Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Blaðsíða 6
22 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989. Laugarásbíó: Hneyksli Hneyksli (Scandal) hefur vakið mikla athygli alls staðar þar sem hún hefur verið sýnd. Það er ekk- ert undarlegt að fólk sé forvitið um myndina, hún er byggð á einu mesta hneykslimáli sem upp hefur komið í Bretlandi, Profumo-mál- inu, sem varð til þess að þáverandi ríkisstjóm varð að hrökklast frá. Aðalhlutverkin í Hneyksli leika Joanne WhaUey-Kilmer sem leikur Keeler, John Hurt leikur Stephen Ward, Ian McKelian leikur Prof- umo, Bridget Fonda leikur Mandy Rice-Davis og Jerome Krabbe leik- ur Ivanov. Leikstjóri er Michael Caton-Jones. -HK Joanne Walley-Kilmer leikur gleðikonuna Christine Keeler. Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin - Bíóhöllin: Það þarf tvo til Það þarf tvo til (It Takes Two) er létt gamanmynd sem er ætluð ungu kynslóðinni. Aðalpersónan er Step- hi Lawrence sem er ákveðin í að giftast Travis Rogers og hefur sú ákvöröun hennar staðið óhögguö megnið af lífi hennar. Meðal ann- ars er hún löngu búin að kaupa brúðarkjólinn. Og ætlun hennar virðist ætla að takast. Brúðkaup þeirra er í aðeins sjötíu og tveggja tíma fjarlægð og aUt virðist klapp- að og klárt... nema Travis. Nú er það svo að Travis er jafn- ástfanginn af heitmey sinni og hún af honum en rétt fyrir giftinguna. Finnst honum sem aUir aðrir en hann sjálfur hafi ákveðið framtíð hans. AðaUeikaramir, George New- bem og LesUe Hope, em ungir og óþekktir enn sem komið er þótt þeir hafi nokkra reynslu að baki. -HK Aðalhlutverkin i Það þarf tvo til leika George Newbern og Leslie Hope. Bíóborgin: Hyldýpið í dag fmmsýnir Bíóborgin Hyl- dýpið (Abyss) sem þykir eitt mesta tækniundur sem gert hefur verið í kvikmyndaheiminum. Myndin gerist nær öU neðansjávar og segir frá hópi almennra borgara sem vinna neðansjávar. Hópurinn er fenginn tU Uðs við sjóherinn þegar það upplýsist að kjamorkukaf- bátur hefur strandað neðansjávar. Ferðin niður á hafsbotninn, sem í fyrstu virtist ósköp venjulegur könnunarleiðangur, verður aö miklu ævintýri þar sem reynir til þrautar á mamilegt þor og þrek gegn hinu óþekkta... Hyldýpið er afrek leikstjórans og handritshöfundarins James Ca- meron. Hann vissi áður en hann hóf að gera þessa mynd að hann yrði að fara aörar leiðir en tíðkast hefur í gerð neðansjávarmynda, þar sem aUt er meira og minna plat. Hann leigði því tvo stóra tanka, sem áttu að vera hluti af kjam- orkuveri, sem aldrei var reist, og fyUti þá af vatni og þar niðri var öUu komið haganlega fyrir. Fóra kvikmyndatökur áð langmestu leyti fram niðri í tönkunum, hvort heldur vora innandyra myndatök- ur eða utan. Þykir hann hafa unn- ið, ásamt tæknihði sínu, ótrúlegt afrek við gerð Hyldýpisins. Lentu leikarar, sem og aðrir, oft í miklum þrengingum meðan á tök- um myndarinnar stóð. Hefur tU að mynda aðaUeikarinn, Ed Harris, verið frekar fámáU um gerð mynd- arinnar en vitað er að hann lenti í mikiUi lífshættu og var nær drukknaður við töku á einu atrið- inu. Leikarar og tæknimenn þurftu þó nokkum aölögimartíma áður en Neðansjávarsenur þykja mjög raunverulegar i Hyldýpinu. orðið ljóst að gróði af henni getur aldrei orðið mikiU. En þótt kostnaðurinn væri mikiU fá unnendur ævintýramynda Uka eitthvað fyrir snúð sinn. Hvert at- riðið af öðra rekur á fjörur þeirra sem sýnir hvers tækni kvikmynd- anna er orðin megnug. Og myndin sýnir að James Cameron, sem á að baki leikstjóm á The Terminator og AUens, fer hvað úr hverju að standa jafnfætis Steven Spielberg í gerð ævintýramynda. -HK Aðalhlutverkin í Hyldýpinu leika Mary Elizabeth Mastrantonio og Ed Harris sem sjást á þessari mynd. tökur hófust. Þeir þurftu að venjast þrýstingi og öðrum kvUlum sem fylgja því að vera neðansjávar. Þeg- ar svo tökur hófust fór allt Uðið niður í tankana snemma morguns og kom ekki upp aftur fyrr en kvölda tók. Abyss er óhemjudýr kvikmynd. Er talað um að kostnaður við gerð hennar hafi verið eitthvaö nálægt fimmtíu miUjón doUuram og þarf marga áhorfendur til að myndin borgi sig. Hún fékk góða aðsókn í sumar í Bandaríkjunum en þó er Sýningar Art-Hún, Stangarhyl 7, Reykjavík Að Stangarhyl 7 er sýningarsalur og vinnustofur. Þar eru til sýnis og sölu oUu- málverk, pastelmyndir, graflk og ýmsir leirmunir eftir myndlistarmennina Erlu B. Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elín- borgu Guðmundsdóttur, Margréti Salome Gunnarsdóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur. Opið alla virka daga kl. 13-18. Árbæjarsafn, sími 84412 Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 84412. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 í safhi Ásgríms stendur yfir sýning á myndum Ásgríms frá ÞingvöUum. Á sýn- ingunni eru 25 verk, aðaUega vatnsUta- myndir, en einnig nokkur oUumálverk. Sýningin stendur fram í febrúar og er opin um helgar og á þriöjudögum og fúnmtudögum kl. 13.30-16. