Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989.
LAUSAFJÁRUPPBOÐ
Eftirtalin lausafjáruppboð fara fram i umdœminu fimmtudaginn
3. september 1989.
I. Kl. 10.00 verður seld að Hafnargötu 28, Grindavík, „lifrar-
vinnslulína", talin eign Lagmetisiðjunnar Garði hf., að kröfu
Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl.
II. Kl. 15.00 verða eftirtaldir munir seldir að Vesturbraut 34, Kefla-
vík, að kröfu Jóns G. Briem hdl.: Nr. 1. Ö-10805 BMW 735i
árg. 1989. Nr. 2. Báturinn Guðbjörg KE-82.
Uppboðshaldarinn í Keflavík, Njarðvík
Grindavík, sýslumaðurinn í Gullbringusýslu,
Sveinn Sigurkarlsson
Ökumælar
Haldex
VDO
Almennar
barkaviðgerðir
Tökum notaða
mæla upp í nýja!
GunnarAsgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík - S(mi 91-680 780
Jm
BIACK&DECKER
garðáhöldum
JULITILBOÐ
GX 303 loftpúðavél
TILBOÐ 1
GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,-
GL 120 kantskeri kr. 3.964,-
A 6261 25m raftaug kr. 1.123,-
18.908,-
TILBOÐSVERÐ KR. 15.882,
TILBOÐ 2
GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,-
GL 220 kantskeri sjálfvirkur kr. 5.333,-
A 6261 25m raftaug kr. 1.123,-
20.276,-
TILBOÐSVERÐ KR. 16.829,-
Sölustaðir um land allt.
SIWDRA/tliSTALHF
BORGARTUNI 31, SÍMI 627222
Utlönd
Ktnverskir ráðamenn hafa heitið því að námsmenn erlendis verði ekki beittir refsiaðgerðum en það loforð er
hluti áróðursherferðar yfirvalda. Símamynd Reufer
Aróðursherferði n
heldur áfram
Áróðursherferð ráðamanna í Kína
heldur áfram en í gær hétu þeir kín-
verskum námsmönnum erlendis að
þeir yrðu ekki beittir refsiaögerðum
þegar þeir snúa til síns heima á ný.
I kjölfar fjöldamorðanna á Torgi hins
himneska friðar í byrjun júnimánað-
ar, þegar hermenn réðust að mót-
mælendum með þeim aíleiðingum
að mikill fjöldi þeirra lést, fengu
margir kínverskir námsmenn er-
lendis framlengingu dvalarleyfa
sinna. Kínversk yfirvöld óttast nú að
margir þeirra snúi ekki heim á ný.
í frétt á forsíöu Dagblaðs alþýðunn-
ar í gær var sögusögnum um að
námsmenn fengju ekki leyfi' til að
stunda nám erlendis vísað á bug. Þar
var sagt að námsmönnum, sem tekið
hefðu þátt í mótmælunum, yrði vægt.
„Námsmennirnir gerðu sér ekki
grein fyrir afleiðingum gerða sinna,“
segir í greininni. „Þeir voru leiddir
afvega af fréttum í vestrænum fjöl-
miðlum." Yflrvöld réðust harkalega
að vestrænum ráðamönnum fyrir að
leyfa framlengingu dvalarleyfa kín-
verskra námsmanna erlendis.
Námsmenn í Peking bentu á að
svipuð loforð hefðu verið veitt leið-
togum mótmælaaðgerða náms-
manna í Kína en margir þeirra væru
nú á lista stjórnvalda yfir „gagn-
byltingarsinna". Þúsundir náms-
manna gistu í nótt fyrir utan sendi-
ráð Bandaríkjanna og annarra vest-
rænna ríkja í Peking þar sem þeir
óttuöust að hert yrði á brottfararleyf-
um.
Á meðan heldur áróðursherferð
kínverskra yfirvalda áfram. Bækur
og rit tíu þekktra andófsmanna, þar
á meðal Fang Lizhi sem leitaði hælis
í bandaríska sendiráðinu, hafa verið
bannaðar. Þá hafa bækur fyrrum
formanns flokksins, Zhao Ziyang,
verið bannaðar. Handtökur andófs-
manna halda og áfram í Kína. Nýlega
voru þrjú þúsund andófsmenn settir
í gæsluvarðhald, þar á meðal leiðtogi
óopinberra verkalýðssamtaka í aust-
urhluta Kína. Tilkynnt hefur verið
um handtökur víðar í landinu síð-
UStudaga. Reuter
Slær Nicholson met?
Aldrei rætt við PLO
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, þvertekur fyrir að
hann hafi óbeint átt viðræöur við
Frelsissamtök Palestínu, PLO.
Shamir sagði þetta þegar hann tjáöi
sig í fyrsta skipti um fundi sína við
leiötoga Palestínumanna af her-
numdu svæðunum.
Hægrisinnaðir keppinautar
Shamirs í Likud flokknum sökuðu
forsætisráöherrann í gær um að
hafa dregið PLO í fyrsta sinn inn í
friðarviðræðumar með því að
ræða við yfirlýstan stuöningsmann
samtakanna.
„Enginn þeirra sem kom að máli
við mig sagði að PLO hefði heimilað
fundinn,“ sagöi Shamir í ísraelska
sjónvarpinu. „Ef þeir hefðu sagt
aukatekið orö um PLO heföi ég
sagt þeim að hætta að tala um PLO
þar sem ég taia ekki við þá.“
Samir virtist pirraöur og á varð-
bergi í sjónvarpsviðtaiinu. Hann
sagði aö fundirnir hefðu aðeins
verið könnunarviðræður en alls
ekki samningaviðræður. Hann
ítrekaöi að hann hefði aldrei og
mundi aldrei ræða við PLO sem
hann kallar hryðjuverkasamtök.
Fundir Shamirs og Palestínu-
manna hafa lægt öldumar í Verka-
mannaflokknum sem hafði hótað
aö fara úr stjórn vegna harðlinuat-
StÖÖU ^r\'b’-lmV\VKKuSv»r» QViömty»o
Jack Nicholson verður ekki á von-
arvöl þegar hann fær launin fyrir
hlutverk jókersins í kvikmyndinni
um leðurblökumanninn. Allt bendir
tíl að Nicholson verði 60 milljón doll-
umm ríkari þar sem hann samdi upp
á hlut af ágóða myndarinnar og af
sölu alls kyns smávöra tengdri
myndinni sem rennur út eins og heit-
ar lummur vestanhafs.
Talsmaður kvikmyndaframleið-
endanna segir þó að 60 milljónir doll-
arar sé ofætlað. Hæstu laun til þessa
fyrir leik í einni kvikmynd eru 12
miUjón dollarar sem Sylvester Stail-
one fékk fyrir Rocky IV.
Upphaflega mun hafa staðið tíl að
Nicholson fengi 3 mUljónir doUara
en samningur hans var endurskoð-
aður og ákvæði um hluta af hagnaði
settur inn í stað beinna launa. Hlut-
verk jókersins var fremur lítið þegar
farið var af stað með myndina en
síðan var aukið við þaö. Jókerinn er
Jack Nicholson fær líklega um 60 milljónir dollara fyrir að leika jókerinn í
Leðurblökumanninum.
höfuöfjandi leðurblökumannsins í mUljónir dollara í aðgangseyri í
kvikmyndinni. Bandaríkjunum. Reuter
Kvikmyndin hefur nú halaö inn 200