Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Síða 1
Arnar Jónsson leikur aðalhlutverkið, framkvæmdarstjórann Borgar Jónsson. Með honum á myndinni eru Jóhann Sigurðarsson, Björn Karls- son, Ólafur Guðmundsson, Lilja Þórisdóttir og Sigurður Sigurjónsson. Gísli Rúnar Jónsson leikur miskunnarlausan einkaspæjara. Hann er hér ásamt Arnari Jónssyni og Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur. Þjóðleikhúsið: Lítið fjölskyldufyrirtæki, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld, er eftir breska leikritaskáldið Alan Ayckbourn sem er einn allra vin- sælasti leikritahöfundur Breta í dag. Ayckbourn samdi Lítið fjölskyl- dufyrirtæki (A Small Family Buis- ness) fyrir breska þjóðleikhúsið 1987 en þá var honum boðið að mynda eigin leikhóp og stjórna þremur verkum, einu í hverju leik- húsa breska þjóðleikhússins. Skil- yrðið var að eitt verkanna væri eftir hann sjálfan. Niöurstaðan varð að hann skrifaði Lítið fjölskyl- dufyrirtæki og þessi grái gaman- leikur um ýmsar hliðar viöur- kennds siðgæðis sló í gegn. Aðalpersónan í leikritinu er Borgar Jónsson, duglegur og fra- magjam framkvæmdastjóri á fimmtugsaldri. Hann hefur sagt upp starfi sínu til að geta tekið við fyrirtæki sem tengdafaðir hans stofnaði fyrir fimmtíu ámm. Það er ærið verkefni sem bíður hans því fyrirtækið hefur ekki gengið vel. Borgar er heiðarlegur og vill að samstarfsmenn hans, sem alhr em á einhvem hátt tengdir honum, séu það líka. En ekki er allt sem sýnist. Spillingin leynist í hverju horni og þegar miskunnar- laus einkaspæjari er kominn í spil- ið ásamt fimm ítölskum bræðrum fer ýmislegt að koma í ljós, meðal annars það hvernig fyrirtæki getur verið á hausnum þegar eigendum- ir moka inn peningum á því... Til að færa þetta nútímalega verk nær íslenskum áhorfendum hefur það verið staðfært og fer atburðarásin þar af leiðandi fram í umhverfi sem við þekkjum öll. Fjórtán leikarar koma fram í sýn- ingunni og fara tólf þeirra með hlutverk fjölskyldunnar og tengda- fólksins. Arnar Jónsson leikur að- alhlutverkið, Borgar, og Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir leikur eigin- konu hans. Aðrir leikarar era Jóhann Sig- urðarson, Lilja Þórisdóttir, Bjöm Karlsson, Anna Kristín Amgríms- dóttir, Róbert Arnfinnsson, Margr- ét Guðmundsdóttir, Sigríður Þor- valdsdóttir, Sólveig Amardóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Gísh Rúnar Jóns- son og Sigurður Siguijónsson. Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson. Kristniboðsdagurinn 1989 Vaxandi starf Kristniboðsdagur íslensku þjóð- kirkjunnar er að þessu sinni á sunnudaginn, 12. i nóvember. Biskup íslands hefur kvatt presta til að minnast kristniboðsins í guðsþjón- ustum þennan dag. Samband íslenskra kristniboðs- félaga hefur unnið að kristniboði í Kenýa síðasthðin ellefu ár og í Eþíóp- íu í hálfan íjórða áratug í nánu sam- starfi við norska kristniboða. Það eru Pókotmenn í Vestur-Kenýa sem hafa notið hjálpar íslenskra og norskra kristniboða. Hafa íslending- ar látiö til sín taka á tveimur stöðum í landi Pókotmanna, Cheparería og Kongelai. Séra Kjartan Jónsson og Valdís Magnúsdóttir hafa dvalist undanfarin ár í Cheparería en þau eru nú heima í leyfi. Hjónin Hrönn Sigurðardóttir og Ragnar Gunnarsson og fjölskylda þeirra hafa aðsetur í Kongelai. Þar - Ný verkefni er afar hijóstugt, heitt í veðri og kjör fólksins bágborin. í Eþíópíu era hjónin Valgerður Gísladóttir og Guð- laugur Gunnarsson og dætur þeirra. Hefur orðið að ráði að þau flyttust frá Konsó um 100 km leið vestur til Voitodals. Ætla þau að koma þar upp kristniboðsstöð. Gert er ráð fyrir að ellefu milljónir króna þurfi til starfa kristniboðsins á þessu ári auk kostnaðar við að reisa nýja stöð í Vottó. Enn vantar tölu- vert svo að endar nái saman. Á