Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Síða 13
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989.
13
Uppáhaldsmatur á suimudegi
férð.
DV-mynd Brynjar Gautí
Uppáhaldsmatur:
ódýrt nautakjöt
- að hætti Guðrúnar Ágústsdóttur, aðstoðarmanns menntamálaráðherra
„Eg hélt flölskylduftind um máliö
og niðurstaöan varö sú að ég gæfi
lesendum DV uppskrift sem viö
notuðum oft er við bjuggum í Skot-
landi," sagði Guðrún Agústsdóttir,
aöstoðarmaður menntamálaráð-
herra, er helgarblaðiö baö hana að
gefa okkur uppáhaldsuppskrift.
J þessa uppskrift er notað ódýrt
nautakjöt sem er meðhöndiað
þaraúg aö það verði eins og dýrasti
vöðvinn og mjög bragðgott. Þessi
réttur er rajög vinsæll á mínu
heimiii á sunnudögum. Reyndar
hef ég haft mjög lítinn tiraa undan-
farið til að stússast í raatargerð
starfsins vegna og fjölskyldunni
fannst þvi fyndið að ég skyidi vera
beðin um uppskrift,“ sagði Guö-
rún.
Hún sagði aö rétturinn hefði ver-
ið uppgötvaður er hún bjó í Edin-
borg á sínum tíma. „Ég var at-
vinnulaus húsmóöir, fékk enga
vinnu og hafði þá góðan tíma til
aö spá í matargerö. Þar sem viö
vorum blönk þurfti ég að finna
uppskriftir sem ekki voru mjög
dýrar. Lambakjöt var ekki ætt og
fiskurinn ekki góður þannig að
nautakjöt var oftast á borðum. Þá
þurfti að finna margvíslegar upp-
skriftir til að sami matur væri ekki
alltaf á boröum. Ég keypö mér
mikið af matreiðslubókum og las
og fann þá þessa góðu uppskrift.
Eiginlega á ég mikið safn af upp-
skriftum með nautahakki því þaö
var oftast á borðura hjá okkur,“
sagði Guðrún.
Uppskriftin lítur þannig út en
matreiðslan fer að mestu fram dag-
inn áður en maturinn er borðaður.
Keypt er ódýrt nautakjöt en Guö-
rún sagðist hafa fengiö nautakjöt á
470 kr. kílóið í Miklagaröi er hún
bjó réttinn til fyrir DV í vikunni.
,JEf einhver á næga peninga má
auðvitaö nota dýrara kjöt.“
Kryddlögur
2 dl ólívuolia (hituð)
1 gulrót í sneiðum
1 niðurskorinn iaukur
2 selleristilkar
Allt brúnaö vel í olíunni þannig
að grænmetið fái brúnan lit Þá er
bætt viö:
1/4 1 hvitvin eða mysa
1 dl vínedik
2 tsk. steinselja
2 sneidd hvitlauksrif
2 tsk. timian
lárviðarlauf
2 tsk. rosmarin
6 svört piparkorn
pínulítið salt
Kryddlögurinn er látinn malla í
þijátíu minútur og síöan kældur
niður.
Aðferðin
Þegar kryddlögurinn er kólnaður
er honum helit yfir kiötið sem skor-
ið hefur verið í bita. Kjötið er látið
hggja i leginum í 24 klukkustimdir.
Þá er kjötið steikt á pönnu og sett
í eldfast mót með loki. Kryddlögur-
inn er sigtaður ogsettur yfir kjötið.
Bætt í hvítvíni eða mysu, aðeins
meira af kryddjurftun og einu
pressuðu hvítlauksrifi. Fjórar bei-
konsneiðar settar saman við og
þijár til fjórar sneiddar guirætur.
Loks eru grænar og svartar stein-
lausar óhfur settar út í. Snýörpapp-
ír er settur milli potts og loks og
mótinu stungið í ofii og bakað við
vægan hita, 120-130 gráður, í þrjár
klukkustundir.
