Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1989, Blaðsíða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989.
Loðdýrarækt:
Sumir
verða gjald- Rar lítið á i ■■■■ nllll
þrota en llilv H 1
einhver
kjarni liffir
- segir forsætisráðherra
„Menn gera sér litlar vonir aö það
fáist upp í kostnað loðdýrabænda
fyrir skinnaverðið núna,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra.
„En ef bankarnir ætla að ganga að
bændum er ég ansi hræddur um að
uppskeran verði mjög rýr hjá þeim.
Það er náttúrlega öllum til góðs ef
það er hægt að fara skikkanlega í
gegnum þessa erfiðleika. Sumir
munu stöðvast, sumir munu verða
gjaldþrota en kannski er einhver
kjarni sem getur lifað þetta af og
orðið seinna að undirstöðum undir
traustum loðdýrabúskap þegar verð-
ið fer upp á ný.“
Á fundi ráðherra með lánadrottn-
um loðdýrabænda var samþykkt að
ekki yrði gengið að bændum eða fóð-
urstöðvum við innheimtu á afurða-
og stofnlánum fram að næsta upp-
boði, sem verður seint í haust. Áður
hafði ríkisstjórnin samþykkt að
greiða fóður enn frekar niður, eða
um 38 milljónir til viðbótar við 55
milljóna niðurgreiðslu frá því um
síðustu áramót.
- En munu þessar aðgerðir duga til
aö halda lífi í greininni?
„Það á að duga ásamt því að draga
úr fjármagnskostnaðinum og inn-
heimtuaðgerðum," sagði Steingrím-
ur -gse
OPIB ÖU KVÖID
C
StóBASHACinr
TISSOT
GÆÐI -
GLÆSEEIKI
LOKI
Skánar þessi andskoti ekki
ef veðurfræðingarnir fara
aftur í verkfall?
okkar í málefnum
Mitóll kurr er S ráðherrum Al-
þýðuflokksins þar sem Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráðherra
vi3I ganga til viðræðna við Borgara-
flokkinn um hugsanlega þátttöku í
ríkisstjórn á grundvelli afnáms
lánskjaravísitölu og matarskatts.
„Þeir hafa sett þessa kröfu fram
og ég hef sagt að ég séu þessu hvoru
tveggja samþykkur. Það ber afar
lítið á miili okkar í málefnum; það
er alveg hárrétt. Ég hef ekkert far-
ið leynt með að ég er mjög andsnú-
inn lánskjaravísitölunni,“
Steingrimur.
- Er ekki mikil andstaða við þessar
hugmyndir innan stjórnarinnar?
„Það eru til andstæðingar í ríkis-
stjórninni þannig að ég hef ekki
getað samþykkt þetta fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar.“
Steingrímur hefur haldið á lofti
kröfu um afnám lánskjaravísi-
tölunnar allt frá vormánuðum
1988. Það er Jón Sigurösson við-
skiptaráðherra sem harðast hefur
barist gegn hugmyndum Stein-
grims um afnám lánskjaravísi-
tölunnar innan ríkisstjómarinnar.
Deilur þeirra hafa getið af sér
nokkrar málamíölanir; lágmark á
lánstíma á verðtryggðum lánum,
’nýjan grunn vísitölunnar og skerð-
ingu á skiptikjarareikningunum.
Bæði Framsókn og Alþýöubanda-
lagið halá sett fram hugmyndir um
afnám matarskattsins eða sérstakt
lægra þrep í virðisaukaskattinum
fyrir nauösynjavörar. Alþýðu-
flokkurinn hefur Mns vegar staðið
gegn því.
Upptaka virðisaukaskatts um
áramótin mun skerða tekjur ríkis-
sjóðs um 2,5 prósent vegna lægri
skattprósentu. Ef skattur á mat-
væli yröi afnuminn yrði tekjutapið
um 6,5 milljarðar og ef sett yrði
sérstakt 12 prósent þrep fyrir þær
yrði tekjutapið 5 milljarða.
Á þingi í vetur lagði Borgara-
flokkurinn fram frumvarp um aö
hækka skattprcsentuna í virðis-
aukanum úr 22 í 25 prósent til þess
að fjármagna afnám matarskatts-
ins. Slík hækkun á almennri skatt-
prósentu myndi leiða til um 2,5
milljarða tekjutaps ef matarskatt-
urinn yrði afnuminn og um 1 millj-
arða tekjutaps ef matvæli færu í
sérstakt skattþrep. -gse
Veðrið leikur við börn og fullorðna á Norður- og Austurlandi. Börnin á Egiisstöðum eru léttklædd í blíðunni. Hér
eru strákarnir Freyr og Hallur við forláta ökutæki og Hafþór Máni undir stýri. Systir ökumanns, Hafrún Sól, horfir
á bróður sinn. DV-mynd Sigrún
Þrálát grámygla
Ekkert lát er á grámyglunni sem
hrjáð hefur íbúa suðvesturhornsins
undanfarið og ekki er útlitið alltof
gott. Fyrir norðan og austan geisla
menn Mns vegar í sólskininu og ráða
sér vart fyrir kæti. Hálfþunglyndir
íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa því
margir pakkað rnður og sett stefnuna
í norður og austur. Að sögn lögreglu
á Selfossi og í Borgarnesi var mikill
straumur bíla á þjóðveginum, meiri
envenjaertil. -hlh
Umhverfisráðu-
neyfi um áramót
Jón Sveinsson, aðstoðarmaður
Steingríms Hermannssonar, hefur
verið skipaður formaður nefndar
sem ætlað er að semja frumvarp um
stofnun umhverfismálaráðuneytis.
Nefndin mun skila af sér frumvarpi
í haust en ráðgert er að umhverfis-
málaráðuneytið taki til starfa um
næstu áramót. -gse
Veðriö um helgina:
Hlýtt fyrir norðan og austan
- súld sunnan- og vestanlands
Á sunnudag verður sunnanátt um allt sunnanvert landið en úrkomulítið fyrir norðan. Hlýtt, einkum á norðan og austanverðu landinu.
Á mánudag verða áfram Mýindi um norðan- og austanvert landið og víða sólskin. Súld verður sunnanlands og vestan.