Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 6
6
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989.
Hreinsun í flokknum?
Utlönd
afvopnunarmál
Saraeiginleg rannsókn sov-
éskra og bandarískra vísinda-
raanna sýna að hægt er að hafa
eftirlit raeð hvort herskip hafi
kjarnorkuvopn um borð. Viktor
Karpov, varautanríkisráðherra
Sovétríkjanna, skýrði frá þessu í
grein sem birtist í sænska dag-
blaðinu Dagens Nyheter í gær.
í greininni segir Karpov niður-
stöður rannsóknarinnar mikil-
vægt framlag varðandi eftirlit
með hugsanlegum samningum
um afvopnun í höfunum. Sagði
hann að þær sýndu í grundvallar-
atriðum að hægt væri aö hafa
eftirlit með kjamorkuvopnum
um borð í herskipum.
Bandaríkjamenn eru andvígir
viðræðum um afvopnun á höfun-
um en Sovétmenn eru þeim aftur
ámótihlynntir. Reuter
Palmemáliö:
Dómur kveðinn
upp í næstu viku
Á fimmtudaginn í næstu viku
verður kveðinn upp dómur yfir
meintum morðingja Olofs Palme.
Dómarar í máiinu vildu ekki tjá „
sig á fimmtudag um hvort kveð-
inn yrði upp dómur þann 27. júh
eöa tilkynnt að ákærði þyrfti að
gangast undir geðrannsókn. En
þar sem nú er ljóst að dómur
verður kveðinn upp þykir það
benda til þess að dómstóllinn í
Stokkhólmi felli dóm yfir ákærða
án þess að hann gangist undir
geörannsókn. Á fimmtudag var
tilkynnt að ákærði yi’ði áfram í
gæsluvarðhaidi og telja margir
það benda til þess að hann hafi
veriðftmdinnsekur. tt
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti
varaði við hreinsunum harðlínu-
manna innan flokksforystu komm-
únistaflokksins í ræðu sem hann
hélt á fundi með leiðtogum flokksins
hvaðanæva að úr Sovétríkjunum.
Sagði einn sovéskur heimildarmaður
að fundurinn gæti markað viss þátta-
skil í sovéskum stjórnmálum. „Aldr-
ei áður hefur eins skýr lína verið
dregin miili frjálslyndra og íhalds-
samra innan forystu flokksins,"
sagði hann.
I ræðunni, sem forsetinn hélt á
þriðjudag og birt var í Prövdu í gær,
sagði hann að þörf væri á endumýj-
un í öllum þrepum flokksins, frá
þeim neðstu til æðstu stofnana hans,
þar með talið í stjórnmálaráðinu.
En á fundinum kom einnig fram
áskorujj á vald Gorbatsjovs og stefnu
opnunarstefnunnar. Nokkrir með-
limir stjórnmálaráðsins hvöttu til að
frekari hömlur yrðu settar á sovéska
fjölmiðla sem og aö gripið verði til
róttækra aðgerða gegn and-komm-
únískum öflum í þjóðfélaginu.
Ljóst þykir að viðvörum Gorbatj-
sovs í gær sýni að háttsettir flokks-
menn fái að fjúka sem og að hann
sé nú reiðubúinn til að ryðja úr vegi
mótstöðu við róttækum breytingum.
Ræða forsetans kom á tíma þegar
verkfall námumanna stóð sem hæst.
í gær virtist sem nokkuð hefði dregið
úr því. Námumenn í Síberíu hafa
snúið til vinnu á ný en þeir fóru í
verkfall fyrir tólf dögum. Talið er áð
allt að kvartmilljón námumanna hafi
tekið þátt í verkfollunum sem hrist
hafa upp í kommúnistaflokknum,
dregið stöðu verkalýðsfélaga í efa og
komið illa við efnahaginn. Ekki er
ljóst hvaðan yfirvöld hyggjast fá fé.
til að fjármagna allt það sem samið
var um. Talið er að samningurinn
við námumennina geti leitt tU frek-
ari óróa á vinnumarkaðnum.
Samningaviðræður fulltrúa námu-
manna, sem eru í verkfalli, og stjóm-
valdastóðuyfirígær. Reuter
DV
Vill stjórnar-
myndun
meðaðOd
Samstöðu
, Wojcieh Jarazelski, nýkjörmn
forseti Póllands og leiðtogi
kommúnista, hvatti í gær Sam-
stöðu, hin óháðu verkaiýðssam-
tök, til að taka þátt í ríkisstjóm
er kommúnistaflokkurinn yrði í
forystu fyrir. FuUtrúar Sarastöðu
höfhuðu því. Einn leiötogi sam-
takanna á pólska þinginu lagöi
þess í stað tU aö Samstaða mynd-
aði stjóm.
í sínu fyrsta viðtali síðan hann
var naumlega kjöriim forseti á
miðvikudag hvatti hann Sam-
stööu tU þátttöku í þjóðarstjórn
til aö vinna á efnahagsvanda
þjóðarinnar og stuðla aö lýöræð-
islegum umbótum. Bronislaw
Geremek, einn þmgmanna sam-
takanna, sagði i viðtah við sama
blað, Trybuna Luda, flokksblað
kommunista, það ekki vera
mögulegt fyrir Samstöðu aö taka
þátt í „þjóöarstjórn" undir for-
sæti kommúnista. Sagöi hann að
ef samtökin mynduðu stjórn
myndi það án efá leiða tU sam-
stööu meöal þjóðarinnar. En,
bætti hann við, það er aUt annað
mál og allt önnur ríkisstjórn.
HeimUdarmenn í Póliandi segja
að kommúnistar og bandalags-
flokkar þeirra hefðu enn ekki
tekið ákvöröun um hvort næsti
forsætisráðherra landsins og for-
ystumaöur rUasstjórnarinnar
verði úr röðum Samstöðu eða
kommúnista. Það mál er enn
óleyst, sagði hann.
Reuter
Tveir námumenn leita skjóls undan rigningu á útifundi í Makeeva í Úkraínu í gær. Verkfall námumanna í Sovét-
rikjunum kom illa við efnahag landsins. Símamynd Reuter