Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Síða 28
36
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989.
Andlát
Regína Frimannsdóttir, Árhvammi,
Laxárdal, lést á sjúkrahúsi Húsavíkur 25.
júlí sl.
Helga Magnúsdóttir kennari, Hjarðar-
haga 26, Reykjavik, andaðist 25. júlí sl.
Guðrún Guðjónsdóttir, Stigahlíð 93,
lést 25. júli.
Ólafur K. Einarsson, fyrrverandi verk-
stjóri hjá Vita- og haifnamálastofnun,
andaðist í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði
þriðjudaginn 25. júlí.
Kara Áslaug Helgadóttir, Frakkastig
7, Reykjavik, andaðist þriðjudaginn 25.
júlí sl.
Sveinfríður Alda Þorgeirsdóttir,
Smyrlahrauni 42, Hafnarfirði, lést að
morgni 26. júlí í Víðistaðaspítala.
Jarðarfarir
Guðlaugur Stefánsson, Helgafells-
braut 21, Vestmannaeyjum, verður jarð-
sunginn frá Landakirkju fóstudaginn 28.
júlí kl. 14.
Útfór Guðríðar Erlu Magnúsdóttur
Shetty, sem lést 10. júli í sjúkrahúsi í
Rockville, Maryland, Bandaríkjunum,
fer fram fóstudaginn 28. júli kl. 15 í Foss-
vogskirkju.
Hjörleifur Sigurðsson, fyrrum vega-
verkstjóri frá Hrísdal, Miðbrekku 1, 01-
afsvík, lést 23. júlí. Útfórin fer fram frá
Fáskrúðarbakkakirkju laugardaginn 29.
júlí kl. 13.30
Útfór bróður okkar, Guðbrands Hall-
dórs Guðmundssonar, sem lést 10 júli
á Vífilsstöðum, fór fram í kyrrþey 21.
júlí að ósk hins látna.
Dórothea Halldórsdóttir andaðist á
Landspítalnum 19. júli sl. Hún fæddist
þann 19. apríl árið 1904 á Húsavík. Þar
ólst hún upp hjá foreldrum sínum í hópi
átta systkina. Foreldrar hennar voru
Ingibjörg Stefánsdóttir frá Skáldalæk í
Svarfaðardal og Haildór N. Siguijónsson
írá HaUbjamarstöðum á Tjömesi. Hún
fluttist átján ára gömul til Reykjavíkur
þar sem hún kynntist síðar manni sinum,
Tryggva Magnússyni frá Bifru í Eyja-
firði. Þau eignuðust þtjú böm, tvo syni
og eina dóttur. Synina misstu þau langt
fyrir aldur fram. Tryggvi, maður hennar,
lést árið 1971. Hún bjó í 55 ár á Hring-
braut 116 í Reykjavík. Útför hennar verð-
ur gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
^ dag kl. 13.30.
TiJkyimingar
Félag eldri borgara.
Göngu-Hrólfúr, gönguferð félags eldri
borgara á hveijum laugardegi kl. 10.00.
Farið frá Nóatúni 17.
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
fimmtudag, kl. 14.00, fijáls spilamennska,
kl. 19.30 félagsvist og kl. 20.00 dansað.
Munið Austfjarðaferðina 8. ágúst nk., 12
daga ferð. Nánari upplýsingar á skrif-
stofú félagsins.
Félag áhugamanna
um heimspeki.
í kvöld, 27. júlí, kl. 20.30 flytur prófessor
Philippa Foot fyrirlestur í Háskóla ís-
lands (Lögbergi) á vegum áhugamanna
um heimspeki. Fyrirlesturinn fjallar um
hamingjuna og nefnist „Happiness".
Phiiippa Foot er prófessor í siðfræði við
Háskólann i Los Angeles og Háskólann í
Oxford. Hún kom fyrst hingað til lands
voriö 1976 og hélt þá fyrirlestur sem vakt-
i mikla athygli.
