Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Side 18
18 Ég er svo ómerkileg persóna að blaðamenn hafa ekkert viö mig að tala. Þess vegna varð ég að taka þetta viðtal viö sjálfan mig. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Þær eru svo ofsalega margar en ætli ég segi ekki bara World Survey of Climatology í nítján bindum. Sú bók hafði ofsalega heit og köld áhrif á mig. Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á þig? Gvendur smali. Ég er nefnilega svo áhrifagjam. Hver er sætasta kona sem þú hefur séð? Hún Stína. Hver er sætasti maður sem þú hef- ur séð? Hann Palli. Hvert er sætasta dýr sem þú hefur séð? Þau eru svo ofsalega mörg. En ætli ég segi ekki Gulli gullhamstur. Hann er svo sexí. Hvenær varðstu hræddastur á ævinni? Ég hef nú ailtaf verið skíthræddur og þess vegna aldrei verið neitt sér- staklega „hræddastur“ á ævinni. Hvenær varðstu hugrakkastur á ævinni? Það var víst í þetta eina sinn sem ég varð aldeilis óhræddur. Hvenær varðstu glaðastur á ævinni? Það var nú þegar ég var ástfanginn af gleðikonunni í Glaðheimum, þá var ég langglaðastur. Hvenær varðstu hryggastur á ævinni? Það var þegar hún yfirgaf mig, gleðikonan í Glaðheimum. Þá var ég hryggastur. Hvenær varðstu graðastur á ævinni? Það var þegar ég las viðtahð við skáldkonuna sem á sér svo dóna- legan draum að hann er ekki prent- hæfur. Þá varð ég hjólgraðastur. Hvernig var veðrið þegar þú fædd- ist? Rok og rigning Hvernig verður veðrið þegar þú deyrð? Rok og rigning. Hvað er uppáhaldsveðrið þitt? Sól og blíða. Hver er uppáhaldsfjölmiðlastjarn- an þín? Steingrímur. Hver er uppáhaldsstjórnmálamað- urinn þinn? LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989. Ég á mér draum Guðmundur H. Garðarsson. - Hvað myndi þurfa til að þú flýðir land? Að hann hætti í pólitík. Hvert myndirðu fara ef þú yrðir að flýja land? Til sjós. Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór? Stórmenni. Hvers gætirðu síst verið án? Ég get ekki hugsað mér lífið án súrefnis því ég anda svo miklu af því. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að gera eitthvað. En það eru ofsa- lega margir sem kunna það vel. Hvað frnnst þér skemmtilegast að gera? Að standa með vondu fólki og kjafta illa um náungann, gjarna Sigurður Þór Guðjónsson. yfir mjólkurglasi en ég drekk ekki kaffi. Hvað finnst þér ofsalegast í lífinu? Það er algjört leyndarmál. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Það er eiginlega með það eins og hræðsluna. Það fer allt, allt, allt í taugarnar á mér. Manstu eftir einhverri pínlegri að- stöðu sem þú hefur lent í? Nei. Ég er búinn að gleyma henni. En hún var ofsalega pínleg. Jú, annars! Nú man ég hana. Ég datt einu sinni í sjóinn og drukknaði. En ég hef lesið um það í bókum að sumt dautt fólk viti ekki að það sé dautt þegar það er dautt. Og þegar ég vaknaði á gjörgæslunni þá mtmdi ég eftir þessu. Það var óþægilegt, vegna þess að nú veit ég ekki hvort ég vaknaði nokkuð upp frá dauðum eða hvort ég er dauður en bara veit ekki að ég sé dauður. Þetta er oft ofsalega pínlegt þegar ég er að rölta niðri í bæ og hitti fólk sem veit þá ekkert hvort það er að tala við mig eða bara ein- hvem draug. Hvað vildirðu helst starfa við ef þú gætir ekki sinnt ritstörfum? Eg myndi fara í ballett ef ég mögu- lega gæti þaö. Ég dansa nefnilega svo mikið en bara í huganum. Þó kemur fyrir að eitt og eitt spor fer á gólf. Attu þér draum? Já. Ég á mér draum. Það er að dónalegustu draumar dónalegu skáldkonunnar rætist og ég verði í draumnum. Hann verður sko ekki prenthæfur. En samt verður hann prentaður í næsta helgarblaði. Sigurður Þór Guðjónsson Finnur þú fimm breytingai? 12 Hvemig líkar stráknum við spældu eggin? Nafn:......... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hef- ur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri mynd- inni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimil- isfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sig- urvegara. 1. H.C.M. stereoferðatæki með tvöfóldu segulbandi að verðmæti kr. 5.785,- 2. E.T.G. útvarpsklukka að verðmæti kr. 1.400,- Verðlaunin koma frá Sjón- varpsmiðstöðinni hf., Síð- umúla 2, Reykjavík. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 12 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir tíundu get- raun reyndust vera: 1. Jóhanna S. Ágústs- dóttir, Fífusundi 12, 530 Hvamms- tangi. 2. Sveinbjörg Jónsdóttir, Drápuhlíð 44,105 Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.