Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 14
14 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK.SiMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virlla daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Kvótinn Mikilvægt er fyrir þjóðarbúið, að stjórnvöld standi við fyrirætlanir sínar um að minnka þorskkvótann í ár. Þetta kann mörgum að virðast sárt við fyrstu sýn. En þetta er það, sem við verðum að gera. Ríkisstjórn- inni ber að þakka, standi hún við þetta. Þar kemur fyrst- ur Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. En stjórnin er veik. Við getum enn ekki treyst henni fylhlega til að framfylgja boðskap sínum um aflasam- drátt. Flestar aðrar ríkisstjórnir hafa farið illa að ráði sínu í þessum efnum. Stöðugt hefur verið gengið á þorsk- stofninn, útsæðinu eytt. Höfum við á hinn bóginn þá gæfu að snúa þessu við, munum við innan fárra ára uppskera ríkulega. Með aflaminnkun er því verið að búa í haginn fyrir næstu ár og áratugi. Þetta er viturleg ákvörðun, þar sem loks er hlustað að ráði á tillögur fiski- fræðinga, þeirra sérfræðinga, sem gleggst þekkja málin. Þegar við lítum til baka, sjáum við hins vegar áraraðir, þar sem fiskifræðingar voru hundsaðir og ráðherrar gerðu jafnvel gys að þessari stétt manna. Ríkisstjórnin nú þarf að sýna meiri dug en bara að skrifa eitt pennastrik, til þess að kvótaminnkunin gangi fram. Þrýstingurinn á stjórnina verður mikill að hvika frá ákvörðun sinni og auka aflann að nýju. Tölur sýna okkur, hversu erfitt getur orðið stjórninni að halda stefnu sinni. Þótt gert sé ráð fyrir 10,9 prósent samdrætti í þorsk- afla á þessu ári, drógust þorskveiðarnar ekki saman nema um 2,5 prósent á fyrri helmingi þessa árs. Til þess að ná þeim samdrætti, sem að er stefnt, þarf því að minnka þorskveiðar um 22 prósent á síðari helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þessi samdráttur mun koma harðast niður á Suðurlandi, Reykjanesi og Vesturlandi. Á fyrri hluta ársins hefur þarna verið land- að 12 til 22 prósent meira af þorski en á sama tíma í fyrra. Aflasamdrátturinn þarf því að verða gífurlegur síðari hluta ársins. Gert er ráð fyrir 4 prósent sam- drætti í afla á öðrum botnfisktegundum en þorski á árinu. En við landið hefur verið veitt 4,5 prósent meira af þessum tegundum helztum en á sama tíma í fyrra. Þama þyrfti því að koma til 14 prósent samdráttur á síðara helmingi ársins. Menn sjá því, að vandinn er geysilegur. Aflaminnkunin verður ekki tekin með sitjandi sæld- inni. Hún er erfið á þessum tímum almenns samdráttar í þjóðfélaginu. Aflaminnkunin þýðir auðvitað minnkun þjóðarframleiðslu. Og hún þýðir einnig, að atvinnuleysi mun vaxa enn. Eins og fram kom hér að framan, hefur aflaminnkunarinnar enn gætt lítið. Því má búast við, að með sumarlokum muni þúsundir bætast við hóp at- vinnulausra. Enginn mælir með atvinnuleysi. En það er rétt, að við verðum að færa þessar fórnir til að koma fiskstofnunum í lag. Við hefðum auðvitað átt að vera búin að þessu fyrir mörgum árum, einkum þegar góð- æri var almennt í landinu og við hefðum fundið minna fyrir fórnunum. En betra er seint en aldrei, og rétt er, að við getum ekki dregið það lengur að gera þessar ráð- stafanir til að vernda fiskstofnana. Og sjávarútvegsráðherra segir sem betur fer, að það verði ekki bætt við kvótann í haust. Hann bendir auðvit- að á, að þeir, sem fá aflaheimildirnar, séu ábyrgir sínum gjörðum. Samt trúi margir, að