Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 23
LÁUGARDAGUR' 22; JÚLÍ 1989. 35 „Það er vissulega léttir að losna við að reka tvo stóra skemmtistaði. Um leið og veitingahúsum fækkar um eitt er það af því góða,“ segir Olafur Laufdal. DV-myndir JAK æði að gefa öllum þessum aðilum rekstrarleyfi í sömu atvinnugrein- inni. Allir í því sama Ég keypti Sjaliann á Akureyri fyr- ir nokkrum árum og sá rekstur gengur ágætlega en það er ná- kvæmlega sama brjálæðið fyrir norðan og hér varðandi uppbygg- ingu veitingahúsa. Það er sama þar og hér í bænum að húsið troðfyllist á laugardögum en svo er miklu færra fólk hina dagana. Laugar- dagskvöld eru aðalkvöldin yfir sumarið en á veturna er yfirleitt eitthvað um að vera á hverju kvöldi." Ólafur rekur einnig Ferðaskrif- stofu Reykjavíkur en hann hefur selt helminginn til íslaugar Aðal- steinsdóttur sem sér um rekstur- inn. „íslaug hefur gert mjög góða hluti hér enda margir sem þekkja hana af því góða. Þetta er lítil ferða- skrifstofa en gengur vel. Það tekur nokkur ár að tryggja sér sess á þess- um vettvangi en ég hef trú á að ferðaskrifstofan spjari sig,“ segir Ólafur. Þá má ekki gleyma hlut hans í íslenska útvarpsfélaginu sem rekur Bylgjuna og Stjörnuna. TVeirnýir matsölustaðir í haust ætlar Ólafur að opna nýjan sal á Hótel íslandi með sérinn- gangi. Markaðssetning á hótelinu er í startholunum á erlendum mörkuðum. Hótel ísland er samtals 11000 fermetrar, 120 herbergi eru þar sem eiga að vera í lúxusklassa og glæsilegar svítur. „Hér eru flott hótel, svo sem Holiday Inn, Loftleið- ir, Esja og Hótel Saga. Hótel ísland verður enginn eftirbátur þeirra nema síður sé.“ Fjölmörg tilboð hafa komið í hús- gögn en Ólafur segir að ekkert hafi enn verið ákveðið í þeim efnum. „Það hefði verið æskilegt að kaupa innlenda framleiðslu en það eru engir á þeim markaði hér á landi.“ Ólafur segir að engin sundlaug verði á Hótel íslandi en hins vegar verði tveir veitingastaðir á efstu hæðunum. „Þar verður um algjöra nýjung að ræða sem ég vil ekki tjá mig um enn sem komið er. Á toppn- um á hótehnu er frábært útsýni. Þessi staður verður í allt öðrum stíl en hér hefur þekkst," segir hann. „Neðri álma hótelsins er tilbúin undir tréverk núna en ég held að fólk geri sér enga grein fyrir hversu mikil þessi bygging er,“ segir Ólaf- ur. „Það hefur enginn einstakhngur á íslandi byggt stærra hús,“ bætir hann við. „Fyrir einn mann er gríð- arlegt mál að fjármagna slíka bygg- ingu, fá lán og annað shkt.“ Illkvittnar slúðursögur Ólafur Laufdal, sem lengi hefur gengið undir nafninu kóngur ís- lenska skemmtanalífsins, hefur ekki farið varhluta af sögusögnum og slúðri sem ætíð hefur fylgt íslend- ingum. Oft hafa heyrst þær sögur að nú sé Óli Laufdal að fara á haus- inn. ólafur segist ahtafvera að heyra einhveijar furðusögur um sig. „Ég hef alltaf komiö heiðarlega fram við fólk og þyki traustur í við- skiptum. Enginn hefur tapað á við- skiptum við mig. Ég stend í skilum og ef maður gerir það þá eru manni allar dyr opnar. Slúðursögur hafa fylgt mönnum í veitingarekstri hér á landi löngu áður en ég fór út á þennan markað. Ég get stundum orðið öskureiður þegar ég heyri slíkar slúðursögur og þær snerta mig. Ég hef aldrei verið kallaður í yfirheyrslu hjá lögreglu en samt ganga sögur um að ég sitji í fangelsi vegna fíkniefnamála. Mér fínnst þetta ákaflega leiðinlegt því ég hef aldrei umgengist slíkt fólk, þekki það ekki og hef ekki áhuga á því. Þannig fólk er hvorki í vinnu hjá mér né gestir mínir. Ég heyrði um daginn að ég væri dáinn. Þetta er óskiljanlegur hlutur. Því miður virðist þessi öfund og illgirni hafa fylgt íslendingum allt frá því þeir komu úr torfbæjunum. Hér á landi þurfa þekktir menn að sýna sig með vissu mihibili til að sýna að þeir séu hvorki látnir eða í fangelsi. Stend í skilum Svo er það sagan um að ég sé kom- inn á hausinn," bætir Ólafur við og segir með tilfinningu; „Ólafur Lauf- aal stendur hundrað prósent í skh- um og er hvergi getið í vanskha- skrám. Meira að segja sjónvarps- stöðvar og blöðin létu mig ekki í friði því þeir vUdu vita hvort ég væri að fara á hausinn. Mér finnst þetta dónaskapur,“ segir Ólafur og segist því miöur engu geta breytt. „Þeir sem þekkja mig vita betur. Maður fær engin lán nema að þau séu tryggð í bak og fyrir." Margir gætu haldið að Ólafur Laufdal væri ákaflega stressaður maður. Svo er ekki og þar sem hann situr á skrifstofu sinni og ræðir slúður og annað miður skemmtilegt virðist hann afslappaður. „Nei, ég er ekki stressaður," segir hann þeg- ar hanner spurður um stressið. „Ég á mjög gott með að sofa, vakna snemma á morgnana og fer í sund og er venjulega mættur í vinnu fyr- ir átta. Það er heilmikil vinna í kringum þennan rekstur og ég á sjaldan frí. Ég hef líka alltaf verið sjálfur í öllum hlutum og fylgst með.“ Ólafur verður 45 ára í næsta mán- uði og segist stundum hugsa til þess að gott væri að eiga fleiri hvfídar- stundir. „Innan fárra ára fer maður að hugsa um að taka það rólegar. Þetta hefur gengið upp vegna þess að ég hef verið með puttana í öllum rekstrinum. Vegna þessarar gífur- legu vinnu sem ég hef lagt á mig finnst mér ég eiga skilið það sem mér hefur áunnist," segir Ólafur Laufdal og sjálfsagt mun engan undra þótt hann ætti eftir að bæta einhver met sín í nýjungum á næstu árum. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.