Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Side 25
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989. 37 Hinhliðin Árni Snævarr fréttamaður sá um að halda áhorfendum Sjónvarps vakandi yfir nærri þriggja stunda langri mynd frá byltingarafmælinu i Frakklandi á sunnudagskvöid. Leiðinlegt að tala við leiðinlega stjómmálamenn - segir fréttamaðurinn Ami Snævarr Ámi Snævarr, fréttamaður er- lendra frétta hjá Sjónvarpinu, hef- ur nú aftur hafið störf eftir að hafa dvalið um eins árs skeið í Frakk- landi í námi í fjölmiðlun. Áður hef- ur Ámi dvalið um tvö og hálft ár í Frakklandi þar sem hann lærði frönsku og sögu. Undanfarna daga hefur Árni haft í nógu að snúast í sambandi við fréttir af byltingaraf- mælinu í Frakklandi. Á sunnu- dagskvöld sýndi Sjónvarpið þátt frá afmælinu sem stóð yfir á þriðja tíma. Árni sá um að ræða við áhorf- endur á meðan á útsendingunni stóð en sitt sýndist hverjum um ágæti dagskrárinnar. Árni Snæv- arr sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafni: Árni Þorvaldur Snæv- arr. Fæðingardagur og ár: 4. mars 1962. Böm: Asgerður, tæplega ársgömul. Bifreið: Lancia, árg. ’86. Starf: Fréttamaður. Laun: Ég er ekki enn farinn að fá útborgað svo ég veit ekki hver þau eru. Áhugamál: Þau eru margvísleg, svo sem tónlist, bókmenntir, ferða- lög og starfið. Hvað hefur þú fengið margar tölur 'réttar í lottóinu? Eg skil það ekki en ég hef aldrei fengiö neina. Ég spila heldur ekki oft. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Ferðast. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Það er margt sem kemur til greina. Mér þykir tii dæmis mjög leiðinlegt að tala við leiðinlega stjórnmálamenn. Uppáhaldsmatur: Thailenskur matur, sennilega vegna þess að ég hef ekki rekist á matsölustaði með þess konar mat hér á landi. Uppáhaldsdrykkur: Gott kaffi, ex- presso. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Ætli mér finnist það ekki vera KR-ingurinn Rúnar Kristinsson. Uppáhaldstímarit: Þjóðlif. Fallegasta kona sem þú hefur séð: Ásdís Schram. Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn- inni: Allir góðir blaðamenn eru alltaf í stjórnarandstöðu. Hvaða persónu langar þig mest að hitta?-Álexander Dubeck og Gor- batsjov. Uppáhaldsleikari: Robert Duval og Jean-Louis Trintignant. Uppáhaldsleikkona: Beatrice Balld. Uppáhaldssöngvari: Lue Reed. Uppáhaldstjórnmálamaður: Bron- islaw Geremek. Hlynntur eða andvígur hvalveiðum íslendinga: Mér þóttu þær skyn- samlegar en nú finnst mér báðir aðilar hafa slæman málstað í þessu máli. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir í Sjónvarpinu. Hlynntur eða andvígur veru varn- arliðsins hér á landi: Mér finnst ég ekki geta svarað þessari spurningu öðruvísi en með jái og neii. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigurður G. Tómasson. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið? Nær eingöngu á Sjón- varpið því ég á ekki afruglara. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ætli ég nefni ekki vini mína Egil Helgason og Jón Óskar Sólnes. Uppáhaldsskemmtistaður: Það er tvímælalaust KR-ingastaðurinn Rauða ljónið þó ég hafi aldrei kom- ið þangað. Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, en framtiðin er mín veikasta hlið. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég ætla til Brasilíu og ferðast þar um. -ELA M EN NTAMÁLARÁÐU N EYTIÐ Laust embætti er forseti íslands veitir: Við Kennaraháskóla íslands er laust til umsóknar emb- ætti prófessors I uppeldis- og sálarfræði. Auk fullgilds háskólaprófs skal umsækjandi hafa viður- kennd kennsluréttindi eða hafa að öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan undirbúning. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. janúar 1990. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. september nk. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknarskýrslur svo og upplýsingar um námsferil og störf. Þau verk sem umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um skulu einnig fylgja. Lausar stöður við framhaldsskóla Við Fósturskóla íslands er laus til umsóknar heil staða í sálarfræði næsta skólaár í afleysingum. Þá er laust hálft starf félagsfræðikennara. Upplýsingar veitir skóla- stjóri í sima 612320. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 3. ágúst nk. Laugardaga, 9.00 - 14.00 Sunnudaga, 18.00 - 22.00 ER SMÁAUGLÝSINGA BLADID SÍMINNER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.