Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989. Fréttir íslenskur tölvuvírus gerir usla í útttmdum „Það viröist einhver hafa búiö tll andiþarsemhannvaránámskeiði Kristján sagði að vírusinn færi þaö lítið að unnt ætti aö vera að us, sem heitir enn sem koraið er þennan virus eftirað umræöan fór umtölvuvirusa. Hann segistsjálfur hægt afstað og sýkti ekki útfrá sér rekja uppruna virusins nokkuð bara „íslenski tðivuvirusinn‘', í gang i upphafl árs,‘' sagöi Kristján ekki hafa komist £ návígi viö þenn- fyrr en í tíunda hvert skipti sem nákvæmlega. Töluverða sérfræði- skemmir ekki gögn né forrit. Hann Ingvarson, kerfisfræðingur hjá an islenska tölvuvfrus en er þó forritiö,þarsemhonumheföiverið þekkingu þyrfti til að gera slíkan fer eingöngu inn á svæði sem eru Gísla J. Johnsen hf., en nú virö- nokkuö kunnugur honum. Ekki plantað i, væri keyrt. Vírusinn vírus og greinilegt væri að hér er ónotuö á hörðu diskunum og merk- umst viö íslendlngar hafa eignast vlssihanntilþessaðEnglendingar breiðist því ekki mjög hratt út en enginn viðvaningur á ferö. ir þau sem notuð þannig að okkar eigin tölvuvírus og það hefðu orðið fyrir barðinu á virusn- erfitterhinsvegaraðfmnahann. Ekki er ijóst hvernig slík mál eru geymslurými hverfur skyndilega. nokkuð skæðan. um en þeir heföu greinilega heyrt meðhöndluð fyrir dómstólum hér á Kristján sagði að erfitt væri að Virussins, sem hér um ræðir, var umhann. Hugsanlega hœgt aö finna landi en erlendis er gerð töivuvir- gera sér grein fyrir útbreiðslu vir- getið í The Sunday Times frá siö Vírusinn vinnur á þann hátt að forritarann usatalinflokkastundirskemmdar- ussins en hugsanlega gæti hann astasunnudegioghanntekinnsem hann eyðir upp geymslurainni Aö sögn Kristiáns þá leynir sér starfsemi og fellur undir almenn verið kominn viöa. Þá gæti farið dæmi um skæðan tölvuvirus þar í harðra diska. I hvert skipti sem ekki að virusinn hefur verið búinn hegningarlög. Framleiðsla á að bera meira á honum eftir því landi. hannlæturtilskaraskríðahverfur til vfljandi. Hann taidi hins vegar tölvuvírus getur því verið skaða- sem ffam líöa shmdir. Kristján er nýkominn frá Engl- minni upp á um 2000 bite. að hiö íslenska tölvusamfélag væri bötaskyld. Þessi íslenski tölvuvir- -SMJ Sjóflugvélin hifð upp á þurrt með krana. DV-mynd S Sjóf lugvélin komin á þurrt Sjóflugvélin, sem valt í Skeriafirði aðfaranótt sunnudags, var dregin á þurrt land í gær. Vélin er í eigu bandaríska flugmannsins Thomasar Casey sem ætlaði að fljúga henni í kringum hnöttinn án þess að lenda á flugvelli. Þaö voru nokkrir félagar í siglinga- félaginu Ými sem stóðu að björgun- inni ásamt flugvirkjum úr flugskýli á Reykjavíkurflugvelli sem koma til með að gera við vélina. Um tíuleytið fór kafari niður aö vélinni og setti undir hana flotholt. Var trilla síðan notuð til að draga vélina á hvolfi út að enda flugbrautar þar sem krani velti henni við og hífði upp á þurrt. Að sögn Páls Hreinssonar hjá Ými er mótorinn í vélinni heill og eins var olían í lagi en öll tæki eru auðvit- að ónýt. -GHK Himdurinn orðinn hitalaus: Fékk málninguna á sig vegna óhapps - var að leika við krakka í vmnuskólanum Hundurinn, sem fékk á sig bláa olíumálningu og var um hríð í mik- ilii lífshættu, er nú orðinn hitalaus og allar líkur á að hann nái sér. Upplýst er að hundurinn fékk á sig málninguna við óhapp í Vinnu- skóla Reykjavíkur. Sigurður Lyngdal, yfirkennari í Vinnuskóla Reykjavíkur, skýrði blaðinu í gær frá tildrögum at- burðarins. „Vinnuflokkur frá vinnuskólan- um var að vinna við málningar- framkvæmdir við Kvistaborg í Fossvogi þegar labradorhundinn bar að. Hann hoppaði um og lét eins og gengur og gerist með hunda,“ sagði Sigurður. „Hann náði í vinnuvettling af ein- um í flokknum sem síðan náðist aftur af hundinum. Barst síðan vettlingurinn til stúlku og hoppaði hundurinn með framfætuma upp á læri hennar en hún var nýbúin að fylla málningardósina sem hún var með. Brá þá stúlkunni mjög og missti hún úr dósinni yflr hundinn. Bar þá að einhvem