Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Qupperneq 5
pfei ‘I3P.M5W3É 'S HtF Í/ (I'j}I*V>3IM
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989.
Fréttir
Botnfiskaflakvóti fyrir flóra síðustu mánuði ársins:
Um 75 þúsund lestir
eftir af þorskkvóta
„Þorskkvótinn fyrir þetta ár var
áætlaöur 330 þúsund lestir en sam-
kvæmt reynslu okkar má gera ráö
fyrir að hann fari' upp í 340 þúsund
lestir. Og samkvæmt aflatölum um
síðustu mánaðamót má því gera ráð
fyrir að á milli 70 og 75 þúsund lestir
af þorski séu eftir af kvóta ársins,“
sagði Kristján Skarphéðinsson í sjáv-
arútvegsráðuneytinu í samtali við
DV.
Samkvæmt skýrslu Fiskifélags ís-
lands var búið að veiða 260.467 lestir
af þorski um síðustu mánaðamót.
Það þýðir að veiddar hafa verið 32.500
lestir af þorski að jafnaði á mánuði
fyrstu 8 mánuði ársins. Og miðað við
að eftir séu 75 þúsund lestir fyrir
flóra síðustu mánuðina verður mán-
aðaraflinn að meðaltali 18.700 lestir
þaö sem eftir lifir ársins. Það er því
alveg Ijóst áð mjög mun draga úr
atvinnu hjá fiskverkunarfólki á
næstunni.
Eins og skýrt var frá í DV fyrir
skömmu er það mjög mismunandi
hvernig ástandið er í hinum ýmsu
útgerðarbæjum landsins. Á sumum
stöðum hafa veiðar skipanna verið
skipulagðar með það fyrir augum að
halda atvinnu gangandi út árið. í
þeim hópi eru til að mynda Siglu-
fjörður og Neskaupstaður. Austfirð-
ingar skipuleggja veiðar sinna skipa
með það fyrir augum að þeir geti siglt
einn eða tvo túra og síðan farið í
klössun um leið og síldarvertíð hefst.
Á ýmsum stöðum er ástandið aftur
á móti þannig að skipin eru búin með
kvóta sinn eða um það bil að ljúka '
honum og atvinnuástandið því viða
mjöglélegt. S.dór
Botnfiskaflakvótinn 1989
Áætlaður afli 340.000 tonn
Þegar veitt |®íS;.. Eftirstöðvar
260.467 tonn
DVJRJ
75.000 tonn
Eiturtunnur í útivistarparadís? Sem
betur fer reyndist innihald tunnanna
ekki í samræmi við merkingarnar á
þeim. DV-mynd Hanna
„Eiturtunnur“
í Laugardal
Það setti óhug að vegfarendum í
Laugardalnum þegar þeir sáu þar
tunnur með eiturefnamerkinu. Þær
eru við vinnusvæðið við nýja skauta-
svellið og notaðar til að bægja óæski-
legri umferð frá.
Kvartað var yfir þessu við Heil-
brigðiseftirht Reykjavíkur, enda sást
einhver torkennilegur vökvi á botni
tunnanna.
Við skoðun heilbrigðiseftirUtsins
kom ekkert grunsamlegt í ljós og
innihald tunnanna var ekki í neinu
samræmi við merkingarnar á þeim.
Var þó tahð óheppilegt að nota tunn-
ur með þessum merkingum og hefur
rerið mælst til þess að því verði hætt.
-SMJ
Sjálfstæðismenn eystra:
Ráðherra missi
atkvæðisrétt
á Alþingi
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins leggur til í stjórn-
málaályktun sinni að þingmenn
missi atkvæðisrétt sinn á Alþingi
þegar þeir verða ráðherrar og vara-
menn þeirra taki við sæti þeirra. Þá
vih ráðið að þingmönnum verði
meinað að sitja í stjómum og eða
gegna öðrum störfum er heyra undir
framkvæmdavaldið.
í ályktuninni fordæmir ráðið nú-
verandi ríkisstjóm og telur að henni
hafi gersamlega mistekist ætlunar-
verk sitt, að reisa við atvinnuvegina.
Ráðið fagnar yfirlýsingu þingflokks
Sjálfstæðisflokksins um stefnumörk-
un í gengismálum, gjaldeyrisvið-
skiptum og eiginfjármyndun fyrir-
tækja. Það vih færa stjórn fiskveiða
til hagsmunaaðha, láta bændur sjálfa
bera sveiflur á markaðinum og
hvetja tU virkjana og stóriðju, -gse
/ SPARAÐU
/ VIÐHALD
NOTAÐU ÁL
fhrnT|TfíT||nr
Korrugal álklœðning
LANGHMALAUSN
Kormgal álklœðning á þök, veggi og í loít.
Korrugal er sœnsk gœðavara.
------<yKorrugal er ein mest selda álklœðning í Evrópu. ^
Korrugal er jafn vinsœl á íbúðarhús, verksmiðjur, útihús o.fl.
Korrugal þarfnast ekki viðhalds, ryðgar ekki, þolir vei hita-
breytingar, upplitast ekki og þarí mikið hnjask til að aflagast.
\ Korrugal gerir skemmd og illa einangruð hús falleg og hlýy'
Korrugal álklœðning stenst örugglega tímans tönn.
Nú finnst víst ílestum fullstórt upp í sig tekið, en við höfum dœmi
um kirkju í Róm með álþaki frá 1897, sem alltaf er jafn fallegt.
Korrugal íœst í 16 litum, ásamt öllum íylgihlutum.
Korrugal - 20 ára reynsla á íslandi.
Gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu.
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17. Pósthólí 1026
Sími 622434. Teleíax 622475