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir grafík- o% þurrkrítarmyndir. Á sýningunni eru ' 3 verk, 15 þurrkrítarmyndir og 21 dúk- í ista. Verkin eru öU unnin á þessu ári. Sýningin stendur tíl 12. nóvember og er opin kl. 14-20 alla sýningardagana. FIM-salurinn, Garðastræti 6 Ingibjörg Eyþórsdóttir opnar í kvöld kl. 20 sýningu á málverkum. Sýningin verð- ur opin kl. 13-18 virka daga og kl. 14-18 um helgar og stendur til 28. nóvember. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 Þórður HaU sýnir teikningar. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Henni lýkur þriðjudaginn 14. nóvember. í Grafík-gaUerí Borg, Austurstræti 10, er mikið úrval af grafík og keramiki, einnig oUuverk eftir'yngri kynslóðina í stækk- uðu sýningarrými. Grafík-gaUeríið er opið virka daga kl. 10-18. Gallerí „einn-einn“, Skólavörðustíg 4a Sigríður Ásgeirsdóttir sýnir teikningar, unnar í Edinborg árið 1985, og nokkrar grafíkmyndir. Sýningin stendur tU. 16. nóvember og er opin alla daga kl. 14-18. Gallerí List, Skipholti 50B Jónina Magnúsdóttir, Ninný, sýnir í GaU- erí List. Myndimar á sýningunni eru unnar á flísar með postulinsUtum, oUu á striga og krít á pappír. Sýningin er opin virka daga kl. 10.30-18, laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Henni lýkur í dag. Gallerí Madeira, Klapparstíg 25 Björgvin Pálsson sýnir ljósmyndir. Sýn- ingin er opin alla daga kl. 8.30-18. Henni lýkur föstudaginn 24. nóvember. AUar myndimar em tU sölu. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9 Þar stendur yfir sjming á verkum Áma Páls. Sýningin stendur tU 24. nóvember og er opin á verslunartíma frá kl. 9-18. J. Hinriksson, Maritime Museum, Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku- daga, fimmtudaga, föstudaga og laugar- daga. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Á Kjarvalsstöðum standa yfir þrjár sýn- ingar. Sveinn Bjömsson sýnir verk sín. Þá stendur yfir sýning á verkum eför Arvid Pettersen í boði Listasafns Reylga- vikur og stendur hún tU 3. desember. í vesturforsal sýnir Kristin ísleifsdóttir u.þ.b. 80 skáiar, vasa og Uát sem unnin hafa verið í leir á sl. tveimur árum. Sýn- ing hennar stendur tU 12. nóvember. Sýn- ingamar em opnar kl. 11-18. Listgallerí, Einarsnesi 34 Tryggvi Amason sýnir grafíkmyndir. Á sýningunni verða 25 nýjar grafíkmyndir. Sýningin er opin kl. 14-20 daglega tíl 12. nóvember og er öUum heimUl aðgangur. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla dag.’ kl. 13.30-16 nema mánu- daga. Höggmy.i^igarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. Katel, Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) TU sölu em verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, grafík og leir- munir. Sýning í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opin daglega kl. 13.30-17. Þar em tU sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðaUega eftir yngri Ustamenn þjóðarinnar. Að- gangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7 Mynd nóvembermánaðar er Kompósi- sjón eftir Þorvald Skúlason listmálara. Ústasafnið er opið aUa daga nema mánu- daga kl. 11-17. Veitingastofan er opin á sama tíma. Leiðsögn í fylgd sérfræðings á fimmtu- dögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman í anddyri safrjsins og er leiðsögnin öUum opin og ókeypis. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig- uijón gerði á árunum 1960-62. Þetta em aðaUega verk úr jámi. Þá em einnig sýnd aðföng og gjafir sem safninu hafa borist undanfarin ár, þar á meðal myndir frá árunum 1936-46 sem hafa verið í einka- eign í Danmörku. Sýningin, sem mun standa uppi í vetur, er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og öU þriðjudags- kvöld kl. 20-22. Mokka kaffi v/Skólavörðustíg Þessa dagana heldur Ásgeir Lárusson myndUstarsýningu á Mokka-kaffi og er þetta tiunda einkasýning hans. Á sýning- unni em 20 myndir, flestar unnar með gvass og akríUitiun og em þær allar fil sölu. Sýningin stendur fram eftir nóv- embermánuði. Nýhöfn, Hafnarstræti 18 Valgerður Bergsdóttir sýnir verk sín í Nýhöfn. Á sýningunni em stórar blý- teikningar á pappír. Teikningamar em flestar frá þessu ári og að hluta til unnar á vinnustofu í Listamiðstöðinni Sveaborg við Helsinki þar sem Valgerður dvaldist í sumar. Sýningin, sem er sölusýning, er opin frá kl. 14-18 um helgar og frá kl. 10-18 virka daga. Henni lýkur 15. nóv- ember. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18, eða eftir nánara samkomulagi í síma 52502. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis í útibúinu Álfabakka 14, Reykjavík, em til sýnis myndir eftir Ragnheiði Jóns- dóttur. Sýningin stendur til 10. nóvember nk. og er opin frá mánudegi til fimmtu- dags frá kl. 9.15-16 og fóstudaga frá kl. 9.15-18. Sýningin er sölusýning.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.