Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Side 5
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1990.
21
íþróttir
20-18, á Seltjarnamesi í miklum fallbaráttuslag
Víkingar af sér slenið og söxuðu jafnt
og þétt á forskot Gróttu. Guðmundur
Guðmundsson, hinn bráðskemmtilegi
leikmaður og þjálfari Víkings, jafnaði
glæsilega úr hraðaupphlaupi á síðustu
sekúndum hálfleiksins.
Síðari hálfleikinn hóf Guðmundur
með að skora og koma þar með Víking-
um yfir í fyrsta skipti í leiknum. Sig-
geir Magnússon kom Víkingum yfir,
10-12, og virtist sem Víkingar væru að
taka leikinn í sínar hendur en það var
öðru nær og Grótta jafnaöi, 14-14. Upp
frá þessu var leikurinn hnífjafn og
spennan í algleymingi. Víkingar náðu
þó aftur tveggja marka forystu, 15-17,
en þá tók Sigtryggur upp fyrri leik og
lokaði markinu.
Grótta hafði eins marks forystu þegar
skammt var til leiksloka en Víkingar
áttu þó alla möguleika á að jafna.
Gróttumenn börðust eins og ijón í vörn-
inni og tókst að halda fengnum hlut.
Gróttumenn fógnuðu sigrinum að von-
um innilega í leikslok.
Sigtryggur Albertsson átti frábæran
leik í markinu, sömuleiðis var Halldór
Ingólfsson sterkur. Það var þó baráttan
öðru fremur sem færði Gróttu sigurinn
í lokin. Varnarleikurinn var einnig
sterkur og ekki má gleyma þætti áhorf-
enda en þeir studdu lið sitt vel og tóku
þátt í sigrinum.
Víkingar eru nú í næstneðsta sæti
deildarinnar, nokkuð óvenjuleg staða
því Víkingar hafa um árabil haft á að
skipa einu sterkasta handknattieiksliði
landsins. Miklar mannabreytingar
hafa komið hart niöur á gengi liðsins í
vetur. Víkingar geta þó að sumu leyti
engum um kennt hvernig fór að þessu
sinni. Um tímá í síðari hálfleik höfðu
þeir leikinn í sínum höndum en óða-
got, mistök og vilji til að sigra varð lið-
inu að falli. Bjarki Sigurðsson stendur
ávallt upp úr í liðinu og Guðmundur
Guðmundsson var einnig ágætur.
• Kjartan Steinbeck og Einar Sveins-
son dæmdu leikinn og fórst það ágæt-
lega úr hendi.
• Mörk Gróttu: Halldór Ingólfsson
6/1, Stefán Arnarson 4, Davíð Gíslason
3, Willum Þórsson 3, Svavar Magnús-
son 2, Páli Björnsson 1, Friðleifur Frið-
leifsson 1.
• Mörk Víkings: Bjarki Sigurösson'
5, Árni Friðleifsson 5/5, Ingimundur
Helgason 2, Guðmundur Guðmundsson
2, Magnús Guðmundsson 1, Karl Þrá-
insson 1, Siggeir Magnússon 1, Birgir
Sigurðsson 1.
-JKS
örk á 30 mínútum
öu 20 mörk í fyrri hálfleik er þeir unnu KA, 27-33, á Akureyri
Valsmenn nýttu sér þaö vel. Þeir skor-
uðu nánast úr hverri sókn enda varði
Axel Stefánsson, í marki KA, aðeins eitt
skot (í fyrri hálfleik), var skihnn eftir
algjörlega varnarlaus. Valdimar Gríms-
son fór hamfórum og skoraði bæði úr
horninu og eftir hraðaupphlaup og ekki
stóð steinn yfir steini hjá KA.
Það örlaði á varnarleik hjá KA í síð-
ari hálfleiknum, en Valsmenn spiluðu
þá með hangandi haus. Munurinn
minnkaði jafnt og þétt og staðan var
23-25 þegar 10 mín. voru til leiksloka.
En þá hættu KA-menn í vöminni,
Brynjar Harðarson labbaði þar út og inn
og sigur Vals var aldrei i hættu undir
lokin.
Handboltinn, sem sýndur var, er ekki
til útflutnings og Valsliðið sýndi ekkert
sérstakt í þessum leik nema mjög vel
útfærð hraðaupphlaup þar sem horna-
mennirnir Valdimar og Jakob Sigurðs-
son voru aðalmenn. Þeir áttu báðir góð-
an leik en aðrir leikmenn Vals voru
slakir. Sumir þeirra virðast líka hta
stórt á sig og einbeita sér að nöldri í
dómurum eins og Finnur Jóhannesson
og er erfitt að sjá að hann hafi efni á
slíku.
Sömu sögu er að segja um lið KA, þar
var enginn mjög góður. Sigurpáll Aðal-
FyrstataplR
á heimavelli
' - er Stjaman vann ÍR 1 Seljaskóla, 17-19
Breiðhyltingar eru
meðframtíðarlið
Það hefur lengi verið sagt um lið ÍR
að það sé framtíðarlið og eru það orð
að sönnu. Liðið hefur komið mest á
óvart í deildinni í vetur og í liðinu
er aragrúi góðra leikmanna. Liðiö
leikur mjög sterkan varnarleik og
grimman og fyrir aftan góða vöm
stendur einn efnilegasti markvöröur
landsins í dag, hinn 19 ára gamli
Hallgrímur Jónasson sem varði af
snilld gegn Stjörnunni. Aö öðru leyti
var ÍR-liðið jafnt að getu í leiknum.
