Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGWR 27. SEPTEMBER 1989.
11
Utlönd
Verkf allinu lokið
Flutningalestir óku inn í Armeníu
í gær og lauk þar með mánaðarlöngu
jámbrautarverkfalii Azera sem lam-
aði ailt viðskiptalíf í Armeníu. Flest
matvælin sem bárust til Armeníu
voru þó farin að rotna þar sem þau
höfðu beðið þrjár vikur í sólinni í
Azerbajdzhan.
Sovéska sjónvarpið sýndi í gær
myndir af flutningalestunum á ferð,
aðeins degi eftir að Gorbatsjov for-
seti varaði við hörðum aðgerðum ef
ekki yrði bjrndinn endi á verkfallið
innan tveggja daga.
Eldsrieytisskortur er um mestalia
Armeníu og skortur ríkir á flestum
matvælum. Azerar efndu.til verk-
fallsins til að svelta Armena til und-
irgefni í deilunni um yfirráð yfir
héraðinu Nagomo-Karabakh sem er
í Azerbajdzhan. Flestir íbúanna þar
era Armenar.
Sovéska fréttastofan Tass greindi
frá því að sautján lestir með sement,
byggingarefni, varahluti, timbur og
jám hefðu komið til Armeníu
snemma í gærkvöldi. Sovéska sjón-
varpið sagði hins vegar að farmurinn
yrði ekki losaður þar sem er ekki til
eldsneytiávinnuvélar. Reuter
Mótmæli eru víða í Sovétríkjunum og er þessi mynd frá Ukraínu þar sem
íbúarnir krefjast meira sjálfstæðis. Simamynd Reuter
Slóvenar í Júgóslavíu:
Vilja stjórnarskrár
breytingar
Koeið venöur um breytingar á
stjóriarskrá*júgóslavneska lýðvfild-
isins Slóveníu, sem veita munu yfir-
völdum lýðveldisins rétt til að segja
það úr ríkjasambandi við Júgóslavíu,
í dag, miðvikudag. Sambandsstjóm-
in í Júgóslavíu hefur hvatt leiðtoga
kommúnistaflokksins í Slóveníu til
að fresta samþykkt breytinganna og
nefnd á vegum stjórnarinnar hefur
sagt að þær brjóti gegn stjómarskrá
landsins. En yfirvöld í lýðveldinu
buðu sambandsstjóminm byrginn í
gær og kváðust munu brPyta stjórn-
arskránni.
Forysta kommúnistaflokks Júgó-
slavíu hefur haldið neyðarfund til að
ræða það ástand sem komið er upp
vegna fyrirhugaðra stjórnarskrár-
breytinga í Slóveníu, einu sex lýð-
velda Júgóslavíu. Leiðtogar komm-
únista í Slóveníu sögðu fundinn til-
raun af hálfu stjómvalda til að beita
Slóvena þvingunaraðgerðum. Þessi
ákvörðun Slóvena nú er talin ein
mesta ógnun við ríkjasambSndið frá
því aö kommúnistar komust til valda
í Júgóslavíu árið 1945.
Leiðtogi kommúnista í Slóveníu
sagði að íbúar lýðveldisins hefðu rétt
til sjálfsákvörðunar og jafnvel að
segja sig úr sambandi við Júgóslavíu.
Að leggja fram kröfur um að breyt-
ingum verði frestað er tilraun til að
setja höft á sjálfsstjóm Slóvena, sagði
hann. Reuter
Bush ávarpar fund Alþjóöagjaldeyrissjóðsins í dag:
Brady-áætlunin efst á baugi
Bush Bandaríkjaforseti mun í dag
ávarpa fulltrúa á árlegum fundi Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins og reyna að
vinna Brady-áætluninni svokölluðu,
sem ætlað er að auðvelda þróunar-
rikjum greiðslu erlendra skulda
sinna, fylgi. Fastlega er búist við að
forsetinn hvetji bankamenn til að
veita áætluninni stuðning.
Brady-áætlunin, sem svo hefur
verið kölluð, er eitt aðalumræöuefni
fulltrúa á fundi sjóðsins sem og Al-
þjóðabankans þetta árið. Fundinn
sifja fulltrúar 152 þjóða sem og þús-
undir fulltrúa verslunarbanka.
Bankamönnum líkar Brady-áætl-
unin ekki of vel. Hún er kennd viö
Nicholar Brady, fjármálaráðherra
BandaríKjanna. A fundi með Brady
á fostudag kvörtuðu bankastjórar
bandarískra banka yfir að ætlast
væri til að þeir afskrifuðu eldri
skuldir þróunarlanda en veittu þeim
jafnframt ný lán. Bankastjórar er-
lendra banka em heldur ekki yfir sig
hrifnir. „Ég held að við ættum að
leggja Brady-áæfiunina til hhðar og
einbeita okkur að einhveriu öðru,“
sagöi Walter Seipp, bankatjóri Com-
merzbank í Vestur-Þýskalandi.
Brady varði áætlun sína í gær.
Sagði hann að hún hefði opnað nýjar
leiðir vona fyrir þróunarríkin. En
hann varaði þróunarríkin einnig við
því að vonast eftir of miklu þar sem
lækkun erlendra skulda þjóðar utan
frá kæmi því aðeins að gagni að efna-
hagslegum umbótum yrði komið á
innanlands.
