Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Page 8
24
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989.
7\
Mynd-
bönd
Umsjón.
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
V
v
Það eru litlar breytingar á listanum
núna. Efstu myndirnar sitja sem
fastast með fjörfiskinn Wöndu í
fyrsta sæti en sú mynd virðist ætla
að standa sig jafnvel á mynd-
bandamarkaðnum og í bíó.
Tvær nýjar myndir eru inn á list-
anum. Þar er snemmborin jóla-
mynd um hinn sanna anda jólanng
eftir gamali sögu eftir Dickens. Þar
fer Bill Murrey á kostum sem.nirf-
illinn sem vildi ekki sjá jólin. Gam-
anmynd um glæpamenn skýst inn
á listann og er til alls vís.
1. (1) A Fish Called Wanda
2. (2) Twins
3. (3) Die Hard
4. (8) Mississippi Burning
5. (4) Willow
6. (-) Scrooge
7. (6) Tequila Sunrise
8. (5) The Accused
9. (-) Married to the Mob
10.(9) Dead Ringers
★★
íl
Spæjari af lífi og sál
JUSTIN CASE
Útgefandi: Bergvík
Leikstjóri og handritshöfundur: Blake
Edwards. Aðalhlutverk: George Carlin,
Molly Hagan og Timothy Stack.
Bandarisk 1988. 71 min. Öllum leyfð.
Hér er um að ræða Walt Disney
mynd í „harðari" kantinum -
þ.e.a.s. á stöku stað má sjá lík og
byssur sem vanalega eru fjarri
heimi Disneys. Myndin er þó trú
uppruna sínum í flestu og ekki að
efa að þeir sem kjósa „mjúkar" fjöl-
skyldumyndir ættu að fmna hér
eitthvað við sitt hæfl.
Myndin segir frá atvinnulausum
dansara sem ræðst til einkaspæj-
ara sem nýbúið er að drepa. Gáfu-
legt? - En saman byrja þau þó að
leysa morðgátuna.
Blake Edwards hefur nú oftast
áður haldið sig við metnaðarfyllri
verk en reyndar hefur heldur hall-
að undan fæti hjá honum að undan-
fornu. Hann kann þó ýmislegt fyrir
sér og þó að atburðarásin sé hvorki
frumleg né nýstárleg þá er hún
ágætlega fjörleg. Leikarar standa
sig bærilega og er Carlin þeirra
fremstur.
-SMJ
★★!4
Mafíuklandur
ORIGINAL SIN
Útgefandi: Háskólabíó.
Aðalhlutverk: Ann Jillian, Robert Desid-
erio og Charlton Heston.
Bandarísk, 1989 - sýningartimi 98 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Geta mafíuforingjar átt við sams
konar vandamál að stríða og al-
menningur? Já, að vissu leyti, eins
og kemur fram í Original Sin þar
sem þemað er rán á barnabarni
mafíuforingja. Munurinn er aö þeir
leita ekki eftir aðstoð lögreglunnar.
Þeir hafa sín lögmál. Dauði yfír
barnaræningjanum er eini dómur-
inn sem kemur til greina.
í Origirial Sin kynnumst við í
byrjun ósköp venjulegri fjölskyldu,
eða það heldur eiginkonan Sharon
að íjölskylda hennar sé. Þegar
barni hennar er rænt skilur lög-
reglan hvorki upp né niður í mál-
inu. Fjölskyldan á enga peninga,
enga ríka ættingja og enga sýnilega
óvini.
Fjölskyldufaðirinn Matthew veit
þó betur. Hann hefur ávallt sagt
eiginkonu sinni að foreldrar hans
væru látnir. Þetta eru ósannindi,
því faðir hans er stór mafíukóngur
sem sonurinn hafði sagt skilið við
fyrir fullt og allt, en þegar lögreglan
bregst leitar hann til föður síns.
Original Sin er bæði spennandi
mynd og um leið flókin því aö lausn
málsins er í raun alls ekki fólgin í
að bamsránið upplýsist, eins og
væntanlegir áhorfendur munu
komast að. Gamh harðjaxlinn
Charlton Heston leikur mafíukóng-
inn og gerir það með reisn. Gerir
hann manneskjulegan á yfirborð-
inu en er kaldur sem steinn þegar
skehn er brotin. Það er helst að
Ann Jillian nái ekki alveg tökum á
Sharon og því er nokkuð um ofleik
hjá henni, en í heild er Original Sin
vel heppnuð sjónvarpskvikmynd.