bætt verði við heimildirn- ar í haust. Þetta er rétt hjá ráðherra. Haukur Helgason. Reynt að nýta verkföll í þágu perestrojku Viku eftir aö verkfallshreyfing kom upp meðal kolanámumanna í Sovétríkjunum eru þeir sem riðu á vaðið, námuverkamenn í Kúsbass í Síberíu, teknir að hverfa aftur til vinnu að ráði verkfallsnefnda sinna. En samtímis breiðist verk- fallið út til fleiri og fleiri staða í Evrópuhluta Sovétríkjanna. Þar komu verkfollin upp í Donbass í Úkraínu en ná þegar þetta er ritað einnig til náma á kolasvæðunum við Vorkúta norðan heimskauts- baugs, Rostof-við-Don nærri Asovshafi og Dnépropetrofsk. Kolanámumenn eru meðal tekju- hæstu starfsstétta í Sovétríkjunum og kröfur verkfallsmanna snúast aðeins að takmörkuðu leyti um kaupgjald. Verkfallshreyfingin, einstæð í síðari tíma sögu Sovét- ríkjanna, beinist einkum að tveim markmiðum. Annars vegar vilja námumenn fá viðhlítandi trygg- ingu fyrir að í byggðum þeirra sé á boðstólum varningur sem er kaupmáttar þeirra virði, fyrst og fremst matvæli en einnig aðrar nauðsynjavörur og húsnæði mönn- um bjóðandi. Hins vegar krefjast þeir aukinnar sjálfsstjórnar byggð- arlaga sinna og fyrirtækja, lausnar undan þrúgandi skrifræði og lítt skorðuðu vaidi mishæfra manna í kolanámuráðuneyti og stofnunum þess og héraðsstjómum Kommún- istaflokks Sovétríkjanna. Aflétting ógnarstjórnar hlaut að hafa í fór með sér að þolendur sov- éska hörgulþjóðfélagsins létu til sín heyra. Mikhail Gorbatsjof sovét- leiðtogi hefur klifað á því sí og æ síðan hann kynnti umbótastefnu sína, perestrojku, að tíminn til að ná árangri sé takmarkaður, ekki sé hægt að vænta þess aö fjöldinn láti sér til langframa nægja fyrir- heitin og vonina um betri tíð. Athyglisverðar voru áherslur Gorbatsjofs í ræðu hans um þessi efni utan dagskrár á fundi Æðsta ráðsins á miðvikudag. Leiðtoginn var fullur skilnings á málstað námumanna og kvörtunarefnum þeirra, jafnframt því sem hann var- aði við alvarlegum afleiðingum, póhtískum og efnahagslegum, af því að hver starfshópur út af fyrir sig reyndi að leysa sinn vanda með hliðstæðum aðgerðum. Þá væri endurbótaáætlunin í yfirvofandi hættu. Mun harðari voru þó áminning- ar- og aðvörunarorö sem ræðu- maður beindi til valdsmanna í kommúnistaflokknum og að nokkru til yfirstjórnar opinberu verkalýðsfélaganna. Ekki væri hægt að láta það viðgangast að dratthalar í áhrifastöðum tefðu og stæðu í veginum fyrir aö umbætur ættu sér stað í starfi flokksins og hindruðu þannig framkvæmd um- bótastefnunnar í sovésku þjóðfé- lagi. Ekki eru nema tíu dagar síðan Gorbatsjof gerði sér ferð til Len- íngrad til að stjórna fundi flokks- deildarinnar þar sem vék úr starfi Júri Solovjof héraðsflokksritara og einum af fulltrúum án atkvæðis- réttar í 20 manna Stjórnmálanefnd Erlend tídindi Magnús Torfi Ólafsson miðsfjómar Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, æðstu valdastofnun landsins. Solovjof náði ekki kjöri í kosningum síðla vetrar til Full- trúaþings Sovétríkjanna og var þó einn í kjöri í sínu kjördæmi. Meira en helmingur kjósenda strikaði nafn hans út á kjörseðlinum. í þess- um kosningum fór eins fyrir tugum annarra flokksbrodda, en Solovjof var þeirra hæst settur og sá fyrsti sem verður að taka afleiðingum óvinsælda sinna. Utandagskrárræða Gorbatsjofs er tvímælalaust boðskapur til þjóð- ar og flokks um að hann sé reiðu- búinn að draga þá ályktun af verk- fallsöldunni að umbótum verði að hraða og íhaldssamir