Tombóla
Nýlega héldu stöllumar Elin Markús-
dóttir og Heiða Rún Steinsdóttir tombólu
Menning
Friðleysi
og tómleiki
Inger Christensen er eitt kunn-
asta ljóöskáld Dana og hefur verið
í tuttugu ár síöan út kom ljóðabók
hennar, det, sem ég hefi áöur skrif-
aö um í þessum dálkum. Skáldiö
er fætt 1935. Hún viðhefur oft að-
ferð sem mætti kalla reglulega
aukningu; hvert erindi ljóðs hefur
einni línu meira en næsta erindi á
undan, hver lína orði meira en
næsta lína á undan o.s.frv. Eða þá
að hún hefur ámóta vélræn til-
brigði við órðalag. Það merkilega
er að útkoman verður ekki fyrirsjá-
anleg né sjálfvirk heldur andríkur
skáldskapur. Verður mér þá eink-
um hugsað til bokar hennar, Alfa-
bet, auk det.
Nú nýverið voru þrjár ljóðabóka
Christensen endurútgefnar. Tvær
hinar fyrstu birtust saman í bindi
af Gyldendals Traneboger sem
margir íslendingar munu kannast
við, það er ódýr fjöldaútgáfa. Hjá
Brondum kom svo Brev i april sem
birtist fyrst fyrir áratug. Þetta er
líka mjög ódýr bókaflokkur,
Brondums lyrikere, kostar bindið
innan við 400 kr. íslenskar. Þetta
er falieg útgáfa, myndskreytt með
htgrafík. En upplagið er ekki nema
800 eintök.
Þessi Tranebog með tveimur
fyrstu ljóðasöfnum Christensen
sýnir vel þroskaferil hennar.
Fyrsta safnið, Lys, birtist fyrst 1962
og geymir um fjörutíu ljóð. Þau eru
módem og smekkleg en ekki ýja
sérkennileg. Ég stöðvaðist helst við
„Mani“ sem þýðir bókstaflega:
bijálæði, geðlæti. Ljóðið sýnir
einkar vel friðleysi og tómleika í
senn. Myndmálið lýtur að eftir-
væntingu sem leiddi til vonbrigða.
Svalimar ættu að snúa að garði,
en hann er enginn, og ekki einu
sinni neitt hús, ekkert ber fyrir
augu mælanda ljóðsins nema
rimlagirðingin sem hann telur í
rimlana í tilgangslausu bernsku-
legu einæði. Um fyrri hluta ljóðsins
er rammi endurtekningar fjórum
sinnum; ekkert land, ekki einu
sinni svefns né sorgar. Fyrst er af-
neitun sem sýnir tómleikann en
loks ályktun; þetta er þá land dauð-
ans. Sjálf hillingin um ævintýra-
land framundan, „fata morgana",
er orðiö að þreytulegum blaðasala
en það mun eiga að skilja svo að
framvegis sé einskis að vænta
nema endurtekinnar lágkúm. Með
þessum seinni hluta hverfur ljóðið
frá því að lýsa einungis sálar-
ástandi einstaklings yfir í samfé-
lagsmynd:
Mani
Der findes intet land
ikke sovnens
ikke sorgens
Inger Christensen
Bókmenntir
Örn Ólafsson
Gár og gár
langs dette rækværk
en balkon i rummet
uden hus og ingen have
TæUer kun de rode tremmer
tæUer til den sidste
Der er dedens land
Jeg har altid troet at virkehgheden
var noget man blev
nár man blev voksen.
Pá torvet stár Fata Morgana
med træt mine og ráber:
morgenaviser - morgenaviser.
Eftir þessa fyrstu bók þróaðist
ljóðagerð Christensen æ meira til
langra ljóðabálka, hið besta. Önnur
bók hennar, Græs (sem hér er
prentuð með þeirri fyrstu), endar á
löngum, módernum ljóðabálki sem
er sundurlaus og mótsagnakennd-
ur. Bókin Brev i april er öU einn
ljóðabálkur sem við fyrstu sýn er
af tagi opinna ljóða. Mælandi segir
frá hversdagslífi sínu og sinna, á
einíoldu máU og hversdagslegu. Óft
fer slík ljóðagerð út í lágkúm, en
ekki hér. Mælandi lýsir yfirborði'
hlutanna í umhverfi sínu í sumar-
húsi á suðlægum slóðum. En út frá
þessu spinnur hún svo minningar
og endurtekin minni. Slíkar endur-
tekningar með tUbrigðum skapa
ljóðabálkinum óræða dýpt, hann
hnitast aUur um að sýna sálar-
ástand mælandans, margbrotiö og
oft erfitt að grípa á því. Mest ber á
vangaveltum um tilgang í lífinu,
um túlkun einstakra fyrirbæra og
heUdarsamhengis og á feigðargmn.
