Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Qupperneq 12
12r
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989.
Úrkoma í % af meðallagi í Reykjavík
fyrstu fimm mánuði ársins
300
200
100
Jan.
Feb.
Mars
Apríl
Maí
Júni
Úrkoma í Reykjavik er talsvert yfir meðaltali það sem af er árinu og í apríl
og maí sló hún öll met.
Daglegur meöalhiti 1951 -80
• Frávik frá meðallagi
DVJRJ
J|||||f|| Daglegur meðalhiti 1988
I • 1989 (mán.meðaltal)
M A M J J Á S
Byggt á heimildum Veðurstofu íslands
200
100
Mismunur asol-
skinsstundum alls
49 klst.
Bygyt ó heimildum weðurstofu Islands.
DV JRJ
mai
mai
15. júní
30. júní
15. júlí
Þessi kort sýna meðalhita fyrstu sex mánuði ársins miðað við áriö 1988 og meðalhita frá 1951 til 1980. Tölurnar
undir punktunum sýna frávik frá meðalhitanum.
Sólin skein yfir meðallagi í Reykjavík um miðjan mai sl. en í júni fer heldur
að halla á ógæfuhliðina og þá sérstaklega þegar komið er fram í júlí. Nú
stefnir í íslandsmet i sólarleysi í Reykjavík í júlímánuði. Gráa línan sýnir
meðaltal sólarstunda frá 15. maí til 15. júlí samanborið við meðaltal 30 ára.
DV-kort JRJ
Daglegur meðaltalshiti í Reykjavík og á
Akureyri 1951 - 89
Meðalhiti í Reykjavík 1951 - 80,88,89
Meðalhiti á Akureyri 1951-80,88,89
Samanlagðar sólskinsstundir
í Reykjavík15.5. -18.7. 89 samanborið við meðaltal 30 ára
Frávik frá meöallagi
Daglegur meðalhiti 1951-80
J|||||f|l Daglegur meðalhiti 1988
^ 0 1989 (mán.meðaltal)
Aldrei hefur mælst jafnmikil úrkoma i Reykjavík eins og í apríl og maí sl.
Búist er við óbreyttu veðri á sunnanverðu landinu á næstunni. Regnhlifarn-
ar ættu þvi að vera á nærtækum stað enn um sinn.
300
í sólarleysi
Júlímánuður á sunnanverðu
landinu stefnir í að slá met í sólar-
leysi. Að sögn Trausta Jónssonar
veðurfraeðings á veðurfarsdeiid Veð-
urstofu íslands hefur óvenjulítil sól
skiniö í borginni í þessum mánuði.
„Ennþá eru nokkrir dagar eftir og
sól í einn dag getur breytt heilmiklu
varðandi meðaltalið," sagði Trausti.
Hann sagðist þó ekki sjá fyrir neinar
breytingar á næstu dögum. „En þetta
er fljótt að breytast."
Varla hefur meira verið rætt
manna á meðal undanfarið en veðrið
og þá sérstaklega hér á höfuðborgar-
svæðinu. Eftir langan og erfiöan vet-
ur eru menn farnir að þrá gott veð-
ur, útigrillaðan mat og eitthvað af
c-vítamíni í kroppinn til að byggja
sig upp fyrir veturinn sem óðum
styttist í.
Að sögn Trausta er mjög mikið
hringt á Veðurstofuna þessa dagana
og spurst fyrir um veðrið og menn
sannarlega farnir að örvænta. „Vita-
skuid er okkur kennt um þetta,“
sagði Trausti.
Það sem af er júlímánaði, sem á að
heita besti árstíminn, hefur sólin ein-
ungis skinið í 24 stundir í Reykjavík.
Þetta er met því síðasta met, sem
slegið var í sólarleysi, var árið 1955
en þá skein sólin þó í 81 klukkustund.
Sem betur fer eru þó ekki allir
landsmenn jafn óheppnir með sum-
arið því á Noröurlandi og á Aust-
fjörðum hefur meginlandshiti verið
undanfarnar vikur. Þeir landshlutar
fá áfram góða veðrið en við hér sunn-
aniands megum búast við áfram-
haldandi dumbungi.
Þar sem íslendingar hafa alla tíð
haft gaman af að spjalla um veöurfar
höfum við fengið ýmsa útreikninga
á meðalhita og úrkomu undanfar-
inna ára samanborið við árið í ár hjá
Trausta Jónssyni. Jón Rafn Jó-
hannsson, kortasérfræðingur DV,
hefur fært tölumar í línurit þannig
að ailir geti meö góðu móti séð hvern-
ig veðurbreytingarnar hafa verið.
Á töflunni, sem sýnir úrkomu í
Reykjavík það sem af er þessu ári,
sést glögglega hversu vætusamt vor-
ið var hér á landi. Apríl og maí eru
langt yfir meðallagi eins og sjá má.
Og segir Trausti að veðurfræðingar
muni ekki arinað eins.
Ef skoðað er kortið, sem sýnir sam-
anlagðar sólskinsstundir í Reykjavík
frá 15. maí til 18. júní samanborið við
meðaltal 30 ára, kemur í ljós að gráa
línan, sem sýnir árið 1989, er langt
fyrir neðan svörtu línuna sem sýnir
þrjátíu árin.
Þá eru loks töflur sem sýna meðal-
hita í Reykjavík og á Akureyri 1951-
1980, 88, 89. Þær skýra sig að mestu
sjálfar en ljóst er að meðalhiti í
Reykjavík frá áramótum er mun
lægri en í meðalári en tölurnar sýna
frávikin.
-ELA
Reykjavík:
íslandsmet