flokksforingj- ar, sem á móti streitist, veröi látnir víkja. En eftir er að bíta úr nálinni með verkfollin. Meðan þau eru að mestu einskorðuð við kolanámumenn er framleiðslutapið að vísu tilfmnan- legt fyrir sovéskt hagkerfi en þau valda ekki ófremdarástandi. Allt öðru máli er að gegna ef rætast sögusagnir um verkfall járnbraut- arstarfsmanna nú um mánaðamót- in, en að þeim vék Gorbatsjof í ræðu sinni. Járnbrautirnar eru líf- æð allra samgangna og aðdrátta á því víðlenda flæmi sem Sovétríkin ná yfir. Vegalengdir eru svo miklar og þjóðvegakerfið svo ófullkomið að neyðarástand hlytist umsvifa- laust af járnbrautaverkfalli. Ekki er svo að skilja að kola- námuverkfallið eitt dragi ekki dilk á eftir sér fyrir sovéska hagkerfið í heild. Heyrst hefur að námu- mönnum hafi verið heitið helmings hækkun á heildsöluverði kola. SUkt hefði í fór með sér kostnaðar- hækkun fyrir aðra atvinnuvegi, fyrst og mest yrði hún í stáliðnað- inum. Af hlytist enn aukinn verð- bólguþrýstingur í Sovétríkjunum og er hann þó nægur fyrir. Ein krafa námumanna í Kúsbass, sem ekki mun hafa fengið neinar undirtektir, er að námufyrirtækin, með aðild þeirra sjálfra að stjórn, fái heimild til að sjá sjálf um kola- útflutning og verja gjaldeyristekj- um af honum til beins innflutnings á rekstrarvarningi fyrir námurnar og nauðsynjavarningi til að fylla upp í auðar búðarhillur í námu- mannabæjunum. Þessi krafa ætti að sýna fram á hve tímabærar gætu verið uppá- stungur róttæka sovéthagfræð- ingsins Nikolai Shmeléfs um bráðabirgðaaðgerðir til að fleyta perestrojku yfir fyrsta og örðugasta hjallann. Þær snúast fyrst og fremst um að bæta úr neysluvöru- skortinum hjá sovéskum almenn- ingi. Við það ynnist tvennt, að dómi Shmeléfs. Fólk flest sæi svart á hvítu að til einhvers væri að leggja sig fram í afkasta- og gæðahvetj- andi launakerfi og afstýrt væri hættu á verðbólgu áf völdum „lausrar" kaupgetu við losun á verðlagshömlum sem er óhjá- kvæmileg til að skapa vitrænt verðmyndunarkerfi. Shmeléf leggur til að bændum verði greitt í erlendum gjaldmiðli fyrir framleiðslu umfram tiltekið magn. Við það spöruðust fimm eða sex milljarðar Bandríkjadollara fyrir innflutning matvæla. Eins og nú háttar eyðileggst meira sovéskt korn vegna trassaskapar í með- - fórum en nemur öllum innflutningi þeirrar vöru, 15% kjötframleiðslu fara líka í súginn og 60% af upp- skeru ávaxta og grænmetis. Reka þarf obbann af eftirlitsliðinu í land- búnaði. Nú starfa þrjár milljónir skriffinna þar, með þeim árangri að Sovétríkin eru í svelti, en í Bandaríkjunum megna tvær millj- ónir bænda að sjá þjóðinni fyrir mat og hafa þar að auki ærið afiögu til útflutnings. Þá vill Shmeléf að sovétstjórnin afii sem svarar 30 milljörðum doll- ara erlends gjaldeyris að láni á næstu tveim til þrem árum, til dæmis gegn veði í sovéska gullforð- anum. Þessu fé veröi varið til að bæta úr vöruskortinum á sovésk- um neytendamarkaði. Shmeléf hefur lengst af átt undir högg að sækja hjá sovéskum stjórn- völdum með uppástungur sínar en Gorbatsjof hafði hann með í fóru- neyti sínu í opinberu heimsókninni til Frakklands um daginn. Og ann- ar hagfræðingur, sem hallast hefur að róttækum úrræðum, Leoníd Abalkin, er orðinn aðstoðarforsæt- isráðherra í ríkisstjórninni með yfirumsjón efnahagsstefnu á sinni könnu. Verkfallsmenn á fundi á aðaltorgi námubæjarins Prokopéfsk í Kúsbass vestarlega í Síberíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.