Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Qupperneq 19
,i! á'.í <•$ iro.Mn/o'j/ i
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989. 19
Sérstaklega einfaldur klæðnaður
sem ungar stúlkur á öllum aldri
hafa óspart nýtt sér.
Hjólabuxnatískan
Röndóttar, rósóttar, einlitar, glans-
andi, stuttar, síðar og allar niðþröng-
ar. Svokallaðar hjólabuxur hafa ver-
ið gífurlega vinsælar á meðal ungra
stúlkna hér á skerinu í sumar. Ýmist
ná þær niður á mið lærin eða rétt
niður á hnén. Sérstaklega einfaldur
klæðnaður sem ungar stúlkur á öll-
um aldri hafa óspart nýtt sér.
Eldra fólki hefur þótt þetta frekar
furðuleg fatatíska en öllu má venj-
ast. Það er svo sem ekki hlýindunum
fyrir að fara hér á landi en engu að
síður hefur hjólabuxnatískan þótt
við hæfi. Enda horfir tískan í fæstum
tilfellum til veðurs. Því hafa mis-
langleggjaðar stúlkur sprangað um
með bera kálfana, bíðandi eftir sumr-
inu í suddanum og rokinu og látið
sér fátt um finnast, hjólabuxur skulu
það vera.
Nú má finna þessar flíkur, eða
pjötlur eins og sumir vilja kalla þær,
á útsölum verslananna úti um borg
og bý. Efnismeiri og hlýrri brækur
munu væntanlega ráða ríkjum innan
skamms, eða um það leyti sem
hausta tekur. Ungu stúlkurnar hafa
flestar gefist upp á að bíða eftir sumr-
inu og eru því farnar að draga buxna-
skálmarnar niður fyrir hnén og jafn-
vel niður á miðja kálfana.
En tíðindamenn telja að hjólreiðar
ungra stúlkna hafi lítið aukist í kjöl-
far þessa hjólabuxnaæðis, ímyndin
hefur aðeins verið fengin að láni.
„Hjá ÓS fást sterkar og fallegar
hellur til að gera hvers kyns stéttir og
bflastæði. Ég mæli með hellunum frá
ÓS og byggi þau meðmæli á
reynslunni. Þær eru framleiddar úr
öldu hráefhi og góðir kantar gera það
verkum að allar línur verða reglulegar.
Hellunum er pakkað í plast og þeim
ekið heim í hlað. í fáum orðum sagt:
Gæðavara og góð þjónusta.“
Markús Guðjónsson,
skrúðgarðyrkjumeistari,
eigandi Garðavals.
I FERÐALAGIÐ MEÐ
FANGIÐ FULLT AF EGILS
Vi lítri - hvorki meira né minna.
ósazislA