Reuter
Bush Bandaríkjaforseti mun án efa reyna að efla stuðning við Brady-
áætlunina i dag þegar hann ávarpar fulltrúa á fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Símamynd Reuter
Blað Samstöðu eykur vinsældimar
Leiðtogi Samstöðu, Lech Walesa, sem hér sést með rithöfundinum
Czeslaw Mílozs sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbeis árið 1980, má
vera ánaegöur með sölu blaðs samtakanna en samkvæmt upplýsíngum
framkvæmdstjóra þess er Gazeta nú söluhæsta dagbiað í Póllandi.
Slmsmynd Reuter
Grzegorz Lindenberg, framkvæmdastjóri Gazeta Wyborcza, dagblaös
Samstöðu í Póllandi, skýrði frá þvi í gær að sala blaðsins hefði nú skot-
ist fram úr sölu dagblaðs kommúnista og væri Gazeta nú útbreiddasta
dagblað í Póllandi.
Gazeta er prentaö í rúmlega fimm hundmð þúsund eintökum daglega
aö sögn Lindenbergs. Eintakafiöldi Trybuna Robotnicza, blaðs kommún-
ista sem var söluhæsta dagblað Póllands, er að meðaltali um flögur hundr-
uð þúsund. Blaöið var stofnað fyrir fjónun mánuðum til að aöstoöa fram-
bjóðendur Samstöðu í þingkosningunum sem fram fóra í fyrr í sumar.
Pólitískur skákleikur í A-Þýskalandi
Andófssamtök stjómarandstööunnar f Austur-Þýskalandi, Nýr Vett-
vangur, eru nú af mörgum talin meðal sterkustu stjómarandstöðuafla f
fjörutiu ára sögu kommúnisma í Austur-Evrópu. Átta þúsund stuðnings-
menn tóku þátt í fjöldagöngu þeim til stuönings í Leipzig i fyrrakvöld.
Stjóravöld hafa gefið út raargar yflrlýsingar um ólögmæti þeirra en
hafa, enn sem komið er ekki gripið til aðgerða til að kveða þau niöur.
Nýr vettvangur hafa verið kölluð „óvinir ríkisins“ af a-þýskum yfirvöld-
um og verið skipað að láta af allri starfsemi hið fyrsta. Talsmenn samtak-
anna segjast staðráðnir í að halda baráttunni áfram.
Hermenn skotnir á FHSppseyJum
Tveir bandarískir hermenn og
einn öryggisvarða forseta Filipps-
eyja vora skotnir til bana i gær,
sama dag og Dan Quayle, varafor-
seti Bandaríkjanna, kom f opinbera
heimsókn til Manila.
Bandarisku hermennirnir voru
skotnir til bana úr launsátri í norð-
ur-hluta Filippseyja. Hermennimir
vora i bifreiö aö borginni Angeles,
þar sem Clark-herstöðin hefur höf-
uöstöðvar sínar, þegar árásar-
mennimir réðust að þeim. Lög-
regla telur möguletka á að skot-
mennimir hafi verið skæruliöar
koramúnista Sex bandariskir her-
menn hafa látist í árásum úr launs-
átri á Filippseyjum sí öustu tvö ár.
Nokkram stundum áður en Qua-
yle kom til Manila var einn öryggi-
Lfk eins öryggmvarðar Aquino for-
seta Filippseyja er borlð burt það-
an sem hann var skotinn til bana
i gær. Tveir bandariskir hermenn
voru einnig skotnir til bana á
Fllippseyjum I gær.
Simamynd Reuter
svarða AQttíno forseta skotinn til bana skammt frá forsetahöllinni.
Bandarfski varaforsetinn kora til Manila í gær. Við komuna tll landsins
beið hans fjöldi mótmælenda sera hrópuöu Quayle, farðu heim og burt
með bandarísku herstöðvaraar.
Bandaríkin hvöttu sljómvöld á Fihppseyjum í morgun til nýrra við-
ræðna um framtíð bandarísku herstöðvanna á eyjunum. í bréfi sem Qua-
yle færði Aquino forseta lagði Bush forseti formlega til að ný samninga-
lota hæfist milli ríkjanna um herstöðvamar.
Sprengja springur í stórmarkaði
Björgunarmenn vlröa fyrlr sár skemmdir á stórmarkaði i Bogata i Kðl-
umbiu en þar sprakk sprengja í gær. Simamynd Reuter
Öflug sprengja sprakk í stórmarkaði í Bogota í Kólumbíu í gær.
Fimm særðust í sprengingunnu sem olh miklum skemmdum á verslun-
inni.
Sprengingin kemur á tíma er Kólumbíubúar óttast að ofbeldi það sem
sé að færast í aukana.
Þijátiu og þijár sprengjur hafa 9prungið í Bogota á síðustu tveimur
vikum en alis hafa sjötiu sprengjur sprungið í landinu. Forseti Kólumbíu
kveðst enn fullviss aö vinna sigur í þessu striöi við fíkniefnabarónana.
Barco forseti sagði í sjónvarpsviötali i gærkvöldi að netið um fíkniefna-
smyglarana þéttist óðum og hann kvaðst búast við handtökum á leið-
togum þeirra Ðjótlega. Enginn þeirra sem er á lista Bandarikjanna um
eftirlýsta leiötoga smyglhringanna hefur enn verið handtekinn.