Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Síða 4
20
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1990.
Iþróttir
Dýrmæt stig
Eyjamanna
- er þeir unnu HK, 25-20, 1 Eyjum
Ómar Garöaisson, DV, Eyjum:
Staöan á íslandsmótinu í 1. deild
karla er þannig eftir leiki helg-
arinnar:
KA-Valur...............27-33
ÍR-Stjaman.............17-19
Grótta-Víkingur........20-18
ÍBV-HK.................25-20
Valur......11 9 1 1 284-240 19
FH.........10 8 1 1 271-230 17
Stjarnan.. 11 7 2 2 253-221 16
KR.........10 6 2 2 223-219 14
ÍR.........11 4 2 5 243-239 10
ÍBV....... 11 3 3 5 259-265 9
KA.........11 3 1 7 248-270 7
Grótta.....11 3 1 7 221-247 7
Vikingur.il 1 3 7 238-261 5
HK.......11 1 2 8 225-273 4
• FH-og KR leika síðasta leikU.
umferðar á miðvikudagskvöld.
I.deild kvenna
Staðan í 1. deild kvenna eftir leiki
helgarinnar er þessi:
Stjarnan-Fram..........19-21
Grótta-Haukar..........17-16
FH-Valur...............23-22
Fram......12 11 0 1 235-177 22
Stjarnan.12 10 0 2 275-202 20
Víkingurll 7 0 4 202-175 14
FH........12 7 0 5 213-222 14
Valur.....12 4 1 7 230-231 9
Grótta....12 4 1 7 220-222 9
KR........11 3 0 8 210-258 6
Haukar.;.12 0 0 12 156-304 0
Eyjamenn unnu dýrmætan sigur á
HK í Vestmannaeyjum á laugardag-
inn var. Lokatölur leiksins urðu
25-20 en í hálfleik var staðan jöfn,
13-13. HK er því enn í neðsta sætinu
í 1. deild en ÍBV hefur fimm stiga
forskot á Kópavogsbúana.
Framan af var leikurinn í jafnvægi
en glöggt mátti sjá að taugaveiklun
ríkti hjá báðum liöum. Hún hvarf
þegar á leikinn leiö og þó öllu meir
hjá Eyjamönnum sem náðu mest
þriggja marka forystu í fyrri hálíleik.
Smám saman sóttu HK-menn í sig
veðrið og náðu aö jafna metin þegar
skammt var til loka fyrri hálíleiks-
ins.
Eyjamenn mættu öllu ákveðnari til
leiks í síðari hálfleik og náðu brátt
forystu, 17-14. Tvær sóknir í röð fóru
í súginn hjá HK og eftir það var aldr-
ei spurning um hvorum megin sigur-
inn hafnaði. HK skoraði ekki mark
í heilar sex mínútur og Eyjamenn
gengu á lagiö. Á mikilvægu augna-
bliki í síðari hálfleik varði Sigmar
Þröstur vítakast og það var nokkuö
sen HK-menn máttu ekki við.
„Ég er ánægður með stigin tvö út
úr þessari viðureign. Þaö er alltaf
erfitt að leika þegar margir eru í
hnapp í deildinni enda hvert stig afar
dýrmætt. Sterkan svip á þennan leik
setti jólafríið sem hefur staðið yfir í
fimm vikur. Þetta kemur haröast
niður á liðunum utan Reykjavíkur-
svæðisins, lið utan þess svæðis geta
ekki orðið sér úti um æfingaleiki á
meðan. Það á að keyra íslandsmótið
á mun meiri hraða en gert er, það
væri miklu nær að leika tvo leiki í
viku,“ sagöi Hilmar Sigurgislason,
þjálfari og leikmaður ÍBV, í samtali
við DV eftir leikinn í Eyjum á laugar-
dag.
Sigurður Gunnarsson og Sigmar
Þröstur voru bestu menn Eyjaliðsins
í leiknum. Sigurður Friðriksson
komst einnig vel frá leiknum. Vörn
liðsins var ekki nógu sannfærandi í
fyrri háifleik en þéttist til muna í
þeim síðari.
Magnús Sigurðsson var mest áber-
andi í liði HK en Bjarni Frostason
varði á köflum vel.
• Dómarar leiksins voru Árni
Sverrisson og Aðalsteinn Örnólfsson
og komust þeir þokkalega frá dóm-
gæslunni.
• Mörk ÍBV: Sigurður Gunnars-
son 9/3, Sigurður Friðriksson 6, Guð-
mundur Albertsson 3, Sigbjörn
Óskarsson 2, Hilmar Sigurgíslason
2, Guðfinnur Kristmannsson 2,
Óskar Freyr Brynjarsson 1. •
• Mörk HK: Magnús Sigurðsson
9/5, Óskar Elvar Óskarsson 3/1,
Gunnar Már Gíslason 2, Róbert Har-
aldsson 2, Ásmundur Guðmundsson
2, Eyþór Guðjónsson 1, Ólafur Pét-
ursson 1.
DV-mynd S
Fram stendur vel
- í 1. deild kvenna eftir 19-21 sigur gegn Stjömunni
Um helgina fóru fram þrír leikir í
1. deild kvenna í handknattleik. Á
fóstudagskvöldið áttust við Grótta og
Haukar á Seltjarnarnesi og lauk
þeirri viðureign með sigri Gróttu,
17-16. Á laugardaginn fóru fram tveir
leikir. í Garðabæ tók Stjarnan á
móti Fram og vann Fram með
tveggja marka mun eða 21-19 og síð-
an tók FH á móti Val í Hafnarfirði
og sigruðu heimamenn, 23-22.