Vissulega nýtur bálkurinn sín að-
eins sem heild en lítum samt að
lokum á glefsu úr honum:
LUle forstandige drom,
nár jeg aften eftir aften
i min seng
tæUer senge,
hvor mange
og hvor
jeg har sovet
i mit Uv,
og aUe disse steder
mens jeg sov
har jeg dromt
pá en drom
der aften eftir aften
nærmer sig
det samme sted,
selv i hospitalernes
kridkamre
dromt den,
og om morgenen
kun resten af en elektrisk hvis-
ken,
nár buketten bæres ind.
ÖÓ
Opið hús í Norræna húsinu.
í dag, 27.júlí, kl. 20.30 verður næsti fyrir-
lesturinn í sumardagskrá Norræna húss-
ins. Þá talar Helga Jóhannsdóttir þjóð-
lagasafnari um íslensk þjóðlög fyrr og
nú. Fyrirlesturinn verður fluttur á
sænsku og leikin verða tóndæmi af
snældum. Eftir stutt kaffihlé verður sýnd
kvikmyndin Mývatn. Sumardagskráin
hefur verið fastur hður í starfsemi húss-
ins allt frá 1979. Hún er einkum sett sam-
an með thliti til norrænna ferðamanna
og flutt á einhverju Norðurlandamál-
anna. íslenskir fræðimenn halda erindi
um ísland. Þessi dagskrá verður öll
fimmtudagskvöld í sumar, en síðasti fyr-
irlesturinn verður 24. ágúst. Þann 3.
ágúst flytur Ingólfur fyrirlestur um íslen-
skar kvikmynkdir. Fyrirlesturinn verður
á norsku. Kaffistofa hússins býður upp á
ljúffengar veitingar og bókasafnið er opið
þessi kvöld til kl. 22.00. Aðgangur er
ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
CF.FIN ÚT AF
MANNELDISFÉI.AGI ISLAN'DS
Manneldisfélag íslands.
Manneldisfélag íslands vill vekja athygh
á næringarefnatöflu sem félagið var að
gefa út. Næringartaflan er til sölu í bóka-
verslun Máls og menningar, Laugavegi
18, og kostar 175 kr. Félagasamtök, skólar
og aðrir þeir sem vilja kaupa mörg eintök
geta keypt töfluna beint frá formanni fé-
lagsins. Nánari upplýsingar gefur for-
maður félagsins, Valgerður Hildibrands-
dóttir, í sima 652626 á kvöldin.
Tapað fundið
Gullhringur tapaðist.
Gullhringur tapaðist sl. laugardagskvöld
á leiðinni frá Mandaríni, Tryggvagötu,
að Amarhóh. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 24426.
Köttur fannst.
Síamsköttur (læða) fannst í Kópavogi
fóstudaginn 21. júU. Læðan er brún og
svört og merkt Reykjavíkumúmeri. Eig-
andi hennar vinsamlegast hafi samband
í síma 46390.
Ferðalög
Útivistarferðir
Ferðist innanlands með útivist. Fjöl-
breyttar sumarleyfisferðir:
28. júlí - 2. ágúst: Eldgjá-Þórsmörk.
Bakpokaferð fyrir þá sem vUja kynnast
nýrri leið til Þórsmerkur. Fararstjóri:
Rannveig Ólafsdóttir.
3.-8. ágúst: Hornstrandir-Hornvík. 4
eða 6 dagar. Tjaldbækistöð með göngu-
ferðum. Fararstjóri: Vemharður Guðna-
son.
