Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989.
Spumingin
Leggst veturinn
illa í þig?
Halldór Jónsson: Nei. veturinn er
mjög skemmtilegur skólans og veð-
ursins vegna.
Þorlákur Runólfsson: Veturinn
leggst mjög vel í mig.
Árný Atladóttir: Nei, hann leggst
mjög vel í mig. Ég er alltaf bjartsýn.
Halldóra Björnsdóttir: Nei, alls ekki.
Er einhver ástæða til að vera svart-
sýnn?
Benedikt Hjaltason: Nei, alls ekki.
Verður maöur ekki að líta jákvaett á
hlutina?
Pétur Blöndal: Nei, ekki til í dæminu.
Lesendur
Samtök sparifláreigenda:
Fundur fyrir lítið
Frá fundi Samtaka sparifjáreigenda sl. sunnudag. - Þátttakendur í pallborðs-
umræðum.
Guðjón Magnússon skrifar:
Fundur Samtaka sparifjáreigenda
var boðaður sl. sunnudag á Hótel
Sögu. Fundarefnið var um fyrir-
hugaða aðfór ríkisstjórnarinnar að
-sparifé landsmanna og lífeyrissjóð-
unum með því að skattleggja vaxta-
tekjur. Almenningur hefur verið
boðaður til fundar af minna tilefni.
Á fundinum áttu að mæta fulltrúar
allra stjórnmálaflokkanna. Ég sá
engan frá Borgaraflokknum, þeim
flokki sem heldur lífi í ríkisstjórn-
inni. Það kom fundarmönnum á
óvart. Ég varð heldur ekki var við
að formaður Samtaka spariíjáreig-
enda kveddi sér hljóðs til að tala
máli félagsmanna. Varaformaður
var hins vegar mættur.
Fundurinn var gagnlegur að þvi
leyti að hann sýndi ljóslega almenna
óánægju fundarmanna, svo að þeir
þrír fulltrúar stjórnarflokkanna sem
þarna voru mættir hljóta að hafa
dregiö sínar ályktanir. - Það var
áberandi, hversu forsætisráðherra
virðist hafa misst fótanna í málílutn-
ingi sínum. Viðbrögð fundarmanna
við útskýringum hans voru mest
skellihlátur, enda erfítt að átta sig á
tilraunum hans til að reyna að gera
sig fremstan meðal jafningja í lífeyr-
issjóðs- og eftirlaunamálum.
Annað kom mér á óvart, og það var
að enginn úr hópi fyrirliða Samtaka
sparifjáreigenda skyldi koma fram
með þá áskorun að sparifjáreigend-
um tækju fé sitt út úr bönkum, þar
til fallið væri að fullu frá öllum hug-
myndum um skattlagningu á vexti.
Ur þvi að ráðherrar geta komið
fram af slíkri óskammfeilni að viðra
hugmyndir um skattlagningu vaxta
af sparifé fólks, verður að beita þeirri
einu nauðvöm sem sparifjáreigend-
um er tiltæk, að taka allt fé út úr
bönkum með skipulegum hætti mið-
að við einhvem tiltekinn mánaðar-
dag - áður en þessar hugmyndir
koma til umræðu á Alþingi.
Formaður Samtaka sparifjáreig-
enda verður að gera sér ljóst að hann
hefur skyldum að gegna viö fjöl-
mennan hóp sparifjáreigenda, sem
nú hafa fengið auknefnið „fjár-
magnseigendur". - Verði engin sýni-
leg viðbrögð í kjölfar þessa fjölmenna
fundar Samtaka sparifjáreigenda,
verður að líta svo á að fundurinn á
Sögu sl. sunnudag haíl verið til litils,
og samtökin ennþá minna megnug.
Kannski verri en engin.
Jens Evensen (t.v.) ásamt Arne Treholt, einum helsta ráögjafa sínum i utan-
ríkismálum.
Jens Evensen í Lögbergi:
Sá er treysti Treholt...