kristniboðsdaginn verður fólki gef- inn kostur á að leggja sitt af mörkum, bæði í guðsþjónustum og á kristni- boðssamkomum. Þess má geta að kristniboðið getur hagnýtt sér notuð frímerki, innlend og útlend. Skrif- stofa SÍK er á Amtmannsstíg 2b í Reykjavík. Senda má gjafir á gíró- reikning nr. 651001. Myndlistarsyning 6-12 ára skólabama I tilefni af aldaríjórðungsafmæli Iðnaðarbankans í Hafnarfirði efndi bankinn til verðlaunasamkeppni um myndir meðal 6-12 ára skólabarna i Hafnarfirði. Geysilegur fjöldi mynda barst eða um það bil tvö þúsund. Úr þeim voru fyrst vahn 600 myndverk og fékk dómnefnd það hlutverk að velja 130 myndverk sem verða sýnd í Hafnarborg 11.-16. nóvember. Dómnefndin, sem skipuð er Hring Jóhannessyni, Eiríki Smith, Braga Hannessyni og Jóhanni Egilssyni, hafði með höndum vandasamt verk að velja í lokin úr þessum 130 mynd- um verk sem verða verðlaunuð á laugardaginn þegar sýningin verður opnuð kl. 14. Jóhann Egilsson, útibússtjóri Iðn- aðarbankans í Hafnarfirði, sagði að Iðnaðarbankinn myndi einnig kaupa nokkur verk sem sett yrðu upp í bankanum. Þá sagði Jóhann að þetta væri ekki fyrsta barna-myndhstar- sýningin sem Iðnaðarbankinn stæði fyrir. Áður hefðu verið haldnar fimm eða sex sýningar víðs vegar um land og væri tilgangurinn meðal annars að vekja áhuga barna og unglinga á myndhst auk þess sem þetta væri tilraun fil að koma upp myndhstar- safni fyrir þennan aldurshóp. Dómnefndin, talið frá vinstri: Hringur Jóhannesson, Eiríkur Smith, Jóhann Egilsson og Bragi Hannesson virða fyrir sér nokkur myndverk barna úr grunnskólum Hafnarfjarðar. Háskólabíó: Katja Ricciarelli með Sinfóníunni Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands á morgun, laugardaginn 11. nóvember, mun sópranrödd hinnar heimsfrægu Kötju Ricciarehi hljóma í sal Háskólabíós. Ricciarelli hefur sungið sig inn í hjörtu heimsbyggð- arinnar undanfarin tuttugu ár í öh- um helstu óperuhúsum. Á efnis- skránni verða meðal annars aríur eftir Rossini, Behini, Chea og Catal- ani. Auk þess verður flutt sinfónía nr. 23 eftir Mozart, Exultate jubhate, einnig eftir Mozart, forleikurinn úr Lmsa Mhler eftir Verdi og Stunda- dansinn eftir Ponicehi. Allir tónlistarunnendur fagna komu Kötju Ricciarelli. ítalska óperustjarnan Katja Ricc- iarehi fæddist í Rovigo á Norður- ítahu. Hún hóf þar tónhstamám en framhaldsnámi lauk hún í tónhstar- háskólanum í Feneyjum. Ricciarelh hefur í tuttugu ár komið fram í aðal- sópranhlutverkum allra helstu söng- bókmenntanna í fjölmörgum lönd- um. Hún hefur sungið í öllum fræg- ustu óperuhúsum heims. Ricciarelh hefur auk þess sungiö og leikið í kvikmyndum, meðal annars á móti Placido Domingo í kvikmyndinni Óþehó. Ricciarelli hefur sungið inn á fjöl- margar hljómplötur undir stjórn Herberts von Karajan. Auk þess að starfa með þessum mönnum hefur hún unnið með Pavarotti og hljóm- sveitarstjóranum Claudio Abbado. Katja Ricciarelh var væntanleg á Listahátíð 1986 en gat ekki komið þá vegna skyndhegra veikinda. Hljóm- sveitarstjóri á tónleikunum verður Péfri Sakari, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands. Hann hefur undanfarnar vikur verið á tón- leikaferöalagi um Svíþjóð með Sænsku kammersveitinni. Hljóm- leikamir hefjast kl. 17 og er miðasala í Gimh við Lækjargötu. FÍM-salurinn: Bautasteinar Ingibjörg Eyþórsdóttir opnar fyrstu einkasýningu sína í FÍM-saln- um í dag, fóstudaginn 10. nóvember kl. 20. Ingibjörg stundaði nám við Mynd- hstaskóla Reykjavíkur 1982-1983 og Myndhsta- og Handíðaskóla íslands 1983-1987. Myndimar, sem hún sýn- ir, era allar málaðar á síðasthðnu einu og hálfu ári. Sýningin ber yfir- skriffina Bautasteinar. Sýningarsalurinn er opinn frá kl. 13-18 virka daga og frá kl. 14-18 um helgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.