„Rétturinn er borinn fram með
soðnu pasta. Yfir pastað er helit
óiífuolíu, rifiium osti og pínulitlum
legi af Kjötinu. Smjörpappírinn
kemur í veg fyrir að lögurinn gufi
upp,“ sagði Guörún og bætti við að
eftir þetta bragöaöist nautakjötið
eins og um besta bita nautsins
væri að ræða enda meyrt og gott.
Hún sagði að mjög þægilegt væri
að gera þennan rétt þegar von væri
á gestum því mesta umstangið
væri daginn áður.
-ELA
Auglýsing
um verklegt próf í endurskoðun
Samkvæmt reglugerð nr. 208/1979, sbr. reglugerð
nr. 1/1980, veður haldið verklegt próf til löggild-
ingar til endurskoðunarstarfa í nóvember 1989.
Þeir sem hyggjast þreyta prófraun sendi prófa-
nefnd löggiltra endurskoðenda, fjármálaráðu-
neytinu, tilkynningu þar að lútandi fyrir 1. sept-
ember nk. Tilkynningunni skulu fylgja skilríki
um að fullnægt sé skilyrðum til að þreyta pró-
fraun, sbr. lög nr. 67/1976.
Prófnefndin mun boða til fundar með próf-
mönnum í september nk.
Reykjavík, 21. júlí 1989
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda
Forval
HAFNARFJARÐARVEGUR
Kópavogur - Arnarneslækur
Vegagerð ríkisins efnir hér með til forvals
á verktökum vegna ofangreinds verkefnis.
í verkinu felst gerð brúa og undirgangs
og vegarlagning á Hafnarfjarðarvegi frá
Kópavogi suður fyrir Arnarneshæð. For-
valsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins, Borgartúni 5, 105 Reykjavík, frá og
með 24. þ.m.
Útfylltum og undirrituðum forvalsgögn-
um skal skila á sama stað eigi síðar en
mánudaginn 14. ágúst 1989.
Vegamálstjóri
V ________J
NETAGERÐARMENN ÓSKAST
Netagerðarfyrirtæki í Ástralíu óskar eftir að ráða tvo
netagerðarmenn með sérþekkingu á botn- og flot-
vörpugerð, þurfa að geta unnið sjálfstætt. Starfið er
aðallega fólgið í uppsetningum og viðgerðum á troll-
um. Ótakmörkuð vinna á aðalvertíðum. Um er að
ræða samning til eins, tveggja eða fleiri ára, fríar ferð-
ir og atvinnuleyfi tryggt af hálfu fyrirtækisins. Laun
fyrirtækisins hliðstæð samsvarandi vinnu í Ástralíu.
Aðstoð við útvegun á húsnæði, skóla, dagheimili,
sjúkratryggingum og fleiru er sjálfsögð af hálfu fyrir-
tækisins ef óskað er.
Öllum fyrirspurnum svarað. Vinsamlega skrifið á ís-
lensku eða ensku.
Sendist til:
Portland Nets
Po/Box 831
3305 Portland
Victoria
Australia
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
á Vestfjorðum
Framkvæmdastjóri
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vestfjörðum
vill ráða framkvæmdastjóra frá 15^ ágúst nk.
eða eftir nánara samkomulagi. Aðsetur svæðis-
stjórnar er á Isafirði.
Æskilegt er að umsækjendur séu félagsráðgjaf-
ar, félagsfræðingar eða hafi uppeldisfræðilega
menntun en reynsla af störfum fyrir fatlaða
kemur einnig til greina þegar ráða skal í starfið.
Upplýsingar um starfið gefur formaður svæðis-
stjórnar, Magnús Reynir Guðmundsson, í síma
94-3722 og 94-3783 (utan vinnutíma) og
framkvæmdastjóri svæðisstjórnar í síma
94-3224.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí 1989. Umsóknir
skulu sendar til formanns svæðisstjórnar, póst-
hólf 86, Isafirði.
ísafirði, 12. júlí 1989
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vestfjörðum