Pétur Pétursson hringdi:
Ég var að lesa um að Jens Evens-
en, sem nú er orðinn dómari við Al-
þjóöadómstóhnn í Haag og fyrrv.
ráðherra í Noregi, myndi koma lung-
að í boði Lögfræðingafélags íslands
og lagadeildar Háskólans til að halda
fyrirlestur um vemdun umhverfis
mannsins á jörðinni.
Þessi sami Evensen var mikið í
fréttum hér og reyndar um heim all-
an fyrir örfáum ámm þegar mál
norska njósnarans Arne Treholt var
til umræöu. Sérstaklega vegna þess
að Evensen þessi var sérstakur skjól-
stæðingur Treholts, sem aftur var
einn helsti ráðgjafi Evensens í utan-
ríkismálum Noregs.
í fréttum á þeim tíma kom fram
að Treholt var iðulega í ferðum með
Jens Evensen, ekki síst í Sovétríkj-
unum, og mátti vart sjá hvor hafði
meiri stuðning af hinum, Treholt af
Evenesen eða Evensen af Treholt.
Treholt var hins vegar sekur fundinn
um njósnir en Evensen var gerður
að dómara við Alþjóðadómstólinn í
Haag. Um þann dómstól eigum við
íslendingar hins vegar ekki sem best-
ar endurminningar frá deilum okkar
við Breta við síðustu útfærslu land-
helginnnar.
Þótt Lögræðingafélagi íslands þyki
sem það hafi himin höndum tekiö
meö því að fá Evensen þennan til að
ræða hér undirbúning alþjóðlegrar
lagasetningar um umhverfi manns-
ins á jörðinni, þá eru nú ekki allir
sömu skoðunar um ágæti þessa fyrr-
verandi norska ráðherra.
Stjórnmálamaður sem er þekktast-
ur fyrir það að hafa haft einn mesta
njósnara síðari tíma fyrir ráðgjafa
um árabil - og trúað honum - virðist
í fljótu bragði ekki sá allra.traustasti
til þess aö vera í forsvari fyrir undir-
búningi alþjóðlegrar lagasetningar
um eitt eða annað. - En það er at-
hyglivert og raunsætt dæmi um það
hvernig pólitískum nefndakóngum
er komið fyrir í kerfinu að loknum
starfsdegi venjulegra borgara, að
Evensen skuli enn vera í sviðsljósinu
(á 73. aldursári) - og það uppi á ís-
landi hjá lagadeild Háskólans!
Hreinar jurtasnyrtivörur
6468-0528 skrifar:
Mig langar til að fá að koma á fram-
færi þeirri hugmynd að jurtasnyrti-
vörumar Weleda verði auglýstar
betur og þá einkum hvar þær fást
hér á landi. Ég hef aldrei séö þær
auglýstar. Ég veit af eigin reynslu
að þetta eru þvílíkar gæðavömr að
það er skaði að konur skuli almennt
ekki vita um þær - og raunar ekki
bara konur heldur líka karlmenn og
böm.
Ég hef reynt, að ég tel, allar mögu-
legar snyrtivömr sem fáanlegar eru
og loks var það læknir sem benti mér
á Weleda vömrnar. Mér finnst það
skylda mín að vekja á þessu athygli
þar sem í þessu merki má fá frábær-
ar gigtarolíur og sömuleiöis heppi-
legar vörur fyrir börn. Ég veit aö
vömmar em unnar á lífrænan hátt
og eru því hreinar jurtasnyrtivörur.
Þar aö auki eru þær ódýrar miðaö
við hágæðaflokk. Ég hef þurft að fara
langa leið til að ná í þetta en ekki
væri til of mikils mælst að vörumar
fengjust víðar en á einum stað.
Auögildi eða manngildi 1 spariQármálum:
Klifað á slagorðum
H.S.J. hringdi:
Það virðist vefjast fyrir fjármála-
ráðherra, Ólafi Ragnari Grímssyni,
að skilja að sparifé fólks er arður af
vinnu þess sem það hefur þegar
greitt alla skatta og skyldur af.
Á fundi Samtaka sparifjáreigenda
sl. sunnudag belgdi fjármálaráö-
herra sig út af því að það yrði að
leggja skatt á sparifjáreigendur, al-
veg eins og skatt á hverja aðra vinnu
- annað væri aö „meta auðgildi ofar
inanngildi"! Slagorð sem margir
vinstri menn slá um sig með en skilja
tæplega sjálfir.
