsdóttir frá ísafirði lést í Sunnuhlíð 16. júlí. Haraldur Þórðarson, Hólmgarði 8, lést 15. júlí. Svava Þórarinsdóttir lést á heimili sínu að Dalbraut 23, Reykjavík, þann 17. júli. Sigurjón Hallbjörnsson símvirkja- meistari, Sörlaskjóli 82, lést í Land- spítalanum að morgni 15. júlí. Jarðarfarir Þorsteinn Pálsson vélvirkjameistari lést 10. júlí. Hann fæddist í Reykjavík 4. júní 1916. Foreldrar hans voru hjónin Elín Guðrún Þorsteinsdóttir og Páll Níelsson. Eftirlifandi eigin- kona hans er Ingibjörg Guðlaugs- dóttir. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. Útfór Þorsteins verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Eirikur Ólafsson lést 10. júli. Hann fæddist 23. nóvember 1919, sonur hjónanna Ingibjargar Eiríksdóttur og Ólafs Jónssonar. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla íslands og síðar loftskeytaprófi og var loftskeytamað- ur á skipum, bæði fiskiskipum og kaupskipum, nær óslitiö frá árinu 1946 til 1971 en þá fór hann í land og starfaði við skrífstofustörf hjá Eim- skipafélagi íslands. Hann kvæntist Rannveigu Axelsdóttur en þau shtu samvistum eftir margra ára búskap. Útfór Eiríks verður gerð frá Áskirkju í dag kl. 15. Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Hamra- hlíð 23, lést á gjörgæsludeild Land- spítalans 6. júlí. Jarðarforin hefur farið fram í kyrrþey. Guðríður Erla Magnúsdóttir Shetty lyfjafræðingur lést á sjúkrahúsi í Rockville, Maryland, Bandaríkjun- um, 10. júlí. Báífor hefur farið fram. Útför hennar verður gerð frá Foss- vogskirkju fostudaginn 28. júlí kl. 15. Samúel Jóhannsson prentari verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 20. júlí kl. 13.30. Ólafur M. Ólafsson, fyrrum mennta- skólakennari, Grundarlandi 8, sem lést 7. júlí, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. júlí kl. 13.30. Ingimagn Eiríksson bifreiðarstjóri, Meistaravöllum 7, sem lést 7. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju í dag, þriðjudaginn 18. júli, kl. 13.30. ÞRIÐJÚDAGÚR 18. JÚLÍ 1989. Tilkyrmingar Menning dv Kvöldganga um Garðabæ Náttúruverndarfélag Suðvesturlands stendur fyrir náttúruskoöunar- og sögu- ferð í kvöld, 18. júlí, kl. 21. Farið verður frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og gengin gamla þjóðleiðin yfir Garða- hraunið. Síðan verður farið inn á Saka- mannastíg í Gálgahrauni og áfram út á Eskinseyrar. Þaöan verður gengið með strönd Arnarnesvogs að Fjölbrautaskól- anum. Þar lýkur göngunni um kl. 23. Öllum er heimil þátttaka í ferðum félags- ins. Félag eldri borgara Farin verður 8 daga ferð um Vestfirði föstudaginn 21. júlí nk. Einnig verður farin dagsferð laugardaginn 22. júh nk. um Þjórsárdal og Rangárvelli. Upplýsing- ar fást á skrifstofu félagsins í síma 28812. Árbók Ferðafélags íslands Út er komin árbók Ferðafélags íslands í 62. sinn og fjallar að þessu sinni um Breiðafjarðareyjar. Á rúmlega 200 blað- síðum fialla þrir höfundar um eyjarnar, legu þeirra og landshætti, mannlíf og sögu, náttúrufar og atvinnuhætti. í ár- bókinni er aö venju fjöldi ljósmynda og óvenju margir landsuppdrættir. Landlýs- ingu eyjanna rita þeir Ami Bjömsson þjóðháttafræðingur og Eysteinn G. Gisla- son, bóndi í Skáleyjum. Ævar Petersen, fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun íslands, ritar þátt um náttúrufar Breiða- Úarðareyja. Félagsmenn Ferðafélags ís- lands fá árbókina, auk annarra fríðinda, fyrir árgjald sitt sem í ár nemur 2000 krónum. f lausasölu kostar bókin 2400 krónur. Húnvetningur Út er komið ársrit Húnvetningafélagsins í Reykjavík. Meðal efnis í ritinu er grein um Valdimar K. Benónýsson, skáldbónda á Ægissíðu, grein um húnvetnska rækt- arsemi á Suðurlandi, æviminning sr. Ein- ars Eirikssonar. Þá em einnig niðjagrein- ar, sagt frá starfsemi Húnvetningafélags- ins 1988 og margt fleira. Eyjar út - minningar með Ása í Bæ. Þar em saman komnar ýmsar hljóðritanir með Ása sem sumar hverjar hafa aldrei heyrst opinberlega áður. Óviðjafnanleg túlkun höfundar á efni sínu gefur snæld- unni mjög sérstakan blæ. Útgáfa