Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989.
Fréttir
*
>
>
I
I
i
w
>
I
I
Biskupsvígsla á Skálholtshátíð
A sunnudaginn mun Ólafur Skúla-
son, biskup yfir íslandi, vígja séra
Jónas Gíslason biskupsvígslu á Skál-
holtshátíö. Séra Jónas var fyrir
skömmu kjörinn vígslubiskup í Skál-
holtsstifti.
Messan hefst kl. 14 og mun séra
Heimir Steinsson lýsa vígslunni. Alt-
arisþjónustu annast séra Guðmund-
ur Óh Oddsson, en Helgi Bragason
stjórnar söng kórs Hafnarfjarðar-
kirkju. Klukkan hálfíimm verður
hátíðarsamkoma, þar sem kirkju-
málaráðherra, Halldór Ásgrímsson,
flytur ræðu, Barokksveit sumartón-
leika í Skálholti leikur, Margrét Bó-
asdóttir syngur auk kirkjukórs
Hafnarfjarðarkirkju og séra Hall-
dóra Þorvarðardóttir flytur ritning-
arlestur og bæn. í upphafi samkom-
unnar flytur staðarráðsmaðurinn
Sveinbjörn Finnsson ávarp en hann
lætur nú af störfum fyrir Skálholts-
stað.
Aætlunarferð verður frá BSI á há-
degi, kl. 12. Öllum er velkomið að
sækja guðþjónustu og samkomu og
kafíiveitingar sem boðið verður upp
á eftir messuna í Skálholtskirkju.
-GHK
LOKI
íþróttamenn í Hafnarfirði
munu á hraðferð austur til að
taka þátt í Skaftárhlaupi!
Loki kom af stað Skaftárhlaupi.
Skaftárhlaup
í Hafnarfirði
„Við rákum augun í brandara Loka
á baksíðu DV á fimmtudaginn og
fannst þá tilvahð að kalla þetta Skaft-
árhlaup,“ sagði Gísli Ásgeirsson hjá
Vinnuskólanum í Hafnarfirði.
Vinnuskólinn mun halda lokadaga
sína á fimmtudaginn og fóstudaginn
í næstu viku, 27. og 28. júlí. Ætla
Hafnfirðingar aö gera sér margt til
gamans þessa daga. Á fimmtudaginn
verður taflfélag bæjarins með úti-
skákmót kl. 15 og um kvöldið munu
Stuðmenn skemmta í Vitanum.
Aðalfjöriö mun þó verða á föstu-
daginn þegar kassabílarallið byijar
kl. 13. Áætlað er að víðavangshlaupið
byrji klukkutíma síðar. Keppt er í
fjórum fiokkum og er elsti flokkur-
inn hið svokallaða Skaftárhlaup.
„Við fáum þekkta menn úr bæjar-
lífmu til að taka þátt í þessu hlaupi,
meðal annars fulltrúa bæði minni-
og meirihluta bæjarstjórnar. Bjössi
Bolla ræsir hlaupið og verður með
spreh. Ég á von á mikilli þátttöku í
hlaupinu og eina skilyrðið er að vera
í sem asnalegustum fótum,“ sagði
Gísli. Hlaupinn verður um 1500
metra hringur í bænum. -GHK
Fyrirlestur um
fjárlagahalla
Á flmmtudaginn í næstu viku mun
dr. Walter Goldstein, bandarískur
stjórnsýslufræðingur, halda erindi á
hádegisverðarfundi Stjórnunarfé-
lagsins og fjárlaga- og hagsýslustofn-
unar um fjárlagahalla í Bandaríkj-
unum og hér. Goldstein er þekktur
fyrirlesari og ráðgjafí ýmissa stórfyr-
irtækja. Hann mun fjalla um nýjar
leiðir til að komast fyrir gífurlegan
fjárlagahalla í Bandaríkjunum og hta
til svipaðs vanda íslenskra stjórn-
valda. -gse
iíMSMSir:
Framhjóladrifin tímamótabifreið frá VOLVO
sem fengið hefur stórkostlegar móttökur á íslandi.
Við eigum aðeins örfáa bíla eftir
á sérstöku kynningarverði.
Tryggið ykkur VOLVO á hreint frábæru verði.
Brimborg hf.
Faxafen 8 • sími (91)685870
. Kr. 1.049.000,
- stgr.
a
götuna
VOLVO
Meira en oryggi og endmg
2. ágúst- 23. ágúst-13. september
in óvissa. Við staðfestum brottfarardag og gististað S-T-R-A-X.
stætt verð - fyrsta flokks ferð.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKURS
Aðalstræti 16 • 101 Reykjavík • sími 91-621490
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn (2-12 ára).
vikur
Verð
frá kr.