Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Page 39
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989. 51 Afmæli Baldur Vilhelmsson Baldur Vilhelmsson, prófastur í Vatnsfirði, er sextugur í dag. Baldur er fæddur á Hofsósi í Skagafjarðar- sýslu og lauk stúdentsprófi frá MA 1950. Hann varkennari í Skaga- skólahverfi í Austur-Húnavatns- sýslu 1951-1952, lauk guðfræðiprófi í HÍ1956 og fyrsta stigs prófi í klass- ískri grísku frá HÍ1981. Baldur hef- ur verið prestur í Vatnsfirði frá 1956 og hefur verið settur prófastur í ísa- fiarðarprófastsdæmi frá 1. mars 1988. Hann var kennari í Barna- og unglingaskólanum í Reykjanesi 1956-1968 og 1984-1985 og próf- dómari í Héraðsskólanum í Reykja- nesi frá 1974. Baldur var formaður Ungmennafélagsins Vísis 1963-1974, í sáttanefnd og formaður barna- verndarnefndar 1962-1976. Hann var í hreppsnefnd Reykjarfiarðar- hrepps 195871966 og 1968-1986 og í sýslunefnd ísafiarðarsýslu 1966- 1968 og frá 1978. Baldur var formað- ur skólanefndar Barnaskólans í Reykjanesi 1958-1962 og 1966-1974 og í skólanefnd Grunnskólans í Reykjanesi 1974-1987. Hann var í skólanefnd Héraðsskólans í Reykja- nesi 1962-1966 og 1978-1982, formað- ur 1965-1966. Baldur hefur verið for- maður veiðifélags Vatnsfiarðardals frá stofnun þess 1971 og í stjórn Æðarræktarfélags Norður-ísafiarð- arsýslu frá 1964. Hann var formaður bókasafns Vatnsfiarðarsveitar 1957-1976, bókasafns í Reykjanesi frá stofnun 1977 og í stjórn Bóka- safns ísafiarðar 1981-1985. Baldur kvæntistð. október 1957, Ólafíu Salvarsdóttur, f. 12. ágúst 1931. For- eldrar Ólafíu voru, Salvar Ólafsson, b. í Reykjarfirði í Vatnsfiarðarsveit og kona hans, Ragnheiður Hákonar- dóttir, ráðskona í Reykjanesskóla. Börn Baldurs og-Ólafiu eru, Evlalía Sigríður Kristjánsdóttir (stjúpdótt- ir) f. 1. júni 1951, afgreiðslumaður í Rvík, gift Jóhanni Jónssyni, hús- gagnsmið og framkvæmdastjóra; Hallfríður, f. 25. september 1957, bókasafnsfræðingur, bókavörður á Landsbókasafni íslands; Ragnheiö- ur, f. 6. október 1958, póstafgreiðslu- maður á ísafirði, gift Kristjáni B. Sigmundssyni vélstjóra; Þorvaldur, f. 5. nóvember 1959, bifreiðastjóri í Rvík; Stefán Oddur, f. 5. apríl 1966, starfsmaður Heklu hf. í Rvík, og Guðbrandur, f. 2. maí 1968, starfar við matvælaframleiðslu í Kópavogi. Systkini Baldurs eru Pálmi, skrif- stofumaður hjá Vegagerð ríkisins, Ásdís, gift Þórði Kristjánssyni, yfir- kennara í Rvik, Birgir, prentari í Rvík, og Leifur, símvirki í Rvík, kvæntur Sæunni Eiríksdóttur skrif- stofumanni. Foreldrar Baldurs voru Vilhelm Erlendsson,póst-ogsímstöðvar- — stjóri á Blönduósi, og kona hans, Hallfríður Pálmadóttir. Fööursystir Baldurs var Guðrún, móðir Ólafs Hauks Árnasonar áfengisvama- ráðunautar. Önnur