þessi er í tilefni 75 ára afmælis Ása í Bæ, sem heföi orðið á þessu ári (en hann lést þann 1. mai 1985) og 70 ára afmælis Vest- mannaeyjakaupstaöar sem er á þessu ári. GísÚ Helgason og Ingi Gunnar Jó- hannsson tóku saman efni þetta og Tón- listarfélagið Vísnavinir er útgefandi en Ási var einn heiðursfélaga þess. Dreif- ingu arrnast Skifan. Tónsnælda með Ása í Bæ Út er komin tónsnældaíi Ó fylgdu mér í Af spíritista í prestastétt Um aldámótin sl. urðu miklar deilur meðal guðfræðinga hér á landi. Tilefnið var Biblíugagnrýnin svokallaða sem þá hafði hafið inn- reið sína hér eins og svo víða ann- ars staðar á Vesturlöndum. Upp- hafsmaður þessarar stefnu á Is- landi var Jón Helgason (1866-1942), prestaskólakennari og síðar bisk- up. Meðal stuðningsmanna hans við að ryðja braut hinni nýju af- stöðu til Biblíunnar var Haraldur Níelsson (1868-1928), sem þá vann að þýðingu Gamla testamentisins, en varð síðar prófessor við guð- fræðideild Háskólans og einn áhrifamesti prédikari landsins. Heil kynslóð presta mótaðist af stefnu þeirra Jóns og Haralds, ný- guðfræðinni. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, og nú á alda- mótaguðfræðin, eins og hún er stundum kölluð, sér formælendur fáa í prestastétt. Ekki kæmi mér þó á óvart að nýguðfræðingamir muni í náinni framtíð hljóta betri dóma guðfræðinga en nú um stundir. Um guðfræði þessa segir 'Sigurbjörn biskup í samnefndri bók Sigurðar A. Magnússonar að ekkert sé eins úrelt og tískustefna dagsins í gær. í hefð aldamótaguðfræðinn- ar Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son er undantekning frá ríkjandi afstöðu íslenskra presta til alda- mótaguðfræðinganna. Hann hefur um margt farið eigin leiðir en stendur jafnframt augljóslega í hefð „nýguðfræöinnar" (aldamóta- guðfræðinnar) hér á landi, og þá fyrst og fremst í þeim armi hennar sem leitaðist við að sameina kristna trú og spíritisma. En þar skildu einmitt leiðir með þeim fé- lögum Haraldi Níelssyni og Jóni Helgasyni á sínum tíma. Jón gat nefnilega ekki sætt sig við tilraunir Haralds til aö nýta spíritismann í þágu kristinnar boðunar. Meðal þess sem séra Siguröur Haukur á sameiginlegt með mörg- um aldamótaguðfræðingum er Séra Sigurður Haukur Guðjónsson Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson heldur neikvæð afstaða til Gamla testamentisins. „Ég get ekki ímyndað mér að sá Guð, sem Krist- ur boðaði, sé sá sami og stundum er sagt frá í Gamla testamentinu," segir hann meðal annars í þessari bók. Eitt af sérkennum íslenskrar kristni á fyrri helmingi þessarar aldar var hinn mikli tjöldi spíritista í prestastétt. Ástæðunnar er vafa- laust fyrst og fremst að leita í mikl- um persónutöfrum og áhrifamætti prófessors Haralds Níelssonar, sem taldi spíritismann geta bjargað kraftaverkafrásögnum Biblíunnar sem ýmsir gagnrýnir biblíufræð- ingar erlendis höfðu afskrifað þar sem þær stönguðust á við lögmál náttúruvísindanna. Nú eru yfir- lýstir spíritistar í íslenskri presta- stétt líklega teljandi á fingrum ann- arrar handar. Þess vegna kalla vafalaust ýmsir afstöðu séra Sig- urðar til spíritismans „uppvakning frá hðinni tíð“. En í augum leik- manna, sem á annað borð hafa á honum skoðun, er hann þó allt annað en gamaldags prestur. Hann hefur án efa notið umtalsverðra vinsælda sem prestur. Jafnframt hefur hann verið mjög umdeildur. Flestir muna eftir poppmessum hans og er hann var látinn hætta að flytja morgunbæn í útvarpi vegna þess að hann talaði þar um þjóðfélagsmál í stað þess að biðja bænar. Margir kannast við að safn- aðarlíf í Langholtskirkju, þ.e. kirkju séra Sigurðar Hauks, hafi verið blómlegt, og kirkjukórinn þar nýtur almennrar viðurkenningar sem einn sá albesti í landinu. Það er ekki laust við að nokkurt óorð sé komið á samtalsbækurnar svonefndu sem út koma í kippum fyrir hver jól. Ástæðan er sú að bækur þessar bera margar hverjar fjölmörg einkenni þess að vera skrífaðar beint upp eftir segulbandi og að höfundarnir virðist oft á tíð- um hafa þar litlu við að bæta. Þeir hafi ekki gert sér