Fram hefndi ófaranna frá fyrstu
umferð og sigraði Stjörnuna, 21-19,
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
9-8 fyrir Fram. Leikurinn var mjög
jafn og skemmtilegur allan tímann
og var mikil stemning í „HöUinni" í
Garðabæ. Fram var alltaf fyrra til
að skora en Stjaman náði þó yfirleitt
að jafna leikinn en það dugði henni
ekki því Framliðið var sterkari á
lokamínútunum. Leiknum lauk eins
og fyrr segir með tveggja marka sigri
Fram, 21-19. Guðríður og Ingunn í
liði Fram fengu að sjá rauöa spjaldið
þegar lítið var eftir af leiknum en
þeim hafði báðum verið vísað út af
þrisvar sinnum. Guðríður var tekin
úr umferð mestallan tímann en þrátt
fyrir það gerði hún 12 mörk. Kolbrún
varði mjög vel og lokaði hreinlega
markinu fyrir homamönnum
Stjömunnar. Hjá Stjörnunni vora
það útispilararnir Erla, Ragnheið-
ur og Herdís sem vora í aðalhlut-
verki.
• Mörk Stjömunnar: Ragnheiður
9/5, Erla 3, Herdís og Ásta 2 hvor,
Helga, Guðný Guðnad. og Ingibjörg
1 mark hver.
• Mörk Fram: Guðríður 12/7, Ósk
og Sigrún 3 hvor, Arna 2, Björg 1
mark.
• Grótta vann nauman sigur gegn
Haukum, 17-16. Mörk Gróttu: Laufey
7/3, Elísabet 4, Sigríður 4/3, Bryn-
hildur og Sara 1 mark hvor. Mörk
Hauka: Björk 7/2, Ragnheiður G. 4,
Halldóra 3 og Margrét 2 mörk.
• FH vann Val með eins marks
mun, 23-22. Mörk FH: Rut 8/1, Björg
7, Eva og Berghnd 2 mörk, Amdís
2/2, Kristín og Sigurborg 1 mark
hvor. Mörk Vals: Margrét 8/4, Guð-
rún 4, Una 3, Berglind og Katrín, 2
mörk hvor, Ásta 1 mark.
-ÁBS/BB
;
/■
• Birgir Sigurðsson fékk ekki margar línusendingar frá félögum sínum í Víkingi í U
Rafmagna
þegar Grótta sigraði Víking,
„Það má með sanni segja að þetta
hafl verið kærkominn stig. Það var orð-
ið langt síðan aö við unnum síðast leik
í deildinni. Leikurinn var gífurlega
spennandi undir lokin en við reynd-
umst sterkari á taugum. Vonandi gefur
þessi sigur liðinu byr undir báða vængi
því við þurfum svo sannarlega á fleiri
stigum að halda,“ sagði Árni Indriða-
son, þjálfari Gróttu, í samtali við DV
eftir leik Gróttu og Víkings í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik á Sel-
tjarnarnesi á laugardaginn var. ís-
landsmótið hófst þá aö nýju eftir fimm
vikna frí.
Grótta sigraði í leiknum með 20
mörkum gegn 28 eftir að staðan í hálf-
leik hafði verið jöfn, 10-10.
Leikur liðanna haíði óhemjumikla
þýðingu fyrir bæði hðin enda þau með
fallhættudrauginn í eftirdragi. Loka-
mínútur leiksins voru rafmagnaðar og
voru stuðningsmenn liðanna með önd-
ina í hálsinum aht þar til að dómararn-
ir flautuðu til leiksloka. Taugar Vík-
inga brustuá lokamínútunum en þegar
tíu mínútur voru til leiksloka virtust
Víkinga hafa leikinn í hendi sér eftir
að hafa verið undir lengst af.
Stefán Arnarson kom Seltirningum á
bragðið og Davíð Gíslason skoraði ann-
að markið glæsilega úr horninu. Vík-
ingar áttuðu sig brátt á ástandinu og
jöfnuðu leikinn. Síðan höfðu Gróttu-
menn ávallt forystuna í hálfleiknum,
náðu mest fiögurra marka forystu, 9-5.
Á þessum. leikkafla sýndi Sigtryggur
AlberSson, markvörður Gróttu, hreint
stórkostlegan leik. Sigtryggur lokaði
markinu og varði oft á undraverðan
hátt.
Þegar á fyrri hálfleikinn leið hristu
• Brynjar Harðarson skoraði 10
mörk fyrir Val gegn KA á Akureyri.
20 m
- Valsmenn skoru
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það var ekki burðugur handbolti sem
íslandsmeistarar Vals og KA buðu
áhorfendum upp á er liðin mættust á
Akureyri um helgina. KA-menn virtust
ekki átta sig á því fyrr en í síðari hálf-
leik að jólaleyfið er búið og Valsmenn
löbbuðu sig þá út og inn um vörn þeirra
að vild og skoruöu 20 mörk gegn 12. í
síðari hálfleik slökuðu Valsmenn síöan
á og KA-menn náðu' nokkrum sinnum
að minnka muninn í 2 mörk áður en
lauk en lokatölur urðu 33-27 fyrir Val
eða mark á mínútu að jafnaði.
KA lék ekki vörn í fyrri hálfleik og