Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 22'. JCLI 1989. stend í skilum segir Ólafur Laufdal veitingakóngur sem ber allar slúðursögur um sig til bakc „Þaö var aldrei ætlun mín að selja Broadway. Þessi hugmynd kom upp fyrst í vor. Ég hefði getað rekið stað- inn áfram. Hitt er annað mál að stáðurinn er stór og mikill og ekki á færi allra aö kaupa hann. Þegar borgin vildi kaupa sá ég ekki fyrir mér betri og tryggari kaupanda," segir Ólafur Laufdal veitingakóng- ur er hann var spurður um ástæðu þess aö hann hefur nú selt Reykja- víkurborg veitingahúsið Broadway. „Þetta kom eiginlega upp fyrir til- viljun. Ég vil segja að borgin geri gríðarlega góð kaup. Hún fær húsið langt undir sannvirði, borgar ekk- ert út og greiðir skuldabréf á mjög löngum tíma. Broadway er nietið á 176 milljónir en ég sel á 118 milljón- ir með engri utborgun nema ég fæ . þrjár lóðir hér við hliðina," segir Ólafur sem er með skrifstofu sína að Aðalstræti 16 sem jafnframt er Ferðaskrifstofa Reykjavíkur. Sú lóð var í eigu Ólafs auk Aöalstrætis 14. Nú hefur hann eignast Aðalstræti 18 og lóðirnar númer 2 og 4 við Túngötu. Þar með hefur Ólafur Laufdal eignast fimm lóðir á horni Aðalstrætis og Túngötu. „Eins og stendur hef ég ekki ákveðið neitt sérstaklega hvað ég ætla að gera við þessar lóðir,“ segir Ólafur. Hugmyndin var, þegar ég keypti tvær fyrstu lóðirnar hér, að byggja nýtt hús. Það er mjög margt sem hægt er að gera hér því staður- inn er bæði verðmætur og eftirsótt- ur. Ein hugmynd er t.d. sú að ef Hótel Borg leggst niður væri þetta tilvalinn staður til aö byggja á nýtt miðbæjarhótel þótt ég hafi það ekki í huga nú. Ég hef víst nóg með að reisa Hótel ísland. Þetta er einungis hugmynd. Ég reikna reyndar ekki með að gera neitt hér á næstunni og öll framtíðarplön fá aö bíða,“ segir Ólafur. Bestu kaup borgarinnar „Eg get staðhæft að Reykjavíkur- borg hefur sparað sér mikla pen- inga með því að kaupa Broadway. Slíkan stað vantar tilfinnanlega og ef ráðist hefði verið í byggingu veit- ingahúss hefði það verið miklu mun kostnaðarmeira. Borgin lagði málið fyrir hina ýmsu sérfræðinga áður en ákveðið var aö kaupa staðinn og mér skilst að allir hafi verið sam- mála um að heppilegt væri að kaupa staðinn. Broadway er aðeins átta ára gamalt hús og sérsmíðað sem veitingahús. Það á eftir að nýtast borginni mjög vel og hentar fyrir alls kyns samkomur. Þetta er ein besta fjárfesting sem borgin hefur ráðist í.“ Ólafur ber til baka allar sögusagn- ir um að Broadway henti ekki fyrir eldri borgara. „Það er af og frá. Ég hef haldið fjölmörg skemmtikvöld á hverju ári í Broadway fyrir eldri borgara og ekki fengið neitt nema þakklæti frá þessu fólki. Enginn hefur kvartað yfir tröppum." Viss léttir Þegar Ólafur er spurður hvers vegna hann hafi selt Broadway núna svarar hann því til að Hótel ísland sé mikil og kostnaðarsöm bygging. „Húsiö kostar á annan milljarð og nú þegar eru komnar í það 860 milljónir. Það segir sig sjálft að maður þarf að selja eitthvað af eignum til að halda áfram svo kostnaðarsamri byggingu, Verð- bólgan hefur vaðið áfram síðan ég byrjaði að byggja Hótel ísland og tvær til þrjár stórar gengisfellingar á ári til viðbótar hafa aukið kostn- aðinn. Auk þess hefur allt dregist mjög saman í þjóðfélaginu. Aðsókn að veitingahúsum hefur stórminnk- að vegna minnkandi tekna fólksins í landinu. Þá hefur veitingahúsum fjölgað að undanfómu langt um- fram það sem eðlilegt getur tahst. Á næstu áram sé ég ekki að ástandið muni skána mikið. Það var því óhjá- kvæmilegt að losa sig við einhverjar eignir." Minnkandi aðsókn Ólafur segist hafa verið bjartsýim er hann byrjaði að byggja Hótel ís- lartd en í ljós hefði komið að það væri erfitt að halda úti tveimur stórum skemmtistöðum. „Broad- way var algjör bylting þegar það var opnað á sínum tíma og þá voru þeir ófáir sem spáðu því að ég væri að fara á hausinn. Broadway var meira að segja tekið sem reikningsdæmi í Háskóla fslands og enginn fékk dæmið til að ganga upp. Það gekk nú samt upp. Broadway er sennilega umtalað- asti veitingastaöur sem til hefur verið á íslandi. Nýjungamar voru algjörar á staðnum og ég gat tekið helmingi fleiri í mat en nokkurn „Hótel Island er stærsta bygging sem nokkur einstaklingur á íslandi hefur ráðist í,“ segir Ólafur Lauf- dal sem segist vera bjartsýnn á að Hótel ísland muni standa undir sér. tíma hafði áður þekkst. Þegar stað- urinn var opnaður 1981 þótti það furðu sæta og var fjallað um