Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 18. ÓKTÓBER 1989. Andlát Ámi Ferdinand Jónasson lést á sjúkradeild Hrafnistu, Hafnarfirði, 16. október. Gunnar Stígur Guðmundsson bóndi, Steig, Mýrdal, lést í St. Jósefsspítala Hafnarfirði 14. október. Jarðarfarir EUen Sigurðardóttir, Skúlagötu 58, lést 4. október. Jarðarförin hefur far- ið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Haraldur Hannesson hagfræðingur, Hávallagötu 18, verður jarðsunginn frá Kristskirkju Landakoti fimmtu- daginn 19. október kl. 13.30. > Útför Ólafar Elínborgar Jakobsdótt- ur. sem lést 10. október sl„ fer fram frá víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 19. október kl. 13.30. Jóhann Karl Birgisson, Starmýri 15, er lést 13. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 19. október kl. 14. Útför Guðbjargar Viihjálmsdóttur, Háholti 17, Akranesi, fer fram frá Akraneskirkju, fóstudaginn 20. okt- óber kl. 14. Útfor Guðmundar Ingva Helgasonar, fyrrverandi skrifstofumanns hjá Tollstjóraembættinu, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. október kl. 13.30. Margrét Friðriksdóttir frá Kópa- skeri, Hamraborg 14, Kópavogi, verð- ur jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. október kl. 15. Tilkyniiingar Dregið í verðlaunagetraun Þjóðleikhússins í tengslum við kynningu Þjóðleikhússins á leikárinu, sem nú er hafið, var efnt til verðlaunagetraunar. Nýlega drógu kapp- amir ívar Sverrisson og Gissur Páll Giss- urarson, sem leika Hrapp og Oliver í söngleiknum OUver, úr þúsundum inn- sendra seðla og var myndin tekin við það tækifasri. Þeir heppnu reyndust vera: Steinn Sigurðarson, VogaseU 7, Reykja- vik, Magnús S. Kristjánsson, Efstasundi 27, Reykjavik, Hlíf Jónsdóttir, Unnar- braut 28, Seltjamamesi, HaUdóra Geirs- dóttir, Hátúni lOa, Reykjavík, og Friðrik Guðjónsson, BarmahUð 37, Reykjavik. Verðlaunin em tveir miðar á einhverja sýningu leikhússins í vetur og geta vinn- ingshafar gefið sig fram við miðasölu þegar þeir vUja fara í leikhúsið. Ný plata með Rúnari Þór Péturssyni í kringum 25. október kemur út fiórða sólóplata tórúistarmannsins Rúnars Þórs Péturssonar, Tryggð. Áður hefur Rúnar Þór gefið út plötumar Auga í vegg (1985), GísU (1987) og Eyðimerkurhálsar (1988). Á Tryggð em átta lög. Tvö þeirra em aðeins spiluð. Það fyrra, Haust, er Utið píanóverk en það seinna, Manstu, er hugljúft gitarverk. Önnur lög era sungin og þeirra á meðal er lagið Brotnar mynd- ir sem lenti í öðm sæti Landslagskeppn- innar nú í vor. Textar á plötunni era flestir eftir bróður Rúnars Þórs, Heimi Má, en Reykjavíkm'skáldið Tómas Guð- mundsson á eitt ljóð á plötunni, Tryggð, sem platan er nefnd eftir. isfirska skáldið Jónas Friðgeir á einn texta á Tryggð. Hljómplötuútgáfan Steinar dreifir plöt- unni sem tekin var upp í Stúdíó Stöðin seinnipartinn í sumar og hljóðblönduð af Gunnari Smára. Spessi á ljósmyndir á umslagi. Minningarkort Blindravinafélagsins fást á skrifstofu félagsins að HamrahUð 17, sími 687333. Trúnaðarbréf afhent Hinn 12. október 1989 afhenti Hjálmar W. Hannesson sendiherra dr. Kurt Wald- heim, forseta Austurríkis, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Austurríki, með aðsetri í Bonn. Fundir ITC-deildin Gerður heldur almennan kynningarfúnd í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30 í Kirkju- hvoU, Garðabæ, og gefst fólki þar tæki- færi til að kynnast þjálfun þeirri sem fer fram innan ITC-samtakanna. Stef fúndar er: Fleira er byr en vindur í seglum. Nánari upplýsingar veita Elinborg í s. 65Ö790 og Dagmar í s. 45934. ITC-deildin Björkin