3.-7. ágúst: Laugar-Þórsmörk. Gist í
húsum.
3.-11. ágúst: Hornstrandir VII: Horn-
vík I.ónafjörður Grunnavík. Hom-
bjargsganga, en síðan 4 daga bakpokaferð
tÚ Grunnavíkur. Fararstjóri: GísU Hjart-
arsson.
9. -15. ágúst: i Fjöröum-Flateyjardalur.
Bakpokaferð.
10. -15. ágúst: Siðsumarsferð á Norð-
austurlandi. Ný og skemmtUeg útivistar-
ferð. Gist í svefnpokaplássi.
18.-27. ágúst: Noregsferð. Ferð við allra
hæfi. Gist tvær nætur á hóteU í Osló og
7 nætur í vel búnum fjaUaskálum. Ódýrt.
AUt innifaUð. Komið með í sól og sumar
í Noregi. Uppl. og farm. á skrifst., Gróf-
inni 1. Símar 14606 og 23732. sjáumst.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 30. júlí:
Kl. 8.00. Þórsmörk, dagsferð. Verð kr.
2.000.
Kl. 9.00. Gengið eftir Esju frá Hátindi.
tU styrktar Rauða krossi íslands. Þær
söfnuðu alls 1.520 kr.
Komið niður hjá Ártúni. Verð kr. 1.000.
Kl. 13.00. Blikdalur. Létt gönguferð. Verð
kr. 800.
Miðvikudagur 2. ágúst:
Kl. 8.00. Þórsmörk, dagsferð. Verð kr.
2.000.
Kl. 20.00. Hrauntungustígur-Gjásel. Létt
kvöldganga. Verð kr. 600.
Helgarferðir Ferðafélagsins 28.-30. júlí:
Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
Landmannalaugar. Gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins í Laugum. Gönguferðir í
spennandi'umhverfi. Brottför í ferðimar
kl. 20.00 fóstudag.
Sumarleyfisferðir Feröafélagsins:
28. júU-2. ágúst: Landmannalaugar-
Þórsmörk. Gönguferð milU sæluhúsa.
3.-8. ágúst: Landmannalaugar-Þórs-
mörk. Uppselt.
9.-13. ágúst: Eldgjá-Strútslaug-Álfta-
vatn.
9.-13. ágúst: Landmannalaugar-Þórs-
mörk.
11.-17. ágúst: Kirkjubæjarklaustur-
Fljótsdalshérað-Borgarfjörður eystri-
Vopnafjörður-Laugar í Reykjadal-
Sprengisandur.
11.-16. ágúst: Landmannalaugar-Þórs-
mörk.
16. -20. ágúst: Þórsmörk-Landmanna-
laugar.
17. -20. ágúst: Núpsstaðarskógur. Gist í
tjöldum.
18. -23. ágúst: Landmannalaugar-Þórs-
mörk.
23.-27. ágúst: Landmannalaugar-Þórs-
mörk.
25.-30. ágúst: Landmannalaugar-Þórs-
örk.
IDV í fyrradag var sagt aö höfund-
ur Batmanmyndar í undirgöngunum
viö Miklubraut væri Þórhallur Bat-
man. Þórhallur hafði samband við
blaöið og sagöi að listamaðurinn
Ferðir Ferðafélagsins um verslunar-
mannahelgi 4.-7. ágúst:
Kirkjubæjarklaustur-Lakagígar-Fjaðr-
árgljúfur. Gist í svefnpokaplássi á
Kirkjubæjarklaustri.
Þórsmörk-Fimmvörðuháls. Gist í Skag-
fjörðsskála í Langadal.
Landmannalaugar-Hábarmur-Eldgjá.
Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum.
Sprengisandur-Skagafiarðardalir (inn-
dalir). Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í
Nýjadal og Steinsstaöaskóla. Pantið
tímanlega í ferðirnar. Farmiðasala á
skrifstofu félagsins, Öldugötu 3.
hefði verið vinur sinn, Jóhann Gott-
freð Bernhöft. Jóhann Gottfreð mun
einnig vera höfundur Batmanmynd-
arinnar í Tunglinu.
-GHK
Höfundur Batman