Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Qupperneq 27
39
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
Fjölskyldan í fríi:
Lífestfll
Phantasialand og Panorama-Park
Hafi fólk bíl til umráöa og sé statt
í Frankfurt er hægt aö nota tímann
til margs. Ef fólk er ekki að hugsa
um miklar vegalengdir og ætlar
kannski að leigja bíl einn dag má
benda á tvo skemmtigarða, Phanta-
sialand og Panorama-Park.
í Phantasialand er unnt að finna
eitthvað fyrir alla, bæði böm og full-
orðna. Einna helst má lýsa fyrirbær-
inu þannig að þarnalsé skemmtileg
blanda af Tívolíi í Kaupmannahöfn
og Disneylandi. Þetta er ævintýra-
heimur, þar sem öllu ægir saman,
leiktækjum, dýragarði, fjölleikahúsi,
draugalegum frumskógi með furðu-
veram og svona mætti lengi telja.
Garðurinn er opinn daglega fram
til 31. október.
Það tekur um tvær klukkustundir
að aka þangað frá Frankfurt á hrað-
braut fram hjá borgunum Mainz,
Bingen og Koblenz (A 61) að hrað-
brautargatnamótunum (Autobahn-
kreuz) Bhesheim, þar er farið yfir á
hraðbrautina A 553. Ekið er út af
henni þar sem stendur á skilti
Brúhl-Súd. Þegar komið er út af
henni er Phantasialand merkt á
skiltum, enda örstutt á áfangastað.
Panoroma-Park er sömuleiðis mik-
ill ævintýraheimur fyrir alla fjöl-
skylduna. Annars vegar er um að
ræða skemmtigarð, eins og við
þekkjum betur undir nafninu Tívolí,
og hins vegar er þetta stór dýragarð-
ur, þar sem finna má flestar hinar
villtu dýrategundir Þýskalands í
góðu yfirlæti. í góðu veðri er dagur-
inn fljótur að líða í garðinum. Nefna
má að þarna er dýrðarinnar „rússí-
bani“ - bæði í vatni og á landi, hvers
konar sleðarennibrautir, sem allir
hafa gamar. af, 180 gráöu kvik-
myndahús, töfrabrögð á útivistar-
svæðinu og vöfílur með rjóma. Svo
er hægt að fara í göngutúra um dýra-
garðinn.
Garðurinn er á mjög fallegu svæði
í Sauerland. Frá Frankfurt er í mesta
lagi tveggja tíma akstur þangað.
Ekið er frá Frankfurt á hraðbraut
A 5 og alltaf fylgt skiltunum þar sem
Dortmund kemur fram. Af A 5 er
farið yfir á hraðbraut A 45 og enn til kemur að OLPE, þar er farið út
er ekið í áttina til Dortmund, þangað af A 5 og komið á þjóðveg B 55. Þá
er ekið að bæ sem heitir Lennestadt.
Þar er merktur vegur B 236, sem ligg-
ur til Oberhundem, en þar er garður-
innstaðsettur. -J.Mai
Frá Frankfurt er örstutt í tv.o skemmtilega garða.
„Gagnrýnendur eru búnir að hakka i sig bókina." -,,Þá verður maður auðvit-
að að lesa hana.“ Teikning eftir Storm Petersen sem verður í sviðsljósinu á
bókamessunni í Gautaborg.
Flughræðsla
í síðasta ferðablaði var sagt frá hefur með námskeiðin að gera.
hugtækniaðferðum til lækningar á Hún heitir Fræðslumiðstöðin Æsir
flughræðslu. Því miður misritaðist og síminn er 172 30. -J.Mar
nafnið á fræðslumiðstöðinni sem
Bókahátíð í Gautaborg
Þeir íslendingar, sem staddir veröa
í námunda við Gautaborg í Svíþjóð
dagana 7.-10. september, ættu ekki
að láta fram hjá sér fara mestu bóka-
messu sem haldin er á Norðurlönd-
um.