heldur opinn fund í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20 að Síðumúla 17. Fundarstef er: Fleira veit sá er fleira reynir. Á dag- skrá em m.a. ræður og upplestur. Nán- ari upplýsingar gefa Ema í s. 617688 og Bergþóra í s. 83713. Foreldrafélag Breiðholtsskóla Aðalfundur verður haldinn í dag, 18. okt- óber, kl. 20.30 í söngstofu skólans. Kynn- ing á starfi foreldrafélaga í öðrum skólum og umræöur um félagsstarfiö. Safnaðarfélag Áskirkju Fyrsti fundur félagsins í nýja safnaðar- heimiUnu verður fimmtudaginn 19. okt- óber kl. 20.30. Myndasýning frá ferðalag- inu í sumar. Kaffiveitingar. AUir vel- komnir. Bridge Bridgesamband íslands: íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi fer fram helgina 21.-22. okt. Spilaður veröur barómeter, með sömu spilum fyrir báðar keppnir. Keppnisgjald er 4.000 kr. á parið. SpUastaður er Sigtún 9 og hefst keppnip kl. 13.00 laugardaginn 21. okt. Spilafjöldi milli para fer eftir þátttöku. Rétt til spilamennsku í yngri flokki hafa allir þeir sem fædd- ir eru 1. janúar 1965 og síðar. Bridge- sambandið óskar eftir því að pör skrái sig sem fyrst þar sem það auð- veldar alla skipulagningu mótsins. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgens- en og reiknimeistari Kristján Hauks- son. Bridgefélag Reyðar- og Eski- fjarðar Fyrsta kvöldið af sjö í aöaltvímenn- ingskeppni félagsins er lokið og staða efstu para er þessi (meðalskor 165). 1. Sigurður Freysson- Einar Sigurðsson 211 2. Ásgeir Metúsalemsson- Friðjón Vigfússon 188 3. Kristján Krisljánsson- Jóhann Þorsteinsson 177 4. Magnús Bjamason- Kristmann Jónsson 176 5. Aðalsteinn Jónsson- Sölvi Sigurðsson 171 Bridgefélag Breiðfirðinga: Hausttvímenningi félagsins lauk síðastíiðinn fimmtudag með sigri Sverris Kristinssonar og Gísla Stein- grímssonar. Spilaður var Mitchell og slönguraðaö hvert kvöld eftir ár- angri. Lokastaða efstu para varð þannig: 1. Gísli Steingrimsson- Sverrir Kristinsson 1214 2. Jörgen Halldórsson- Elís R. Helgason 1194 3. Ingvi Guðjónsson- Júlíus Thorarensen 1176 4. Sigmar Jónsson- Sveinn Þorvaldsson 1161 5. Jóhann Jóhannsson- Kristján Sigurgeirsson 1150 6. Gróa Guönadóttir- Guðrún Jóhannesdóttir 1149 7. Sigrún Jónsdóttir- Ingólfur Lilliendahl 1144 8.-9. Ljósbrá Baldursdóttir- Anton Gunnarsson 1137 8.-9. Ari Konráðsson- Kjartan Ingvarsson 1137 Hæsta skor síðasta spilakvöldið feng- u: 1. Jörgen Halldórsson- Elís R. Helgason 444 2. Gróa Guönadóttir- Guðrún Jóhannesdóttir 424 3. Albert Þorsteinsson- Sigurður Emilsson 423 4. Gísh Steingrímsson- Sverrir Kristinsson 422 5. Helgi Nielsen- Hreinn Hreinsson 412 Skráning er í fullum gangi fyrir aðalsveitakeppni félagsins og er gert ráð fyrir tveimur 16 spila leikjum á kvöldi. Skráning er í síma Bridge- sambandsins, 689360. Félagsmenn sem aðrir eru hvattir til að vera með. Bridgesamband íslands Skráning í íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi stendur nú yfir en mótið fer fram helgina 21.-22. okt. Spilaður er barómeter, með sömu spilum fyrir báðar keppn- ir. Keppnisstjóri er Agnar Jörgensen og reiknimeistari Kristján Hauks- son. Rétt til þátttöku í móti yngri spilara hafa afiir þeir sem fæddir eru 1. janúar 1965 og síðar. Vegna fyrir- komulags mótsins þar sem raða þarí spilum fyrirfram eru þeir sem hug hafa á að taka þátt í mótinu beðnir aö skrá sig hið fyrsta í síma Bridge- sambandsins, 689360. Áætlað er að spilamennska hefjist kl. 13.00 laugar- daginn 21. okt. Aldraðir, fatlaðir og mæður með böm: Fólk með réttindi í umferðinni Við kennum bömum að ganga yfir götu aðeins ef grænt ljós er á