eldri dreng sem síðan reyndi aö ná málningunni af honum með terpentínu. Þá reif hundurinn sig lausan og hvarf sjónum krakkanna," sagði Sigurð- m-. Hann sagði að stúikan væri mjög leið yfir þessum atburði og vonaði innilega að hundurinn næði sér. Hundurinn er orðinn hitalaus Edda Farestveit, einn eiganda hundsins, sagði í samtali við DV að honum líöi nú miklu betur. „Hann er orðinn hitalaus en það tekur hann nokkra daga að jafna sig. Málningin er ennþá dálítið föst á eyrum og undir auganu og hann er ennþá með bláma á sér annars staðar. Fólk hefur hringt til okkar og boðið okkur efni til aö þrífa hann með og aðstoð. Helga Finnsdóttir dýralæknir sagði að þaö yrði að fylgjast vel með honmn. Hann er farinn að borða núna og fá smáglampa í aug- un. En hann var mjög veikur og við vissum ekki hve mikla máln- ingu hann var búinn að sleikja í sig. Auk þess hefur terpentínan slæm áhrif. En það er mikill leikur í svona labradorhundum þannig að því fór sem fór. Þegar þeir ná einhverium hlut og verið er að elta þá er voða gaman hjá svona dýrum,“ sagði Edda. Þórður Friðjónsson: Samkeppnisstaða útf lutnings hef ur batnað mikið „Það er alveg ljóst að samkeppnis- staða útflutningsgreina hefur batnað töluvert mikið. Raungengi hefur til dæmis lækkað um rúmlega 10 pró- sent á mælikvarða launa frá 1988 og um 6 prósent á mælikvaröa verðlags. Ef við notum þennan grófa mæli- kvarða þá gefur hann vísbendingu um hvemig þetta er fyrir atvinnu- greinamar í heild,“ sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn- unar. Eins og fram kom í DV fyrr í vik- unni telja Samtök fiskvinnslustöðva að fiskvinnslan sé nú rekin með um 4,2 prósent tapi. Þjóðhagsstofnun hefúr enn ekki birt sams konar mat en að sögn Þórðar er niðurstaða stofnunarinnar mun betri eða nálægt 1 prósent tapi. Staða frystingarinnar er þar örlítið lakari en söltunar. Ef Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson útgerð er tekin inn í myndina breyt- ist hún lítið. Frystitogarar og venju- legir togarar em reknir með litlum hagnaði en bátamir hins vegar með umtalsverðu tapi eins og oft áöur. Þegar litiö er til þess að sjávarút- vegurinn stendur frammi fyrir um 6 prósent aflasamdrætti á árinu bendir þetta mat Þjóðhagsstofnunar til að aðrar atvinnugreinar hafi fengið mun meiri bata en staða sjávarút- vegsins gefur tilefni til aö ætla. Auk þess hefur verð á sjávarafurðum nánast staðið í staö frá áramótum og því lækkað að raungildi þar sem aðrar afuröir hafa hækkað í verði í takt við verðbólgu. Að sögn Þórðar mun 6 prósent afla- samdráttur draga afkomu fisk- vinnslunnar niöur um 2 til 4 prósent. Rekstrammhverfi fiskvinnslunnar að aflasamdrættinum slepptum hef- ur því snúist mjög við frá fyrra ári þegar vinnslan var rekin með um 4 prósent tapi. Ef hún hefði sama hrá- efnismagn til ráðstöfunar nú og í fyrra mætti því gera ráð fyrir aö um 1 til 3 prósent hagnaður væri á rekstri hennar. Þegar litið er til breytinga frá ára- mótum á tekjum og útgjöldum fisk- vinnslunar lætur nærri að afkoma hennar hafi batnað um 5 prósent. Enn sem komið er hefur aflasam- drátturinn ekki sett sitt mark á af- komuna. Það mun hins vegar gerast þegar líður á árið og þá má búast við aö árið í heild komi út meö svipuðum hætti og áætlun Þjóðhagsstofnunar bendir til. Aðrar atvinnugreinar þurfa hins vegar ekki að þola þennan aflasam- drátt - að minnsta kosti ekki beint. Það má því gera ráð fyrir að rekstrar- skilyrði þeirra hafi batnað um 5 pró- sent það sem af er árinu og að sá bati verði ekki dreginn til baka. Þar sem staða sjávarútvegsins hef- ur verið notuð sem helsta viðmiðun- artæki stjórnvalda við skráningu gengisins má búast við aö aðrar út- flutnings- eða samkeppnisgreinar muni njóta góðs af aflasamdrættin- um. Til þess að vega upp áhrif hans á sjávarútveginn munu stjómvöld freista þess að lækka raungengi krónunnar um 2 til 4 prósent umfram þaö sem hefði þurft að gera til að eyða áhrifunum af fastgengisstefn- unni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.