Það er áreiðanlegt aö gamla fólkið,
sem sparað hefur nokkrar krónur til
ellinnar, hefur þurft að vinna fyrir
þeim hörðum höndum og hefur greitt
hverja krónu í skatt eins og ætlast
hefur verið til. Það er ekki stórt
manngildið þeirra sem nú leggja allt
kapp á aö klófesta þessa ellitrygg-
ingu. Ætli það verði ekki næsta
skrefið að elta uppi hvern þann sem
á málverk eða silfurskeið og kreista
út úr honum einhvem skatt?
Á fundinum áðurnefnda þrástag-
aðist Ólafur Ragnar Grímsson á því
að fólk misskildi hina merku skatta-
fyrirætlan hans. Þann misskilning
held ég að hann hafi átt bágt með að
leiðrétta enda er áreiðanlega best
fyrir okkur að láta vinstrimenn ekki
ráða of miklu í efnahagslífi okkar. -
Sporin hræða.
Hvernig er ekki ástandið fyrir aust-
an tjald; er manngildið mikils virt
þar? Og er Austur-Evrópa ekki öll á
fullri ferð snapandi peninga hjá auð-
magninu á Vesturlöndum svo að lýð-
urinn deyi ekki úr hungri? - Við
ættum í lengstu lög að forðast hung-
ursósíalisma Austur-Evrópu og
aðdáendur hans.
Athugasemd frá stjóm og starfsfólM VmdáshJlðar:
■■■ ■ ■ ■ ■■ ■
Fleiri leikir
■ ■wll ■ ■WlVm.ll
ekki á dagskrá
Frá stjórn sumarstarfs KFUK og fyrr en eftir að þær komu niður í
starfsfólkí: torðsal, og heyrðu bank ffá öðrum
A lesendasíðum DV fóstudaginn
1. sept. má lesa bréf móöur, þar sem
hún lýsir næturleik í Vindáshlið
sunnudagskvöldið 13. ágúst. Það er
samdóma álit okkar, stjórnar Sum-
arstarfs KFUK í Vindáshlíð og
starfsfólks sumarsins, að umrædd-
ur næturleikur hafi ekki tekist vel.
- Hann reyndist of grófur og telp-
umar urðu of hræddar.
Okkur þykir miður aö svona
skyldi fara. Það er alltaf auðvelt
aö vera vitur eftir á en fatt hægt
að gera. Starfsfólkiö lagði sig þó
sérstaklega fram um að gera það
sem eftir var dvalarinnar í Vindás-
hlíð skemmtilega fyrir telpumar
og leyfa þeim aö reyna margt eftír-
minnilegt
í bréfi sínu nefhir móðirin aö það
hefði mátt hætta við leikinn þegar
viöbrögð telpnanna komu í ljós.
Þaö var gert því að það fór ekki aö
bera á hræðslu meðal telpnanna
„lögregluþjóninum“ sem var að
loka gluggunum þar. Þá greip
hræðsla um sig og þær fóm margar
að gráta. - Um leiö og það kom í
Ijós var leikurinn stöövaöur og
þeim sagt hvemig í öllu lá.
Okkur þykir mjög leitt aö svo
skyldi til takast. Jafnframt leiðist
okkur ef veriö er að flytja ýktar
frásögxu af því sem geröist í Vind-
áshlíö umrædda nótt. Mörgum
telpunum fannst þetta spennandi
ævintýri eftir að þeim varð Ijóst aö
þetta var bara leikur og höfðu ró-
ast við aö drekka kakó. - Margar
fóm þá inn á herbergi til að ná í
myndavélar svo aö þær gætu fest
„löggurnar og bófana" á filmu!
Auðvitaö gekk ýmsum illa aö
sofna eftir allan spenninginn enda
fengu þær að sofa lengur en vei\ju-
lega daginn eftir. - Við viljum taka
fram að slíkir leikir verða ekki
framar á dagskrá í Vindáshlíö.