Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989.
Popp
Umsjón
Snorri Már Skúlason
ari ástæðu var horflð frá útgáfu plöt-
unnar í desember 1985.
Er hér var komið sögu var búið að
pressa slatta af plötunni og þar sem
nokkrir kassar stóðu í stafla í höfuð-
stöðvum Kitchenware Records (dótt-
urfyrirtæki CBS) hvarf einn þeirra
með þeim afleiðingum að „bootleg“
(ólöglegar útgáfur), sem innihélt efni
plötunnar, tók að streyma á markað
í Evrópu. Þessi „bootleg" seldust
grimmt án þess að hljómsveitin og
hljómplötufyrirtækið fengju krónu í
kassann. Því var það beinlínis af illri
nauðsyn sem "Protest Song" var gef-
in út (til að hefta frekari sölu „boot-
legsins"), enda kemur platan eins og
skrattinn úr sauðaleggnum inn í þró-
unarsögu Prefab Sprout. Lög "Prot-
est Song" hljóma flest eins og gamlir
vinir, og fagnaðarfundir verða öðru
hveiju þegar plötunni er rennt í
gegn. "Protest Song" ber þess merki
að vera jafnaldri "Steve McQueen",
en samanburð við þann grip stenst
"nýja" platan ekki. Hér er þó á ferð
prýðis popp-plata sem sannar að
andagift Paddy McAloon árið 1985
var með eindæmum.
Prefab Sprout.
Prefab Sprout og tímavélin
Enafhverju?
Skoski popp-kvartettinn Prefab
Sprout, sem á sér ófáafylgjendur hér
á landi, sendi nýverið á markað plöt-
una "Protest Song", plötu sem illt er
að staösetja á.tímaás. Þó að "Protest
Song" hafi aðeins verið fáar vikur á
markaöi er engan veginn hægt að
tala um hana sem nýja, þar sem efni
hennar var hljóðritað fyrir fjórum
árum og hefur aukinheldur gengið
kaupum og sölum á svörtum mark-
aði í Evrópu um nokkurra missera
skeið.
Þetta er undarleg saga um plötu,
sem varð til, en átti að gleymast, saga
um plötu sem komst í hendur óprút-
tinna manna og öðlaðist endurnýjun
lífdaga, saga um plötu sem gefin var
út nú í sumar nánast í óþökk flestra
sem að henni stóðu.
Bailið byijaði á haustdögum ársins
1985, skömmu eftir útkomu meist-
araverksins "Steve McQueen", en þá
hélt hljómsveitin í hljóðver í New-
castle og tók upp tug laga sem orðið
höfðu útundan þegar "Steve McQue-
en" var hijóðrituð. Markmiðið með
hljóðversför svo stuttu eftir útkomu
nýrrar plötu var að búa til plötu sem
skyldi seld á tónleikum hljómsveitar-
innar veturinn ’85-’86, og var áætluð
útgáfa plötunnar í desember 1985.
Eitthvað virðist hljómpötufyrirtækið
CBS hafa vantreyst skynsemi aðdá-
enda hljómsveitarinnar, þar sem fyr-
irtækið taldi það rugla fólk í ríminu
ef tvær plötur kæmu út með aðeins
nokkurra mánaða millibili. Af þess-
Örlagasaga hljómplötu
Texasbúinn Stevie Ray Vaughan:
Edrú og sjaldan betri
Gítarhetja er fyrirbrigði sem
verður æ sjaldséðara í nútíma
rokktónlist. Líklegt er að breyttar
áherslur í tónhstinni ráði þar
mestu um og fyrir vikið standa
gamlar hetjur enn á stalli sem
mestu gítarsnillingar rokksins,
hetjur á borð við Jimi Hendrix,
Eric Clapton, Jeff Beck, Johnny
Winter og Jimmy Page svo ein-
hver nöfn séu nefnd. Fáar nýjar
gítarhetjur hafa risið til frægðar
á þessum áratug en í þeim geir-
fuglahópi má merkan telja
Bandaríkjamanninn Stevie Ray
Vaughan sem á dögunum sendi
frá sér sína bestu plötu í 6 ár.
