Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989.
23
• Kapparnir á myndinni verða í eldlínunni með félögum sínum um helgina. Ormarr Örlygsson, sem er með
boltann á myndinni, leikur með liði sínu, KA, gegn KR og þeir Sævar Jónsson og Atli Eðvaldsson i Val leika
gegn Víkingum. DV-mynd Brynjar Gauti
Boltinn í
1. deild rúllar
á nýjan leik
Knötturinn byrjar aö rúlla að
nýju í 1. deild Islandsmótsins í
knattspymu í kvöld en smáhlé var
gert á mótinu í kjölfar verslunar-
mannahelgarinnar. Þór og Kefla-
vík ríöa vaðið á Akureyri í kvöld
og hefst leikurinn kl. 20.
Á laugardag verða tveir leikir á
dagskrá. KR og KA leika á KR-
vellinum og ÍA og Fylkir leika á
Akranesi. Báðir leikirnir hefjast kl.
14. Á sunnudag leika Víkingur og
Valur í Stjörnugróf og hefst leikur-
inn kl. 20. Umferðinni lýkur síðan
með leik tveggja efstu liðanna,
Fram og FH, á Laugardalsvellinum
á mánudagskvöldið kl. 20.
í kvöld verða fjórir leikir í 2. deild
íslandsmótsins. Selfoss og Stjarnan
leika á Selfossi, Völsungur og Ein-
heiji á Húsavík, Tindastóll og
Breiðabhk á Sauðárkróki og loks
leika Leiftur og ÍBV á Ólafsfirði.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.
Opið golfmót fer fram á vegum
Golfklúbbs Selfoss á laugardaginn.
Leikinn verður 18 holu höggleikur
með og án forgjafar. Vegleg verð-
laun veröa veitt fyrir þrjú efstu
sætin í keppni með og án forgjafar
og að auki verða verðlaun veitt fyr-
ir að verða næstur holu í höggi á
stuttum brautum vallarins.
GB opna golfmótið verður í Borg-
amesi á laugardaginn. Leiknar
verða 18 holur með og án forgjafar.
Ræst verður út frá kl. 9 um morg-
uninn. í golfskálanum verður gisti-
aðstaða fyrir aðkomumenn. Hægt
verður að fá pantaða rástíma milli
kl. 20 og 22 í kvöld í síma 93-71663.
-JKS
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
íþróttakennarar
íþróttakennara vantar við Grunnskólann á Hvols-
velli. Gott og ódýrt húsnæði á staðnum. Uppl. í síma
98-78124 og 98-78220.
KENNARAR
Staða yfirkennara við grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er
laus til umsóknar. Einnig vantar kennara í íslensku
og dönsku, ódýrt húsnæði til staðar. Uppl. gefur
skólastjóri í síma 97-51159 eða Kjartan Reynisson,
formaður skólanefndar, í sima 97-51240.
Skólanefnd
UMSJÓNARMAÐUR
Umsjónarmann vantar til að sjá um rekstur sundlaug-
ar og félagsheimilis. Þekking og reynsla í stjórnun
og rekstri æskileg. Skriflegum umsóknum með uppl.
um menntun og fyrri störf skal skila á skrifstofu Bisk-
upstungnahrepps í Aratungu, 801 Selfossi, fyrir 31.
ágúst nk. Uppl. um starfið gefur Gísli í símum
98-68931 og 98-68808 og Gústaf í síma 98-68868.
0PIÐ
laugardaga
kl. 10-16
ALLA VIRKA DAGA
TIL KL. 20
MUríDU EFTIR
FERÐAGETRAUM
DV
Við viljum minna á að skilafrestur
í Ferðagetraun DV III, sem birtist í
Ferðablaði DV 26. júlí, er til 12. ágúst.
Misstu ekki af vinningi
Framköllun sf., Lækjargötu 2 ogÁrmúla 30,
gefur 15 vinningshöfum
Wizensa alsjálfvirka 35 mm
myndavél að verðgildi
3.500 kr.
á veginn!
Flestir slasast
í umferðinni á sumrin.
Þá er enn meiri þörf á
að halda athyglinni
vakandi en ella.
Látum ekki of hraðan
akstur eða kæruleysi
spilla sumarleyfinu.
Tökum aldrei
áhættu! iJuvFHtoAR