staðinn í erlendum blöðum. ‘ í lok áttunda áratugarins var. besta aðsókn aö veitingahúsum sem hefur þekkst en allt frá þeim tíma hefur hún verið að minnka með breyttu þjóðfélagi. Á aðeins tuttugu árum hefur allt lífsmynstur á Is- landi gjörbreyst. Ég get nefnt dæmi eins og pöbbana og Stöð 2 en veit- ingamenn fundu verulega fyrir minnkandi aðsókn eftir að þeir komu til sögunnar." Ólafur segir að það sé vissulega léttir fyrir sig að losna við að reka tvo stóra veitingastaði. „Um leið og verður einu veitingahúsinu færra er það bara af því góða,“ segir hann. „Peningar eru mjög dýrir hér á landi og undanfarið hefur jafnvel verið betra fyrir mig að láta bygg- ingu Hótel íslands standa ókláraða. Ég sé þó fram á betri tíma og stefni að því að opna helming hótelsins næsta sumar. Það er grundvöllur fyrir hótelrekstri hér á landi eins og sést t.d. á því að Eimskipafélagið ætlar óhikað að fara út í byggingu hótels. Ég er því ósmeykur enda er ég með tvö þúsund og fimm hundr- uð manna skemmtistað sem ég fylli á einu kvöldi." Viturlegt að draga saman Ólafur hefur á undanfórnum árum ráðist í umfangsmiklar fram- kvæmdir. Fyrst Hollywood, þá Bro- adway, Hótel Borg, síðan kom Sjall- inn á Akureyri, hótel á Akureyri, Ferðaskrifstofa Reykjavíkur og loks Hótel ísland. Hann segir að því sé ekki að neita að þessu fylgi mikil vinna. „Það er gaman að þessu þeg- ar vel gengur en vitaskuld liggur mikil vinna á bak við,“ segir hann. „Síöan er alltaf spurning hvort öll þessi vinna sé þess virði að standa í henni. Á næstu árum er örugglega viturlegt að draga frekar saman en hitt. Ég er samt ekki að segja að ég gæti ekki eignast fleiri veitingastaði - það má vel vera. Þaö er mjög þægileg tilfinning að vera vinsæl- astur á markaðnum og ég hef alltaf keppt að því,“ segir Ólafur og bros- ir. Ekki dýr aðgangseyrir Eins og flestum er kunnugt hefur Ólafur Laufdal gjörbreytt skemmti- staðamenningu íslendinga og verið maðurinn á bakvið allar þær breyt- ingar. Hann er ábyrgðarmaður fyr- ir öllum sínum eignum persónulega og trúir á það sem hann er að gera. Þá átti hann hugmyndina að „show“ skemmtikvöldum sem um leið hækkuðu aðgangseyrinn að veitingahúsunum sem aftur hefur verið gagnrýnt. Ólafur telur alls ekki of dýrt inn á Hótel ísland ef staðurinn er borinn saman við svip- aða staði erlendis. Hann bendir á að aðgöngumiðar hans gildi á fióra staði, séu nokkurs konar skipt- imiöar. „Raunar er Hótel ísland langt á undan öörum skemmtistöðum hvað varðar flesta hluti. Erlendir veit- ingamenn, sem hingað hafa komið, hafa rekið upp stór augu er þeir koma á Hótel Island. Ég hef enga trú á að lægri að- gangseyrir breytti miklu. Verslun á barnum á mann á kvöldi nær ekki átta hundruð krónum. Fólk kemur ekki inn fyrr en um miðnætti og staðnum er lokað klukkan þrjú. Það eru rúmir tveir tímar sem einhver verslun er á barnum og ef aðgangs- eyrir væri ekki til staðar gæti ég gleymt því að reka þennan stað. Aðgangseyririnn er dýr, vín er líka dýrt og matur en þetta hefur ekki hækkað neitt umfram annað sem hækkað hefur í þjóðfélaginu. Stór hluti fólks sem kemur inn á skemmtistaðina drekkur ekki neitt. Það er t.d. mun ódýrara hér á landi að fara út að skemmta sér en ann- ars staðar á Norðurlöndunum.“ Leigusamningur Borgarinnar að renna út Ólafur segist oft hafa látið sér detta í hug að setja upp krá í mið- bænum en segir að ágóðinn af þeim sem eru fyrir sé mjög lítill. „Tíð eig- endaskipti á þessum stöðum sýna það best,“ segir hann. „Fólk kemur ekki inn á krár til að drekka. Þaö kemur til að hitta fólk og fær sér kannski einn bjór,“ segir Ólafur. Hótel Borg hefur verið talsvert til umfiöllunar vegna áhuga Alþingis á að kaupa staðinn. Ólafur tók Borgina á leigu til tíu ára en hefur nú stytt leigusamninginn. „Borgin er óráðið dæmi en leigusamningur minn rennur út núna 1. september. Umræður eru nú að fara af stað um hvort ég verði með hana einhvern smátíma í viðbót en eigendur hafa áhuga á að selja Alþingi staðinn. Ég stytti leigusamninginn einfald- lega vegna þess að leigan er orðin allof há. Það borgar sig ekki að halda áfram rekstri með þeirri leigu. Fyrir sex árum voru sextán staöir á höfuðborgarsvæðinu með vínveitingaleyfi, nú eru þeir að nálgast hundrað. Þetta er eins og meö vídeóleigur eða sjoppur - allir ímynda sér aö hægt sé að græða á þessum viðskiptum en núna eru ótrúlegustu staðir aö fara á haus- inn. Ég tel það algjört brjál-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.