Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989.
Útlönd
Endurskoða afstöðu til hvalveiða
Norskum yflrvöldum hefur tekist
að fá Bushstjómina til aö endur-
skoða afstöðu sína til hvalveiða
Norömanna. Samtúnis mun norska
stjómin hefja upplýsingaherferð
meðal annarra gagnrýninna aðild-
arríkja Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Utanríkisráöherra Noregs, Thor-
vald Stoltenberg, tiikynnti frétta-
mönnum þetta í gærkvöldi eftir
skyndifund með viöskiptaráðherra
Bandaríkjanna, Robert Mosbacher.
Fyrr í vikunni hafði Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra Nor-
egs, útskýrt fyrir Bush Bandaríkja-
forseta afstöðu Norðmanna í hval-
veiðimálum. Ritiau
Thorvald Stoltenberg, utanrikis-
ráðherra Noregs.
Leit er nú hafln að brennuvargi þeim sem kveikti í líni í dönsku far-
þegaferjunni Tor Scandinavia aöíaranótt mánudagsins. Tveir farþegar,
sænsk hjón, létu iifið í eldsvoðanum og tugir manna voru fluttir á sjúkra-
hús vegna reykeitrunar.
Mestur hluti farþeganna, sem voru 540, hélt áfram til Englands með
annarri ferju en aörir hættu viö Englandsfór sína og héldu heim. Lögregl-
unni var ekki kunnugt um að um íkveikju heföi veriö aö ræða þegar far-
þegamir tvístruðust en nöfn þeirra alira eru skráð. Yfirheyrslur yflr
skipveijum heflast fljótlega.
Sænskur sérfræðingur segist ekki vera jafhviss og danska rannsóknar-
lögreglan að um íkveikju hafi verið að ræða. Segir hann hitaleiðslur hafa
getað ofhitnað, dæmi séu fýrir að slíkt hafl valdiö bruna. Reyndar tók
sérfræðlngurinn fram að íkveikjum um borð i farþegaferjum færi fjölg-
andi. Ritzau ogTT
Fridarsamningur undirritadur
Skæruliöar i Kólumbíu hafa komíst aö triðarsamkomulagi við yfirvöld.
Simamynd Reuler
M-19 skæfuliðahreyfingin 1 Kólumbíu undirritaði friöarsamkomulag
við yfirvöld í gær þar sem kveöiö var á um að skæruliðar legðu niður
vopn á næsta ári.
M-19 hreyfingin, sem er þekktasta skæruiiðahreyfing landsins, vakti á
sér alþjóöaathygli er meðlimir hennar tóku opinbera byggingu í Bogota
á sitt vald. í átökunum viö skæruliöa féilu hundraö manns.
Þá voru skæruliöar sakaðir um samvinnu viö eiturlyfjahringina sem
nú heyja stríð við yfirvöld. Reuter
Krefjast ekki toHabandalags
Sendimenn EFTA, Frfverslunar-
samtaka Evrópu, í Brussel greindu
fVá því í gær að EFTA-löndin sex
hefðu ekki krafist tollabandalags
við Evrópubandalagið, EB, í nýaf-
stöðnum viðræðum um aðgang
innra markaði bandalagsins.
Sögðu þeir að aöaláherslan
lögð á aö gera viðskiptin milli
EFTA og EB frjálsari. Reyndar
væri tollabandalag ein leiðin að þvi
markmiði.
Jacques Delors, framkvæmda-
stjóri EB, vísaöi því á bug I Evrópu-
ráöinu í gær að bandalagiö hygðist
Ihuga alvarlega fjölgun aðildar-
landanna áður en innri markaöur
þess er orðinn að veruleika 1993
Eftir þaö kemur fjölgun til greina,
sagði Delors. Hann gat þess þó að
ef aðildarrikin yröu 16 til 17 gæti
o'röið um erfiðleika að ræöa, Það
myndi hafa í för með sér aö stofii-
anir bandalagsins yrðu að fá meiri
VÖld. Ritzau
Jacques Delors, (ramkvæmda-
stjóri Evrópubandalagslns.
Simamynd Reuter
Paul McCartney í Noregi
Paul McCartney hóf hfjómleika-
ferö sína um heiminn í Drammen
í Noregi í gær og þóttu þeir takast
með ágætum. Norðmenn taka ofan
fyrir honum og segja að McCartney
sé og verði stór stjama.
Þóttu tónieikarnir vera ekta
bítlatónleikar og voru fjórtán lag-
anna fiá þeim tíma er Paul lék með
John, George og Ringo. Hin lögin
þrettán voru frá ýmsum tímum á
ferliMcCartneys. ntb
Fyrrum bitltlinn Paul McCartney
hóf helmsreisu sina i Noregi í gær.
Simamynd Rauter
Stjórnarmyndun er nú lokið í Póllandi en enn eru erfiðleikatímar framundan. Teikning Lurie
Pólsk stjómvöld:
Vilja eins millj-
arðs dollara lán
Pólski fjármálaráðherrann hefur
hvatt vestrænar ríkisstjómir til að
leggja fram eins milljarðs dollara lán,
nokkurs konar „stööugleikalán", til
að styðja stífar efnahagsaðgerðir rík-
isstjórnarinnar og styrkja gjaldeyr-
isforða landsins.