Það hafði mikið að segja 1 hörðum
leik og jöfnum sem þessum að ÍR
mistókst að skora úr þremur vítum,
Brynjar varði tvö og tréverkið sá um
það þriðja.
• Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 4/3,
Matthías Matthíasson 3, Magnús Ól-
afsson 3, Frosti Guðlaugsson 3, Sig-
fús Orri Bollason 2, og Róbert Rafns-
son 2.
• Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgis-
son 7/1, Skúli Gunnsteinsson 5, Sig-
urður Bjarnason 4, Hafsteinn Braga-
son 2 og Axel Björnsson 1.
• Leikinn dæmdu þeir Egill Már
Markússon og Kristján Sveinsson.
Dæmdu þeir vel í fyrri hálfleik en
illa í þeim síðari. Má með sanni segja
að heimamenn hafl ekki hagnast á
dómgæslu þeirra á lokasprettinum.
-SK
steinsson var þó sterkur í sókninni á-
meðan hans naut við en Gunnar Kjart-
ansson sendi hann í bað fljótlega í síð-
ari hálfleik og var það mjög harður
dómur. Liðið saknaði Péturs Bjarnason-
ar leikstjórnanda sem var í leikbanni
og munaði mikið um það.
Mörk Vals: Brynjar Harðarson 10(4),
Valdimar Grímsson 9, Jakob Sigurðs-
son 7, Jón Kristjánsson 3, Júlíus Gunn-
arsson 2, Finnur Jóhannesson 2.
Mörk KA: Sigurpáll Aðalsteinsson 6,
Erhngur Kristjánsson 5(2), Guðmundur
Guðmundsson 4, Karl Karlsson 4, Jó-
hannes Bjamason 4(1), Friðjón Jónsson
3, Bragi Sigurðsson 1.
• Sigfús Orri Bollason, ÍR-ingur, reynir markskot að marki Stjörnunnar í.
leik liðanna i Seljaskóla á laugardag. Stjörnumenn höfðu betur og ÍR-ingar
máttu bíta í það súra epli að tapa fyrsta heimaleik sínum á keppnistimabilinu.
DV-mynd Brynjar Gauti
leiknum. Ekki kom það þó að sök á
upphafsmínútum síðari hálfleiks,
enda sóknarleikur Stjörnunnar
vandræðalegur á köflum. Staðan var
jöfn, 10-10,11-11,13-13 og þegar hér
var komið sögu kom afleitur kafli
hjá ÍR-ingum sem réð úrslitum í
þessum leik. Stjörnumenn náðu að
skora tvö mörk í röð og komast yfir
í fyrsta skipti og staðan breyttist í
13-15. Eftir þessa útkomu áttu ÍR-
ingar sér aldrei uppreisnar von í
leiknum og sigur Stjörnunnar var
nokkuð öruggur í lokin. Þar með
beið hið efnilega lið ÍR sinn fyrsta
ósigur í vetur á heimavelli sínum og
Stjörnumönhum tókst það sem eng-
um hafði áður tekist í vetur, að leggja
ÍR að velli í Seljaskóla.
Betur má ef duga
skal til titils
Lið Stjörnunnar lék þokkalega í
þessum leik. Vörnin og markvarslan
var í lagi en sóknarleikurinn ekki.
Brynjar Kvaran varði mjög vel en
endalausar kvartanir hans í dómara
setja leiðinlegan blett á leik hans.
Hafsteinn Bragason reyndist drjúgur
Garðbæingum í þessum leik og skor-
aði þýðingarmikil mörk en einnig
var Gylfi Birgisson sterkur. Sigurður
Bjarnason var slakur í þessum leik
og vantar allan aga í leik hans. Það
á að vera auðvelt að laga og þá er
Sigurður í fremstu röð en fyrr ekki.
ðar lokamínútur
Stjörnumönnum tókst það
sem engum hefur tekist
í síðari hálfleik náðu leikmenn ÍR
ekki að halda einbeitingu í varnar-
íiknum gegn Gróttu á laugardag og skoraði aðeins eitt mark sem hér er í fæðingu.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Við vorum taugaveiklaðir í lokin
og yngri mennirnir í liðinu hafa ekki
enn áttað sig á því að þeir eru orönir
meira en efnilegir. Það vantar meiri
trú í liðið en ég held að þetta komi
allt saman. Við áttum alveg að geta
unnið Stjörnuna og það vó þungt að
glutra niður þremur vítaköstum,"
sagði Guðmundur Þórðarson, annar
af þjálfurum ÍR, í samtali við DV eft-
ir að ÍR hafði beðið sinn fyrsta ósigur
á heimavelli sinum í Seljaskóla á
laugardag. Stjarnan sigraði með 17
mörkum gegn 19 eftir að staðan í leik-
hléi hafði verið jöfn, 8-8.
ÍR-ingar virtust ætla að selja sig
dýrt í Seljaskóla á laugardag og eftir
að staðan hafði verið jöfn í byrjun,
1-1, komst ÍR í 5-2 en náði ekki að
fylgja þessari góðu byrjun eftir.
Varnarleikur beggja liða var mjög
góður í fyrri hálfleik og markverð-
imir, Brynjar Kvaran í Stjörnu-
markinu og Hallgrímur Jónasson í
ÍR-markinu, fóru á kostum.