-HK
Af svarthvítu stríði
MISSISSIPPI BURNING
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri: Alan Parker. Handrit: Chris
Gerolmo. Framleiðendur: Frederick
Zollo og Robert F. Collsberry. Aðal-
hlutverk: Gene Hackman og Willem
Dafoe.
Bandarísk 1988.122 mín. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Leikstjórinn Parker er án efa með
þeim metnaðarfyllri í kvikmynda-
heiminum en hingað til hefur hann
ófeiminn stokkið á milh mjög
óhkra viðfangsefna. Nægir að
nefna myndir eins og Midnight
Express, Bugsy Malone, The Wall
og Angel Heart. Síðasta mynd hans,
Angel Heart, var engan veginn
nógu Heilsteypt en hér er Parker
loksins farinn að vinna úr reynslu
sinni.
Hann tekur hér fyrir kynþáttam-
isrétti Bandaríkjanna áöur en um-
bótaaldan í kjölfar Marteins Luters
King náði að segja til sín. í sýslu
! 7ACA0EMY AWARD NOMINATiONS
* fiffit WILUM
HAGKMAN DAFOE
Mi HUtlMIItSfliHI
MISSISSIPPI
BURNING
mm S.!í MaiUlt MB i* « KHM HttEH WS
TtfiBRMKTMkáklEHfH SMkCm Wm ttt
MMKmKMMH SRWiaUIMmMáMkinmttt
MkiwsiMiiiMtafnaaiiMiHffinHi
einni í Mississippi eru þrír baráttu-
menn fyrir réttindum svertingja
drepnir. Lögreglan hefur ákaflega
takmarkaðan áhuga á að upplýsa
máhð. Því eru tveir menn á vegum
FBI sendir niður eftir. Þeir eru
ákaflega óhkir og vilja vinna á mis-
munandi hátt að málinu.
Aðal þessarar myndar felst í
vönduðu handriti, góðum leik en
þó ekki síst markvissri leikstjóm
Parkes sem er hér líklega að leik-
stýra sinni heilsteyptustu mynd.
Þó hún hafi ekki notið náðar við
óskarsverðlaunaafhendinguna,
eftir að hafa fengið sjö útnefningar,
telst hún tvímælalaust í hópi betri
mynda seinni ára.
Umfjöllunarefnið er krefjandi þó
nokkuð sé um hðið. Umfjöllun Par-
kes er ekki hafin yfír gagnrýni en
hún hefur komið úr báðum áttum
þannig að myndin hefur greinilega
höggvið á viðkvæma strengi. Sam-
leikur Hackmans og Dafoe er góður
og sannar Hackman hér en'n einu
sinni ágæti sitt. Reyndar eru flest
hlutverk vel skipuð enda myndin
unnin af miklum metnaði.
-SMJ
Sigurvilji og réttlæti
UNCONQUERED
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Dick Lowry.
Aóalhlutverk: Peter Coyote, Dermot
Mulroney og Tess Harper.
Bandarisk, 1988 - sýningartími 113 min.
Unconquered er byggð á sönnum
atburðum og segir okkur frá fjöl-
skyldu sem barðist fyrir réttlæti á
tveimur vígstöðvum í Montgo-
mery, Alabama 1962.
Fjölskyldufaðirinn er rikissak-
sóknari Alabama, Richard Flow-
ers. Hann komst í embætti með
vilja ríkisstjórans George Wahace,
en snerist fljótlega gegn honum í
mannréttindarmálum og varð einn
helsti talsmaður mannréttinda í
Montgomery, borg sem var gegn-
sýrð svertingjahatri.
Það er ekki að sökum að syrja að
hann eignast marga hatursmenn
sem reyna með ótal brögðum að
koma honum úr embætti. Þeim
tekst það og meira til því þeir koma
honum í fangelsi.
Á hinn bóginn er sögð saga sonar
Flowers, Rich, sem ekki var burð-
ugur til íþrótta í æsku en stálvilji
og áhugi á íþróttum gerir hann að
PETER COYOTE
DER.MÖT MILRONEV
TESS HARPER
IX.UIM!
BtDXIMC
WITH HATRED.