föðursystir Baldurs var Margrét, móðir Erlends Sigmundssonar, fyrrv. prófasts á Seyðisfirði. Þriðjaföðursystir Bald- urs var Anna, móðir Höskuldar, skrifstofusfióra LÍ, og Valgarðs, framkvæmdstjóri SÍF, Ólafssona. Fjórða föðursystir Baldurs var Stef- anía, amma Stefáns Skarphéðins- sonar, sýslumanns á Patreksfirði. Vilhelm var sonur Erlends, verslun- arstjóra á Hofsósi, bróður Vilhelm- ínu, ömmu Magnúsar Hallgrímms- sonar, verkfræðings í Rvík. Erlend- ur var sonur Páls, b. á Hofi í Hjalta- dal, Erlendssonar, bróður Guðrún- ar, ömmu Friðriks Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga. Bróðir Páls var Jónas, afi Guðrúnar, móður Björns á Löngumýri og ömmu Páls Péturs- sonar og Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar. Móðir Páls var Sigríður Guðmundsdóttir, b. í Sörlatungu, Ólafssonar, skálds í Þverbrekku í Öxnadal, Jónssonar. Móðir Guð- mundar var Sigríður Þorláksdóttir, b. á Ásgeirsbrekku, Jónssonár, ætt- föður Asgeirsbrekkuættarinnar. Móðir Erlends var Guðrún, dóttir Magnúsar, b. á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, Þorsteinssonar og konu hans, Hólmfríðar, systur Guðrúnar, ömmu Björns Pálssonar, fyrsta stór- templars. Hólmfríður var dóttir Gamalíels, prests á Myrká, Þorleifs- sonar og konu hans, Hólmfríðar Stefánsdóttur, prests í Laufási, Hall- dórssonar, langafa Bjöms, afa Bjöms Stefánssonar erindreka. Móðir Hólmfríðar var Þuríður Jóns- dóttir, systir Þorgríms, langafa Gríms Thomsen. Móðir Vilhelms var Guðbjörg Stefánsdóttir, b. á Fjöllum í Keldu- hverfi, Ólafssonar, b. á Auðbjargar- stöðum, Gottskálkssonar, hrepp- stjóra í Nýjabæ, Pálssonar, langafa Jóns Trausta og Benedikts, föður Bjama forsætisráðherra. Gottskálk var einnig langafi Friðriks, föður Barða, fyrrv. framkvæmdastjóra VÍ. Móðir Stefáns var Kristín, systir Bjargar, ömmu Nonna og langömmu Jóhannesar, föður Ás- geirs, forstjóra Innkaupastofnunar ríkisins. Önnur systir Kristínar var Guðný, móðir Kristjáns Fjalla- skálds. Kristín var dóttir Sveins, hreppstjóra á Hallbjarnarstöðum, Guðmundssonar, b. á Sandhólum, Guðmundssonar, b. í Keldunesi, Guðmundssonar, bróður Steinunn- ar, móður Stefáns Halldórssonar, prests í Laufási. Móðir Sveins var Ingunn Pálsdóttir, b. á Víkinga- vatni, Amgrímssonar. Móðir Guð- bjargar var Anna Guðmundsdóttir, b. á Hallbjamarstöðum, Sveinsson- ar, bróður Kristínar. Móðursystir Baldurs var Þór- Baldur Vilhelmsson. anna, amma Jónasar Kristjánsson- ar ritstjóra. Önnur móðursystir Baldurs var Þorbjörg, amma Leifs Þórarinssf"'' iónskálds. Móður- bróður baidurs er Jón, b. á Þingeyr- um, faðir Guðrúnar arkitekts. Hall- fríður var dóttir Pálma, prests á Höfða, Þóroddssonar, bróður Ingi- bjargar, móður Jóns Loftssonar