umferðarljósum. Gott og vel. En hvað segir reglugerð nr. 341/frá 5. júlí 1989: B, 30. gr. B: Ljósmerki fyrir gangandi vegfarendur: „Rautt ljós merkir að ekki má ganga út á akbraut, grænt ljós merkir að gangandi megi ganga yfir akbraut. Ef vegfarandi er kominn út á ak- braut, þegar ljósaskipti verða, skal hann halda áfram yfir á næstu gangstétt eða umferðareyju." Nú er aðalspumingin hvort grænt ljós er nægilega lengi í gangi. Svarið er oft NEI. Til dæmis verða gangandi vegfarendur að ganga á rauðu ljósi yfir Lækjargötu við Lækjartorg, þ.e. vegfarandi, sem kemur niður Bankastræti, nær ekki að komast yfir Lækjargötu. Hvemig er það reiknað út? Mig langar að benda á að ég hef komið til 43 landa og er þar oftast fótgang- andi, en gat alltaf komist yfir götur á grænu ljósi. Hvað er rangt hér? Engin rannsókn Ljósastillingar eru eftir erlendum fyrirmælum. í handbók útgefinni af Forschungsgesellschaft fur Strassenwesen í Köln í Vestur- Þýskalandi er reiknað með að fólk geti lengst notað eina sekúndu til að ganga 1,2 m. Engin rannsókn hefir verið gerð hér enda götur oft illa byggðar og því ekki hægt að nota þýskan staðal. En ekki em alls staðar umferðarljós. Til að gera gangandi fólki kleift að fara yfir götur (sem vora að miklu leyti byggðar með sköttum fólks - út- svari til borgarinnar) eru eða vora gangbrautir. í lögum 50/1987 er skrifað í 2. grein: Gangbraut. Sérs- taklega merktur hluti vegar sem ætlaður er gangandi vegfarendum til að komast yfir akbraut. Gangbrautir voru (á nokkram stöðum enn) merktar með „zebra“- strípum. Því miður er algerlega óvisst, þrátt fyrir loforð borgar- starfsmanna, hver meiningin er. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir greinilega er t.d. gangbraut við Gnoðarvog og Skeiðarvog eyðilögð. Þar eru þrír skólar og margir nem- endur verða að ganga yfir götu til að komast til strætisvagna. Fólk, jafnvel mæður með barnavagna, verður að komast í verslanir og ganga yfir Skeiðarvog, að ekki sé talað um fólk i hjólastólum. Gang- brautin var tekin úr notkun fyrir KjaUarinn Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur fáum vikum. Yfir gangbrautinni er blikkandi gult ljós, algerlega ósýni- legt á kvöldin enda öll götuljós á Skeiðarvogi gul. Gangbraut við Þjóðleikhúsið er einnig horfin. Ég hef ekki tíma til að ganga um bæinn til að athuga allt sem eyðilagst hef- ur á síðustu vikum. ísland á metið Mig langar aðeins hér að benda á að Island á met í umferðarslösuð- um: Eftirfarandi upplýsingar era teknar úr bók „Helsestatistikk i de nordiske lande 1987“. Tölumar era fyrir árið 1986 og eru hlutföll á 100.000 íbúa til samanburðar. Lokaorð Upp á síðkastið hefur verið tals- vert skrifað í dagblöðum um slys á gangbrautum. Nauðsynlegt er að taka í notkun nýja reglugerð, nr. 341/1989 frá 5. júlí, „Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra“. Merkin, sem eru nauðsynleg, era þessi: „A 12, gangbraut framund- an“. Merki þetta má nota til þess að vara við því að gangbraut sé framundan, enda sé vegsýn tak- mörkuð eða umferð að jafnaði hröð. Merkið má á sama hátt nota þar sem göngusvæði er framundan, einkum utan þéttbýhs. í Noregi er merkið sett upp u.