Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1989, Page 1
Nær hundrað titlum
fleira en í fyvra
Nú lætur nærri aö fimm hundruð
bækur séu á bókamarkaðnum eða
um eitt hundrað fleiri en í fyrra.
Áberandi er að endurminningum
og viðtalsbókum hefur fjölgað en
það skýrir þó ekki aukmnguna.
Bækur í þessum flokki eru flestar
gefnar út af „grónum" forlögum en
bókum frá þeim hefur ekki fjölgað
að marki. Þau stærstu, eins og Ið-
unn og Mál og menning, halda sínu
striki en hjá öðrum má greina sam-
drátt.
Fjölgun titla kemur fyrst og
fremst fram í því að fleiri gefa nú
út bækur á eigin vegum en áður
og forlög sem hafa haft hægt um
sig lengi reyna nú fyrir sér af aukn-
um krafti. Vinnsla bóka og prent-
kostnaður hefur lækkað og því geta
einstaklingar gefið út bækur án
þess að hafa úr verulegu tjármagni
að spila.
Það er fyst þegar kemur að aug-
lýsingunum að munurinn kemur í
ljós. Þá taka grónu forlögin foryst-
una og veija töluverðum hluta út-
gáfukostnaðarins í auglýsingar.
Hinir verða að treysta á að bækur
þeirra spyijist vel út.
Stór hluti af útgáfubókum ein-
stakhnga eru ljóðabækur og smá-
sögur. Þá verður það æ algengara
að menn gefi út sínar skáldsögur
sjálfir. Bækur í þessum flokkum
seljast að jafnaði illa og því hafa
forlögin takmarkaðan áhuga á
þeim nema höfundarnir séu þekkt-
ir.
í ár er svo að sjá sem þjóðlegur
fróðleikur hafi nánast horfið af
markaðnum eftir að hafa um ára-
bil verið mjög áberandi. Á móti
kemur aö bókum um dulræna
reynslu og dulspeki hvers konar
fjölgar óðfluga. -GK
Ég heiti
ísbjörg
Eg er ljón
Ég heiti ísbjörg • Ég er ljón. Ung
stúlka situr í fangelsi fyrir
á ástmanni sínum. Á tólf
stundum rekur hún örlög sín
fyrir lögfræðingi.
í ritdómi í Morgunblaðinu
segir: „Vigdís reynir á þanþol
allra skilningarvita okkar í sögu
ísbjargar og skilur lesandann
eftir í miskunnarlausri óvissu.
í óvissu sem er full af grimmd
og fegurð.“
IÐUNN