framkvæmdastjóra, afa Jóns L. Árnasonar stórmeistara. Ingibjörg var einnig móðir Pálma, forsfióra Skipaútgerðar ríkisins, afa Más Gunnarssonar, starfsmannasfióra Flugleiða. MóðirHallfríðarvar Anna Jónsdóttir, prófasts á Reyni- stað, Hallssonar, afa Jóns Stefáns- sonar Ustmálara. Baldur verður að heimanídag. Guðrún Jónína Sveinbjömsdóttir Guðrún Jónína Sveinbjörnsdótt- ir, Hjallalundi 15E, Akureyri, verð- ursjötugámorgun. Guðrún fæddist á Kolgrímastöð- um í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Fyrri maður Guðrúnar var Sopus Franz Jónsson Trampe, f. 1916. For- eldrar hans voru Jón P. Trampe, b. í Litla-Dal í Saurbæjarhreppi, og kona hans, Þórdís Árnadóttir. Franz lést 1941. Börn Guðrúnár og Franz eru Brynjar, f. 16.7.1939, fasteignasah í Reykjavík, kvæntur Ástu Pálsdótt- ur, húsmóður og starfsmanni hjá Verðlagsstofnun, ög eiga þau þrjá syni og þrjú barnabörn; RagnhUdur, f. 8.11.1940, húsmóðir og skrifstofu- maður á Akureyri, gift Gísla Kristni Lórenssyni slökkvUiðsmanni og eiga þau fiögur börn og þrjú barna- börn. Seinni maður Guðrúnar var Bern- harð Pálsson bifreiðastjóri, f. 1903, en hann lést 1969. Foreldrar hans voru PáU Sigurðsson, síðast b. á TorfufeUi í Eyjafirði, og kona hans, Sigríður Jónsdóttir. Bernharð ólst upp á Grund frá unga aldri og þar áttu þau Guðrún heima til 1959. Þá fluttu þau í nýbyggt félagsheimiU HrafnagUshrepps, Laugaborg, þar sem þau tóku við stöðu húsvarðar. Því starfi gegndi Guðrún tU ársins 1980 er hún flutti til Akureyrar en þar hefur hún starfað við Dvalar- heimiUð Hlíð. Börn Guðrúnar og Bernharðs eru Sigrún, f. 2.5.1946, húsmóðir á Ak- ureyri og starfsmaður á leikvelli, gift Val Baldvinssyni rafvirkja og eiga þau þrjú böm og eitt barna- bam; Aðalsteinn, f. 6.2.1954, lög- reglumaður í Reykjavík, kvæntur Rögnu Ágústsdóttur, húsmóður og sjúkraUða og eiga þau tvo syni; Sig- ríður, f. 22.4.1955, húsmóðir og sjúkraUði á Akuryeri, gift Valgeiri Anton Þórissyni bifvélavirkja og eiga þau þrjár dætur. Systkini Guðrúnar eru Rósa, f. 1904, d. 1967, húsmóðir í Hleiðar- garði, gift Halldóri Friðrikssyni; Herbert, f. 1906, málari á Akureyri, kvæntur Friðriku Hallgrímsdóttur; Daníel, f. 1911, d. 1976, b. í Saurbæ, kvæntur GunnhUdi Kristihsdóttur; Sigtryggur, f. 1916, b. í Sandhólum, kvæntur Helgu Jóhannesdóttur; Hrafn, f. 1928, bifvélavirki á Akur- eyri, kvæntur Báru Ólsen. Foreldrar Guðrúnar voru Svein- björn Sigtryggsson, f. 8.6.1882, d. 17.10.1938, síðast bóndi í Saurbæ í Eyjafirði, og kona hans Sigrún Jóns- dóttir, f. 28.11.1882, d. 18.1.1945, húsfreyja. Foreldrar Sveinbjörns voru Sig- Guðrún Jónína Sveinbjörnsdóttir. tryggur, b. í Hólakoti, Jónsson, b. í Hólum ogvíðar, Jónassonar, og kona Sigtryggs, IngibjörgFriðbjarn- ardóttir, b. á Völlum, Benediktsson- ar. Foreldrar Sigrúnar voru Jón, b. í Ytra-Dalsgerði, Jósúason, b. í Ár- gerði, Jónssonar, og kona Jóns, Guðrún Bergrós Oddsdóttir, b. á Rauðalæk á Þelamörk, Bergsson. Guðrún tekur á móti gestum í Laugarborg á afmælisdaginn milh klukkan 15 og 19.00. Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir póstafgréiðslumaður, Hátúni 6, Vestmannaeyjum, verður fimmtug á morgun. Guðlaug er fædd í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp. Guö- lauggiftist 6.júní 1959 Jóni Valgarði Guðjónsssyni, f. 8. október 1931, skipstjóra. Foreldrar jóns eru Guð- jón Jónsson vélstjóri og kona hans Marta Jónsdóttir sem bæði eru ætt- uð úr Landeyjunum. Börn Guðlaug- ar eru Ásdís Þorvaldsdóttir, f. 1956, gift Annfinni Hansen og eiga þau eina dóttur; Marta Jónsdóttir, f. 1959, gift GústafÓ. Guðmundssyni og eiga þau fióra syni; Gunnar Jóns- son, f. 1960, en hann er látinn; Guð- jón Valur Jónsson, f. 1962, sem einn- ig er látinn; Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 1964 og er sambýhsmaður hennar Gunnar Þór Friðriksson; Valgarð Jónsson, f. 1969, í foreldrarhúsum en unnusta hans er Erla Guðmunds- dóttir. Bróðir Guðlaugar var Kjart- an Hreinn Pálsson, f. 1938, kvæntur Halldóru Valgerði Jóhannsdóttur, en þau eru bæði látin. Kjartan Hreinn og Halldóra Valgerður eign- uðust þrjú börn sem öll eru búsett á Selfossi. Foreldrar Guðlaugar eru Gunnar Kristberg Sigurðsson, f. 9. ágúst 1914, málarameistari, og kona hans, Sigurbjörg Sóley Böðvardóttir, f. 21. október. 1913. Gunnar er sonur Sig- urðar sjómanns Gunnarssonar og konu hans, Guðbjargar Ingveldar Eyjólfsdóttur, b. á Hryggjum í Mýr- dal Bjarnasonar, b. í Hæðargarði, Gíslasonar. Móðir Guðbjargar var Sigríður Sigurðardóttir, b. í Péturs- ey í Mýrdal, Péturssonar, og konu hans Vilborgar Jónsdóttur, b. í Drangshlíð undir Eyjafiöllum, Björnssonar. Móðir Vilborgar var Þuríður Guðmundsdóttir, b. á Stein- um, Jónssonar, lögréttumanns í Sel- koti undir Eyjafiöllum, ísleifssonar, ættföður Selkotsættarinnar. Sigurbjörg er dóttir Böðvars, b. á Bólstaö í Mýrdal, Sigurðssonar, b. á Rauðhálsi, Loftssonar, b. á Höfða- brekku, Guðmundssonar, b. í Holti, Loftssonar. Móðir Sigurðar var Þór- dís Markúsdóttir, b. í Bólstað, Árna- sonar, og konu hans, Elínar Skúla- Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir. dóttur. Móðir Böðvars var Steinunn Guðlaugsdóttir, b. á Ketilsstöðum, Eyjólfssonar, ogkonu hans, Ingi- bjargar Ingimundardóttur. Móðir Sigurbjargar var Hugborg Runólfs- dóttir, b. á Ketilsstöðum í Mýrdal, Sigurðssonar, b. á ljótarstöðum Bót- ólfssonar. Móðir Hugborgar var Vil- helmína Eiríksdóttur, b. Leirum, undir Eyjafiöllum Jónssonar og konu hans Elínar