þ.b. 150 metrum áður en komið er að gangbrautinni og stendur því á merkinu „150 m“. Sama gildir um merkið „A 11 - Börn“. Merki þetta ber að nota þar sem nauðsynlegt þykir að ökumenn sýni sérstaka aðgæslu, í grennd við skóla, lei- kvelli eða aðra slíka staði þar sem vænta má ferða bama. Merkið ber einnig að nota þar sem ekið er inn á leikgötu. Æskilegt er að merkin séu upp- lýst innan frá. Merkin era svo end- urtekin við gangbrautina. Auka- lega merkt „A 23“, til að benda á umferðarljósin. Eiríka A. Friðriksdóttir Slasaðir og dánir eftir aldursflokkum: Alls 0-5 6-9 1 0-14 15-17 18-20 21-24 25-64 65og yfir Danmörk 62 143 193 598 803 565 232 209 276 Rnnland 51 122 166 628 631 387 206 187 232 Island 326 120 264 188 1017 994 533 251 203 Noregur 76 147 183 808 1031 552 216 170 Svíþjóð 53 109 176 589 888 558 237 172 268 „Mig langar að benda á að ég hef kom- ið til 43 landa og er þar oftast fótgang- andi, en ég gat alltaf komist yfir götur á grænu ljósi.“ Fjölmiðlar Alles Gute í gær lagði ég að fólki aö trúa ekki 1 blindni á fréttir og að tak- markalaus aödáun á einhverj u þjóð- félagskerfi stæðist ekki. Þetta á jafnt viö um íslandsem önnur lönd. Besta ráðið til að bræða íslending er ein- faldlega aö setja útlending fyrir framan hann semsegiraðhérsé fallegt fólk og fallegt land og mesta lýðræði í heimi. Þá er landinn orð- inn eins og sól í framan og brey tir engu þó að hellirigni og blási og allt sé orðið gjaldþrota, hann vaknar jafiivel alsæll daginn eftir. Hvunndagurinn er nú ekki svona fallegur. Meðanþjóöir í kringum okkur horfa fram á góða tíma lofar ríkisstjómin okkur engu nema áframhaldandi samdrætti. í viðlika aðstöðu lofa stjómmálamenn oft nýju útspili, og framkvæma það jafiivel eins og Roosevelt gerði með New Deal 1933. Héma lofa þeir nýj- umsköttum. Skinhelgi, mannhelgi oglandhelgi voru kjörorð Framboösflokksins 1971 og það eru oröin kjörorð þing- flokkanna einsog þeir leggja sig. Landhelgin er til aö rífast um kvóta, mannhelgin til aö fría sig frá ábyrgð ef þeir hafa eytt of miklu og skin- helgin liggur s vo yfir öllu saman. Það berast fréttir frá Póllandi um efhahagsumbætur sem eiga að fela margt í sér, þ. á m. að fýrirtækjum skuh verða leyft að gerast gjald- þrota. Svona þróaða hugsun hefur framkvæmdavaldið ekki á íslandi, hvort þaöstríðir gegn einhvetjum prinsippum eða aö þeir vita ekki af möguleikanum veit ég ekki. En svona stendur það nú að Pólland er að einhverju leyti orðiö fijálslynd- araenísland. Ámi Gunnarsson kvartar undan því að fólk eigi til að hnýta saman framkvæmdavald oglöggjafarvald. Það er ekkert skrýtiö, hér hafa ríkis- stjómir komist upp með aö hafa meirihluta Alþingis sem þægan hund í taumi. Dæmi um það er þeg- ar Alþingi samþykkir fjárlagafrum- varp sem engum dettur í hug að standist. Reyndar. hafa aðgerðir þriðja hlutans, dómsvaldsins, einnig mótast af framkvæmdavaldinu. Þaö virðist hafa hönd í bagga með hverj- um smáhlut sem héma gerist. Þessir menn, sem hafa yfirráð yfir um þriðjungi af tekjum okkar, hafa síöan litið allt öðrum augum á um- boö sitt en aðrir. Þeim hefur tekist að valsa aö vild um ríkiskassann og veita peninga í gælu verkefni og er nema von að fólk efist um hæfhi þeirra til að halda um budduna. Oft spyr maöur sig hvort eitthvert samstarf sé innan Ríkisútvarpsins- sjónvarps, þó að stofnanimar kynni reglulegadagskrá hvor fyrir aðra. Eitt sem ég hnaut um síðastliðinn vetur var þýskukennsla á fóstu- dagskvöldum á Rás tvö. Á sama tíma var hin ágætasta þýsku- kennsla sera við höfum fengið á skjánum og hafði verið í mörg ár. Þættimir umDerrick voru upphaf- lega hannaðir sem talkennsluþættir fyrir Þjóðveija og sem kennsla vora þeir miklu vinsælli en til þess sniðn- ir þættir, Alles Gute, sem nú eru sýndir. Nú virðist það sama vera uppi á teningnum, enskukennsla er áþriðjudagskvöldum, sem lengi hafa verið undirlögð hinum ágæt- ustu spennuþáttum frá Bretlandi. Gísli Friðrik Gíslason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.