Vestrænir embættismenn sögðu í
gær að ráðherrann, Lezsek Baic-
erowicz, heföi átt viðræður við vest-
ræna fjármálaráðherra þar sem
hann heföi kynnt áætlun um hvernig
ríkisstjóm sín hygðist umbreyta
hriktandi efnahag Póllands í frjáls-
ara markaðskerfi eins og tíðkast á
Vesturlöndum.
Hagfræðingar ríkisstjórnar Pól-
lands hafa lagt fram nákvæma áætl-
un þar sem barist er á þrennum víg-
stöðvum; gegn verðbólgu, til að
tryggja erlendar lánveitingar og
heíja umbætur í efnahagsmálum.
Ríkisstjórn sú sem nú situr að völd-
um í Póllandi er sú fyrsta í rúm fjöru-
tíu ár þar í landi sem ekki lýtur stjóm
kommúnista. Þess í stað er hún und-
ir forsæti Samstöðu, hinna óháðu
verkalýðssamtaka sem gjörsigruðu
kommúnistaflokkinn í þingkosning-
um fyrr í sumar.
Velgengni áætlunar hagfræðinga
pólsku stjórnarinnar byggist að
sumu leyti á stuðningi vestrænna
þjóða. Ríkisstjórnir Vesturlanda
hafa heitið stuðningi við „þær sögu-
legu breytingar“ sem nú eiga sér stað
í austantjaldsríkjum eins og Póllandi
og Ungverjalandi. Sú lánveiting sem
fjármálaráðherrann fór fram á í gær
er hluti af mun stærri lánaósk, þar
á meðal stuðningi Vesturlanda til að
endurgreiða tæplega íjörutíu millj-
arða dollara erlenda skuld. Pólska
stjórnin hefur gefið í skyn að hún
muni fara fram á við vestræna banka
og lánastofnanir, sem lánað hafa
Pólverjum um þriðjung skuldar
þeirra við útlönd, að fjármagna allar
vaxtagreiðslur lánanna á næstu
tveimurárum. Reuter
Stokkhólmur fundarstaður
ísraela og Palestínumanna?
Stokkhólmur gæti orðið fundarstað-
ur ísraelsstjómar og palestínskrar
sendinefndar, að því er Sten Anders-
son, utanríkisráðherra Svíþjóðar,
sagði í gær í aðalstöðvum Sameinuðu
þjóðanna í New York. Sagði ráð-
herrann að viðræður milli ísraela og
Palestínumanna myndu að öllum
líkindum eiga sér stað í haust. Hann
viidi þó ekki tala um hvemig þátt-
töku Frelsissamtaka Palestínu-
manna, PLO, yrði háttað. Fyrir viku
hitti Andersson utanríkisráðherra
ísraels, Shimon Peres, aö máli í ferð
sinni um Mið-Austurlönd.
Andersson nefndi einnig New York
qg Kaíró sem mögulega fundarstaði
ísraela og Palestínumanna.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, hafnaði í gær tillögu Egypta
um viðræður í Kaíró. Sagði hann það
myndu verða uppgjöf. í ávarpi til
kaupsýslumanna sagði Shamir aö
augljóst væri að PLO myndi velja
Sten Andersson, utanríkisráöherra
Sviþjóðar, seglr viöræður milli ísra-
ela og Palestínumanna líklegar í
haust. Reuter og TT
fulltrúa Palestínumanna. „Hverjir
koma til Kaíró?“ „Auðvitað leiðtogar
uppreisnarinnar, þeir munu koma
eins og sigurvegarar," sagði forsæt-
isráðherrann. Kvað hann enga
ástæöu fyrir ísraela að viðurkenna
uppreisnarleiðtogana sem sigurveg-
ara.
Yitzhak Rabin, vamarmálaráð-
herra ísraels, komst að samkomulagi
við Mubarak Egyptalandsforseta í
síðustu viku um að egypsk yfirvöld
útnefndu fulltrúa Palestínumanna til
viðræöna í samráði við ísrael og
ónefnda arabíska aðila. Þykir aug-
ljóst að átt haíi verið við PLO.
Boö þetta hleypti af stað deilum
innan ísraelsku stjórnarinnar.
Likudflokkur Shamirs hafnar þátt-
töku Palestínumanna utan herteknu
svæðanna en Rabin og nokkrir félag-
ar hans úr Verkamannaflokkniun
segja að nokkrir utan hemámssvæð-
anna geti tekið þátt sem ráðgjafar.
Andersson verðlaunaður
Utanríkisráðherra Svíþjóöar, Sten
Andersson, tekur á móti viðurkenn-
ingu á föstudag sem alþjóðlegur
stjómarerindreki ársins 1988. At-
höfnin fer fram í Washington þar
sem friðarsamtökin Pax World Fo-
undation afhenda honum verðlaun-
in.
Er það vegna viðleitni Anderssons
til að koma á viðræðum milli Frels-
issamtaka Palestínumanna og
Bandaríkjastjórnar sem honum
hlotnast heiöurinn.
Sendiherra Svía hjá Sameinuðu
þjóðunum, Jan Eliasson, á einnig í
vændum verðlaun. Þau fær hann frá
tímaritinu Diplomatic World Bullet-
in sem fjallar um málefni Sameinuðu
þjóðanna. Hefur Eliasson verið til-
nefndur Stjórnarerindreki ársins
1989 vegna starfa sinna fyrir Svíþjóð,
norræna hópinn og fyrir umheim-
inn, sérstaklega vegna starfsins sem
sérlegur sendimaður framkvæmda-
stjóra SÞ í íran-írak deilunni.
Ritzau