Sveinsdóttur. Til hamingju með afmælið 23. júlí 80 ára 50 ára Pálina Sigurðardóttir, Nýbýlavegi 28, Hvolhreppi, Rangár- vallasýslu Guðrún Gisladóttir, Hlégarði 17, Kópavogi Hrefha Sighvatsdóttir, Hátúni 14, Vestmannaeyjum Sveinn Gunnur Hálfdánarson, Kveldúlfsgötu 16, Borgamesi Sveinn Steinar Guðjónsson, Bakkaseli 2, Reykjavík Birgir Friðriksson, Heiöarholh 32 F, Keflavík Ema Geirmundsdóttir, Kárastíg 9, Hofsósi Sveinn Sigurjónsson, Melabraut 75, Selijarnamesi 75 ára Ingólfur Sigmarsson, Braeðraborg, Hofsósi 70 ára 40 ára Friðbjörn Þórhallsson, Kirkjugötu 3, Hofsósi. Hann tekur á móti gestum í félagsheimilinu Höfða- borg frá kl. 16. Ragnheiður Hafstað, Grímshaga 1, Reykjavík Bima Margrét Guðjónsdóttir, Tungusíðu 6, Akureyri Kristinn Björnsson, Bólstaðarhlíð 13, Reykjavik Sigurður Hlöðversson, Suðurgötu 86, Sigluflrðí Una Vilhjálmsdóttir, Fellsenda, Þingvallasveit Guðbjörg Guðbjörnsdóttir, KJébergi 14, Þorlákshöfo Jónina Kristbjörg Pálsdóttir, Kjarrhólma 4, Kópavogi Jósef L. Marinósson, Árskógum 17, Egilsstööum Örlygur Sveinsson, Ásmundarstöðum 2, Ásahreppi, Rang- árvallasýslu 60 ára Helga Jóhannesdóttir, Smáragrund 1, Ytri-Torfustaðahreppi, Húnavatnssýslu Elsa Friðriksdóttir, Austurbrún 27, Reykjavík Hildur Guðný Ásvaldsdóttir, Gautlöndum 1, Skútustaðahreppi, Suö- ur-Þingeyjarsýslu Margrét Halldórsdóttir Margrét Halldórsdóttir húsmóöir, Erluhrauni 4, Hafnarfirði, er áttatíu ogfimmáraídag. Margét fæddist í Reykjavík, dóttir hjónanna Önnu Erlendsdóttur og Halldórs Friðrikssonar skipstjóra. Hún flutti eins ár til Hafnarfiarðar og hefur átt þar heima síðan, að undanskildum nokkrum árum í Breiðafiarðareyjum og fyrstu bú- skaparárunum í Vestmannaeyjmn. Margrét átti fimm systkini og er ein systir hennar á lífi. Sú er Helga sem býr í Reykjavík. Hin systkinin voru Erlendur Hahdórsson bruna- eftirhtsmaður, Jón Halldórsson út- gerðarmaður, Friðrik, loftskeyta- maður á gömlu Esjunni, og Ólafía sem lést tólf ára að aldri. Margrét giftist 1940 Guðna Páls- syni, ættuðum úr Biskupstungum. Hófu þau búskap í Vestmannaeyj- um en fluttu síðan í Hafnarfiörðinn þar sem þau byggðu sér hús að Vita- stíg9. Dóttir Margétar og Guðna er Anna húsmóöir, gift Birgi Eyjólfssyni og eiga þau þrjú börn, Guðna, f. 1971, Kristrúnu, f. 1967, og Margréti, f. Margret Halldórsdóttir. 1960, en hún er gift Gunnari Ólafs- syni, gestamóttökustjóra á Hótel Esju, og eiga þau tvær dætur, Önnu Hlín og Thelmu. Dætur Guðna frá fyrri sambúð eru Guöfinna og Theo- dóra. Margrét missti mann sinn 1959 og bjó hún þá ein í húsinu sínu á Vita- stígnum þar til fyrir níu árum að hún flutti í íbúð í sama húsi og dótt- ir hennar og tengdasonur búa en þarbýrhúnenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.