Á messunni, sem gengur undir
nafninu „Bok & Bibliotek 89“, verða
staddir fulltrúar frá öllum helstu
útgefendum á Norðurlöndum, ásamt
þeim höfundum sem þeir era með á
sínum snærum, bæði norrænum og
annars staðar frá.
Höfundarnir verða kynntir á sér-
stökum blaðamannafundum eða
ræða um bækur og bókmenntir í
opnum fyrirlestrum.
Meðal þeirra sem sækja messuna
og spjalla viö gesti má nefna kanada-
diska höfundinn Robertson Davies,
sem spáð hefur veriö nóbelsverð-
launum, tyrkneska höfundinn Yasar
Kemal, þekktur hérlendis fyrir
„Mehmed mjóa“, Ursulu Le Guin,
ítalska höfundinn Alberto Moravia,
spennusöguhöfundinn Elmore Leon-
ard, Bandaríkjamanninn E. L. Doc-
torow og svissneska höfundinn Fred-
erich Dúrrenmatt.
Fjöldi norrænna höfunda kemur
að sjálfsögðu einnig við sögu, meðal
annars tekur Einar Kárason þátt í
málþingi um nýnæmi í norrænni
skáldsagnagerð.
írak:
Talað
um teiknimyndir
Teiknimyndasögur verða sérstak-
lega í sviðsljósi þessarar messu.
Teiknimyndahöfundar frá ýmsum
löndum tala um verk sín, þar á með-
al Ástralíumaðurinn Gary Clark og
Bandaríkjamaöurinn Bud Grace, og
teiknimyndir verða grandskoðaðar
frá ýmsum sjónhomum. í tengslum
við þær uppákomur verð'ur sett upp
sýning á verkum hins óviöjafnanlega
danska teiknara, Storm Petersen.
-ai.
Reynt að efla ferðamarniastrauminn
Aðdráttarafl íraks fyrir erlenda
ferðamenn felst fyrst og fremst í
fornminjum, sögu þjóðarinnar og
þeirri rómantísku áru sem umlykur
Bagdad, höfuðborg landsins - borg-
ina þar sem Scherazade safnaði sam-
an ævintýrunum og sögunum í 1001
nótt og Ali Baha oliusauð 40 þjófa.
Um þessar mundir er unnið aö því
að endurbyggja hina fomu Babylon
og á hún, þegar því verður lokið, að
verða eitt helsta aðdráttarafl fyrir
ferðamenn til landsins. Meðal bygg-
inga, sem unnið er að endurbyggingu
á, er höll sem Nebúkadneser reisti á
sjöttu öld fyrir Krist og hið fræga
Ishtar hlið ásamt nokkrum hofum.
Frá höfuðborginni Bagdad er um
klukkustundar akstur til Babylon á
ágætri hraðbraut.
Einnig er unnið að endurbyggingu
fornminja í Neneveh, eða Mosol eins
og borgin er kölluð nú, en það er
ekkert í líkingu við þá endurbygg-
ingu sem á sér stað í Babylon.
Með því að endurbyggja Babylon
hyggjast írakar reyna aö höfða til
venjulegra ferðamanna. Landið get-
ur samt sem áður virkað fráhrind-
andi á ferðamenn því mikil höft era
þar á ýmiss konar upplýsingamiðl-
un. Til dæmis er bannað að selja er-
lend blöð og bækur í landinu, þó er
lítið blað gefið út á ensku í höfuö-
borginni en það er vandlega ritskoð-
að. Á öðrum sviðum ríkir hins vegar
meira frjálsræði í írak en í öðrum
arabalöndum, til dæmis er er hægt
að kaupa áfengi á hótelum og börum
og konum er óhætt að ganga um úti
án þess að þurfa nokkuð að óttast:
írak er mjög dýrt fyrir erlenda
ferðamenn sé miðað við löndin sem
næst liggja. Hins vegar era yfirvöld
að vinna að því aö lækka verð eins
og kostur er.
-J.Mar