umtalsvert far um að kynna sér eftir öðrum leið- um þann sem spjallað er við. En það er skemmst frá því að segja að mér fmnst þessi samtalsbók Jónínu Leósdóttur og séra Sigurðar Hauks bera ýmis einkenni segulbands- viðtalanna, a.m.k. virðist ekki liggja mikil vinna að baki þessari bók. „Það hafa alltaf verið einhver læti í kringum mig,“ segir séra Sig- urður Haukur og kannast auk þess viö að vera allt annaö en „dipló- matískur“. Frásögn hans einkenn- ist af hreinskilni og margt er þar mjög forvitnilegt. Ekki er vafi á því að þegar séra Sigurði Hauki tekst best upp fær boðskapur hans spá- mannlegan blæ, en oft fannst mér sem hann vildi gera sig að píslar- vætti og lýsa skoðunum „andstæð- inganna" á heldur einfaldan og ósanngjarnan hátt. í heild olli bók- in mér vonbrigðum. Guð atmáttugur hjálpi þér. Endurminningar séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar. Jónína Leósdóttir færði i letur. Nýja bókaútgáfan. Reykjavik 1988. Gunnlaugur A. Jónsson Kvikmyndir Hörkugóður Bond Aðalbófarnir i nýjustu James Bond-myndinni. Leyfið afturkallað (Licence to Kill) Aðalhlutverk: Timothy Dalton, Robert Davi Leikstjóri: John Glen Handrit: Michael G. Wilson Sýnd i Bióhöllinni. Á leiðinni í brúðkaup besta vinar síns, Felix Leiter (David Heddison), „skreppur“ James Bond (Timothy Dalton) í lífshættulegan leiðangur með eiturlyfjalögreglunni og Felix til að hafa hendur í hári eiturlyíja- salans og smyglarans Franz Sanc- hez (Robert Davi). Sanchez hafði yfirgefið ríki sitt og var nú staddur á Bahamaeyjum og slíkt tækifæri gat lögreglan ekki látið ganga sér úr greipum. Felix og menn hans eltast við menn Sanchez en hann er aö ganga þeim úr greipum þegar Bond skerst í leikinn. Það er óþarft að spyrja aö leikslokum en Sanchez fer í fangelsið og félagarnir í brúð- kaupið. Adam var ekki lengi í Para- dís. Sanchez sleppur úr fangelsinu og hefnir sín grimmilega á Felix og nýju eiginkonunni hans og það á sjálfa brúðkaupsnóttina. Bond er á leiö úr landinu þegar hann fréttir af flótta Sanchez og fer beina leið heim til Felix. Þar finnur hann konuna látna og Felix nær dauða en lífi. Teningunum er kastaö og Bond ákveður að hefna sín með því að drepa Sanchez. Bresku leyni- þjónustunni er ekkert um þetta einkaframtak gefið og Bond er kall- aður fyrir yfirmann sinn og skipaö að láta kyrrt liggja. Leyfið til aö drepa er afturkallað en Bond lætur það ekki aftra sér heldur segir sig úr þjónustu hennar hátignar. Bond byrjar á því að rekja hugsanlega slóð bófanna og kynnist við það leyniþjónustumanninum Pam (Ca- rey Lowell) sem býr yfir mörgum æskilegum kostum öðrum en feg- urð. Saman komast þau inn í vígi Sanchez og Bond kemst meira að segja inn á gafl hjá honum. Með hjálp Q vinar síns (Desmond Llewelyn) og Lupe (Tahsa Soto), ástkonu Sanchez, tekst Bond loks- ins ætlunarverk sitt þó oft sé mjótt á mununum. Timothy Dalton leikur hinn heimsfræga njósnara James Bond í annað sinn. Með nýjum mönnum koma nýir siðir og Bond fer ekki varhluta af breytingunum með komu Daltons. Fyrri Bondmynd Daltons (The Living Daylights) var meira í anda fyrri Bondmynda með Roger Moore heldur en þessi. Enn sem fyrr eru mjög vel gerð áhættu- atriði sem fá hárin til að rísa á höfði áhorfandans en öllum tækni- brellum og tækjabúnaði er stillt í hóf. Þessi Bond hefur nánast ekk- ert annað er Walter PPK (skamm- byssan hans) sér til hjálpar. Q er að vísu á svæðinu en meira sem hjálparhella en ,jólasveinninn“. James Bond Daltons er meira í hk- ingu við Bond Connerys en Bond Rogers Moore. Líkt og Connery forðum er Bond nú hörkutól og honum blæðir aldrei þessu vant. Hins vegar er minna um kossa- flangs og gamansemi hjá þessum Bond en var í meðförum Rogers Moore. Áhorfendur verða svo að gera það upp við sig hvort þeim líka þessar breytingar sem orðið hafa á James Bond eða ekki. Miðað við móttökur erlendis virðist sem þeim falh þær vel í geð. Licence to KUl er Bondmynd eins og þær gerast bestar. Stjörnugjöf: ★ ★ ★ Hjalti Þór Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.