THEV.Hi.'ST
STAND tMTED...
f WWIT’ff
mmsmí
berst fyrir mannréttindum. Sá vin-
ur Ricks þolir samt ekki álagið, sem
þessu fylgir, jafn vel og Rick.
Unconquered er vel gerð kvik-
mynd sem segir sögu fjölskyldu
sem er trú sannfæringu sinni í
blíðu og stríðu. Handritið er’ágæt-
lega skrifað en þó ekki laust við
væmni. Hinu mikla negrahatri,
sem ríkti á þessum árum í Alabama
og nágrannafylkjunum, eru gerð
sæmileg skil, ádeilan hefði samt að
ósekju mátt vera skarpari. Peter
Coyote er mjög góður í hlutverki
ríkisstjórans en Dermot Mulroney
skortir nokkuð til að vera sannfær-
andi í hlutverki sonarins.
-HK
einum besta grindahlaupara
Bandaríkjanna á þessum tíma.
Braut hans að settu marki er þó
þyrnum stráð því enginn vill eiga
samskipti við son ríkissaksóknar-
ans. Hann eignast aðeins tvo vini,
stúlku og dreng, sem eins er ástatt
um, en faðir hans er ritstjóri sem
Fyrirgefning syndanna
ABSOLUTION
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri: Anthony Page. Handrit: Ant-
hony Shaffer. Aóalhlutverk: Richard
Burton, Dominic Guard og Dai Bradley.
Bresk 91 min. Bönnuö yngri en 16 ára.
Það er þarft fyrir minningu Ric-
hards Burtons að gefa út þessa
mynd því einhvern vegin er það svo
að allt of fáar af hans „betri“ mynd-
um hafa verið hér á boðstólum.
Meira hefur borið á. „peninga-
KfCHAKD BUm ON
-HiíA. ItCAiiNk. ■ OM ifNAOtt'.
WIMttV M lk • f-ít t> fOAitkt'rt l\
>.<>») *.iu»n t.sat 1.1«
myndum“ hans þar sem hann hef-
ur stokkið inn í metnaðarlaus hlut-
verk sem gefa mikið af sér á tíma-
einingu. Honum veitti sennilega
ekki af til að standa undir viskí-
reikningunum.
Myndin gerist í kunnuglegu um-
hverfi fyrir íslenska sjónvarps-
glápara - nefnilega á breskum
heimavistarskóla. Þar eru breskir
unglingar aldir upp í umhverfi sem
virðist í engum tengslum við tím-
ann. Aðalsöguhetjan er efnispiltur
sem hefur náið samband við læri-
föður sinn. Þegar hann síðan verð-
ur fyrir utanaðkomandi áhrifum
er fjandinn laus og piltarnir hefja,
hættulegan leik sem lærifaðirinn
skilur ekkert í.
Sálfræðiþátturinn er nokkuð for-
vitnilegur en einnig götóttur, sérs-
taklega þegar hann kemur ekki al-
veg heim og saman við moröhlu-
tann. í lokin situr áhorfandinn uppi
með lausn sem engan veginn var
hægt að sjá fyrir en kemur eigi að
síður að mestu saman við fram-
vindu myndarinnar. Burton fer hér
fyrir góðum hópi leikara en sérs-
taklega má minnast á frammistöðu
Bradleys í hlutverki fatlaða pilts-
ins. Hann er vægast sagt ógnvekj-
andi í hatri sínu í lokin. _SMJ
Stryker í vandá
DIRTY DIAMONDS
Útgefandi: Laugarásbíó.
Leikstjóri: Tony Wharmby.
Aðalhlutverk, Burt Reynolds.
Bandarísk, 1989-sýningartimi 92 mín.
Dirty Diamonds er þriðja myndin
þar sem Burt Reynolds leikur
einkalögguna Stryker. Eins og í
fyrri myndum á hann í vandræð-
um með fyrrverandi eiginkonu
sína. Nú bætast við vandamál gam-
allar frænku sem er farin að færa
sig heldur betur upp á skaftið.
Meira er lagt upp úr gamansemi
í Dirty Diamonds heldur en í fyrri
myndum og þótt Reynolds sýni
ágæta takta er ekki sömu sögu
hægt að segja um meðleikara hans,
enda er handritið slakt. Á móti
vega ágæt hasaratriði og sólin á
Florida.
-HK