Helsti lærimeistari Stevie Ray
í gegnum tíðina er Jimi Hendrix
og lýsir Stevie Ray fyrstu kynn-
um sínum af meistaranum þann-
ig:
„Æth ég hafi ekki verið 11 eða
12 ára gamah þegar bróðir minn
kom heim með fyrstu Hendrix
plötuna, Are you Experienced,
hún var mér uppljómun. Mér
fannst tónhstin sambland af öhu
því besta sem ég hafði heyrt, hún
kom yfir mig sem reiöarslag og
éghefekkiveriðsamur eftir. ‘ ‘
TU að gera langa sögu stutta þá
sá Davið Bowie þennan fima gít-
arleikara í sjónvarpi haustið 1982
þegar upptökur Let’s Dance plöt-
unnar voru í burðarhðnum. Þar
sem Bowie sat og hreifst fyrir
framan skjáinn hét hann sjálfum
sér því að fá þennan fingralipra
Texasbúa tíl hðs við sig og varð
það úr. Samstarf Bowies og Stevie
Ray Vaughans varð heldur enda-
sleppt þvi þegar æfingar fyrir
Serious Moonlight hljómleika-
ferðina voru komnar á lokastig
rak Bowie Stevie Ray úr þjónustu
sinni þar sem honum fannst gít-
arleikarinn of frekur á aurinn.
Stevie Ray Vaughan þurfti þó
ekki að örvænta því skömmu eft-
ir að hann tók pokann sá hinn
aldraði CBS maður John Hamm-
ond til hans á sviði. Hammond
þessi hafði m.a. unnið sér það til
frægðar aö hafa uppgötvað Bob
Dylan og Bruce Springsteen á
sínum tíma. Hammond hreifst
strax af fingralipurð, krafti og
ferskleika Stevie Ray Vaughans
þar sem hann framdi gítargaldra
með 26 ára gamlan Stratocaster
að vopni. Gítarleikaranum var
boöinn samningur og sumarið
1983 var hann mættur í hljóðver
og viðfangsefnið var eigin sóló-
plata.
Platan sem kahaðist Texas Flo-
od veitti Stevie Ray fljúgandi
start enda opinberaði hún stór-
kostlegan gítarleikara og blúsara
af gamla skólanum. Á fjórum
mánuðu seldist 'A mhljóneintaka
af plötunni, tvö lög hennar voru
útnefnd til Grammyverðlaun-
anna og sjálfur var Stevie Ray
Vaughan vahnn besti og efni-
legasti gítarleikari ársins af sér-
stöku gítartímariti og Texas Flo-
od vahn besta gitarplata ársins.
Síðan 1983 hefur Stevie Ray
Vaughan sent frá sér nokkrar
hljómplötur sem ekki hafa náð
Texas Flood að gæðum nema ef
vera skyldi platan Couldnt Stand
the Weather. Endurkoma Stevie
Ray Vaughan árið 1989 er sérlega
ánægjuleg ekki síst fyrir þá sök
að hann hefur náð tökum á
drykkjusýki sem var á góðri leið
með að eyðheggja líf hans.
„Ég lifði í þeirri goðsögn sem
predikaði aö þeim mun fyllri og
dópaðri sem maður er þeim mun
betri sphari, þeim mun meiri fil-
ingur. Því miður þurfti ég að
ganga á veggi tU aö sjá að svo er
ekki. Á nýju plötunni, In Step, er
ég ekki að predika edrúmennsku
því að þeir sem eru á mörkunum
eða komnir yfir þau vita stöðu
sína, þurfa bara að viðurkenna
hana fyrir sjálfum sér. Ég er
þakklátur fyrir að hafa gert það
og í dag lifi ég nýju og betra lífi.“
In Step tileinkar Stevie Ray
Vaughan minningu John Hamm-
onds sem lést tæplega áttræður
fyrir fáum mánuöum. Hammond
var maðurinn sem veitti Stevie
Ray tækifærið og eftir að leiðir
þeirra lágu fyrst saman árið 1983
ríkti mikU vinátta þeirra í milli
enda útsetti John Hammpnd tvær
fyrstu plötur Stevie Ray Vaug-
hans í félagi við gítarleikarann.
In Step verður aö telja yfirveg-
uðustu plötu Stevie Ray Vaug-
hans. Á 6 ára ferli hefur hann
sannað fmgralipurð sína og kraft,
en á nýju plötunni virðist Stevie
Ray vera að sanna sig sem tónlist-
armann frekar en hljóðfæraleik-
ara. Tónhstin fellur ekki í skUgg-
Stevie Ray Vaughan með Mick Jagger.
ann af fingraæfingum heldur eru
laglegar laglínur skreyttar af
smekkvísi. Blúsaðar ballöður
fara Stevie Ray Vaughan aö
vanda best og er ein slík Riviera
Paradise hápunktur annars góðr-
arplötu.